Morgunblaðið - 23.08.1986, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 23.08.1986, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986 Hitt og þetta Hinn góðkunni útvarpsmaður Jónas Jónasson er með dálít- ið sérstakan þátt nú á fimmtudags- kvöldum á rás 1 er hann nefnir Eg man. í þætti þessum flettir Jónas í lífsbókinni og vefur þar saman gömlum og nýjum minningabrotum eins og honum einum er lagið. Svo tengjast brotin saman af Ijúfri tón- list. Hvergi bregst Jónasi bogalistin í þessum þáttum enda tilfínningin fyrir íslenskri tungu einstök og músíksmekkurinn góður. I síðasta þætti hóf Jónas máls í ríki bemsk- unnar í Skerjafirði þar sem hinn ójarðneski boli í túni Reynistaðar- höfuðbólsins fnæsti og svo flutti snáðinn með pabba og mömmu uppá Hringbraut í námunda við meistara Þórberg, en hvergi var mjólkin drekkandi nema af Reyni- staðarbúi og því heldur lítill drengur með brúsa inní Skerjafjörð en þá er komið stríð og á leiðinni til baka sér hann í gegnum gaddavír hvar stríðsflugvél nálgast af flugbraut- inni en skyndilega er þar bara eidstólpi og þar sér drengurinn dauðann fyrsta sinni. Nú en fyrr en varir er lesandinn floginn á vængjum frásagnarinnar til svört- ustu Afríku og þaðan til draugabæj- ar á Grænlandi þar sem stríðsmenn er höfðu misst geðheilsuna í heims- styijöldinni voru vistaðir í eina tíð og áfram flýgur hlustandinn. Eins og ég sagði hér áðan er þáttur Jón- asar á rás 1 og ég held raunar að það sé gersamlega vonlaust að færa hann yfir á rás 2 því blessaðar auglýsingamar myndu hreinlega rista Pegasus á hoi. Nú en úr því ég er farinn að tala um fljúgandi furðudýr þá vil ég nota tækifærið og senda henni Kolbrúnu Halldórs- dóttur á rás 2 loftbelgskveðjur — skemmtileg flugferð hjá Kolbrúnu í morgunþættinum í gær. Sýnishorn Fjölmiðlaskríbentinn hefir lengi dreymt um að kynna nánar fyrir lesendum hina tæknilegu hlið dag- skrárgerðarinnar. Draumar skulu rætast og í því skyni að gefa lesend- um hugmynd um forvinnu hinna beinu útsendinga á rás 2 leitaði ég til eins af dagskrárgerðarmönnum rásarinnar, Andreu Guðmundsdótt- ur, er stjómar notalegum tónlistar- þætti á miðvikudagskvöldum er hún nefnir Hitt og þetta. Andrea léði mér góðfúslega verklýsingu þáttar- ins og get ég upplýst að hún fylgdi býsna nákvæmlega textanum þó eitt lag félli að vísu úr vegna tíma- skorts en hér birtist sum sé upphaf verklýsingarinnar og vona ég að menn geti áttað sig á forminu. ÚTVARP / SJÓNVARP Flugdagnrinn Svæðisútvarp Reykjavíkur og nágrennis sendir út alla dagskrá flugsýningarinnar frá kl. 13.30 til kl. 18.30. Þar verður lýst hveiju atriði, rætt við fulltrúa þeirra sem standa að atrið- unum, veittar upplýsingar frá Umferðardeild lögregl- unnar um akstursleiðir og umferð, talað við framá- menn í flugi og leikin tónlist á milli atriða. Einnig verður rætt við gesti á sýn- ingunni. Þannig er ætlunin að gera hlustendum kleift að koma sér fyrir þar sem þeir geta séð flugsýning- una vel og fylgst síðan með rás atburða í útvarpi. Verði flugdagumn í dag ætlar Sverrir Gauti Diego, umsjónarmaður útsending- Allt lagt undir ^■■H Bíómynd sjón- 00 40 varpsins í kvöld "" er bandarísk, frá árinu 1974. Hún fjallar um tvo fjárhættuspilara sem leiknir eru af þeim Elliott Gould og George Segal. Þrátt fyrir að þeir hafi mjög ólík viðhorf til spilamennskunnar taka þeir að spila saman. í fyrstu blæs ekki byr- lega fyrir þeim félögunum en svo tekur gæfuhjólið að arinnar, að fá að vera með innskot í þáttinn Við rás- markið sem er á dagskrá rásar 2 kl. 14. Á morgun verður síðan á rás eitt þáttur sem ber heitið Flug í 50 ár. Hann hefst kl. 13.30. Stjómandi er Árni