Morgunblaðið - 19.05.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
15
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Þœr Eva Ösp Arnardóttir, Brynhildur Steinsdóttir og Sigríður Erla
Einarsdóttir, sem eru að ljúka 7. bekk í Foldaskóla, voru ánægðar
með starfsdaginn enda aðstöðuleysið algjört á skólalóðinni.
Kópavogsvöllur
19. maí
kl. 20.00.^
BREIÐABLIK - FH
Toppleikur í Kópavoginum
Heiðursgestur: Halldór Halldórsson.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Guðmundur G. Kristinsson, formaður Ungmennafélags Grafarvogs,
stendur við „svampakastið".
„Afskaplega ánægður og
með þetta framtak"
„Ég er afskaplega ánægður og
lukkulegur með þetta framtak, sem
Foreldra- og kennarafélagið á
frumkvæðið að. Fólkið í hverfinu
kemur saman og styður skólann að
eigin frumkvæði og sýnir velvilja
sinn í garð skólans í verki,“ sagði
Amfinnur Jónsson, skólastjóri
Foldaskóla. „Það er mikilvægt fyrir
kennara og aðra forráðamenn skól-
ans að finna stuðning íbúanna enda
eru mikilvæg verkefni fi-amundan.“
Allur ágóði af blóma- og kaffisöl-
unni á starfsdeginum rennur til
tækja- og bókakaupa. Sagði Am-
finnur að fyrirhugað væri að festa
kaup á fáeinum tölvum, sem auðvel-
duðu námsgagnagerðina til
muna.og auk þess yrðu keyptar
bækur til skólans, en fyrir er vísir
að bókasafni, sem fyrirhugað er að
verði hverfisbókasafn í framtíðinni.
Reiknað er með að 2. áfangi
Foldaskóla komist í gagnið í upp-
hafi næsta skólaárs. Þar verða sér-
kennslustofur fyrir mynd- og hand-
mennt og raungreinar og nokkrar
almennar kennslustofur auk sam-
komusals og rýmis til félags- og
tómstundastarfs. Reiknað er með
að a.m.k. 700 nemendur verði í
skólanum næsta vetur, sem er fjölg-
un um 200, f 34 bekkjardeildum frá
forskóla og upp í 8. bekk. En þótt
heilt hús bætist við er rétt svo rúm
fyrir alla þessa nemendur í skólan-
um.
Amfinnur sagði því óhjákvæmi-
legt að undirbúa strax byggingu
3. áfanga skólahússins þannig að
framkvæmdir við þann áfanga hefj-
ist í haust enda væri sýnt að nem-
endum kæmi enn til með að fjölga.
„Okkur rennur blóðið til
skyldunnar“
„Tilgangurinn með þessum degi
er margþættur," sagði Pétur Sig-
urðsson, formaður Foreldra- og
kennarafélags Foldaskóla.„Þetta
framtak vekur athygli á skólanum
og svo var þörfín orðin brýn fyrir
því að fegra umhverfið við skólann
og skapa yngstu nemendunum að-
stöðu til leikja. Okkur þótti einnig
tilvalið að gera eitthvað sjálf, sýna
frumkvæði. Okkur rennur blóðið til
skyldunnar að styðja skólann eins
og við getum þar sem við erum
fyrsta kynslóð foreldra hér í hverf-
inu og það er brýnt að hlúa vel að
skólamálunum strax frá upphafí."
„Hús er ekki fullkominn skóli,
það þarf kennara og nauðsynlegan
tækjabúnað. Margir nemendanna
koma úr skólum í grónum hverfum
borgarinnar, sem eru vel búnir
kennslutækjum, og því voru við-
brigðin mikil þegar þeir komu í
Foldaskóla, sem er illa búinn tækj-
um. Af þessum sökum hefur verið
komið af stað söfnun meðal íbúanna
og fyrirtækja, sem haft hafa um-
svif í Grafarvogi, til tækja og bó-
kakaupa fyrir skólann," sagði Pét-
ur.
„En það er allt á réttri leið með
dögum eins og þessum. Við vonum
bai-a að þeir sem hafa með fjárveit-
ingar borgarinnar að gera meti
þessa viðleitni," sagði Pétur að lok-
um og var rokinn í að undirbúa
gróðursetninguna, sem við höfðum
truflað hann við.
Zenith tölvur
=<SAMEINP>
BYKO
'sm-2
Erekki tilvalið
að ferðast
ódýrt og þægilega
með SAS
til Norðurlanda
Það er varla til sú borg sem
ekki er í víðtækri og öruggri
flugáætlun SAS. Nú geta
Íslendingar notið þjónustu SAS
og ferðast til Kaupmannahafnar,
Gautaborgar, Oslóar, Bergen,
Helsinki og Stokkhólms á ódýran
og númer eitt, þægilegan hátt.
SAS er þekkt fyrir góða þjónustu
við farþega sína.
Með SAS kemstu örugglega á
áfangastað — hvert sem er!
Allar nánari upplýsingar færðu
á ferðaskrifstofum og hjá SAS,
símar 21199 og 22299.
<
co
■£
É
S4S
Laugavegi 3, símar 21199 / 22299
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN