Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 21
set i.iút. .a auoAotr/Mjg .oioAjavtuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987
0£
MFÐBORG=*
Skeifunni 17 (Ford-húsinu) 3. hæð.
Sími: 688100
Opið virka daga frá kl. 9.00-18.00
Sunnudaga frá kl. 13.00-16.00
Járnháls
4000 fm, iðnaðar-, verslunar- eða verksmiðjuhúsnæði
í byggingu. Afhendist á mismunandi byggingarstigum.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Sölum. Þorstelnn Snædal, lögm. Róbert Ámi Hreiðarsson hdl. .
FASTEBGIMAMIÐLUIM
SVERRIR KRISTJÁNSSON
HÚS VERSLUNARINNAR 6.HÆÐ
LÖGM. HAFSTEINN BALDVINSSON HRL
FASTEIGN ER FRAMTÍÐ
Sérstakt tækifæri
Mjög snyrtilegt og vel útbúið réttingar- og málningar-
verkstæði í Reykjavík til sölu eða langtímaleigu, með
öllum tækjum og búnaði. Húsnæðið er ca 800 fm. Til
greina kæmi að láta góð erlend umboð fyrir verkfæri
og ýmis konar efni til bílaviðgerða fylgja. Allar nánari
upplýsingar á skrifstofunni, ekki í síma.
&
m&rSaduri nn
Hatnaretrati 20, tlmi 20033 (Ný|a húiinu viO Lakjartorg)
Brynjar Fransson, sími: 39558.
26933 Opið 1-3 26933
Einbýli/Raðhús
FJARÐARÁS - EINB.-TVÍB.
Glæsil. húseign á tveimur hæð-
um, samt. um 300 fm. Stór
innb. bílsk. 2ja-3ja herb. íb. á
neðri hæð.
ÁRBÆJARHVERFI. Glæsil.
einbhús 160 fm auk 40 fm bílsk.
Sólstofa. Fallegur garður.
HLAÐBREKKA. Einbhús á
tveimur hæðum, 138 fm að
grunnfl. 3ja herb. íb. á neðri
hæð, 30 fm bílsk. Verð 6,5 m.
BARÓNSSTÍGUR. Einbhús, kj.
og tvær hæðir, samtals um 120
fm. Verð 4 m.
4ra og stærri
FORNHAGI. 4ra herb. 90 fm íb.
á jarðhæð. Sérinng.
ENGIHJALLI. Góð 4ra herb.
117 fm íb. á 5. hæð. Bein sala.
FÁLKAGATA - PARHÚS. Par-
hús á tveimur hæðum samt.
117 fm. Selst fokh. Frág. utan.
VESTURBÆR. 5 herb. 132 fm
íb. Selst tilb. u. trév. og máln.
Til afh. fljótl.
FROSTAFOLD. 3ja-4ra herb.
90 fm ib. á tveimur hæðum auk
bílsk. Selst tilb. u. trév. og máln.
3ja herb.
HÓLAHVERFI. 3ja herb. 80 fm
íb. á 5. hæð í lyftuhúsi.
SIGTUN. Góð 2ja-3ja
herb. íb. í kj. íb. er öll ný-
máluð með nýjum tepp-
um. Laus nú þegar.
BLIKAHÓLAR. 4ra-5
herb. 117 fm íb. á 5. hæð.
Góður bílsk. Fráb. útsýni.
Bein sala.
V/HUÓMSKÁLAGARÐINN.
Glæsil. 4ra herb. 110 fm hæð
í þríbhúsi. Mikið endurn. í íb.
Fallegur garður.
í smíðum
GRAFARVOGUR. 160 fm íb. á
tveimur hæðum í tvíbhúsi. Selst
fokh., frág. að utan.
GRAFARVOGUR. 5 herb. 120 fm
ib. með bilsk. í tvíbhúsi. Selst
fokh. en tilb. að utan.
GRAFARV. - GOTT VERÐ
FANNAFOLD. 3ja herb. 75 fm
íb. m. bilsk. i tvíbhúsi. Selst tilb.
u. trév., frág. að utan.
REYKJAHLÍÐ. 3ja herb. 95 fm
íb. á jarðhæð.
2ja herb.
EFSTIHJALLI. 2ja herb. 65 fm
íb. á 1. hæð i 2ja hæða fjölbhúsi.
FRAMNESVEGUR. Nýstand-
sett 2ja herb. 55 fm íb. i kj.
