Morgunblaðið - 03.09.1985, Síða 19

Morgunblaðið - 03.09.1985, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985 19 Hannes Kr. Davíðsson bréfið, sem er dagsett í febrúar sl. Bréf þetta ber með sér að dr. Haas er alls ókunnugur á Kjar- valsstöðum og er að afla upplýs- inga, ekki fyrir sig, heldur frú Pic- asso. í fyrra bréfinu, sem hann ritaði í des. 1984, tók hann fram, að endanlegar ákvarðanir væru í höndum hennar. Dr. Haas biður um upplýsingar um ýmis atriði varöandi væntanlega sýningu, svo sem sýningartíma, vörslu, trygg- ingar, sýningarskrá, hvort ljós komi um þakglugga eða glugga í veggjum. Hann biður um ljós- myndir úr sölunum tómum, einnig um myndir af húsinu að utan og með vísan til frásagnar Errós um möguleika á því að loftið verði fal- ið spyrst hann fyrir um það. Sú setning er svohljóðandi í bréfinu: „Erro showed me some photos of the place and told me that you may hide the ceiling. Can you tell me if it’s possible." Þetta eru einu orðin í bréfum dr. Haas, sem lúta að lofti Kjar- Léttari á bárunni en nokkru sinni fyrr Hljómplötur Siguröur Sverrisson Talking Ileads Little Creatures EMI/Fálkinn Undanfarin ár hefur yfirbragð tónlistar Talking Heads smám saman verið að Iéttast og sú þróun nær hámarki á Little Cre- atures. Eflaust er þessi þróun einhverjum af eldri aðdáendum sveitarinnar til sárra vonbrigða en sjálfur sætti ég mig mjög vel við þessa breytingu á meðan hún er ekki á kostnað þeirra gæða sem alla tíð hafa einkennt afurð- ir Talking Heads. Ég fæ ekki betur heyrt en sami gæðastimp- illinn sé á tónlist Talking Heads nú sem endranær. Little Creatures er í eðli sínu ekki ósvipuð því sem Talking Heads hefur verið að gera á sfð- ustu plötum sínum hin síðari ár og tilþrifin eru mörg hver kunn- ugleg. Söngur Byrne samur við sig og alltaf jafn skemmtilegur, en einfaldleikinn miklu meira áberandi en áður. Sum laganna eru þó meistaralega „krydduð" og þá venjulega með ásláttarleik einhvers konar. „Stál“gítar bregður meira að segja fyrir á plötunni. Menn þurfa ekki að vera nein Talking Heads-„frík“ til þess að hafa gaman af Little Creatures. Platan er án nokkurs vafa sú að- gengilegasta til þessa frá þess- um ástsæla kvartett og mér er sannast sagna til efs að Talking Heads hafi sent frá sér plötu, sem er jafn góð út í gegn. Bestu lög: And She Was, The Lady Don’t Mind og On the Road to Nowhere. valsstaða. Þýðing löggilts skjala- þýðanda á setningu þessari er svo- hljóðandi: „Erró sýndi mér nokkr- ar myndir af staðnum og sagði mér að það væri mögulegt að fela loftið. Getur þú sagt mér hvort þetta er möguleiki?" Þetta er spurning frá dr. Haas, en felur ekki í sér nokkra ósk, hvað þá af- stöðu eða ákvörðun, að maður nú ekki tali um hótunina um, að ef ekki sé breytt loftum þá verði ekk- ert af sýningunni eins og sagði í frétt DV. Nú er liðin vika og Einar Hákonarson hefur ekki séð ástæðu til að leiðrétta það sem hann var borinn fyrir. Tel ég því eðlilegt að eigna honum fréttina og lít svo á að hann hafi gengist við henni. Hvergi í þessu bréfi er sjáanlegt að dr. Haas hafi sett fram „ósk um að reynt verði að fela