Gunnarsson. Þar verður íjallað um sögu flugsins og leikin við- töl af segulböndum við framámenn í flugi fyrr og síðar. Einnig verður hring- borðsumræða með þátt- töku nokkurra af þeim sem vinna mikið að flugmálum. Sigurður Helgason og Gunnar Huseby. Þeir gerðu garðinn frægan: Rætt við Gunnar Huseby snúast þeim í vil. Þeir verða sífellt borubrattari og ákveða Ioks að skora á heimsmeistarann í póker. Auk George Segal og Elliott Gould fara þær Gwen Welles og Ann Prentiss með stór hlutverk. Leikstjóri er Robert Alt- man, þýðandi Ragna Ragnars. Kvikmyndahandbókin okkar er alveg þokkalega ánægð með þessa mynd og gefur henni tvær stjömur af §órum mögulegum. ■■■■ í dag er á dag- "I 703 skrá rásar 2 A • þáttur sem nefnist Þeir gerðu garðinn frægan. Þar ræðir Sigurð- ur Helgason við Gunnar Huseby, en einmitt í dag eru liðin 40 ár síðan Gunn- ar setti Evrópumet í kúluvarpi í Osló. Rokktónleikar í Montreux ■■■■ í kvöld ætlar 9Q25 sjónvarpið að "O sýna síðari hlut- ann af rokktónleikum sem fram fóm í Montreux í vor. í kvöld koma fram 14 hljómsveitir, þær Status Quo, sem við sjáum á með- fýlgjandi mynd, Bonnie Tyler, Colonel Abrams, A-ha, Elvis Costello, Art of Noise, O.M.D., Qutfield, Frankie Goes to Holly- wood, Inxs, Chris Rea, Paul Hardcastle, Wax og Eurythmics. Sögusióðir í Þýskalandi ■■■■ í þættinum -| /»30 Söguslóðir í Þýskalandi á rás eitt í dag segir Arthúr Björgvin Bollason frá einni þekktustu listamannaný- lendu í Þýskalandi, Schwabing í Miinchen. Þar hafa ýmsir þekktir menn dvalið við störf og skriftir, svo sem Rainer Maria Rilke, Heinrich Heine og Berthold Brecht. Lýst verður hinu sér- stæða h'fi sem íbúar hverf- isins lifðu á fyrstu áratugum aldarinnar. Þar nutu konur meira frjáls- ræðis en víðast og einkum voru þær konur í hávegum hafðar sem höfðu til að bera fegurð, gáfur og djarfleik. UTVARP LAUGARDAGUR 23. ágúst 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 7.30 Morgunglettur Létt tónlist. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Tónleikar. 8.30 Fréttir á ensku 8.35 Lesið úr forystugreinum dagblaðanna. 8.45 Nú er sumar Hildur Hermóðsdóttir hefur ofan af fyrir ungum hlust- endum. 9.00 Fréttir. Tílkynningar. Tónleikar. 9.20 Óskalög sjúklinga Helga Þ. Stephensen kynn- ir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. 10.25 Morguntónleikar a. Rómarisa i Des-dúr op. 29 nr. 9 eftir Jean Sibelius. Ervin Laszlo leikur á píanó. b. Þættir úr ballettsvítunni „Napoli" eftir Paulli og Helsted. Tvívolí-konserthljómsveitin leikur; Ole-Henrik Dahl stjórnar. 11.00 Frá útlöndum Þáttur um erlend málefni í umsjá Páls Heiöars Jóns- sonar. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. Af stað Björn M. Björgvinsson sér um umferðarþátt. 13.50 Sinna Listir og menningarmál líðandi stundar. Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir og Þorgeir Ólafsson. 15.00 Miðdegistónleikar Sinfóniskur konsert frir píanó og hljómsveit eftir Wilhelm Furtwángler. Sin- fóníuhljómsveit austurriska útvarpsins leikur; Lothar Zagrosek stjórnar. Einleikari á píanó: Paul Badura-Skoda. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. Tónleikar. 16.30 Söguslóöir í Þýskalandi Listamannahverfið Schwabing í Múnchen. Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason. Lesari: Guðrún Þorsteinsdóttir. 17.00 iþróttafréttir. 17.03 Barnaútvarpið Umsjón: Kristin Helgadóttir og Sigurlaug M. Jónasdóttir. 17.40 Frá tónleikum i Nor- ræna húsinu 29. april sl. Stefan Bojsten leikur á pianó Tokkötu og Adagio eftir Hans Eklund, Mazurka í a-moll og Vals í e-moll eft- ir Frédéric Chopin. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.35 Hljóð úr horni Umsjón: Stefán Jökulsson. 