DIGRANESVEGUR. Góð 2ja
herb. 60 fm íb. á jarðhæð. Sér-
inng.
GRETTISGATA - ÓDÝRT. 30
fm einstaklíb. í kj.
Ýmislegt
V/ÞINGVALLAVATN. Til sölu
hálfur ha lands og steypt plata
undir sumarbúst. í landi Heiða-
bæjar, alveg við vatnið.
SUMARBÚSTAÐUR. Til sölu
sumarbústaður á fögrum stað
í Skorradal.
Vantar
Þurfum að útvega fjársterkum
kaupanda góða sérhæð eða
raðhús í Austurborginni. Einnig,
4ra-5 herb. íb. í Seljahverfi með
bílskýli.
26933
Jón Ólafsson hrl. 26933
ÆVINTYRAKASTAIINN
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Georgette Heyer: Footsteps in
the Dark
Útg. Grafton Books 1987
Aratugir eru síðan þessi bók var
gefin út í fyrsta skipti, en hún mun
alltaf vera endurútgefín öðru
hveiju. Þama segir frá systkinum
Margaret, Peter og Celiu og Char-
les, eiginmanni hinnar síðamefndu.
Systkinin hafa erft ævagamalt set-
ur úti í sveit. Þær sögur ganga að
reimt sé á staðnum og leigjendur
hafa hrakizt þaðan. Þjónustufólk
fæst varla á setrið og sveitungamir
eru undrandi á þeim að ætla að
hreiðra um sig þama. Samt virðist
einhver ásælast staðinn .Systkinun-
um lízt vel á staðinn og umhverfíð
er hið fegursta. Þær systur eru hins
vegar á báðum áttum, þegar at-
burðir fara að gerast, sem gætu
rennt stoðum undir sögumar um
draugaganginn.
Aðaldraugurinn virðist vera hinn
hrollvekjandi Múnkur, sem birtist
öðru hvetju og er heldur ógnvelcj-
andi. Meðal annars verður öldruð
frænka þeirra fyrir því að rekast á
múnkinn í bókaherberginu. Líður
sú fullorðna snarlega í ómegin og
múnkurinn gufar upp. En við nán-
ari rannsókn telja þeir Peter og
Charles að hér sé annað á ferðinni.
Þó svo að málverk detti niður af
veggjum, fótatak heyrist í myrkrinu
og alls konar kynleg atvik verða
fara þeir að hallast að því að hinir
yfimáttúrlegu atburðir eigi sér
sínar skýringar og þær mjög svo
jarpbundnar og þeir hyggjast finna
þær.
Einhverra hluta vegna er stöð-
ugur ágangur manna á svæðinu við
setrið, þar er ryksugusali á næturr-
ölti, glæsimennið Michael Strange,
sem Margaret verður ástfangin af,
sýnir gmnsamlega framgöngu,
ruglaður listmálari þvælist fram og
aftur og gefur óskiljanlegar yfírlýs-
ingar. Og síðast en ekki sízt sézt
svo múnkurinn sjálfur alltaf öðm
hverju á sveimi.
Þau komast í kynni við ýmsa
sveitunga, þar á meðal prestshjón-
in, Ackerby hershöfðingja og
Wilkes kráareiganda. Þetta er allt
ágætt fólk og þótt menn hegði sér
fáranlega stundum er erfítt að átta
sig á, að nokkur sé að leika svona
ljótan leik. En þá fínnst ruglaði list-
málarinn látinn. Og skömmu áður
hafði hann séð Múnkinn sjálfan.
Það er því ekki lengur fært að taka
þessu sem einhverju gríni. Enda er
sýnilegt að Múnkurinn er nú orðinn
hræddur um sig. Hann hefur ekki
getað hrakið þau af setrinu, svo að
nú verður hann að grípa til örþrifar-
áða. Margaret og Peter lenda í
Kápusíðan
miklum háska og það má engu
muna, að ekki fari illa. Sem betur
fer koma réttir menn til skjalanna
í tæka tíð. Og loks kemst svo upp
um illmennið Múnkinn og skýring
fæst á öllu næturrápinu, stununum
og fótataki.
Bókin er fýndin og spennandi og
skemmtileg aflestrar. Það má
mætavel skilja að þessi bók Geor-
gette Heyer sé gefín út með jöfnu
millibili.
Allir njósnarar?
