Morgunblaðið - 17.03.1988, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Hvar er jakkinn minn?
Ung stúlka var að skemmta sér
í veitingahúsinu Lækjartungli
síðastliðið laugardagskvöld. Þar
varð hún viðskila við sinn forláta
svarta leðuijakka og saknar hún
hans nú sárt. Er ljóst að flíkin
er nú undir höndum einhvers sem
ekkert á í honum og bað stúlkan
þess að sá sem hefði jakka sinn
í fórum sínum eða gæti bent á
hann, gerði svo f síma 37244.
Regnhlíf á glámbekk
Þá hafði bílstjóri hjá BSR sam-
band við Velvakanda og sagði
farþega einn hafa gleymt rauðri
regnhlíf og fallegum vettlingum
í bíl sínum og gæti eigandinn vitj-
að þeirra hjá BSR í Lækjargötu.
Þar er saman komið' all mikið
góss sem fólk hefur verið' að skilja
eftir í bílum BSR og margan
óskilamuninn þar að finna.
Vísukorn
Kona í Kópavogi hringdi pg
vildi endilega koma eftirfarandi
vísu á framfæri, hún væri eftir
Bjarna Jónsson frá Gröf og væri
alger andstæða vísu sem birtist í
Velvakanda fyrir skemmstu.
Vísan er svona:
Oft ég gesti ungur sá
undir kaffíborðum
það greri ekki grasið á
Grafarhlaðinu forðum.
Leiöinlegnr vagri-
stjóri?
Þá hringdi ungur sveinn að
nafni Arni Stefánsson og sagði
farir sínar ekki sléttar af viðskipt-
um sínum við Strætisvagna Kópa-
vogs. Taldi hann vagnstjóra einn
hjá því fyrirtæki hafa komið
hranalega fram við sig og ómak-
lega. Ami tók Kópavogsvagn á
Lækjartorgi og bað um skiptimiða
þar eð hann ætlaði frá borði á
Kópavogshálsi og í annan vagn
þar til að ljúka ferð sinni. Árni
var við annan og tók hinn piltur-
inn við báðum skiptimiðunum, að
sögn Áma. Síðan reif félági Árna
annan miðann til að stríða honum,
en er Árni leitaði eftir því hjá
vagnstjóranum að fá nýjan skipti-
miða þá var ekki um það talandi,
miðann fékk hann ekki. Á Kópa-
vogshálsi steig hann síðan frá
borði og mátti láta sér lynda að
ganga á leiðarenda.
Víst er skip ...
Þá var hringt frá Ferðaskrif-
stofu ríkisins vegna bréfs fyrir
skömmu þar sem kona nokkur
kvartaði undan því að tækifæri
til siglinga héðan til nágranna-
landanna væru ekki fyrir hendi.
Talsmaður FÍ vildi benda þessari
konu og fleirum á, að FI væri
umboðsaðili á íslandi fyrir félag-
inu Smyril-Line, en á þess vegum
sigldi feijan Norröna hingað til
lands frá Noregi með viðkomu í
Færeyjum. Þetta væri vænsta
skip með öllum þægindum fyrir
farþega og nægu plássi fyrir
bílinn ef menn kærðu sig um.
Um fréttaflutmng, ráðhúsið o.fl.
Til Velvakanda.
Mér finnst þessi fréttaflutningur
í útvarpinu orðinn yfirgengilegur.
Það er verið að tyggja sömu frétt-
imar allan daginn. Til dæmis er
okkur sagt kl. 12 hvað segja eigi
okkur kl. 12.20, svo kemur það
helsta sem verður í fréttunum, svo
koma fréttirnar og síðast yfirlit
yfir það helsta sem í fréttum var.
Það er eins og verið sé að troða
einhveiju í hausinn á treggáfuðum
krökkum.
Kæri Velvakandi.
Eg las um það í blöðunum, að
nýlega tók til starfa Nordals-stofn-
un. Nú vil ég beina þeim tilmælum
til þessarar stofnunar að hún ein-
beiti sér að mjög mikilvægu verk-
efni, sem mér hefur lengi verið
hugstætt.
Augljóst er að íslenska krónan
er afskapiega veikburða gjaldmiðill.
Fremja hefur þurft á henni upp-
skurð og skera af henni tvö núll,
og var það gert fyrir nokkrum
árum. En aðgerðin virðist ekki hafa
heppnast nógu vel, því núllin hafa
haldið áfram að vaxa á krónunni.
Mér hefur því dottið í hug að'bráð-
nauðsynlegt sé að leggja krónuna
niður og taka upp í stað hennar
„dal“.
í því sambandi má benda á að
til foma tíðkuðust á íslandi ríkis-
dalir' og eru engar sögulegar heim-
ildir fyrir því að skera hafi þurft
núll af þessum dölum. En þar sem
ísland er nú einu sinni norrænt land,
og Nordals-stofnun tekin til starfa,
ætti að kalla þennan nýja dal
„Norda|“.
Ég er sannfærður um að þessi
hugmynd mundi njóta mikils fylgis
innan stjómar Seðlabankans.
