Morgunblaðið - 17.03.1988, Síða 56
, 56
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HALLGRÍMUR GUÐMUNDSSON,
Háholtl 25,
Akranesi, '
lést í sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 12. mars.
Jarðsett verðurfrá Akraneskirkju föstudaginn 18. mars kl. 14.15.
Blóm og kransar afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er
vinsamlegast bent á Akraneskirkju.
Börn og tengdabörn.
t
Bróðir okkar og afi,
BALDUR SVEINSSON
rafvirkjameistari,
Hrafnistu,
áður Rauðalæk 18, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 18. mars kl.
10.30.
Guðrún Hrefna Sveinsdóttir, Freyja Torfadóttir,
Ásdis Sveinsdóttir, Ásgeir Torfason,
Auður Sveinsdóttir, Ingibjörg Torfadóttir
Fríða Sveinsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN JENNÝ JAKOBSDÓTTIR,
formaöur Póstmfélags íslands,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju i dag, fimmtudaginn 17. mars,
kl. 15.00.
GunnarÁ. Ingvarsson,
Jakob Már Gunnarsson, Iðunn A. Valgarðsdóttir,
Sigurður G. Gunnarsson, Unnur S. Bragadóttir,
Gunnar R. Gunnarsson, Hafdís S. Valdimarsdóttir,
og barnabörn.
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og ámma,
KRISTÍN LIUA BERENTSDÓTTIR,
Eskihlfð 20a,
verðurjarðsunginfrá Fossvogskirkju föstudaginn 18mars kl. 13.30.
Snorri Brynjólfsson,
Brynjar Snorrason, Hrafnhildur Karlsdóttir,
Garðar Snorrason, Svala Þórhallsdóttir,
Berta Snorradóttir
og barnabörn.
■ Innilegustu þakkir til allra, sem við andlát og útför h sýndu okkur samúð og hlýhug
EGGERTS TH. JÓNSSONAR,
Háaleitisbraut 155.
Lára Petrfna Bjarnadóttir,
Birna M. Eggertsdóttir, Pótur E. Eggertsson,
Ásta Lóa Eggertsdóttir, Hilmar Þorvaldsson,
Ingigerður Eggertsdóttir, Jón Ólafsson,
Unnur I. Eggertsdóttir, Hermann Arnviðarson,
Gunnhildur Eggertsdóttir, Óskar Þorsteinsson,
Kolbrún Eggertsdóttir, Arnaldur Axfjörð.
t
Innilegar kveðjur og þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug við
andlát og útför bróður okkar og mágs,
GUÐMUNDAR INGVARSSONAR,
Ægisbraut 5.
Kristín Ingvarsdóttir, Teodór Helgason,
Sigurbjörg Ingvarsdóttir,
Árni Ingvarsson,
Jón Ingvarsson,
Grétar B. Ingvarsson, Mundhildur Guðmundsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsynda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og lángömmu,
MARENAR EYVINDSDÓTTUR,
Hæðarenda,
Grfmsnesi.
Svanhildur H. Sigurfinnsdóttir, Grímur Davíðsson,
Eyvindur K. Sigurfinnsson, Anna Garðarsdóttir,
Guðmundur R. Sigurfinnsson,
Laufey Sigurfinnsdóttir, Haraldur Haraldsson,
Birgir Sigurfinnsson, Marfa Svava Andrésdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
*
OlafurK. Sveinsson
rafvirkjameistari
Fæddur 18. júlí 1920
Dáinn 9. marz 1988
Ólafur Konráð Sveinsson raf-
virkjameistari andaðist í Borg-
arspítalanum 9. þessa mánaðar,
eftir stranga sjúkdómslegu.
Hann var fæddur á Butru í
Fljótshlíð 18. júní 1920. Leiðir lágu
nokkuð víða í uppvextinum en um
tíu ára aldur fluttist hann til móður
sinnar í Vestmannaeyjum og síðan
aftur með henni í Fljótshlíðina.
Ungur maður fór hann til
Reykjavíkur og lauk meðal annars
vélstjóraprófi.
Hann kvæntist eftirlifandi konu
sinni, Dóru Magnúsdóttur, árið
1945 og stofnuðu þau heimili í
Kleppsholtinu. Þau bjuggu þar
fyrstu árin. Nokkru seinna byggði
hann íbúðarhús í Nökkvavogi 12 í
félagi við Torfa Þorbjömsson, sem
látinn er fyrir nokkrum árum. Þar
hafa þau Dóra búið síðan. Bömin
urðu fjögur og bama- og bama-
bnamabörn eru orðin tíu.
Við Ólafur kynntumst fyrst er
við stunduðum rafvirkjanám hjá
Eiríki Hjartarsyni upp úr 1940.
Margs er að minnast eftir öll þessi
ár, þegar horft er til baka eftir
einkavini og félaga. Ólafur var
óvenju eðlisflinkur maður. í hönd-
um hans léku öll störf og smíðar.
Ekki spillti heldur að hann var helj-
armenni að afli og kappsamur með
ólíkindum. Oft þurfti líka að vinna
óspart við uppbyggingu fyrirtækis
okkar allt frá byijun í gömlu ijósi
við Vitatorg, síðan í nokkuð rýmra
húsnæði við Mjölnisholt og að end-
ingu í eigin húsnæði við Ármúla
þar sem eftir standa mörg af hans
handaverkum. Mörgum á eftir að
bregða við að ekki er lengur hægt
að hringja í Óla og fá hann, kannski
með mann eða menn með sér og
gera hluti vafningalaust, sem aðrir
treystu sér ekki til, eða jafnvel voru
gengnir frá.
