Morgunblaðið - 23.08.1986, Page 44

Morgunblaðið - 23.08.1986, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986 > J ' y t Evrópumeistaramótið í Stuttqart: Austur-þýzkar og sovézkar konur verða atkvæðamiklar í SVO gott sam hverri grein kvenna á Evrópumeistaramótinu í frjálsí- þróttum í Stuttgart koma austur-þýskar og sovéskar konur við sögu. Og það er ekki svo undarlegt, þessar þjóðir hafa um árabil boriA höfuð og herðar yfir keppniskonur annarra þjóða. Á Heimsmeistarmótinu í Hels- inki 1983 hlutu Austur-Þjóðverjar 15 verðlaun í kvennakeppninni, Sovétrikin 12 og önnur lönd 21. Þessi upptalning segir meira en mörg orð. 100 m (10,81 sek) Austur-þýsku stúlkurnar, Marli- es Göhr og Marita Koch, hafa átt viö meiösli aö stríöa í sumar og óvíst, hvort þær veröi meö. Landi þeirra, Heike Drechsler heimsmet- hafi í langstökki er efst á afreka- skrá í ár í Evrópu meö tímann 10,91 sek. Hún veröur að teljast sigurstranglegust taki hún á annaö borö þátt í þessari aukagrein sinni. Önnur austur-þýsk stúlka Silke Gladisch, kemur örugglega til með að vinna til verðlauna í sprett- hlaupunum, sem eru sérgrein hennar. Þriöja austur-þýska stúlk- an er svo Evrópumeistari unglinga frá í fyrra, Kerstin Behrendt að nafni. Hún þykir mikið efni. Pólverj- ar eru líka skyndilega orðnir sterkir aftur í spretthlaupum kvenna. T.d. þær nöfnur Ewa Kasprzyk og E. Pisiewicz. Sovésku stúlkurnar Irina Sljussar, Marina Shirova og Elvira Barbasjina veröa einnig meö í bar- áttunni um verðlaunin. Mótshald- arar munu tefla fram Heidi Gaugel, knárri hlaupakonu. EM '82: Marlies Göhr, A-Þýskal. 11,01 sek. 200 m (21,71 sek) Heike Drechsler er langefst á afrekaskrá með tímann 21,71 sek (heimsmetsjöfnun), en óvíst er hvort hún keppir í þessari grein, þar sem hún hefur öðrum hnöpp- um að hneppa. Aö öðru leyti vísast til umsagnar um 100 m hlaupiö. EM ’82: Bárbel Wöckel. A- Þý- skal. 22,04 sek 400 m (47,60 sek) í fjarveru Maritu Koch opnast möguleikar til gullverðlauna fyrir sovéskar stúlkur, Olga Vladykina og Maria Pinigina. Einnig er Tat- iana Kocembova, Tékkóslóvakíu, líkleg til afreka. Austur-þýsku kon- urnar, Petra Múller, Dagmar Rubsam-Neubauer og Kirsten Emmelmann veröa aö sjálfsögöu ekki langt undan. Bestar í Vestur- Evrópu eru Kathy Cook Bretlandi og sænska stúlkan Ann-Louise Skoglund, sem er betur þekkt sem grindahlaupari. EM '82: Marita Koch, A-Þýskal. 48,15 sek 800 m (1:53,28 mín) í fyrra voru Doina Melinte, Rúm- eníu og tékkneski heimsmethaf- inn, Jarmíla Kratochvilova, bestar. Nú er Melinte efst á afrekaskrá með 1:56,20 mín en Kratochvilova hefur átt erfitt uppdráttar vegna meiðsla, en síðustu fréttir herma, að hún stefni ótrauð að því að komast á mótið í Stuttgart. Því er spáð hér að baráttan um gullverölaunin veröi á milli Melinte og Sigrun Wodars (Ludwigs?) A- Þýskal. Sigrun sigraði leikandi létt í 800 m á Evrópumeistaramótinu innanhúss í vetur. Landi hennar, Christine Wachtel, er líka mjög góð á þessari vegalengd. Sovétmenn verða einnig með geysisterkt trío. Breiddin hjá þeim í millivegalengd- unum er mikil og nægir að nefna nöfn eins og Kirjukhina, Olizar- enko, Agletdinova, Ulmasova, Gurina og Samolenko. EM '82: Olga Minljeva, Sovót. 1:55,41 mfn 1500 m (3:52,47 mín) Hin 36 ára gamla Maricica Puica Rúmeníu hefur sennilega aldrei verið betri en einmitt nú. I þessari grein fær hún þó mikla keppni frá Zolu Budd, sem keppir fyrir Bret- land, landa sínum D. Melinte og sovésku stúlkunum. EM '82: Olga Dvirna, Sovét. 