Morgunblaðið - 03.09.1985, Side 24

Morgunblaðið - 03.09.1985, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985 Séð yfir fundarsalinn í íþróttahúsinu á Laugum í Reykjadal Einhugur og samstaða á fjórðungsþingi Norðlendinga Ný lög sambandsins og fjöldi ályktana samþykkt samhljóða EINHUGUR og samstaða ein- kenndu 27. fjórðungsþing Norðlend- inga sem haldið var á Laugum I Reykjadal dagana 29. og 30. ágúst sl. Er skemmst frá því að segja að öll mál þingsins voru afgreidd mótat- kvæðalausL Óánegjuraddir sem nokkuð hefur borið á, á fjórðungs- þingum undanfarin ár, virtust þagn- aðar og kom fram í máli þingfulltrúa að menn vildu nú leggja sig fram um að ná sem sterkastri samstöðu Norð- lendinga um hagsmunamál fjórð- ungsins. Helsta mál þingsins var frum- varp að nýjum lögum fyrir sam- bandið. Fráfarandi formaður þess, Helgi M. Bergs, bæjarstjóri á Ak- ureyri, mælti fyrir tillögunum og kom fram í máli hans að á undan- förnum árum hefðu menn æ oftar spurt sig hvaða gagn væri að starfi sambandsins og gagnrýni á starfsemi þess hefði aukist. Sagði hann að í framhaldi af þessu hefði Fjórðungsráð gengist fyrir könn- un á starfinu og hafi niðurstaðan verið sú að sambandið væri orðið of þungt í vöfum og rekstur þess of dýr. Tækju tillögurnar mið af Þingfulltrúar í þungum þönkum. „Okkur bar skylda til ad komast að samkomulagiu — segir Valgarður Hilmarsson, sem mælti fyrir tillögum að hinum nýju lögum Fjórðungssambandsins VALGARÐUR Hilmarsson á Fremstagili, oddviti Engihlíðar- hrepps í Austur-Húnavatnssýslu, var framsögumaður fjárhags- og laganefndar þingsins en hún fjall- aði um hin nýju lög fjórðungssam- bandsins. Hann var spurður um starfið í nefndinni. „Það komu margir til þessa þings með það í huga að breyta störfum sambandsins, en Ijóst var í upphafi þings að nokkur áherslumunur var um hvernig að þvi skyidi staðið og urðu um þetta snarpar umræður í nefnd- inni,“ sagði Valgarður. „En mönnum var ljóst að okkur bar skylda til að komast að niður- stöðu og það tókst með gagn- kvæmri málamiðlun. Niðurstaðan varð sú að kjósa fimm manna stjórn sem kemur í staðinn fyrir fjórðungsstjórn og fjórðungsráð. Þá var ákveðið að fella niður fastar milliþinga- MorgunbUðii/öfeigur Gestsson Valgarður Hilmarsson mælir fyrir tillögum að nýjum lögum fyrir Fjórð- ungssamband Norðlendinga. nefndir, en þess í stað er gert ráð fyrir að kjósa megi hverju sinni vinnuhópa eða nefndir í tengsl- um við þau verkefni sem fyrir liggja á hverjum tíma,“ sagði Valgarður. „Ég legg ekki mat á hvort þetta er til bóta. Um þetta voru skiptar skoðanir í nefnd- inni, en þetta var sú lausn sem menn gátu verið sammála um.“ Aðspurður um gagnsemi sam- bandsins á undanförnum árum sagði Valgarður: „Ég er sann- færður um að fjórðungssam- bandið hefur haft áhrif til góðs á þróun þjóðmála og hagsmuni Norðlendinga og ég treysti því að svo verði áfram. Eitt vil ég leggja sérstaka áherslu á og það er að ég tel að þau persónulegu kynni sem takast með sveitar- stjórnarmönnum á þessum þing- um séu ákaflega mikils virði,“ sagði Valgarður Hilmarsson að lokum. þessu og væri megininntak þeirra að gera starfsemina skilvirkari, með því að leggja niður tólf manna fjórðungsráð en kjósa þess í stað fimm manna stjórn og með því að leggja niður milliþinga- nefndir. Miklar umræður urðu um tillög- ur þessar í laganefnd þingsins. Voru þar gerðar á þeim nokkrar breytingar. Dreifbýlisfulltrúar