Morgunblaðið - 23.08.1986, Side 19

Morgunblaðið - 23.08.1986, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986 19 Horfur a að Sæ- dýrasafnið verði gert upp í haust SÆDÝRASAFNIÐ í Hafnarfirði hefur átt í miklum rekstrarerfiðleik- um undanfarin ár. Talið er að það myndi kosta kosta upp undir 100 milljónir að gera það að sómasamlegu dýrasafni og segir Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra að svo miklir fjármunir séu ekki til í það. Hörður Zophoniasson stjórnarformaður safnsins segir þvi að allar horfur séu á að safninu verði lokað í haust og það gert upp. Menntamálaráðherra skipaði 28. febrúar í vetur nefnd til að gera úttekt á Sædýrasafninu og tillögur um framtíðarrekstur þess. Nauð- ungaruppboði á safninu sem átti að fara fram 27. maí sl. var frestað til 13. september og fé útvegað til reksturs safnsins í sumar. 2 milljón- ir fengust úr uppgjöri sjóðakerfis sjávarútvegsins fyrir milligöngu ríkisins, og nokkur styrkur frá Hafnarfjarðarbæ og Grindvíking- um. Nefndin sem skilaði áliti 11. júlí sl. klofnaði í afstöðu sinni til máls- ins. Meirihluti nefndarinnar, sem skipaður er Kristínu Halldórsdóttur alþingismanni, Jóni Gauta Jónssyni bæjarstjóra og Herði Zophonías- syni, lagði til að ríkið og sveitarfélög í Reykjaneskjördæmi yfírtækju safnið og rækju það áfram, en minnihluti nefndarinnar, sem skip- aður er Erlendi Kristjánssyni úr menntamálaráðuneytinu og Snorra Olsen úr fjármálaráðuneytinu, lagði til að stjóm safnsins yrði eftirlátið að sjá fyrir ráði þess, þar sem ekki væri fysilegt fyrir ríkissjóð að yfir- taka skuldir safnsins. Skuldir safnsins námu um síðustu áramót tæpum 28 milljónum króna og em nær allt skammtímaskuldir. Nefndin telur skuldimar þó van- metnar um 5 til 6 milljónir króna. Eignir em bókfærðar á tæpar 48 milljónir króna. Þaraf er hvalalaug og dæluskúr metin á tæpar 27 millj- ónir. Syningargripir safnsins em metnir á innan við 600 þús. krónur. Þetta er uppfært stofnverð eigna, en segir ekkert til um söluverð þeirra í dag. Áhugi hefur komið fram á því að nýta aðstöðuna til laxeldis. Nefndin áætlaði kostnað af nauð- synlegum endurbótum ef ætti að reka safnið áfram á bilinu 6 til 8 milljónir, en ef ætti að byggja safn- ið upp að nýju, sem físka- og dýrasafn áætlaði nefndin lágmarks- kostnað af því um 50 milljónir króna, sem myndi dreifast á 3 til 5 ár. Nefndin áætlaði að ef reka ætti safnið í núverandi mynd áfram yrði að greiða með því 5 til 7 milljónir á ári, nema hvalasala hæfíst aftur, sem ekki vom taldar góðar horfur á, vegna andstöðu friðunarmanna erlendis. Þá tapaði Sædýrasafnið nýverið máli gegn bandarískum umboðsaðila sínum, sem það reyndi að rifta samningi við. Hafði safnið af því töluverðan kostnað, og heldur umboðsaðilinn forkaupsrétti á hvöl- um áfram, nema þeim sem nú em í safninu. Sala á háhyrningum var mesta tekjulind safnsins og komu allt að 3/< teknanna frá henni. Safnið hefur setið uppi með tvo hvali frá því í nóvember 1984, sem það hefur ekki getað losnað við. Kostar 2.500- 3.000 krónur á dag að fóðra þá en söluverðmæti hvers um sig við eðli- legar aðstæður er á bilinu 4,4 til 5,2 milljónir króna. Morgunblaðið spurði Sverri Her- mannsson menntamálaráðherra um framtíð safnsins. Hann kvaðst ekki hafa mátt vera að því sökum anna að sinna því máli, en hann myndi taka á því innan skamms, tveggja vikna éða svo, þar sem ljóst væri að það yrði að hrökkva eða stökkva í þessu efni áður en langt um liði. Ljóst væri að þær fjárhæðir sem meirihluti nefndarinnar ræddi um væru ekki til ráðstöfunar. Sagðist hann engu þora að spá um fram- vindu málsins, en ljóst væri að lífsnauðsynlegt væri fyrir íslend- inga að eiga gott dýrasafn, einkum sjávardýrasafn. Kvaðst hann hafa heyrt um hugmyndir hjá Reykjavík- urborg um dýrasafn í Laugardal, en ekki vissi hann hver yrði fram- vinda þess máls. Hörður Zophoníasson stjórnarfor- maður safnsins sagði í samtali við blaðið að vegna dræmra undirtekta ríkis og sveitarfélaga yrði rekstrin- um að öllum líkindum hætt í haust, og safnið gert upp. Sagði hann að verið væri að athuga með sölu há- hyrninganna. Ef safnið verður gert upp verður flestum dýrunum lógað, en reynt verður að selja sæljónin og bjarndýrin. Þá væru menn að reyna að semja um frestun nauð- ungaruppboðsins sem vera á 13. september, en sú krafa er upp á aðeins hálfa milljón króna, meðan fjármál safnsins yrðu gerð upp. Sagði hann að þeir Jón Gunnarsson framkvæmdastjóri safnsins hefðu persónulega gengið í ábyrgð fyrir töluverðum fjárhæðum. Ericsson fundar með íslenskum viðskiptavinum Á fimmtudag lauk þriggja daga fundi sænska fjarskiptafyr- irlækisins Ericsson með íslensk- um viðskiptavinum sínum, þar sem fjallað var um fjarskipti fram til aldamóta. Fundinn sóttu um 160 manns. í tengslum við fundinn sýndi fyr- irtækið nýjustu framleiðslu sína m.a. ljósþræði til fjarskipta og skerm sem ætlað er að taka á móti sendingum frá Tele-X gervihnettin- um þegar hann kemst í gagnið. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Háhyrningarnir tveir í Sædýrasafninu fóðraðir. Þeir hafa verið þar frá því í nóvember 1984, án þess að hafi tekist að selja þá, en sala á háhyrningum var aðaltekjulind safnsins. ENSKA ÞÝSKA SPÆNSKA FRANSKA ÍTALSKA ÍSLENSKA Knskuskólinn: Evrépuskólinn: Kvöldnámskeið Þýska Hefst Spænska 1.-2. scptcmber, Franska 7 vikur. ítalska Dagkennsla íslenska Hefst 8.-9. sept., Hefst 1.-2. scpt, 7 vikur. 7 vikur. Túngötu Viðskiptaskólinn Viðskipta- enska Tækni- cnska Bréfritun Utflutnings- enska Skrifstofu- enska Hefst 10.-11, sept.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.