Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17, MARZ 1988
Ci'Ói'
_U H ll l
TOLVUR
)
TILVALIN FERMINGARGJÖF!
Skáktölvur í úrvali sem
***' henta jafnt byrjendum sem
stórmeisturum hvað styrkleika snertir.
Ótal möguleikar — þroskandi og spennandi leikur.
Kynnið ykkur úrvalið — áskoranda við ykkar hæfi.
ÚTSÖLUSTAÐIR UM ALLT LAND
Hjá Magna, Laugavegi 15, Reykjavík, S. 23011
Penninn, Hallarmúla 2, Reykjavík, S. 38402
Penninn, Austurstræti, Reykjavík, S. 27211
Penninn, Kringlunni, Reykjavík, S. 689211
Bóka- og ritfangav. Veda, Hamraborg, Kópavogi, S. 40877
Bókabúó Böðvars, Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði, S. 651630
Bókabúó Keflavíkur, Sólvallagötu 2, Keflavík, S. 11102
Bókabúð Andrésar Níelssonar, Skólabraut 2, Akranesi, S. 11985
Kaupf. Borgfirðinga, Egilsgötu 11, Borgarnesi, S. 71200
Bókabúð Jónasar Tómassonar, Hafnarstræti 2, ísafirði, S. 3123
Verslun Sigurðar Pálmasonar, Höfðabraut 6, Hvammstanga, S. 1350
Bókabúð Brynjars, Skagfirðingabraut 9a, Sauðurkróki, S. 5950
Verslunin A.B.H., Aðalgötu 26, Siglufirði, S. 71301
Bókabúð Jónasar, Hafnarstræti 108, Akureyri, S. 22685
Bókabúð Þórarins Stcfánssonar, Garðarsbraut 9, Húsavik, S. 41234
Bókabúð Sigurbjörns Brynjólfssonar, Hlöðum, Egilsstöðum, S. 11299
Kaupfél. A-Skaftfellinga, Höfn í Hornafirði, S. 81200
Bókabúðin Heiðarvegi 9, Vestmannaeyjum, S. 1434
Bókabúð Grindavikur, Grindavík, S. 68787 •
Forróttur:
Trjónukrabbasúpa Naustsins
AAalróttur:
Hreindýrahnetusteik mefí villibráfíarsósu
og Waldorfsalati
Eftlrróttur:
G/óaldinis ogferskir ávextir
RESTAURANT
S ( M I 1 7 75 9
Morgunblaðið/Sverrir
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleikari ásamt Zygmunt Rychert stjórnanda á æfingu með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands í gær.
Sinfóní uhlj óms veit íslands:
„KJARVAL HITTIMIG
BFJNT f HJARTASTAÐ"
segir pólski stjórnandinn Zygmunt Rychert
Á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Háskólabíói í
kvöld klukkan 20.30 verða flutt
þtjú verk; Orpheus eftir Franz
Liszt, Fiðlukonsert eftir Sibelius
og Sinfónía nr. 3 eftir Lutoslaw-
ski. Tvö síðamefndu verkin vekja
sérstaka athygli, því Sigrún Eð-
valdsdóttir leikur einleik í fiðlu-
konsertinum og sinfónía Lut-
oslawski er leikin honum til heið-
urs, en hann er sjötugur á þessu
ári. Stjómandi á tónleikunum er
Pólveijinn Zigmunt Rychert.
„Ég held áfram!“
Sigrún Eðvaldsdóttir er ung að
árum og hefur hún nú þegar skap-
að sér sess sem fíðluleikari og
einleikari. Hún er nú á loka-
spretti í háskólanámi í Philadelfíu
í Bandaríkjunum, þaðan sem hún
lýkur BM-prófi í vor. Hún hefur
numið fiðluleik frá því hún var
aðeins 5 ára og meðal kennara
hennar voru Rut Ingólfsdóttir og
Guðný Guðmundsdóttir. Sigrún
hefur áður leikið með Sinfóníu-
hljómsveitinni á tónleikum og í
síðustu viku lauk hún við hljóm-
plötuupptöku með hljómsveitinni
undir stjóm Petri Sakaris, hins
nýja aðalstjómanda hljómsveitar-
innar. Sigrún tók í fyrrahaust
þátt í Mozart-keppninni í Augs-
borg í Vestur-Þýskalandi og var
þar í öðm sæti af 39 keppendum.
