Morgunblaðið - 08.12.1987, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 08.12.1987, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987 9 Hjaríans þakkir fari égöllum þeim, sem glöddu mig á 80 ára afmceli mínu 22. nóvember sl. Sérstaklega þakka ég alla vináttu og hlýhug við fráfall dóttur minnar Sísí Tryggvadóttur. GuÖ blessi ykkur öll. Magnfríöur Sigurbjarnardóttir, Hofteigi 16. Karlmannaföt nýkomin Einhneppt og tvíhneppt. 10 stærðarnúmer. Margir litir. Verð kr. 7.500,- og 8.900,- Föt fyrirliggjandi kr. 3.995,- og 5.500,- Terylenebuxur nýkomnar, ný snið. Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250. Nýtt — Nýtt Jólavörurnar eru komnar. Pils, blússur, peysur, jakkar. Glugginn, Laugavegi 40 (Kúnsth úsin u). Utsölumarkaðurinn Á GRETTISGÖTU 16 (áður Bílamarkaðurinn) Dömuleðurskór frá kr. 300,- Dömuleðurstígvél frá kr. 1 .600,- áður kr. 4 T500,- Dömukápur kr. 1 .000,- Sængurfötfrá kr. 790,- Sængur frá kr. 1 1.490,- Skíðagallar kr. 1 1.900,- Trimmgallar kr. 800,- Gjafavörur, skartgripir, antik húsgögn. Tökum myndir af þér og setjum á boli og plaköt. Úrval af allskonar vörum á mjög góðu verði. Geymum greiðstukortasölunótur þangað til ifebrúar. KOMIÐ, SJÁIÐ OG SANNFÆRIST Opið laugardag frá kl. 10-18 Aðra daga frá kl. 12-19 Sími 24544 Gorbatsjov með skjala- bunka Eftir að hafa hkt Míkhaíl Gorbatsjov í sjón- varpsmyndinni og hlýtt á hann kynna ný viðhorf Sovétmanna tQ afvopn- unarmála fer Ronald Reagan til fundar við samstarfsmenn sína og kemst meðal annars þannig að orði, að Gor- batsjov hafí verið með stærri skjalabunka en hann sjálfur. Enginn sem horfir á myndina getur efast um. að sá sem ósk- aði eftir því að fundurinn yrði haldinn, Gorbatsjov, var með fastmótaðri hugmyndir um samning i upphafi hans. Enda sagði Gorbatsjov f ávarpi, sem hann flutti i sovéska sjónvarpið, eftir að hann sneri heim frá Reykjavik, að hann hefði farið þaul- undirbúinn til Reykjavík- ur og f öllum helstu stjórnum og ráðum Kremlveija hefðu menn lagt á ráðin með undirbú- inginn. Sú staðreynd að Sergej Akhromejev, for- seti sovéska herráðsins, var f forsvari fyrir so- véska starfshópnum á næturfundi sérfræðinga f Höfða sýnir, að Gor- batsjov vUdi baktryggja sig og koma f veg fyrir, að yfirmenn hersins teldu, að hann væri að ganga á þeirra hhit f við- ræðunum við Reagan. Þegar betur er að gáð kom Gorbatsjov til Reykjavíkurfundarins til þess búinn að faUast á ýmis meginsjónarmið, sem Reagan og rfkis- stjómir NATO-rikjanna höfðu haldið á loft, sum- um um langt árabiL Eins og sjónvarpsmyndin sýn- ir kom það Bandaríkja- mönnum f raun f opna skjöldu hve samningsfús Gorbatsjov var. Þeir voru undrandi á því, að kannski kæmi tUþess hér f Reykjavík, að unnt yrði að rita undir einhvem texta. TU þess kom þó ekki, eins og allir vita. Skyggnst inn í Höfða Á sunnudagskvöldið sýndi sjónvarpið okkur mynd um leiðtoga- fundinn í Höfða. Höfundar hafa leitað til Bandaríkjamanna, sem þátt tóku í hinum sögulegu viðræðum, og fengið hjá þeim upp- lýsingar um viðræðurnar, er fram fóru fyrir luktum dyrum. Á grundveili þeirra upplýsinga var handrítið samið fyrir fyrrgreinda mynd; hafi hin efnislega hlið málsins verið eins nálægt raun- veruleikanum og leiktjöldin af húsakosti í Höfða, er hér um einstæða heimild um leiðtogafundinn að ræða. Ef vei tekst tii um dreifingu myndarinnar hjá hinum breska framleiðanda eiga milljónir manna um heim allan á nýjan leik eftir að minnast Reykjavíkur og íslands vegna þessa fundar. Að lokum stóð ágreining- urinn um geimvaraa- áætlunina, SDI, og ef til vill aðeins eítt orð „rann- sóknastofuri*. Var gefið til kynna, að Gorbatsjov hefðu verið settir kostir af umbjóðendum sinum, stjórnmálaráðinu eða rit- urum miðstjórnar kommúnistaflokksins. Míkhaíl Voslenskij, sem oft hefur sótt okkur Is- lendinga heim, eins og lesendum Morgunblaðs- ins er kunnugt, hefur haldið þeirri skoðun fram, að í raun hafi stjórnmálaráðið skipað Gorbatsjov að nota SDI sem fleyg tíl að binda enda á viðræðumar í Höfða; ýmsum S Kreml hafi sem sagt þótt nóg um, hve hratt miðaði i Reykjavik. Eftír sókn Gorbalsjovs i upphafi sjónvarps- myndarinnar nær Reagan vopnum sínurn þegar líður að lokum hennar. Sovétmenn þegja Fyrir ári kom út bók um leiðtogafundinn í Reykjavík eftír Guð- mund Magnússon, sem þá var blaðamaður hér á Morgunblaðinu. Hefur það færst mjög í vöxt, að blaðamenn taki sér fyrir hendur að rita bæk- ur um stóratburði sam- tímans S sama mund og þeir gerast, ef þannig má orða það. Nú er sjón- varpið tekið til við að feta S þessi fótspor eins og myndin um leiðtoga- fundinn S Hðfða sýnir. Frægasta dæmið um snögg viðbrögð sjón- varps af þessu tagi er líklega mynd, sem bresk sjónvarpsstöð gerði á liðnu sumri um réttar- höldin yfir Klaus Barbie, sem dreginn var fyrir dómstól i Lyon i Frakk- landi, sakaður um grimmdarverk, þegar hann var foringi Gestapó þar á timum sSðari heims- styrjaldarinnar. Var sjónvarpsmyndin sýnd aðeins fáeinum vikum eftir að réttarhöldunum lauk. Þar var hægara um vik að ná S efnið en við gerð myndarinnar um leiðtogaf undinn S Reykjavik, þar sem rétt- arhöldin yfir Barbie fóru fram fyrir opnum tjöld- um. í raun fæst ekki heil mynd af fundinum S Höfða, fyrr en bæði Bandarikjamenn og Sov- étmenn leysa frá skjóð- unni. Sjónvarpsmyndin ber það giðggt með sér, að stuðst er rið frásögn Bandaríkjamanna. Við fengum ekki að kynnast því, hvað gerðist á skip- inu hjá Gorbatsjov á milli funda; rið hveija hann talaði og hvort hann var i stöðugu sambandi rið félagana S stjóramálaráð- inu i Moskvu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.