Morgunblaðið - 22.02.1986, Page 33
MORGUNBLABIÐ, LAU GARDAGUR 22. FEBRÚAR1986
33
Guðlaug Péturs-
dóttir — Minning
Fædd 13. ágúst 1895
Dáin 16. febrúar 1986
Guðlaug Pétursdóttir verður í
dag jarðsett að Hellnakirkju á
Snæfellsnesi, en í átthögum sínum
þar vestra kaus hún sér legstað.
Hún fæddist 13. ágúst 1895 í
Amartungu í Staðarsveit, dóttir
hjónanna Guðlaugar Jónsdóttur og
Péturs Kristófers Jónssonar, og ólst
upp þar, í Dal í Miklaholtshreppi
og á Ingjaldshóli í Neshreppi utan
Ennis, en þangað fluttust foreldrar
hennar búferlum með skylduliði
sínu 1906. Böm Guðlaugar og Pét-
urs vora auk Guðlaugar yngri:
Kristján, Jón, Pétur Kristófer, Ingi-
björg og Steinunn, en hjónin á
Ingjaldshóli ólu ennfremur upp fóst-
urson, Kristmund Georgsson. Þótti
systkinahópurinn á Ingjaldshóli
friður og mannvænlegur. Móður-
ættir vora úr Rangárþingi og Vest-
ur-Skaftafellssýslu en föðurkyn af
Snæfellsnesi. Fagurt er á Ingjalds-
hóli og staðurinn fom hefðargarður,
kirkjustaður og höfuðból. Guðlaug
Pétursdóttir giftist ung Bárði Jón-
assyni skipstjóra og síðar fiskimats-
manni, ættuðum úr Eyrarsveit í
Grandarfírði. Þau eignuðust sex
böm sem öll era á lífí: Valnýju,
Gunnleif, Pétur, Kristínu, Guðrúnu
og Jón. Bjuggu Guðlaug og Bárður
á Hellissandi mörg ár en slitu vistir
þegar fram liðu stundir. —
Seinni maður Guðlaugar var Ólafur
Benediktsson kennari á Amarstapa
á Snæfellsnesi, en hann lést 1949.
Eftir andlát hans fluttist Guðlaug
til Reykjavíkur og átt heima hér
syðra upp frá því, lengst á Vestur-
vallagötu 1. Hún ól upp sonarson
sinn, Ólaf Pétur sem var eftirlæti
hennar. Móður sinni háaldraðri og
blindri hafði hún hjúkrað síðustu
árin á Amarstapa. Guðlaug sá og
heyrði eins og miðaldra væri fram
í elli og sinnti störfum og hugðar-
efnum. Hún var þó að lokum farin
að kröftum. Guðlaug Pétursdóttir
dó í Landakotsspítala sunnudaginn
16. febrúar. Var andlát hennar
blundi lfkast.
Guðlaug var ekki há í lofti eða
mikil á velli en eftirtektarverð kona,
fríð sýnum, svarthærð og brúneyg,
skipti litum fagurlega og bauð af
sér einstakan þokka, glöð í bragði,
iðjusöm, hjálpfús og vinsæl. Henni
brá hvorki við höpp né slys og rækti
skyldur sínar jafíiiunduð og æðra-
laus meðan þrek entist. Vandafólk
hennar kveður merka og ágæta
konu þegar henni er reidd hinsta
hvíla undir Jökli. Víðsýnt er á þeim
slóðum og tign yfír landi og sævi.
Þar mun þreyttum gott að sofa.
Guðlaug Pétursdóttir hélt and-
legri heilsu framundir andlát sitt.
Hún unni mjög niðjum sínum og
henni fannst til um að sjá ættgarð
hlaðast upp kringum sig. Fróð var
hún og langminnug. Má nokkuð
ráða frásagnarbrag hennar af
minningum þeim er Eðvarð rit-
höfundur Ingólfsson rekur eftir
henni í bókinni Við klettótta
strönd, þó að Guðlaug væri þá
íjörgömui og heilsan biluð. Lífs-
skoðanir hennar einkenndust af
skyldurækni, ástríki og glaðværð.
Rannur hennar var líkari höll en
koti þótt ekki væri auður í búi. Hún
lét aldrei basl smækka sig en bar
með sér reisn og höfðingsskap ís-
lenskrar alþýðu, sjálfstæð, einörð
og dugleg. A mannamótum var sem
hún stækkaði öll. Lífið var henni
ekki alltaf sælt og blítt, en hún
kvartaði aldrei og óx af örlögum
sínum.
Margar litlar hendur áttu Guð-
laugu Pétursdóttur að vini. Henni
var yndi að bömum. Og nú endur-
fæðist þessari gestrisnu konu æsku-
blómi í nýju ljósi.
Helgi Sæmundsson
Birting afmælis- og
minningargreina
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargrein-
ar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast
í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni
ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minning-
arorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili. Meginregla er að minningargreinar
birtist undir fullu höfundarnafni.
Falleg tnorn
n oq skteytmgar
sinni blóm á konudeginum.
Þaö er góður siður að gef a elskunm
Bæjarins mesta blómaúnral.
• Konudagsskreytingar m®^a"^?|^UDER iimvatni.
• Vandaðar skreytmgar með ESTEfc
\ Athugið að við opnum á konudag W. 8.00.
• Kaffiákönnunniallandaginn. f
Konudagsblómin færðu hjá okkur.
Blómum------------_| ^
^^urhusinu vii Sigtún: Símar 36T70-686340