Hún mun í september halda
þrenna tónleika við píanóundirleik
í Þýskalandi og þegar hún var
innt eftir því, hvað tæki svo við,
yppti hún öxlum og hló og sagði:
„Ég held áfram."
Fjölhæfur listamaður
Zigmunt Rychert er fæddur í
Gdansk í Póllandi, borg Sam-
stöðu, og af miklu tónlistarfólki
kominn. Faðir hans var meðal
fremstu orgelsmiða í Póllandi og
einnig orgelleikari. Óhætt er að
segja að Zygmunt hafí erft þessa
hæfíleika. Hann er mjög fjölhæfur
listamaður, málari, tónskáld,
fíðluleikari, orgelleikari og síðast
en ekki síst orgelsmiður.
Símon Kuran, annar konsert-
meistari Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar hefur heimsótt Zygmunt á
heimili hans í Gdansk og segir,
að þegar gengið sé inn í húsið,
sé eins og gengið sé inn í orgel!
íbúðin sé hálfgert nýlistaverk,
eins og orgel að innan, allt unnið
af Zygmunt Rychert, og sýni Ijós-
lega listamannshæfíleika hans.
Hann segir einnig, að Zygmunt
sé einn stórkostlegasti stjómandi
okkar tíma, elja hans og dugnaður
og trúnaður við listina sé með
ólíkindum. Símon túlkar tal okkar
Zygmunts:
Heillaðist af Kjarval
„Ég hef um langt árabil haft
mikla löngun til að heimsækja
ísland," segir Zygmunt. „Óspillt
og flölbreytt landið hefur höfðað
til mín og þegar ég er nú kominn
hingað er ég heillaður af landi og
þjóð. Ég heimsótti Listasafn ís-
lands og skoðaði þar Kjarvals-
myndir. Þessi listamaður er frá-
bær og hitti mig beint í hjarta-
stað. Túlkun hans höfðar mjög til
mfn og lýsir vel þeim tilfínningum
sem ég ber til landsins, bæði sem
málari og tónlistarmaður. Ég kom
náttúmlega hingað' fyrst og
fremst sem stjómandi, enda er
það mitt aðalstarf, en ég er líka
tónskáld og hyggst semja ballett-
tónlist með skírskotun til íslands
og íslenskrar arfleifðar. íslend-
ingasögumar hafa verið þýddar á
pólsku og gætu orðið bakgmnnur-
inn.“
Stórmenni í pólsku listalíf i
Zygmunt Rychert er rúmlega
fertugur að aldri, en hefur lagt
stóran skerf á vogarskálar list-
alífsins í Póllandi. Hann nam
tónsmíðar og hljómsveitarstjóm
við tónlistarháskólann í Posnan
og hlaut verðlaun í þeim greinum
í pólskri samkeppni árið 1970. í
þijú ár var hann aðstoðarmaður
Witoids Rowicki við Þjóðarfíl-
harmóníuhljómsveitina í Varsjá.
Hann stjómaði þessari hljómsveit
í Póllandi og einnig í tónleikaferð-
um til New York og Tókýó.
1974 stofnaði Zygmunt
Fílharmóníuhljómsveit Baltycka í
Gdansk og var aðalstjómandi
hennar í sjö ár. Hann er nú list-
rænn leiðbeinandi hennar. Hann
er einnig forstjóri Ópemnnar í
Bydgoszcz eða Bromberg og
kennari við tónlistarháskólann
þar. Hann stjómar 90 manna
hljómsveit skólans og kemst þar
í kynni við hljóðfæraleikara sem
skara fram úr.
„Ég hef gert áætlun um eflingu
ópemnnar í Bydgoszcz," segir
Zygmunt. „Árið 1991 verður hún
stærsta, nútímalegasta og best
búna óperan í Evrópu." Símon
segir, að yfírlýsing sem þessi lýsi
Zygmunt vel og hann sé líklegur
til að ná þessum árangri. Hann
minnir á Bodan Vodisko í fram-
sækni sinni og einurð gagnvart
Iistinni. Zygmunt hefur þess
vegna verið heiðraður fyrir fram-
lag sitt til listarinnar í Póllandi.
Auk þess sem að framan er sagt
hefur hann stjómað hljómsveitum
austan hafs og vestan, í fjölmörg-
um ríkjum Austur- og Vestur-
Evrópu, Sovétríkjunum, og
Bandaríkjunum og Japan eins og
áður er getið.
En hvað hefur þessi fiðlusnill-
ingur að segja um Sigrúnu Eð-
valdsdóttur, sem hefur nýhafið
feril sinn sem einleikari?
„Hún er hreint frábær, ég dáist
að henni sem persónu og fíðluleik-
ara," segir Zygmunt. Hann hefur./
samanburðinn, hefur stjómað ein-
leikumm á borð við Rostropovits
og Igor Oistrach. Hann er næmur
á vandamál fíðluleikarans, enda
sjálfur staðið í hans sporum og
það er tvímælalaust mikils virði
fyrir Sigrúnu að hljóta stuðning
frá honum.
Lutoslawski sjötugur
Á tónleikunum í kvöld verður
flutt Sinfónía nr. 3 eftir pólska
tónskáldið Lutoslawski. Til þess
að það væri gjörlegt þurfti að
fjölga um 20 manns í hljómsveit-
inni og koma þessir hljóðfæraleik-
arar úr ýmsum áttum, sumir eru
enn í námi hérlendis eða erlendis
en aðrir hafa nýlokið námi.
Kannski eru þetta hljóðfæraleik-
arar morgundagsins í Sinfóníu-
hljómsveitinni. Zygmunt Rychert
segir um Lutoslawski og tónlist
hans:
„Ég hef ráðfært mig við Lut-
oslawski varðandi flutning á þess-
ari sinfóníu. Verkið er 'byggt á
tilviljunarkenndum hugrenning-
um hans. Það er tileinkað Sin-
fóníuhljómsveit Chicago-borgar í
Bandaríkjunum og var þar frum-
flutt undir stjóm Sir George Solti.
Þetta verk var hljóðritað í flutn-
ingi Fflharmóníuhljómsveitar
Berlínar undir stjóm Lutoslawskis
sjálfs og er til á geisladiski hér í
Reykjavík. Þetta er 30 mínútna
verk í einum þætti, sem þó skipt-
ist innbyrðis í þijá kafla. Hluti
þess er mjög hefðbundinn og
formfastur og flutningurinn er
undir agaðri stjóm. Svo koma
kaflar, þar sem hljóðfæraleikar-
amir leika sjálfstætt og stjómand-
inn samhæfír leik þeirra. Það er
því óhætt að segja, að á köflum
séu 90 einleikarar að starfí í einu!"
segir Zygmunt Rychert að lokum.
Viðtalið við Zygmunt fór fram
á fjórum tungumálum, pólsku,
þýsku, ensku og íslensku með
dyggri hjálp Símons Kurans. En
þegar upp var staðið og Zygmunt
var kominn með tónsprotann í
höndina og fyrstu tónamir ómuðu
hmndu allir múrar tungumála í
einu vetfangi því tónlistina skilja
allir.
Texti: Rafn Jónsson blaðafull-
trúi Sinfóníuhfjómsveitarinnar.