3:57,80 mfn 3000 m (8:22,62 mín) Margar þær sömu koma til greina sem verðlaunahafar í 3000 m hlaupi og 1500. Fyrir utan Zolu Budd, rúmensku stúlkurnar og þær sovésku, sem þegar hafa ver- ið nefndar, koma einnig til sögunn- ar, Uimasova og Kazankina Sovét. Ingrid Kristiansen Noregi, Wendy Sly, Bretlandi, Cornelia Búrki, Sviss, og Brigitte Kraus, V-Þýskal. Þótt Kristiansen sé heimsmethafi í 5000 og 10000 m hlaupi, skortir hana hraða og endasprett í 3000 m hlaupi á við margar þær fyrr- nefndu. Hún gæti samt blandað éer í baráttuna um verðlaunasæt- in, ef taktíkin í úrslitahlaupinu hentar henni. Einn íslendingur verður hér meðal keppenda Ragnheiður Ól- afsd. íslandsmet hennar frá í vor er 9:09,81 mín EM '82: Svetlana Ulmasova, Sov- ét. 8:30,28 mfn 10000 m (30:13,74 mín) Ný keppnisgrein. Hér ætti Ingrid Kristiansen, Noregi, að vera örugg með gullið. Hún bætti nýlega eigið heimsmet um hvorki meira né minna en 46 sek hljóp á 30:13,74 mín, tími sem margur karlmaður- inn öfundar hana af. Aurora Gunha, Portúgal, er líkleg til að hreppa silfrið, en ekki má gleyma sovésku konunum Svetlönu Guskova og Olgu Bondarenko. Þá gætu Wendy Sly, Bretl. og Ines Bibernell, A-Þýskal. komið á óvart. Maraþonhlaup (2.21: 06,0 klst. besti tími) Grete Waitz, Noregi er sigur- stranglegust. Á pappírnum eru eftirtaldar stúlkur líklegastar til að vera í næstu sætum, Rosa Mota, Portúgal, Katrin Dörre, A-Þýskal., Raisa Smechnova, Sovét. Carla Beurskens, Hollandi og Charlotte Teske, V-Þýskalandi. EM ’82: Rosa Mota, Portúgal 2.36:03,94 klst. 100mgrind (12,29 sek) Cornelia Oschkenat, A-Þýskal. er mikil keppniskona og góður grindahlaupari, en hvort það dugir henni til sigurs er ekki víst, því að kominn er fram á sjónarsviðið mjög góður grindahlaupari frá Búlgaríu, Jordanka Donkova að nafni. Hún setti heimsmet í þess- ari grein á móti í Köln fyrir nokkrum dögum og verður að teljast sigur- stranglegri en Oschkenat í Stutt- gart. Annars eru mjög margar jafnar að getu í þessari grein. Fyr- ir utan Oschkenat frá A-Þýska- landi, má nefna Kerstin Knabe og 9 Norska hlaupadrottningin Ingrid Kristiansen er sigurstranglegri en nokkur annar keppandi á Evrópumeistaramétinu f Stuttgart. Hún hefur ákveðið að keppa aðeins f 10 km hlaupinu enda þótt hún gæti allt eins unnið 3 km einnig. Bettine Jahn. Ginka Zagortjeva kemur frá Búlgaríu ásamt Donkova og Vera Animova og Natalja Grig- orjeva frá Sovét. EM '82: Lucyna Kalek, Póll. 12,45 sek 400 m grind (53,56 sek) Einnig austur-evrópsk grein. Austur-Þjóðverjar og Sovétmenn þar fremstir í flokki. Þeirra fremst Sabine Busch A-Þýskal. Aðrir líklegir kandidatar Marina Step- anova og Margarita Khromova, Sovét. og Cornelia Feuerbach og Ellen Fiedler A-Þýskal. Helga Halldórsdóttir er skráð hér til leiks. Hún er einn besti grindahlaupari Noröurlanda. ís- landsmet hennar er 57,61 sek, sett í vor. EM '82: Ann-Louise Skoglund Svíþjóð 54,58 sek 4x100 m boðhlaup (41,37 sek) Enn ein austur-þýsk grein. Þá koma Sovétríkin, Pólland, Bretland og Búlgaría. V-Þýskaland og Frakkland verða skrefi á eftir. EM '82: A-Þýskaland, 42,19 sek 4x400 m boðhlaup (3:15,92 mín) A-Þýskaland og Sovétríkin verða í tveimur fyrstu sætunum. Síðan koma V-Þýskaland, Pólland, Bretland, Tékkóslóvakía og jafnvel Búlgaría. EM '82: A-Þýskaland, 3:19,05 mfn Hástökk (2,08 m) Hér má bóka búlgörsku stúlk- unni, Stefku Kostadinova sigur. Heimsmet hennar er 2,08 m. Næstbest er Olga Turtsjak Sovét. með 2,01 m. í næstu sætum verða a-þýskar og sovéskar konur, ef að líkum lætur (Andrea Bienias, Gabriele Gunz og Larissa Kosit- syna). EM >82: Ulrike Meyfarth, V- Þýskal. 