lögðu á það mikla áherslu að sér- stök dreifbýlisnefnd starfaði áfram og var það samþykkt. Þá var einnig samþykkt að framlög sveitarfélaganna til sambandsins skyldu miðuð við tekjustofna þeirra, en ekki vera föst upphæð á hvern íbúa, eins og ráð var fyrir gert í tillögum Fjórðungsráðs. Til- lögurnar eins og þær komu frá nefndinni voru síðan samþykktar samhljóða á þinginu. Skólamál Miklar umræður urðu um skóla- mál á þinginu. Var meðal annars rætt um háskólakennslu á Akur- eyri og hafði Tryggvi Gíslason skólameistari framsögu um það mál. í þinglok var samþykkt ályktun, þar sem skorað er á menntamálaráðherra, alþingis- menn og stjórnendur Háskóla Is- lands að hrinda nú þegar i fram- kvæmd áformum um háskóla- kennslu á Akureyri, svo hún geti hafist næsta haust. Einar Páll Svavarsson, bæjar- Alexander Stefánsson félagsmála- ráðherra fiutti ávarp og kynnti frum- varp til nýrra sveitarstjórnarlaga. ritari á Sauðárkróki, flutti erindi um rekstur framhaldsskólanna og gagnrýndi þar það misræmi sem ríkir í því efni eftir því hvort um er að ræða menntaskóla, þar sem ríkið ber allan rekstrarkostnað, eða fjölbrautaskóla þar sem hann skiptist milli ríkisins og sveitarfé- laganna. Var samþykkt ályktun þar sem þess er krafist að endir verði bundinn á þetta misræmi hið fyrsta og fagnað er drögum að frumvarpi um skólakostnað fram- haldsskólanna, sem kynnt var á þinginu. Þá var rætt um rekstur grunnskólanna og kom fram að hann er mörgum minni sveitarfé- lögum þungur baggi. Kom fram hörð gagnrýni á ríkisvaldið og var samþykkt ályktun þar sem áhersla er lögð á að greiðslur ríkisins til starfsfólks skólanna berist milliliðalaust og án tafar. Atvinnumál Umræður um atvinnumál voru að vonum miklar á þinginu og var fjöldi ályktana samþykktur um þau. I ályktun um sjávarútvegsmál segir meðal annars að endurskoða þurfi kvótakerfið í ljósi fenginnar reynslu og einfalda þurfi sjóða- kerfi sjávarútvegsins og lækka vexti af afurða og rekstrarlánum. Þá er varað við hömlulausri fjölg- un frystitogara og lagt til að rann- sóknir á áhrifum tvífrystingar verði stórauknar. í ályktun um iðnaðarmál segir meðal annars að efla beri þann iðnað sem til staðar er á Norður- landi, jafnframt því sem áfram séu athugaðir möguleikar á upp- byggingu orkufreks iðnaðar í fjórðungnum. í ályktun um landbúnaðarmál er áhersla lögð á að hefðbundinn landbúnaður verði treystur og bændum tryggðar tekjur til sam- ræmis við laun annarra stétta, því verði ekkert að gert, megi búast við stórfelldri búseturöskun, sem yrði vandamál fyrir þjóðina alla. Útvarp, Byggðastofnun og fleira Margar fleiri ályktanir voru samþykktar á þinginu. Má þar nefna að samþykkt var að efla beri starfsemi Ríkisútvarpsins á Akur- eyri þannig að það nái til alls Norðurlands og jafnframt verði hafnar þar sjónvarpsútsendingar. Þá lýsti þingið þeirri skoðun sinni að hin nýstofnaða Byggðastofnun skuli vera á Akureyri. Kom fram hjá fundarmönnum, meðal annars Stefáni Guðmundssyni, alþing- ismanni og stjórnarformanni stofnunarinnar, að stjórn hennar geti ákveðið hvar hún skuli starfa þrátt fyrir að Alþingi hafi fellt tillögu um að lögbinda að hún skuli vera á Akureyri. Þingið samþykkti einnig álykt- anir um að hraðað verði uppbygg- ingu vega og flugvalla á Norður- landi og að þjónusta við ferða- menn verði efld í fjórðungnum. Þá var samþykkt að stuðlað verði að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.