Morgunblaðið - 01.06.1985, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 01.06.1985, Qupperneq 17
frekari ákvarðanir fram á nýjan formannafund, eftir Dagsbrúnar- aðalfundinn. Karl Steinar til- kynnti þá að hann myndi flytja tillögu sína á ný á formannafund- inum í gær. Jón Karlsson lét blekkjast Stuðningsmenn Guðmundar gegn viðræðum við VSÍ eru fáir í framkvæmdastjórn VMSÍ eins og að framan greinir og í viðtölum við framkvæmdastjórnarmenn eftir fundinn á þriðjudag kom fram, að menn telja sig greina þar ákveðnar pólitískar línur. Jón Kjartansson og Sigrún Clausen eru talin standa nærri stjórn- málaskoðunum Guðmundar J., ennfremur Kolbeinn Friðbjarn- arson í Siglufirði, sem stutt hefur Guðmund. Þá vakti afstaða Al- þýðuflokksmannsins Jóns Karls- sonar á þessum fundum athygli. Karl Steinar Guðnason varaformað- ur VMSf hefur verið nefndur sem hugsanlegur eftirmaður Guðmundar J. Guðmundssonar í formannsssti í Verkamannasambandinu, en Guð- mundur lýsti því yfir á síðasta þingi þess, að hann myndi ekki gefa kost á sér að nýju í haust. Hann var meðflutningsmaður að tillögunni á formannafundi VMSÍ 19. mai en stóð síðan með meiri- hlutanum í framkvæmdastjórn- inni á þriðjudag. t viðtali við Mbl. sl. fimmtudag segir Jón fyrri af- stöðu sína hafa byggst á því, að Guðmundur J. hafi blekkt sig. Forustumenn og þingmenn Al- þýðubandalagsins komu saman í húsakynnum Dagsbrúnar eftir að yfirlýsing Jóns Karlssonar og af- staða meirihluta framkvæmda- stjórnar birtist í Mbl. á fimmtu- dagsmorgun. Guðmundur J. sagði í viðtali við blaðamann, að hann hefði sjálfur ekki setið þann fund. Þá kom fram í viðtölum við verka- lýðsleiðtogana, að menn telja að Alþýðuflokksmenn hafi ákveðið að standa stíft saman um að ganga til viðræðna við VSÍ og reyna að ná samningum. Sumir vilja meina, að Karl Steinar hafi rætt við Jón Karlsson undir fjögur augu milli VMSÍ-fundanna. Þama megi því greina mjög ákveðnar pólitískar lfnur. Forvitnilegir gestir á aðalfundi Dagsbrúnar Aðalfund Dagsbrúnar sem hald- inn var í fyrrakvöld í Súlnasal Hótel Sögu sóttu aðeins rétt rúm- lega eitt hundrað manns. Það vakti athygli að rétt áður en fund- urinn var settur gengu saman í salinn þau Jón Kjartansson frá Vestmannaeyjum, Sigrún Clausen frá Akranesi og Kolbeinn Frið- bjarnarson frá Siglufirði, en þau sátu fundinn sem gestir. Þeir Öss- ur Skarphéðinsson ritstjóri Þjóð- viljans og Haukur Már Haralds- MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JtJNl 1985 t91' 17 son blaðafulltrúi Dagsbrúnar höfðu á orði, er þremenningarnir tóku sér sæti á næsta borði við þá, að umráðasvæði Dagsbrúnar væri aldeilis að stækka í skjótri svipan. Guðmundur J. Guðmundsson og Þröstur Ólafsson framkvæmda- stjóri Dagsbrúnar höfðu orð fyrir stjórninni í umræðum um stöðu kjaramála og gerði Þröstur grein fyrir tillögu þeirri sem samþykkt var í lok fundarins og sagt er frá í frétt Mbl. í dag. Nokkuð kvað við annan tón í Guðmundi, en fram að fundinum hvað varðar viðræður við VSÍ, en hann lét ekki af skömmum í garð VSÍ. Sagði hann m.a. er hann flutti skýrslu stjórn- ar ekki er hægt að bera for- ustumönnum VSÍ það á brýn að þeir hafi verið samvinnuþýðir. VSÍ hefur beinlínis svikið og dreg- ið samninga sem handsalað loforð var fyrir á timabilinu frá síðustu samningum." Þröstur hafði fram- söguerindi um kjaramálin og aðal- röksemd hans fyrir því að gengið yrði til viðræðna við VSt var sú, að ef Dagsbrún sæti eftir færu önnur félög fram úr, t.d. Verzlun- armannafélagið, sem áreiðanlega myndi semja á næstu dögum, þannig að það yrði þá komið með 13—19% hærra kaup en Dagsbrún í árslok. Þröstur sagði tilboðið ekki af hinu góða, en tillagan gerði ráð fyrir að reynt yrði að ná fram ýmsum grundvallarbreytingum. Hann nefndi nokkur atriði sem hann sagði hvað verst, til dæmis að lokað væri