Bryan Forbes:The Endless Game
Útg.Fontana 1987
I upphafí segir frá því, þegar
skuggalegur náungi Calder, kemur
til London þeirra erinda að fyrir-
koma Caroíine Oates. Það tekst
honum, enda Caroline varla til stór-
ræðanna, hún hefur verið á hæli
árum saman og veit trúlega ekki
mikið, hvað fer fram í kringum
hana. Þannig útleikin var hún send
frá Austur Berlín og eftir að KGB-
menn höfðu yfirheyrt hana. Því að
Caroline hafði verið brezkur njósn-
ari og með henni unnu Jock, sem
var drepinn -og þó? og Alec Hills-
den, sem varð ástfanginn af henni.
Það er því óneitanlega íhugunar-
efni af hvetju þurfti að drepa
manneskju, sem vissi ekki lengur í
þennan heim né annan. Það veldur
Alec miklum heilabrotum og hann
ákveður að fara á stúfana. Fleiri
koma við sögu, mismunandi hátt-
settir embættismenn í leyniþjón-
ustunni og utanríkisráðuneytinu
brezka og að minnsta kosti ein ráð-
herraspíra. Þá kemur og til skjal-
anna dularfull stúlka, sem heitir
hinum ýmsu nöfnum, eftir því sem
henta þykir. Hún er sennilega KGB
njósnari, heldur við aldurhniginn
brezkan embættismann og nær út
úr honum leyndarmálum eftir hefð-
bundnum leiðum í svoleiðis sam-
bandi. Auk þess heldur hún við KGB
njósnara og seinna í bókinni verður
Alec á vegi hennar. En það sem
skrítnara er: mynd af stúlkunni
hafði verið á náttborði Caroline
Oates á heilsuhælinu. Hvemig má
það ganga uppp?
Söguþráðurinn er dálítið snúinn.
Dijúgur hluti af sögunni fer í að
lýsa því, þegar njósnari er að leika
á annan njósnara. Það er sýnilega
hægara um að tala en í að komast
að botna í 'nvemig njósnir ganga
fyrir sig. Raunar er það furðu oft
þannig með svona sögur, að meiri
tími fer í smásnatt og snúninga,
en alvörunjósnir. En þetta stafar
kannski af vanþekkingu minni á
, eðli njósnarstarfans.
* Leikurinn æsist nú alltaf öðm
hveiju og berst vítt um Evrópu.
Honum lýkur í Moskvu, þar sem
Alec hefur séð sig til knúinn til að
leita hælis. Hann er ekki allskostar
sáttur við þær málalyktir. En hann
hittir þar manninn sem sveik Carol-
ine á sínum tíma og getur hefnt
hennar. Það er auðvitað mesti mun-
ur.
Bryan Forbes er án efa glöggur
njósnasagnahöfundur og bókin er
skemmtileg. En hún er of langdreg-
in á köflum.
'WITH THÍS SOÖK
SRÝAW F0RBES HAS WOVED T0 THE VERY FSÖNT
BA.«K 0F WORlfl THRíttER WSíTERS;
Kápumynd
Lundúnir:
Klifrari gripinn
á Kensington-höll
Lundúnum, Reuter.
LÖGREGLA í Lundúnum segir
að aðfaranótt sl. fimmtudags
hafi maður verið gripinn glóð-
volgur er hann reyndi að klifra
inn í höll þeirra Karis, krón-
prins Breta, og Díönu prins-
essu.
Lögreglan hefur manninn nú
til yfirheyrslu, en ekki hefur kom-
ið fram ennþá hvort aðdáun á
prinsessunni, skyndileg þörf fyrir
að klifra utan á konunglegum
byggingum eða eitthvað annað
olh þessu athæfi mannsins.
í Kensington-höll, þar sem
maðurinn var handsamaður, býr
einnig Margrét, systir drottningar
og ýmsir aðrir meðlimir konungs-
fjölskyldunnar. í febrúar var 55
ára gamall maður handtekinn við
höllina, en var sleppt vegna lélegr-
ar geðheilsu.
mm
FAST6IGNASALA
VITASTlG B
Söluturn — Vesturbær
Til sölu söluturn á besta stað í Vesturbæ. Mikil velta,
hagstæð leiga. Tryggur leigusamningur. Uppl. á skrifst.
Bergur Oliversson hdl.,
Gunnar Gunnarsson hs: 77410.
Valur J. Ólafsson hs: 73869.
VJterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!