Morgunblaðið - 08.05.1987, Side 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
MENNING
LISTIR
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1987 BLAÐ
Að lesa
Laxness á
leið upp í
Breiðholt
B/6
Líkami móðurinnar og
lögmál föðurins
Um kenningar táknfrceðingsins Juliu Kristevu í
Ijósi nokkurra dœma úr íslenskum bókmenntum
eftirHelgu Kress
Julia Kristeva er tvímælalaust ein af áhrifamestu og
virtustu fræðimönnum sem nú á dögum fást við
rannsóknir í málvísindum og bókmenntafræðum. Hún
er fædd í Búlgaríu árið 1941 þar sem hún ólst upp
og stundaði nám við háskólann í Sofia. Árið 1966 fluttist
hún til Parísar til að stunda framhaldsnám, og þar hefur
hún búið síðan. Hún er nú kennari í málvísindum við
Parísarháskóla, auk þess sem hún hefur menntað sig í
sálfræði og starfar sem sálgreinandi. Eftir hana hafa komið
út fjölmörg rit og ritgerðir um heimspeki tungumálsins,
nútímabókmenntir og menningarsögu, þar sem hún sameinar
á mjög frjóan hátt aðferðir málvísinda, sálgreiningar og
bókmenntafræði. Julia Kristeva skrifar á frönsku, en flest
verka hennar hafa svo til jafnharðan verið þýdd á ensku.
Einnig hafa nokkur þeirra komið út á þýsku, og fáeinar
greinar eru til eftir hana á Norðurlandamálum.
B/2
JGESTGJAFANUM
innihalda jafnvel
auglýsingarnar mataruppskriftir.
Rúmlega 60 uppskriftir
að þessu sinni.
Pottréttir, matarmiklar súpur,
kjötkæfur og stórkostlegar tertur.
Það er gagn að GESTGJAFANUM,
tímariti um mat - tímariti sem
aldrei verður úrelt - tímariti sem
flett er aftur og aftur, ár eftir ár,
í leit að skemmtilegum hugmyndum
um mat sem gleður bæði fjölskylduna
og vinina.
(jestíi'jafinn
cZJ tímarit um mat
Áskriftarsími 5 0299 alla virka daga.