Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987
+
Sjávarlóð
Til sölu sérlega vel staðsett sjávarlóð á Stór-
Reykjavíkursvæðinu fyrir einbýlishús. Öll gjöld
greidd. Tilbúin til byggingar.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „Lóð — 6430“
fyrir 10. júlí nk.
Heimsnýjung
áfUANTX!
I
Borgartúni 28
Tölvufræðslan mun í haust endurtaka hin vinsælu námskeið
fyrir skrifstofufólk sem haldin voru í haust og vetur.
Um er að ræða þriggja mánaða fjölbreytt nám í vinnuað-
ferðum á skrifstofum, með sérstakri áherslu á notkun
PC-tölva sem nú eru orðnar ómissandi á öllum skrifstofum.
í náminu eru kenndar m.a. eftirfarandi greinar:
Almenn tölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskipti, ritvinnsla, gagna-
grunnur, töflureiknar og áætlanagerð, tölvubókhald, toll- og
verðútreikningar, almenn skrifstofutækni, grunnatriði við stjórn-
un, uppsetning skjala, útfylling eyðublaða, verslunarreikningur,
víxlar og verðbréf, íslenska og viðskiptaenska.
Nemendur útskrifast sem SKRIFSTOFUTÆKNAR og geta að
námi loknu tekið að sér rekstur tölva við minni fyrirtæki.
Námskeið hefst 7. september 1987
Nánari upplýsingar í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Frábær árangur
Jóhanns í Moskvu
Skák
Margeir Pétursson
Jóhann Hjartarson náði mjög
góðum árangri á sterku alþjóð-
legu skákmóti í Moskvu sem lauk
um síðustu helgi. Jóhann varð í
þriðja til fimmta sæti af fjórtán
keppendum með sjö og hálfan
vinning af þrettán mögulegum.
Margeir Pétursson varð í ellefta
sæti með fimm og hálfan vinn-
ing. Sigurvegari á mótinu varð
sovézki stórmeistarinn Mikhail
Gurevich. Hann hefur aldrei teflt
á Vesturlöndum en varð Sovét-
meistari árið 1985 og hefur
staðið sig mjög vel upp á síðkast-
ið. Hann sigraði t.d. á minningar-
mótinu um Paul Keres í Tallinn
í marz og varð í öðru sæti á af-
mælismóti sovézku byltingarinn-
ar í Leningrad í maí.
Sovétmenn hafa aldrei verið
auðveldir viðureignar á heimavelli
og að þessu sinni stilltu þeir upp
níu stórmeisturum gegn útlending-
unum fimm í A-flokki. Árangur
Jóhanns kom því mjög á óvart og
er með þeim betri sem „gestur"
hefur náð á þessu árlega móti. Það
blés þó ekki byrlega hjá honum í
upphafi mótsins, hann var sælu
peði yfir gegn Romanishin en hrika-
legar ofsjónir kostuðu hann mann
og skákina. Þetta víir eina tap Jó-
hanns, hann fékk oft erfiðar stöður
en bjargaði sér með mikilli seiglu.
í næstsíðustu umferð tryggði hann
sér síðan verðlaunasæti með því að
vinna stigahæsta keppandann og
nýbakaðan stórmeistara, Vladimir
Malanjuk frá Sevastopol.
Ég byijaði vel og endaði vel, en
það dugði ekki til því um mitt mót
tapaði ég hvorki meira né minna
en fjórum skákum í röð. Það var
þó nokkur sárabót að mér tókst að
vinna tvo sovézka stórmeistara, þá
Razuvajev og Vasjukov. Það tók
130 leiki að yfirbuga þann fyrr-
nefnda í skák þar sem ég var 65
fyrstu leikina í krappri vöm. Það
tók mestallt mótið að tefla skákina,
því Sovétmenn hafa þá reglu að
tefla biðskákir aðeins á dögum þeg-
ar ekki eru tefldar umferðir. Að
lokum urðu þeir að gera undantekn-
ingu frá þeirri reglu svo skákinni
lyki ömgglega fyrir mótslok.
