Morgunblaðið - 03.03.1988, Síða 15

Morgunblaðið - 03.03.1988, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIPTI/ÍflVINNULÍr FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1988 B 15 _ IÐNLÁNASjÓÐUR ER IÐNFYRIRTÆKJUM ÖFLUGUR HVATI TIL NÝJUNGA OG FRAMFARA idnlAnasjOdur ÚTFLUTNINGS" ÁBYRGÐ Hlutverk IÐNLÁNASJÓÐS er að efla framleiðslu og framleiðni í iðnaði og örva útflutning á íslenskum vörum 09 þjónustu. Það gerir hann með starfsemi fjögurra deilda: FJARFESTINGALÁNADEILDAR, VÖRUÞRÓUNAR- OG MARKAÐSDEILDAR, TRYGGINGADEILDAR ÚTFLUTNINGSLÁNA OG ÁHÆTTUFJÁRMAGNSDEILDAR. FJÁRFESTINGALÁNADEILD Deildin veitir stofnlán til véla- og tækjakaupa, til byggingar og kaupa verksmiðju- og iðnaðarhúsa, endur- skipulagningar og hagræðingar í iðnrekstri og til framkvæmda sem auka öryggi og hollustu og bæta starfsumhverfi á vinnustöðum. ÁHÆTTUFJÁRMAGNSDEILD Þátttaka í stofnun nýrra fyrirtækja og endurskipulagningu starfandi fyrir- tækja með beinum hlutafjárkaupum. VÖRUÞRÓUNAR- OG MARKAÐSDEILD Starfsemi deildarinnar á að stuðla að vöruþróun og aukinni samkeppnis- hæfni iðnaðarins, örva nýsköpun og auka útflutning á iðnaðarvörum. Lánshæf verkefni í vöruþróun eru: Forathuganir, tilraunir með nýjung- ar, smíði frumgerða, verndun hug- mynda, framleiðniathuganir og end- urbætur. í markaðsaðgerðum eru láns- og styrkhæf verkefni: Markaðs- kannanir, gerð kynningarefnis, þátt- taka í sýriingum erlendis, heimsóknir erlendra viðskiptamanna og stofnun sölufélaga érlendis. TRYGGINGADEILD ÚTFLUTNINGSLÁNA Deildin tryggir lán sem bankar eða aðrar lánastofnanir veita innlendum framleiðendum vöru eða þjónustu til fjármögnunar á útflutningslánum sem veitt eru eða útveguð erlendum kaupendum. Einnig tryggir deildin kröfur íslenskra útflytjenda á hendur erlendum kaupendum sem til hafa orðið vegna útflutnings á íslenskum vörum eða þjónustu. Öll íslensk útflutningsfyrirtæki geta fengið útflutningsábyrgð. Gjörðu svo vel að hafa samband við okkur ef þú vilt fá frekari upplýsingar um starfsemi deilda Iðnlánasjóðs. IÐNLÁNASJÓÐUR IÐNAÐARBANKiNN LÆKJARGÖTU 12, 101 REYKJAVlK, SlMI691800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.