á alla sérsamninga og að með því væru allar opnunar- leiðir nánast ófærar. Þá sagði hann útreikninga VSt um verð- bólguþróunina ekki rétta. Lokaniðurstaða hans var sú, að ef gengið yrði að samningnum yrði verkalýðshreyfingin aftur í ná- kvæmlega sömu sporum í lok næsta árs. Þá kæmu forustumenn VSÍ aftur og segðu, mikil ósköp er að sjá þetta, þið hafið misst 5%, við verðum að bæta úr því. t umræðum um stöðu kjaramála tóku nokkrir til máls, en umræður voru efnislega litlar um tilboð VSÍ. Mátti greina nokkra óánægju í málflutningi nokkurra ræðu- manna í garð forustu Dagsbrúnar. Fundinum lauk með því að tillag- an var samþykkt samhljóða. Reiknað var með fyrir fund for- manna VMSt í gær, að niðurstaða þess fundar yrði í samræmi við vilja meirihluta framkvæmda- stjórnarfundar fyrr í vikunni. Dulbúin hótun í garð ASÍ? Verkalýðsleiðtogar sem rætt var við í gær töldu að Guðmundur J. hefði gefið nokkuð eftir í tillögu sinni á Dagsbrúnarfundinum, en hann héldi þar samt öllu opnu. I niðurlagi þeirrar tillögu segir, að fundurinn ítreki skyldur félagsins til að semja sjálft um kaup og kjör Dagsbrúnarmanna. t þessu felst ódulin óánægja flutningsmanna með leiðandi öfl verkalýðshreyf- ingarinnar, sem vilja samninga- viðræður, og viðmælendur Mbl. úr hópi verkalýðsleiðtoga sögðu í gær, að túlka mætti þessa setn- ingu sem vissa hótun. Guðmundur J. sagði sjálfur i viðtali við grein- arhöfund, að þessari setningu væri beint gegn ASÍ. Nokkrir verkalýðsleiðtogar höfðu orð á því að VSÍ hefði sýnt mikla snilli með tilboði sínu og tekið með því frumkvæði sem ruglað hefði verkalýðsleiðtoga í ríminu. Samlíking Karls Steinars Guðnasonar á verkalýðshreyfing- unni og gömlu gigtveiku trölli seg- ir sína sögu. Þjóðsögurnar herma að afdrif margra slíkra vætta hafi orðið sú að daga uppi er fyrstu sólargeislarnir náðu til þeirra. Hvað verður um þetta „tröll" kem- ur væntanlega í ljós í dögun, þ.e. þegar ljóst verður um framhald málsins. 0 jineis l’ílll L/innB*31 3 vikur í ólympíuborginni Brottför 24. júlí Kennsla í öllum hugsanlegum og óhugsan- legum íþróttagreinum, hressandi utivist, spennandi frönsk menning, glampandi sólskin og geislandi líf og fjörl Þessi ferð er einstök i sinni röð. Þú slæst í för með Jónínu Benediktsdóttur og Jóni Þáli Sigmarssyni og kynnist sannkölluðum ævintýraheimi hollrar hreyfingar og skemmtilegra íþrótta; McGill háskólanum í Montreal í Kanada Þar nýtur þu gistingar og fagurs umhverfis og velur það sem þér hentar af tugum íþróttagreina þar sem þú færð handleiðslu færustu kennara og afreksmanna. Þess á milli baðarðu þig í sólinni, dólará milli kaffihúsa, veitingastaða og verslana, upplifir heimsviðburði í listalífinu, gleymir þér í skemmtigörðum eða tívolíi eða lætur þig einfaldlega fljóta í sundlauginni skammt frá háskólanum, hugsandi um ókomin afrekog ævintýri. Það gildireinu hvort þú ert í góðri líkamlegri þjálfun eða ekki. Þú velur það sem þér hentar og verður aldrei minna en meistari I hollri hreyfingu! Þetta er frábært tækifæri fyrir hresst fólk af öllum stærðum og gerðum, einstaklinga, fjölskyldur, starfsfélaga og hópa. • 4 EIWl* |U1 úr nógu er að velja: Yoga Karate Aerobic vaxtarrækt Júdó Aeroblc dans Slgllngar Golf Sund Seglbrettaslgllngar Tal Chl Jassbailett ____ Lelkflml sjálfsvðrn fyrlr konur veggtennls \i Skylmlngar Lyftlngar Tennls . ' o.fl. o.fl. Hjólrelðar Badmlnton Skoðunarferðir og skemmtilegar uppákomur Farið verður í léttar kynnisferðir um nágrennið og m.a. í æsispennandi hraðbátaferð um flúðir Lachine fUóts. Verðkr. 29.650" innifalið: Flug Keflavík-Toronto-Keflavík, lestarferð Toronto - Montreal - Toronto, gisting, hraðbátaferð og islensk fararstiórn. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SlMAR 21400 8 23727 Metsölublaó á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.