Biskupstung-a
í sumar ferðaðist ég með austur-
þýskri konu um Biskupstungur, og
komum við loks í Skálholt. Þá verð-
ur mér á að opna fyrir útvarpið og
heyri þá viðtal við blaðafulltrúa
biskups, þ.e. blaðafulltrúa þjóð-
kirkjunnar. Þá var eins og eldingu
Svo em það minningargreinam-
ar. Það skrifa alltof margir um
sömu manneskjuna. Væri ekki ráð,
að þeir sem ætla að skrifa töluðu
við aðstandendur hins (hennar)
látna(u) og kæmu sér saman um,
að einhver einn skrifaði aðalgrein-
ina, hinir gætu svo skrifað nokkrar
línur, ef þeir vildu minnast einhvers
sérstaks, _ eða þakka fyrir liðnar
stundir. í afmælisgreinum og/eða
minningargreininni kæmi fram ætt
og yfirlit yfir æviskeiðið.
lysti niður í höfuð mér og ég hugs-
aði: „Biskupstungur og biskups-
tunga". Er þetta ömefni ekki til
komið vegna þess að hér bjó blaða-
fulltrúi biskups og nefndist þá
„biskupstunga".
Þið Morgunblaðsmenn sem viljið
vemda íslenska tungu — nú skora
ég á ykkur að nota aldrei oftar
orðskrípið „blaðafulltrúi biskups“,
heldur að íslenska þjóðin sameinist-
um að kalla hann „biskupstungu“,
og treysti ég því að Árni Böðvars-
son kenni skjálgeygum sjónvarps-
fréttamönnum að nota þetta orð,
ekki síður en blaðamönnum.
Þakka svo allan þann gleðigjafa
sem ég hef sótt í pistla þína.
Kveðja
Gunnlaugur Sveinsson,
rithöfundur
Til Velvakanda.
Væri ekki tæknimenntuðum raf-
virkjum og tölvufræðingum fært
að framleiða tæki sem væri blikk-
andi ljós, tengt hraðamæli og er
óleyfilegur hraði væri kominn til
dæmis í 90 km færi blikkljósið í
gang og jafnvel flauta bílsins svo
eftir yrði tekið? Ég tel að það yrði
aðhald fyrir þá sem alltaf em að
flýta sér og gæti jafnvel auðveldað
lögreglu eftirlit.
Jafnvel segulband, svokallaður
svarti kassi í flugvélum, yrði settur
í bíla sem bijóta hraðareglur þrisv-
Tíminn (dagblaðið) gaf um eitt
skeið út sérstakt fylgirit með blað-
inu með minningargreinum og svo
gat maður keypt möppur undir það.
Nú á tímum ættfræðiáhugans væri
þetta þægilegt.
Eru ekki forsendur staðsetningar
ráðhússins brostnar? Mér skildist á
Davíð að hann væri einna helst að
hugsa um að leysa bílastæðisvand-
ann í miðbænum, með því að koma
fyrir margra hæða bílgeymslu und-
ir húsinu. Það var alveg fáránlegt,
að ætla sér að grafa margarhæðir
niður fyrir sjávarmál! Besta lausnin
væri að fara með húsið upp á
Öskjuhlíð. Það nyti sín vel á hæð,
en er svo braggalegt séð ofan frá.
Sleppa svo „Skopparakringlunni".
GÁ
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspumir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
ar. Ekki þyrfti slíkt tæki að vera
dýrt og ætti að nota sektir til að
styrkja framleiðslu.
Hraðamælir er oftast innsiglaður
og ef brotið er innsigli á að beita
sektum, lágmark 10 þúsund krónur.
Staðsetning ljóss er ekki vanda-
laust. Það þarf að vera auðvelt að
þvo bflinn.
Þá er litur ljóss ekki auðleystur
og gæti það verið verkefni sérfræð-
inga.
ræðum málin, framkvæmum svo.
Viggó Nathanaelsson
Ur krónu í Nordal?
- og hugleiðing um biskupstungu
Svarta kassa í bifreiðir
6$>
§
Kaffiterian býður
■
kl. 5 á
hverjum morgru
I kaffiteríunni, sem er opin frá kl. 5-20 alla daga,
er boðið uppá Ijúffenga hraðrétti auk sérrétta
dagsins, sem valdir eru miðað við hráefnisgæði
hverju sinni. Frá kl. 5 á morgnana er boðið uppá
morgun verðarhlaðborð.
ANTIK
Langar þig í fallega og vandaða hluti?
Líttu þá inn á Grettisgötu 16.
Húsgögn, málverk, ljósakrónur, konunglegt
postulín, silfur, klukkur og margt fleira.
Greiðsluskilmálar- staðgreiðsluafsláttur.
Antikmunir,
Grettisgötu 16-sími 24544
Opiðfrá kl. 13.00
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
Síðasta hraðlestrarnámskeið vetrarins hefst 23. mars nk.
Námskeiðið hentaröllum, sem vilja margfalda lestrarhraða
sinn, hvort heldur er við lestur fagurbókmennta eða námsbóka.
Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 í síma 641091
(ath. nýtt símanúmer).
Hraðlestrarskólinn.
Nýsending af
£JLoaM*
hanska skinnskóni
og breiðum götuskóm
Póstsendum
SKÓ SEL
LAUGAVEGI 44, SÍMI 21270