Á árunum milli 1960 og 70 ferð-
aðist Ólafur mikið um hálendi 1s-
lands ásamt fjölskyldu sinni. Hann
kunni mjög að meta og naut
óspilltrar náttúru landsins og hafði
ánægju af gönguferðum og athug-
unum á gróðri og fuglalífi. Þessar
ferðir lagði hann að mestu niður
þegar hægara varð að ferðast um
hálendið og friður öræfanna rofínn
af meiri umferð.
Á síðari árum höfðu þau hjón
komið sér upp sumarbústað í landi
Butru í Fljótshlíð. Þar var margt
sem til fannst fyrir hraustar og
hagar hendur. Girt og ræktað.
Lagður vegur. Smíðaðar brýr. Þó
var þetta aðeins byijunin, því margt
var eftir sem hann langaði að gjöra
og margar tijáplöntur biðu í gróður-
reitum eftir að komast á rétta staði.
Ég kveð Ólaf vin minn og félaga
með hjartans þökk fyrir 39 ára
samvinnu og félagsskap sem aldrei
bar skugga á. Blessuð sé minningin
um góðan dreng, hann mun eiga
góða heimkomu.
Ég votta Dóru og aðstandendum
innilega samúð. Megi Guð styrkja
þau öll á erfíðri stund.
Haukur Þorsteinsson
í dag fer fram í Langholtskirkju
minningarathöfn um Olaf Konráð
Sveinsson, rafvirkjameistara,
Nökkvavogi 12 í Reykjavík, en hann
verður jarðsettur frá Breiðabólstað-
arkirkju í Fljótshlíð, laugardaginn
20. þ.m.
Ólafur var fæddur á Butru í
Fljótshlíð 18. júlí 1920, sonur Ólaf-
ar Halldórsdóttur á Butru og Sveins
Böðvarssonar, sem lengi bjó á Uxa-
hrygg á Rangárvöllum.
Olafur ólst upp hjá móður sinni
á Butru og þótti snemma liðtækur
til allra verka.
Um tvítugsaldur flytst Ólafur til
Reykjavíkur og lærir rafvirkjun hjá
Eiríki Hjartarsyni.
Árið 1949 stofnar hann ásamt
samstarfsmanni sínum, Hauki Þor-
steinssyni, Raftækjavinnustofuna
Haukur og Ólafur, sem brátt varð
öflugt og vinsælt fyrirtæki í sam-
taka höndum þessara mætu manna.
Sinn stóra vinning hreppir Ólafur
þegar hann 20. október 1945 geng-
ur í hjónaband með Aðalheiði Dóru
Magnúsdóttur frá Vestmannaeyj-
um. Voru þau mjög samhent um
alla hluti, eignuðust fjögur mann-
vænleg böm, en þau eru: Magnús
Helgi, kvæntur Guðbjörgu Stefáns-
dóttur, Sigmar Steinar, kvæntur
Sigríði Hansdóttur, Halldpr, kvænt-
ur Líneik Jónsdóttur og Ólöf Ragn-
heiður, gift Sigurði Ármannssyni.
Og nú áttu þau níu bamabörn og
eitt bamabamabam.
Þetta er í fáum orðum lífshlaup
Ólafs Sveinssonar og mætti þar
mörgu við bæta, því maðurinn var
ekki einhamur í hveiju sem hann
tók sér fyrir hendur og fór þar sam-
an að vera mikilvirkur, vandvirkur,
með einstaka verkþekkingu á
hverskonar viðfangsefnum, þannig
að eftir var tekið. Þó var maðurinn
hógvær og lítillátur og vildi hvergi
láta á sér bera. En kannski var það
þess vegna að hugurinn var alltaf
í jafnvægi, ekki þrúgaður af streitu
framagosans, að hann átti svo auð-
velt með að draga réttar ályktanir,
persónuleikinn mótaður af reynslu
viturs manns.
Ólafur var hrókur alls fagnaðar
í góðra vina hópi, en hvergi var
hann sælli en austur i Fljótshlíð í
sumarbústaðnum, í faðmi fjölskyld-
unnar, þar sem hann var að hlúa
að nýjum græðlingum og segja
barnabörnunum sínum hvernig
lundurinn myndi líta út að nokkrum
árum liðnum.
Ég, sem þessar línur rita, eins
og eflaust fleiri sem standa í óbættri
skuld við Ólaf, er ósáttur við hvað
hann hverfur fljótt af sviðinu. En
við straum tímans þýðir ekki að
deila.
Það vcrður okkur þó styrkur
lengi enn að hafa átt svona góða
fyrirmynd.
Matthías Kristjánsson
t
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför bróður míns, mágs og móöurbróður,
AGNARS SIGURÐSSONAR,
Bakkatúni 6,
Akranesi.
Ólafur Fr. Sigurðsson, Ólfna Þórðardóttir,
Ragnhildur Þorvaldsdóttir, Baldur Guðjónsson.
t
Innilegustu þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð
við andlát og útför bróður okkar, mágs og frænda,
GUÐMUNDAR JÓNSSONAR (MUGGS),
Lækjarkinn 4, Hafnarfirði.
Einnig þökkum við af alhug öllum þeim sem ætið sýndu honum
vinsemd og hlýju.
Systkin, tengdasystkin
og aðrir aðstandendur.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
INGUNNAR BJÖRNSDÓTTUR,
Svfnafelli f Öræfum.
Laufey Lárusdóttir, Ragnar Stefánsson,
Magnús Lárusson, Svava Jóhannsdóttir,,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum inniiega auðsýnda samúð við fráfall eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa,
MARTINS CHR. FREDERIKSEN
vélstjóra.
Gudrun West Frederiksen,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Lokað
Lokað í dag vegna jarðarfarar ÞÓRARINS HAFBERG,
verkstjóra, Réttarholtsvegi 77, Reykjavík.
Lenkó hf
Smiðjuvegi 1,
Kópavogi