loftið á Kjarvalsstöðum eða því breytt með einhverjum hætti" eins og segir í bréfi Listahátiðar til stjórnar Kjarvalsstaða og dagsett er 20. ágúst sl. Aðeins eðlilegar fyrirspurnir um staðhætti og til- högun, áður en verði af ferð frú Picasso til íslands. Það athugist einnig, að þetta almenna fyrir- spurnarbréf dr. Haas er ritað hálfu ári áður en fréttin um kröfu frú Picasso, kom í blöðunum. Þegar frú Picasso svo kom til íslands og sá með eigin augum all- ar aðstæður þá lýsti hún því yfir, að henni litist vel á Kjarvalsstaði: „Salarkynnin eru mjög góð. Sér- staklega er ég hrifin af austursal Kjarvalsstaða," eins og haft var eftir henni í Morgunblaðinu 28. júlí sl. Þær aðstæður sem frú Pic- asso var að tjá sig um voru Kjar- valsstaðir eins og þeir eru og komu henni fyrir sjónir en ekki Kjarvalsstaðir eftir að Einar Há- konarson hefði komið fram skemmdaráformum sínum. Að ákvörðun hennar tekinni bauð borgarstjóri henni í mat í Höfða, þau tókust í hendur og allir virtust glaðir nema ef til vill Ein- ar Hákonarson. Þegar eftir brottför Jacqueline Picasso ritaði framkvæmdastjóri Listahátíðar bréf til formanns hússtjórnar Kjarvalsstaða og til- kynnti það samkomulag frú Pic- asso og Listahátíðar að óska eftir Kjarvalssalnum fyrir Picassosýn- inguna, bréfið dags. 30. júlí sl. og er minnst á tilvist þess í bréfinu frá 20. ágúst sl. Ég fékk ekki afrit af því bréfi þar sem framkvæmda- stjóri Listahátíðar sagði, að það hefði enn ekki verið tekið fyrir í stjórn Kjarvalsstaða. Tilvitnun þessi er því eftir minni. Þegar þetta er skrifað, hefur Einar ekki enn lagt umsókn Listahátíðar um Kjarvalssalinn fyrir stjórn Kjar- valsstaða og þó mánuður síðan hún var send. En áður tilvitnað bréf Listahátíðar um breytingar á loftinu, sem skrifað var 20. ágúst, lagði hann fram á stjórnarfundi strax 23. ágúst sl. og átti blaðavið- töl út af því samdægurs. Maður gæti haldið að honum hafi verið annað bréfið hugstæð- ara en hitt. Allt bendir þetta óneitanlega til þess að Einar Háskonarson hafi ætlað að spenna Jacqueline Pic- asso fyrir stríðsvagn sinn í her- ferð sinni gegn Kjarvalsstöðum. En að þessum gögnum athuguð- um liggur það ljóst fyrir að fréttin um að ekkja Picasso vilji breyta Kjarvalsstöðum er uppspuni. Einar hefur haldið fram þeirri skoðun, að loftin í sölum Kjar- valsstaða drægju athygli áhorf- andans frá þeim myndum er á veggina væru hengdar. Ég tel að ástæðulausu. Það er vissulega ákveðið viðhorf að vilja fletja út umhverfið til þess að sýnast stór sjálfur, en mjög óheppilegt í list- um. Ósennilegt er, að myndir Pic- asso muni búa við skarða athygli - þótt þær verði sýndar undir loft- um Kjarvalsstaða. Þórukoti, 31. ágúst 1985, Hannes Davíðsson. Höfundur er arkitekt og leiknaði m.a. kjarralsstaði. - SmáMál er gómsæt og hressandi nýjung frá MS sem þú getur notið við stærstu sem minnstu tækifæri. Hvort sem þú vilt SmáMál með jarðarberjabragðieðavanillubragði °'** þá er það ekkert stórmál. SmáMál —ljúffengasta málið í dag. ja rdarijerjabragði í//a vanillubragði a//« 50ÁRA' AUK hf. 3.146

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.