Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987
47
oft á reyntlan bónda sem hugar vel
að sínu. Hann var vel gefínn og
skýr í hugsun. Var því oft gaman
að ræða við hann um „landsins
gagn og nauðsynjar" og var hann
þá ærið naskur á veilumar, enda
fylgdist hann vel með í þjóðmálum.
Höfuðeinkenni í skaphöfn hans var
forsjálni og aðgætni. Víst var um
það að verðbólgudansinn truflaði
ekki sálarró hans. Hann galt hveij-
um einum sitt og það strax, þótt
vel vissi hann að aðrir verslunar-
hættir mundu ábatasamari.
Æðruleysi og öryggi var honum svo
í blóð borið, að fáum hefí ég kynnst
sem átt hafa þá eðliskosti í svo
ríkum mæli.
Þótt samfundir okkar væru ekki
tíðir, þá voru þeir þeim mun
skemmtilegri, og hófust oftast á
smíðaverkstæði hans en enduðu
með kaffídrykkju á heimili hans hjá
hans góðu eiginkonu. Vildi þá heim-
sóknin gjaman dragast á langinn,
enda maðurin fróður og víða vel
heima.
Fyrir löngu las ég smásögu eftir
Guðmund skáld Friðjónsson á
Sandi. Sagan hét „Fífukveikur".
Þar er þessi vísa, sem oft hefir
komið í huga minn og lítil stúlka
látin kveða sér til huggunar í
margra vikna einveru að vetrarlagi
í litlu koti, þar sem hún bíður björg-
unar. Sýnir þetta eindæma þolgæði
og þrautseigju. Þessar eðlishneigðir
minna mig á þær sem snarastar
vom í fari Sigurðar heitins og verð-
ur vísan hinsta kveðja.
Mariusonur mér er kalt,
mjöllina af skjánum taktu
og yfir mér alltaf vaktu.
Lífið bæði og lánið er valt,
ljós og myrkur vega salt.
Við lagan sess á ljóstýrunni haltu."
Eiginkonu og syni sendum við
hjónin okkar innilegustu samúðar-
kveðjur, þökkum Sigurði góða og
ánægjuríka samfýlgd og biðjum
honum allrar blessunar á hans nýju
vegum.
Sigurður Samúelsson, læknir.
ÞETTA ER BEIÐNITIL ÞÍN UM STUÐNING
Happdrættismiðar hafa verið sendir á öll heimili í landinu.
Vinsamlega greiðið miða sem fyrst.
SJÁLFSBJÖRG HJÁLPAR FÖTLUÐUM
HJÁLPUM SJÁLFSBJÖRG
t
Faðir okkar, tengdafaöir og afi,
PÉTUR KRISTJÁNSSON
frá Bræðraminni, Bfldudal,
Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavlk,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7. julíkl. 15.00.
Rannveig Pótursdóttir, Guðbjartur Eggertsson,
Ólafur Pétursson, Elín Þorkelsdóttir,
Sigmundur Pétursson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
GUÐRÚNAR ODDSDÓTTUR,
Bræðraborgarstfg 53.
Fyrir hönd fjölskyldu hinnar látnu,
Sigrfður Benediktsdóttir.
t
Þökkum auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
ÁRSÆLS GUNNARSSONAR,
Holtsgötu 19,
Reykjavfk.
Erla Inga Skarphéðinsdóttir,
Sara Ósk Ársælsdóttir, Skarphéðinn Örn Ársælsson,
Erla Ársælsdóttir, Örn Jóhannesson,
Dagmar Gunnarsdóttir, Jóhanna Gunnarsdóttir.
Skarphéðinn Guðmundsson, Guðbjörg Axelsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og
útför bróður okkar,
HJÁLMARS JÓSEFSSONAR
frá Síreksstöðum.
Guð blessi ykkur öll.
Systkinin.
Fatalitir fyrir þvottavélar
Vörukynning í Hagkaupum Skeifunni
15þann6.,7.og 8. júlí.
Auðvitað ísienskar leiðbeiningar
Umboð, Tóbella ísafirði, sími 94-4041.
Veitum fúslega ráðgjöf við litun.
BYGGINGARHAPPDRÆTII
SJÁLFSBJARGAR 1987
Þú getur fengíð vinning - fatlaðir vinna örugglega