Morgunblaðið - 24.03.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1988
29
□
Barátta kynjanna i algleymingi.
„ Allt eins og stafur á bók, - þannig vil ég hafa þessa hluti."
Fastur viöskiptavinur.
FLUTNINGUR ER OKKAR FAG
EIMSKIP
Anægjustund í Mennta-
skólanum á Egilsstöðum
eftirKristínu
Jónsdóttur
Lýsistrata eftir Aristófanes.
Þýðing: Kristján Árnason.
Leikstjóri: Ingnnn Ásdísardóttir.
Lýsing: Vilhjálmur Hjálmarsson.
Ljósamaður: Kristján Guðmunds-
son.
Leikmynd og búningar: Leik-
stjóri og leikarar.
Leikarar: Sigurlaug Gunnars-
dóttir, Marta Kristjánsdóttir,
Margrét Bergmann, Elísabet
Þorsteinsdóttir, Þorbjörg Pét-
ursdóttir, Erla Ingadóttir, Arn-
heiður Árnadóttir, Sólný Páls-
dóttir, Álfheiður Ingólfsdóttir,
Árdís Orradóttir, Siguijón Óla-
son, Grétar Eggertsson, Björn
St. Júlíusson, Hlöðver B. Jökuls-
son, Einar Sigurðsson, Daníel
Sigmundsson, Rúnar Erlingsson,
Jakob R. Atlason, Heimir Ás-
mundsson, Páll Þórðarson.
Miðvikudagskvöldið þann 9.
mars sl. veittist mér sú ánægja að
vera viðstödd frumsýningu Leik-
félags Menntaskólans á Egilsstöð-
um á Lýsiströtu eftir Aristófanes.
Þetta var jafnframt fyrsta sýning
þessa nýstofnaða leikfélags.
Salur ME, sem er ekki neitt drau-
maleikhús, var þáttskipaður áhorf-
endum sem tóku sýningunni vel og
betur því lengra sem leið. í upphafí
virtist mér gæta nokkurrar tor-
tryggni, en það breyttist fljótlega
og í sýningarhléi virtist mér tor-
tryggnin horfín en eftirvænting
komin í staðinn.
Um verkið og höfund þess hirði
ég ekki að fjalla, það hafa aðrir
mér fróðari margsinnis gert í ald-
anna rás. Ég ætla aðeins að fjalla
um það er fyrir augu og eyru bar
þessa ágætu kvöldstund.
Á ég að segja að sviðsmyndin
hafí verið ómöguleg og lýsingin lé-
leg, að leikurinn hefði mátt vera
betri og að framsögninni sé ábóta-
vant?
Sennilega þóknaðist ég þá þeim
er telja að við, hér á landsbyggð-
inni, eigum ekki að vera að þessu
brölti, lærða leikhúsfólkið fyrir
sunnan eigi eitt að sjá okkur fyrir
allri leiklist. En ég er á annarri
skoðun og í þetta sinn er staðreynd-
in sú að mér fannst leikmyndin al-
veg eins og hún átti að vera, þrátt
fyrir svarta plastið, og búningamir
féllu vel að leikmyndinni, hóflega
litskrúðugir í látleysi sínu. Lýsingin
var skemmtileg en ónóg á stundum,
en ég veit ástæðuna fyrir því.
Og þá er það frammistaða leikar-
anna. Allir sem einn sýndu þessir
ungu leikarar hlutverkum sínum
alúð og þegar það er gert fer ekki
hjá því að árangurinn verður góð-
ur, að vísu misgóður eins og geng-
ur. En einmitt vegna þessarar alúð-
ar varð þessi sýning svona
skemmtileg, lifandi og góð.
Veikasti hluti sýningarinnar var
kór karlanna og stelpurnar voru
sterkari í heild en strákarnir.
Sigurlaug í hlutverki Lýsiströtu
var falleg og býsna sköruleg og
meðferð hennar á þessum mikla
texta til fyrirmyndar, þar varð
hvergi misbrestur á.
Grétar var hreint stórkostlegur í
hlutverki Kínesíasar „hins konu-
lausa“ og fór þar allt saman, góð
textameðferð, lipurð, og látbragð.
Fleiri mætti nefna, svo sem Daníel
og Margréti, en geri ég það er
hætt við að langt verði í endapunkt-
inn.
Leikstjórn Ingunnar ber það með
sér að hún kann vel til verka og
að hún kann að vinna með áhuga-
fólki. Þá á ég við að hún spennir
bogann nógu hátt til þess að eitt-
hvað sé við að fást, en þó ekki það
hátt að leikarinn ráði ekki við það.
Þessi meðalvegur er oft á tíðum
vandrataður, en hér tekst Ingunni
svo sannarlega að rata hann. Og
fram hjá þeirri hættu, sem vissulega
er fyrir hendi, að gera sýninguna
„grófa“, tekst henni farsællega að
sigla. Henni tekst að gera konumar.
skemmtilega lokkandi og karlana'
grátbroslega í kvenmannsleysi sínu.
Ein leikstjómarmistök sem fóm
skelfílega í taugamar á mér verð
ég að nefna en það var lengdin á
forleiknum (flautinu) sem var
skemmtilegur en bara of langur.
Um lýsingu sýningarinnar sá
ungur áhugamaður að sunnan en
ættaður héðan að austan, Vilhjálm-
ur Hjálmarsson, og tókst vel, miðað
við þær aðstæður er fyrir hendi em.
Ég vona að Egilsstaðabúar, svo
og aðrir hér í nágrenninu, sýni
þessu framtaki áhuga og sjái sýn-
inguna, hún svíkur engan.
Leikfélagi ME óska ég til ham-
ingju með þessa sýningu sem var
ykkur öllum til sóma. Ingunni óska
ég til hamingju með fyrstu uppsetn-
inguna á heimaslóðum en vonandi
ekki þá síðustu. Og menntaskólan-
um til hamingju með að hafa eign-
ast leikfélag.
Höfuadur er forstöðumaður
Bókasafns Héraðsbúa á Egilsstöð-