Morgunblaðið - 15.03.1986, Síða 33

Morgunblaðið - 15.03.1986, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1986 33 Athugasemd Blaðinu hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Jóni Kristvin Mar- geirssyni: í yfirlýsingu Gísla Gunnarssonar sagnfræðings í Mbl. 12. marz sl. virðist mér gægjast fram sá skiln- ingur, að ritgerð mín „Deilur Hör- mangarafélagsins og íslendinga 1752—57“ skuli sérmerkt sem hagsögulegt verk. Þess má geta í þessu samhengi, að sú deild háskól- ans í Lundi, sem hefur útskrifað Gísla Gunnarsson, sinnir eingöngu hagsögu (Ekonomisk historiska institutionen), en ég hef mína gráðu frá sögudeild háskólans í Lundi (Historiska institutionen), sem sinnir öllum þáttum sögunnar, þ.e.a.s. sögunni í heild. (Til frekari skýringar mætti nefna, að próf- gráður okkar Gísla eru sambærileg- ar. Doktorsgráðan nýja í Svíþjóð átti að leysa af hólmi gömlu licent- iatgráðuna.) Það væri ekki rétt að sérmerkja ritgerð mína sem hag- sögulegt verk. Hún er sagnfræði- legt vísindarit með mörgum sam- slungnum þáttum. Lögfræðiþáttur- inn í henni er t.d. svo gildur, að hann jafnast fyllilega á við hinn hagræna hátt. Um hlut Ólafs Bjömssonar í fyrra dómnefndarálitinu (sbr. Opið bréf til heimspekideildar í Mbl. 7. og 8. marz sl.) er það að segja, að í við- tali því við hann, sem nefnt er í „Opnu bréfi", tjáði hann mér, að hann sæi sem hagfræðingur ekkert athugavert við það, sem stæði í ritgerðinni. í seinna dómnefndar- álitinu eru forsendumar reistar á séráliti Gísla og hér hefur Ólafur á vissan hátt haft vaðið fyrir neðan sig og látið færa sérálit Gísla beint inn í dómnefndarálitið. Með þessu móti tryggði Ólafur, að það færi ekki á milli mála, að óhætt væri að kæra Gísla einan fyrir svindl. Samkvæmt yfirlýsingu Gísla treystir hann sér ekki til að fjalla að svo stöddu um „mál Jóns Krist- vins“ á vitrænan hátt í blaðagrein, en hvaða máli skiptir það? Ég hef ekki lagt spumingu fyrir hann og Gísli þarf ekki að óttast, að í „Opnu bréfi" standi neitt annað en það, sem er sannleikanum samkvæmt. Þar sem lýsing mín er nákvæmlega rétt, getur hann sparað sér blaða- grein. Ummæli hans um að Ólafur Bjömsson sé með hæfustu mönnum á íslandi, eins og hann orðar þetta, er ekki röksemd, sem hrindir neinu af því, sem fram kemur í „Opnu bréfi". Gísli gerir hér rökvillur og ætti að kynna sér t.d. bók Alf Nymans, Tankefel och tankefallor (Malmö, 1960) en á bls. 61 í þessari bók er einmitt fjallað um þessa tegund rökvillu. Eintak af ritgerð minni er að sjálfsögðu í höndum heimspeki- deildar og vænti ég þess, að deildin svari þeim spumingum, sem ég hef beint til hennar í „Opnu bréfi til heimspekideildar". Allir fastir kenn- arar deildarinnar hafa nú fengið 68 blaðsíðna athugasemdir við dóm- nefndarálitið og ætti það að auð- velda deildinni svörin. Með þökk fyrir birtinguna, Jón Kristvin Margeirsson. Höfundur hefur lokið licentiat- prófi og er skjalavörður ÍÞjóð- skjalasafni íslands. Opið laugardaga frá kl. 10-16 sunnudaga frá kl. 14—18 Flauelsreiðbuxur kr. 1.395 Herra flauelsbuxur kr. 890 Barnapeysurá kr. 490 Herrapeysur kr. 450 og margt fleira á óvenju lágu verði IKRON Fatalagennn REYKTANESBRAUT PV Símar 1 H 79494 E ■ 79866. VISA Smiðjuvegi 4E, C götuhorni Skemmuvegs. ITIlCI 171 I Vélsleða- keppni í Mý- vatnssveit HELGINA 7.-9. mars var haldin árleg hátíð vélsleða- manna í Mývatnssveit, og stóðu fyrir henni björgunar- sveitin Stefán og íþróttafé- lagið Eilífur ásamt fleirum. Keppt var í spyrnu og rallí. jbC: Dagskrá hátíðarinnar var með hefðbundnum hætti, og hófst hún kl. 10 á laugardagsmorgun. Keppt var í spymukeppni þar sem sleðum var spymt eftir 400 metra langri braut. Keppnin fór fram í þrem flokkum, eftir vélarstærð. Eftir hádegið var keppt í rallí, mörkuð braut með torfærum og þrautum og einn þátttakandi í brautinni í einu. Verðlaunahátíð fór fram f Hótel Reynihlíð að fengnum úrslit- um en þau voru sem hér segir, Þú þarft ekkert að borga út við afhendingu í spymukeppninni var Eyþór Tómasson, Akureyri í fyrsta sæti í A-flokki, Birgir Steingrímsson, Mývatni efstur í B-flokki og Þor- lákur Jónsson, Mývatni í fyrsta sæti í C-flokki, þátttakendur vom 18 talsins. í rallkeppninni varð Ingvar Grétarsson, Akureyri f fyrsta sæti í A flokki, Hinrík Ámi Bóasson, Mývatni í fyrsta sæti í B-flokki og Ófeigur Fanndal, Mý- vatni efstur í C-flokki, þátttakend- ur voru rúmlega tuttugu talsins. Nýju kaupleigukjörin sem við buðum uppá, vöktu óskipta athygli. Þess vegna höfum við ákveðið að bjóða núna ISUZU TROOPER '86 á sömu kjörum, mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar greíðslur til allt að fjögurra ára... engin útborgun... Hafðu samband við sölumenn okkar... þeir veita allar nánari upp- lýsingar... lipur þjónusta... fjölbreytt greiðslukjör. Tækniatriði: Bensínvél 110 hö., Turbo Diesel 75 hö., lengri og styttri gerð, fjórhjóladrifinn (4x4), sjálfstæð fjöðrun á hvoru framhjóli fyrir sig, aflstýri sem þyngist við mikinn hraða (speed sensitive), læst drif, fimm gíra kassi, breið dekk, sportfelgur o.fl. BÍLVANGUR st= HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.