Morgunblaðið - 23.08.1986, Side 2

Morgunblaðið - 23.08.1986, Side 2
2____________________ Reykjavíkurmaraþonið: MORGUNBLAJÐIÐ, LÁUGARDAGUR 23. ÁGÓST 1986 Eyðublöð á ensku „Vorum að spara prent- kostnað,“ segir Úrval KEPPENDUR í Reykjavíkur- maraþoninu fengu send í pósti staðfestmgareyðublöð um þátt- tökuna frá ferðaskrifstofunni Úrvali. Staðfestingareyðublöðin voru á ensku og umslagið einnig. „Ég trúði ekki mínum eigin aug- um þegar ég fékk þetta bréf,“ sagði einn keppenda, sem vakti athygli Morgunblaðsins á þessu. Hjá ferðaskrifstofunni Úrval fengust þær upplýsingar að það sem hér væri um að ræða væri stað- festingareyðublað sem sýna ætti á laugardaginn. Þar sem hér væri um númeruð eyðublöð að ræða hafi verið hentugra að þau væru á einu tungumáli í stað þess að áætla fjölda íslendinga og útlendinga í prentuninni og henda e.t.v. fjölda blaða. Með þessu væri verið að spara prentunarkostnað. Talsmaður ferðaskrifstofunnar vildi hins vegar láta þess getið, að allar upplýsingar væru prentaðar á íslensku. Skógarhlíð: Ekið á pilt EKIÐ var á unglingspilt í Skóg- arhlíð í Reykjavik í gær og brotnaði hann á vinstri fæti. Pilturinn var að fara yfir Skóg- arhlíð frá Flugvallarvegi þegar óhappið varð. Nokkrar bifreiðir sem komu norður Skógarhlíð og ætluðu að beygja inn Flugvailarveg voru kyrrstæðar en er pilturinn hljóp yfir Skógarhlíð bar að bifreið sem ók utan við þær kyrrstæðu. Öku- maður bifreiðarinnar kom ekki auga á piltinn fyrr en of seint og náði ekki að stöðva bifreiðina í tíma. Skall pilturinn á hægra framhomi bifreiðarinnar og skrámaðist og marðist nokkuð, auk þess sem hann fótbrotnaði, sem áður sagði. Loftbelgsferðinnl lýkur á þaki stórhýsis O. Johnson og Kaaber. Loftbelgsfararair David og Kolbrún tóku saman belginn og nutu þar aðstoðar Friðriks Pálssonar, forseta Flugmálafélags íslands, t.v. Morgunbiaðið/Loftur Atgeimon Loftbelgur lenti óvænt á húsþaki „ÞETTA var skrítin tilfinning, mér fannst ég vera Phileas Fogg,“ sagði Kolbrún Halldórsdóttir, dagskrárgerðarmaður hjá rás 2, sem í gær fór með loftbelg yfir Reykjavik og lýsti ferðinni í beinni útsend- ingu. Flugferðin endaði óvænt á þaki fyrirtækisins O. Johnsen og Kaaber við Sætún án þess þó að nokkura sakaði. Starfsfólk fyrirtækisins fékk upplýsingar um lendinguna úr útvarpinu. Kolbrún sagði að hugmyndin að þessari loftferð hefði vaknað fyrir nokkru, þegar vit- að var að loftbelgurinn kæmi hingað til lands í tengslum við flugsýninguna. „Það er alltaf gaman að geta sent út frá óvenjulegum stöð- um og þvf fengum við heimild til að fara í þessa ferð," sagði Kolbrún. „Við rétt kom- umst fyrir þaraa tvö, ég og tæknimaðurinn Halldór Gestsson, ásamt David Smith, sem stjómaði loftfarinu. Þetta gerist allt ákaflega hægt,“ sagði Kolbrún er hún var spurð hvemig tilfinning það væri að ferðast um í Ioftbelg. „Belgurinn svífur hægt upp í loftið og líður svo áfram í rólegheitunum, enda var eiginlega alveg logn á meðan á ferðinni stóð. Þetta er svo mjúkt og þýtt og alveg makalaust. Þegar ég spurði David hvað hann sæi svona spennandi við þetta þá svaraði hann strax, án þess að hugsa sig um: „Friðinn og rólegheitin," og það er í rauninni besta lýsingin á þessu. Maður bara svífur um í háloftunum, enginn mótor, ekkert rafinagn, ekkert vesen og í rauninni ekkert sem getur farið úrskeiðis. Það er alveg ótrú- leg öryggistilfinning sem fylgir þessu," sagði Kolbrún. „Það sem er erfíðast við loftbelginn er lend- ingin. Og sjálfsagt hefði þessi lending þama á þakinu hjá O. Johnson og Kaaber ekki geng- ið svona vel nema af því að David er greinilega mjög klár. Það kom í ljós í þessari lendingu. Loftbelgurinn er alveg háður vindátt hvað varðar stefnu og við fóram upp í von og óvon um vindátt. Við fóram fyrst í 1000 feta hæð og þar var alveg stilla og við hreyfðumst ekkert. Þá lækkuðum við okkur í 500 til 600 fet og þar var gola af suð-vestri þannig að við svifum frá flugvellinum í norð-austur yfir borgina. Þetta var svolítið tvísýnt á tfmabili og David vildi lenda áður en okkur bæri yfir Kollafjörðinn. Þegar við voram yfir Snorra- brautinni kom hann auga á túnið við Höfða og ætlaði að lenda þar. En