2,02 m Langstökk (7,45 m) Miklar framfarir hafa orðið að undanförnu í langstökki kvenna eins og í þrístökki karla. Nú er það að verða daglegt brauð aö heyra getið um 7 m stökk á mótum er- lendis. Heimsmethafinn, Heike Drech- sler, ætti að vera nokkuð viss með gullverðlaunin. Um silfur- og bronsverðlaunin verður áreiðan- lega geysihörð keppni milli Galinu Tjistiakova, Irinu Valjukevitsj, Je- lenu Belevskaja Sovétríkjunum og Helgu Radtke A-Þýskalandi. Gamli heimsmethafinn frá Rúmeníu, Va- leria lonescu, gæti líka velgt fyrrnefndum konum undir uggum. EM '82: Valiria lonescu, Rúmenfu 6,79 m Kúluvarp (22,53 m) Þetta hefur alla tíð verið austur- evrópsk grein og vissulega verða sterkir keppendur þaðan í Stutt- gart eins og endranær á Evrópu- mótum. Samt sem áöur getur svo farið að vestur-evrópsk kona hampi gullverðlaununum að þessu sinni. Hér er átt við Olympíu- meistarann frá Los Angeles, Claudiu Losch frá V-Þýskal. Helsti keppinautur hennar er sovéski heimsmethafinn, Natalia Lisov- skaja. Von Austur-Þjóðverja er Ines Múller og Tékkar setja traust sitt á gömlu kempuna, Helenu Fib- ingerova. EM '82: llona Slupianek, A- Þýskal. 21,59 m Kringlukast (74,56 m) Tékkneski heimsmethafinn, Zdenka Silhava, er í keppnisbanni vegna lyfjanotkunar. Þá kemur keppnin sem fyrr til með að standa á milli Austur-Þjóðverja og Sovét- manna. Búlgarir og Rúmenar eiga einnig sterkar konur. Til að nefna einhver nöfn skal geta um Diönu Sachse og Irinu Meszynski frá Austur-Þýskalandi, Galinu Jerm- akova frá Sovét. og Tsvetönku Khristova frá Búlgaríu. EM '82: Tsvetanka Khristova, Búlgaría 68,34 m. Spjótkast (75,40 m) Loksins er komið að grein sem Vestur-Evrópubúar geta látið til sín taka með einni mikilvægri undan- tekningu þó. Heimsmethafinn, Petra Felke frá A-Þýskalandi, er langöruggust keppenda og nokkuð vís með gullið. Bresku stúlkurnar, Fatima Whit- bread og Tessa Sanderson, eru báðar í fremstu röð svo og Norður- landabúarnir, Tiina Lillak frá Finn- landi - fyrrum heimsmethafi - og Trine Solberg Noregi. Allar þessar stúlkur eiga möguleika i keppninni um verðlaunin. Sama má segja um Beate Peters, V-Þýskalandi. Júgó- slavar eiga líka einn kornungan spjótkastara á heimsmælikvarða, Danica Zivanov að nafni. Við íslendingar eigum keppanda hér skráðan eins og í karlaspjót- inu, írisi Grönfeldt Islandsmethafa (59,10 m) EM '82: Anna Verouli, Grikk- landi, 70,02 m. Sjöþraut (7.148 stig) Enn og aftur Austur-Þjóðverjar og Sovétmenn - Sibylle Thiele, Anke Behmer, Sabine Paetz, Na- talia Sjubenkova - allar hafa þær náð frábærum árangri 6.500 stig- um eða meira. Vestur-Þjóðverjar eiga Sabine Braun (6.418 stig). Heimavöllurinn kemur henni kannski til góða, þótt róðurinn verði þungur. EM '82: Ramona Neubert, A- Þýskal. 6.622 stig. 10km kappganga (44:32,0 mín) Ný keppnisgrein. Sovétmenn eiga heimsmetið í þessari grein, sett um miðjan ágúst. Þannig að líklegt má telja að Sovétríkin verði sterkust í þessari grein. Alla vega ætti það ekki að koma neinum á óvart. Guðmundur Víðir Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.