Það var afskaplega skemmtilegt
og fróðlegt að vera með á móti í
höfuðborg skáklistarinnar. Skák-
lega séð var mótið mjög lær-
dómsríkt og vonandi gott veganesti
á næstu mót. Eftir þennan frábæra
árangur verður fróðlegt að fylgjast
með Jóhanni á millisvæðamótinu í
Ungveijalandi sem hefst eftir hálf-
an mánuð. Ég hef heldur aldrei
teflt á móti sem hefur verið jafn
þaulskipulagt. Keppendur bjuggu
og tefldu á hinu þekkta „Hótel
Sport“ þar sem m.a. var tefldur
hluti af einu einvígi Karpovs og
Kasparovs. Var rækilega séð fyrir
því að við, gestimir, þyrftum ekki
að hafa áhyggjur af neinu öðm en
taflmennskunni, enskumælandi
túlkar greiddu götu okkar hvar-
vetna og Volga með bflstjóra var
til staðar ef við þurftum að bregða
okkur af bæ.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Malanjuk (Sovétríkjun-
um)
Spánski leikurinn
I. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5
- Rd4!?
Þessi leikur, sem kenndur er við
gamla enska meistarann Bird, hefur
reynst svarti nokkuð vel upp á
síðkastið.
4. Rxd4 — exd4 5. 0-0 — Bc5 6.
Df3 - Re7 7. d3 - c6 8. Bc4 -
d5 9. Bb3 — 0-0 10. exd5 — cxd5
II. Bg5 - f6 12. Bf4 - a5?!
Jóhann hafði undirbúið leikað-
ferðina með Df3 fyrir skákina, en
hún heppnaðist ekki eins vel og
hann hafði vonast eftir og ef svart-
ur hefði strax leikið 12. — Be6
mætti hann vel við una, því hvítur
á erfitt með að þróa stöðu sína.
Sérstaklega yrði þá erfítt að finna
verkefni fyrir riddarann á bl, en
nú eignast hann sælureit á b5.
13. a4 - Be6 14. Ra3 - g5 15.
Bd2 - Dd7 16. Rb5 - Bb6 17.
Hfel - Hf7 18. c4!
Svartur hefur lagt töluvert mikið
á stöðu sína og veikt sig kóngsmeg-
in og það em eðlileg viðbrögð hvíts
að opna stöðuna. Nú vinnur hvítur
eftir 18. — dxc4? 19. Hxe6!
18. — dxc3 (framhjáhlaup) 19.
Bxc3 - Hd8 20. h3 - Rg6
Stúdíó SG tekur til starfa
NÝ ÆFINGASTÖÐ hefur tekið
til starfa í Furugrund í Kópa-
vogi, Stúdíó SG.
Stöðin býður upp á leikfími og
púltíma fyrir konur karla og stend-
ur innritun jrfir næstu daga. Hver
tími er 50 mínútur og æfingakerfíð
byggist upp á hitunaræfingum, þoli,
styrkjandi æfíngum og teygjum.
í september hefst kennsla í jazz-
ballett í bama- og unglingaflokk-
um.
Kennari er Sigríður Guðjohnsen.
Hún lauk danskennaraprófi 1983
sem viðurkennt er af alþjóða dans-
ráðinu, ICBD, og er félagi í Félagi
fslenskra danskennara. Undanfarin
9 ár hefur Sigríður starfað hjá JSB
og dansað með dansflokki JSB í 7
ár. Síðustu sumur hefur Sigríður
sótt námskeið hjá „Pineapple" í
London til að kynna sér það nýj-
Frá kennslustund í Stúdíói SG í Furugrund í Kópavogi.
asta í dans- og leikfimikennslu. inni Sólskini, til húsa í Fumgmnd
Stúdíó SG er, ásamt heilsurækt- 3 í Kópavogi.
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
mm
v&xo
og þu flfgur t
gegnum daginn