stefnan varð aldr- ei nákvæmlega á Höfða og þá kom portið á bak við Heimilistæki til greina sem lendingar- staður. En þar var einhver rafmagnsvír í loftinu, sem við urðum að lyfta okkur yfir og þá voram við komin alveg að húsinu. David vippaði körfunni léttilega upp á þakið og starfsfólk var þá komið út á þakið og hélt í körfuna á meðan við príluðum út. Þetta gekk allt eins og í sögu og þetta var bara eins og að Ienda á dúnsæng," sagði Kolbrún. Stjómarfundi Norræna verkaiýðssambandsins lokið: Samskipti verkalýðs- hreyfingar við stjórnvöld — var eitt helsta umræðuefnið á fundinum Moi unblaðið/Þorkell Hjalti Sigurðsson bæjarstjóraarfulltrúi kveður forseta íslands Vigdísi Finnbogadóttur á Hólmhálsi i gær. (f.v.) Skúli Sigurðsson, Jón Ingi Einarsson og Guðmundur Svavarsson bæjarstjórnarfulltrúar horfa á. FORYSTUMENN heildarsam- taka launþega á Norðurlöndum, sem mynda Norræna verkalýðs- sambandið (Nordens FacUiga Samorganisation), hafa verið á fundum hérlendis undanfarna Eskifjörður: Af mælishátíðinni lýkur í kvöld Forseti íslands hélt heim á leið í gær Eskifirði, frá blaðamanni Morgnnblaðsins Benedikt Stefánssyni OPINBERRI heimsókn forseta íslands Vigdísar Finnbogadóttur til Eskifjarðar lauk í gærdag. Bæjarstjóra Eskifjarðar og framkvæmda- stjóri afmælishátiðarinar kvöddu forseta á Hólmahálsi og óskuðu henni góðrar ferðar. Dagurinn hófst með því að for- seti sótti helgistund í Eskiíjarðar- kirkju. Sóknarpresturinn, Davíð Baldursson, prédikaði og kirkjukór- inn söng. Kirkjan var fullsetin bæjarbúum og gestum. Eftir messuna heimsótti forseti steinasafn hjónanna Sigurborgar Einarsdóttur og Sörens Sörensson- ar. Safnið geymir hundrað fágætra steintegunda. Þau hjónin hafa safn- að steinum í rúman áratug aðallega á Austurlandi, en einnig í Þingeyj- arsýslu og víðar. Steinamir era margir skomir og slípaðir svo lita- dýrð þeirra komi betur í ljós. „Það hlýtur að vera stórkostlegt að bera þessa steina heim af fjöllum, kljúfa þá og sjá dýrðina ljúkast upp,“ sagði frú Vigdís við Sigurborgu sem fylgdi henni um safnið. Að endingu leysti Sigurborg forsetann út með veglegri gjöf, stóram bergkristalli. Eftir heimsóknina í steinasaftiið snæddi forsetinn óformlegan há- degisverð með forráðamönnum bæjarins. Um kl. 15 kvaddi forset- inn EskiQörð og gestgjafa sína við Völuleiði sem gömul hjátrú segir að vemdi bæinn. Hélt hún síðan á Egilsstaðaflugvöll. Afmælishátíð kaupstaðarins lýkur formlega í kvöld með dansleik í Valhöll. daga. Þeir halda flestir heimleið- is í dag en í gær fóru þeir í skoðunarferð um Reykjanes og til Vestmannaeyja. Sljómarfundur í NFS var haldinn í Reykjavík á fimmtudaginn og vora þar mættir allir æðstu forystumenn alþýðusambandanna og samtaka opinberra starfsmanna á Norður- löndum. Að sögn Ásmundar Stefánsson- ar, forseta ASÍ, sem á sæti í stjóm NFS ásamt Kristjáni Thorlacius, formanni BSRB, var mestum tíma stjómarfundarins varið til að fjalla um launa- og kjaramál og sam- skipti launþegasamtakanna við stjómvöld í hveiju landi fyrir sig. Þá var og farið yfir drög að skýrslu, sem unnin er í samstarfi við véstur-þýska alþýðusambandið um ástand í efnahags- og atvinnu- málum í Evrópu, fjallað um samskipti við heildarsamtök laun- þega í öðram löndum, um starf Alþjóða vinnumálastofnunarinnar, friðarmál, væntanlegan fund Norð- urlandaráðs í Helsingar og ferða- mál. Einnig var fjallað um ástandið í Suður-Afríku en fyrirhugað er að seint í haust fari nokkrir fulltrúar úr stjóm NFS þangað suðureftir. Innan vébanda norræna verka- lýðssambandsins era rúmlega sex milljónir manna. Eimskipafélag- íslands: Thor Ó. Thors í stjórn Thor Ó. Thors var fyrir skömmu kjörinn í stjóm Eimskipafélags ís- lands hf. í stað Thors R. Thors sem lézt fyrr á þessu ári. í samþykktum Eimskipafélagsins eru ákvæði þess efnis að verði sæti I stjóminni autt milli aðalfunda kjósi stjómin annan mann í það sæti, „ef henni þykir þess þörf og er þá kjörtími hans til næsta aðaifundar,“ eins og segir í samþykktunum. Sá aðalfundur kýs síðan nýjan stjómarmann og lýkur hann kjörtímabili þess er hann er kjörinn fyrir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.