20.00 Sagan: „Sonur elds og isa" eftir Johannes Hegg- land. Gréta Sigfúsdóttir þýddi. Baldvin Halldórsson les (3). 20.30 Harmonikkuþáttur Umsjón: Bjarni Marteins- son. 21.00 Frá íslandsferö John Coles sumarið 1881 Þriðji þáttur. Tómas Einars- son tók saman. Lesari með honum: Baldur Sveinsson. 21.40 Islensk einsöngslög Þuriður Baldursdóttir syng- ur lög eftir Stefán Ágúst Kristjánsson, Jóhann Ó. Haraldsson, Birgi Helgason og Ragnar Helgason. Krist- inn Örn Kristinsson leikur á píanó. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veöurfregnir. 22.20 Laugardagsvaka Þáttur í umsjá Sigmars B. Haukssonar. 23.30 Danslög 24.00 Fréttir. 00.05 Miðnæturtónleikar. Um- sjón: Jón Örn Marinósson. 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á rás 2 til kl 3.00. LAUGARDAGUR 23. ágúst 10.00 Morgunþáttur i umsjá Kristjáns Sigurjóns- sonar. 12.00 Hlé. 14.00 Viö rásmarkið Þáttur um tónlist, íþróttir og sitthvað fleira. Umsjón: Sig- SJÓNVARP 16.00 Flugdagur á fimmtugs- afmæli. Bein útsending frá hluta flugsýningar á Reykjavikur- flugvelli sem er liður í afmælishátíöahöldum ýmissa aðila i íslenskum flugmálum. Sýningin er háð veöri, og þvi hugsanlegt að henni verði frestaö. Um- sjónarmaður Ómar Ragn- arsson. Hlé um kl. 17.00. 17.30 Iþróttir. Umsjónarmað- ur Bjarni Felixson. 19.20 Ævintýri frá ýmsum löndum. (Storybook International). 6. Sorgir Pi Karis. Myndaflokk- ur fyrir börn. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. Sögumaður Edda Þórarins- dóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. LAUGARDAGUR 23. ágúst 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dag- skrá. 20.35 Fyrirmyndarfaöir. (The Cosby Show). Fjórt- ándi þáttur. Bandarískur gamanmyndaflokkur i 24 þáttum. Aðalhlutverk: Bill Cosby og Phylicia Ayers- Allen. Þýðandi Guðni Kol- beinsson. 21.00 Vinarstrengjakvartettinn á Listahátið. Frá tónleikum Vínar- strengjakvartettsins i Gamla bíói þann 15. júní sl. Fluttur verður strengjakvartett eftir Schubert, Dauðinn og stúlk- an. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 22.40 Allt lagt undir. (California Split). Bandarisk bíómynd frá árinu 1974. Leikstjóri Robert Altman. Aðalhlutverk George Segal, Elliott Gould, Gwen Welles og Ann Prentiss. Tveir fjár- hættuspilarar með ólík viðhorf til spilamennskunn- ar gerast félagar i spilasöl- unum. í fyrstu hafa þeir ekki heppnina með sér en loks tekur gæfuhjóliö aö snúast þeim i vil. Þýðandi Ragna Ragnars. 23.25 Rokktónleikar i Montre- ux vorið 1986 — Annar hluti. I þessum þætti koma eftirtaldir fram: Status Quo, Bonnie Tyler, Colonel Abrams, A-ha, Elvis Cost- ello, Art of Noise, O.M.D., Outfield, Frankie Goes to Hollywood, Inxs, Chris Rea, Paul Hardcastle, Wax og Eurythmics. 00.35 Dagskrárlok. urður Sverrisson ásamt íþróttafréttamönnunum Ingólfi Hannessyni og Samúel Erni Erlingssyni. 16.00 Listapopp i umsjá Gunnars Salvars- sonar. 17.00 íþróttafréttir 17.03 Þeir gerðu garðinn frægan Siguröur Helgason ræöir viö Gunnar Huseby. 18.00 Hlé 20.00 F.M. Þáttur um þungarokk i um- sjá Finnboga Marinóssonar. 21.60 Milli stríða Jón Gröndal kynnir dægur- lög frá árunum 1920- 1940. 22.00 Framhaldsleikrit: „Eyja i hafinu" eftir Jóhannes Helga Leikstjóri: Þorsteinn Gunn arsson. Annar þáttur. „Ströndin." (Endurtekinn frá sunnudegi, þá á rás eitt.) 22.45 Svifflugur Stjórnandi: Hákon Sigur- jónsson 24.00 Á næturvakt meö Jónatan Garöarssyni. 03.00 Dagskrárlok. SYÆÐISÚTVARP REYKJAVÍK 17.03—18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykjavik og nágrenni - FM 90,1 MHz. AKUREYRI 17.03—18.30 Svæöisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.