Morgunblaðið - 17.03.1988, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
Bjarni Olafsson skrifar frá Holstebro, Danmörku
Árið 79 e.Kr. lagðist 6 metra þykkt lag af ösku og vikri yfir borgina Pompei.
Minjar genginna kynslóða
Rómaborg:
það varð mér ógleymanleg op-
inberun, er ég komst til Róma-
borgar í fyrsta sinn, nú um miðjan
febrúar.
Það var næstum eins og tíminn
hefði stöðvast og snúið til baka.
Einhvemveginn var eins og maður
gæti búist við að mæta á götu
rómverskum hermönnum frá dög-
um keisaranna, jájafnvel senator-
um eða keisara, ambáttum og
þrælum.
Leiðsögumaður fylgdi okkur
um rústir þær sem grafnar hafa
verið upp og rannsakaðar frá
tímum keisaranna. Það var
sænski ambassadorinn í Róm,
C.F. Fredenheim, barón, sem hóf
uppgröft á þessum slóðum.
Þama er Curian sem senator-
amir þinguðu í og þama em rúst-
ir hofs Agústusar keisara. Hann
á það litlu bami, sem fæddist í
Betlehem, að þakka að nafn hans
er nefnt um hver jól. Hof Júlíusar
■Cesars stóð þama, sigurbogi
Títusar reistur eftir að hann hafði
lagt Jerúsalem í rúst og sigrað
Gyðinga.
Til að gera þessum sögulegu
minjum einhver skil þarf að rita
heila stóra bók.
Gamall steinlagður vegur sem
er upp í 11 metra breiður, Via
Appia Antica heitir hann, liggur
í suður frá Rómaborg. Hann er
lagður stómm grágrýtissteinum.
Við hann stendur kirkjan Domine
Quo Vadis, „Herra hvert ætlar
þú?“ og segir helgisagan að þar
hafi Pétur postuli mætt Jesú er
Pétur var að flýja úr fangelsinu.
Eftir þessum vegi gengu her-
sveitimar sem fóm til að beija á
öðmm þjóðum. Oft friðsömum
þjóðum. Fjölmargir hinna ungu
hermanna komu aldrei aftur. Eft-
ir þessum vegi þokuðust þreyttar
sveitir, með lestir hlekkjaðra
fanga, karla og kvenna, sem áttu
sumir ekki annað eftir en að
skemmta kvölumm sínum með
kvalafullum dauða, eða þjóna
þeim í auðsveipni, meðan heilsa
lejrfði.
Steinamir í veginum gætu sagt
fi-á ýmsu, mættu þeir mæla.
Já, enda þótt þeir fái ekki
mælt, verðum við margs vísari við
að sjá þessi fomu mannvirki.
Þama er Colosseum, sem rúmaði
45.000 áhorfendur í númemðum
sætum og 5.000 stæði og áhorf-
endur gengu inn um 66 númemð
hlið. Múr sem byggður var kring-
um Rómaborg var 19 km langur
og enn em 14 km uppistandandi.
Höggmyndir og málverk, mosaik,
gosbrannar og garðar, auk fag-
urra bygginga.
Margt er enn ótalið, því auðæf-
in em svo mikil í listaverkum.
Sjálf Péturskirkjn og Vatíkanið,
yfírfull af myndlist hinna miklu
meistara, en dýpst snart mig er
ég stóð við Píetá eftir Michelang-
elo. Myndin sýnir Maríu sitja með
Jesú dáinn í fanginu. Sagan segir
að Michelangelo hafi ekki verið
nema 24 ára er hann vann þetta
fræga verk.
Þrátt fyrir allt þetta og miklu
meira af verðmætum, finnst mér
fljótt á litið að íbúamir í þessar
stóm og sögufrægu borg líkist
íslendingum í mörgu. Allar þessar
frægu rústir em þeim hversdags-
legar, e.t.v. ekki mikils virði. Þeir
eiga alltof marga bíla, eins og
við. Það er engin leið að koma
þeim öllum fyrir. Það er hvergi
reiknað með að gangandi vegfar-
endur þurfi að komast leiðar
sinnar. Reykur og blý frá öku-
tækjum skemmir mannvirkin óð-
fluga, að ekki sé talað um heilsu
fólksins. Samt em þeir góðviljaðir
og hjálpsamir og fúsir að ræða
við ókunnuga.
Höfundur er smíðakennari.
nlÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
Stjórnendur
Aukin framleiðni-betriafkoma
- POSPAK -
ASBJORN HABBERSTAD A/S
er virt, norskt ráðgjafafyrirtæki, sem hefur
þróað POSPAK aðferðina tilþess að auka
heildarframleiðni.
JENS-JORGEN JULSRUD
rekstrarráðgjafi hjá Habberstad hefurmikla
reynslu í kennslu og ráðgjöfá POSPAK.
Námskeiðið erhaldið á ensku.
- Staður: Holiday Inn
Tími: 24.-25. mars kl. 8.30-17.00.
Skráning: (91)-687000, Iðntæknistofnun.
Upplýsingar: Ingvar Kristinsson.
Verð.Kr. 16.900,-
Aukum framleiðni