Morgunblaðið - 19.05.1988, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
33
Nýja kennsluhúsið sem tekið verður í notkun næsta haust.
Menntaskólinn á Egilsstöðum:
Stúdentar braut-
skráðir á hvítasunnu
Landgræðsla ríkisins:
1600 toimum af áburði og
grasfræi dreift í
ÞRETTÁNDA útskrift stúdenta
úr Menntaskólanum á Egilsstöð-
um hefst í Egilsstaðakirkju á
hvítasunnudag kl. 2 eftir hádegi.
Að henni lokinni hefur skólinn
brautskráð 291 stúdent, en að
þessu sinni stefna 44 að útskrift,
16 piltar og 28 stúlkur.
Atta brautir eru starfræktar við
skólann og skiptast stúdentsefnin á
þær sem hér segir: 11 á uppeldis-
braut, 8 á félagsfræðibraut, 8 á
viðskiptabraut, 4 á eðlisfræðibraut,
4 á heilsugæslubraut, 4 á náttúru-
fræðabraut, 3 á málabraut og 2 á
íþróttabraut.
Þróunin hefur orðið sú á undan-
fömum árum að íþróttabraut og
viðskiptabraut hafa vaxið en mála-
braut hefur dregist saman. Nú er
fyrirhugað að efla málanám með
því að bjóða upp á ferðamálalínu
málabrautar en slíku námi er ætlað
að búa nemendur undir störf að
ferðamálum. Að öðm leyti er komin
festa á námsframboð og kennaralið
en sl. vetur störfuðu 18 kennarar
við skólann auk skólameistara.
Þorri stúdentsefna er svo sem
vænta má af Austurlandi, en sjö
em utan fjórðungs allt frá Hrísey
til Þorlákshafnar. Fimmtán em frá
Egilsstöðum og af Héraði, 5 frá
Neskaupstað, 4 frá Seyðisfírði en
færri af öðram stöðum austanlands.
Nú standa yfir byggingafram-
kvæmdir við myndarlegt kennslu-
hús sem að mestu verður tekið 1
notkun næsta haust. Mun þá stór-
batna öll aðstaða til skólahalds,
kennslu og félagslífs.
(Fréttatilkynning)
GERT er ráð fyrir að dreifa um
1600 tonnum af áburði og gras-
fræi í sumar með báðum flugvél-
um Landgræðslunnar, Páli
Sveinssyni og TF TÚN. Stærsta
verkefnið verður í Skógey við
Höfn í Hornafirði þar sem dreift
verður 200 tonnum á friðuðu
landi. Áburðar- og frædreifing
Landgræðslunnar hefst eftir
hvítasunnu þegar dreift verður
70 tonnum á Suðumesjum með
minni áburðarvélinni, TF TÚN.
Sáningin á Suðumesjum er hluti
af landgræðsluáætlun en einnig
samvinnuverkefni sveitarfélaganna
þar og Landgræðslunnar. Ennfrem-
ur gaf íslenska álfélagið fímm millj-
ónir til landgræðslustarfa á þessu
svæði. Eftir verkefnið á Suðumesj-
um fer TF TÚN til Vestmannaeyja,
siðan í Gunnarsholt á Rangárvöllum
og svo hringinn í kringum landið
til frædreifingar á hinum ýmsu land-
græðslusvæðum.
Dreifing á fræi og áburði með
stærri flugvélinni, Páli Sveinssjmi,
hefst frá Reykjavík í lok mánaðarins
og verður þá dreift á svæði á Suður-
nesjum. Áð því loknu mun vélin
fljúga frá Gunnarsholti og dreifa
þaðan á ýmis svæði á Suðurlandi.
Upp úr 20. júní fer vélin norður til
Sauðárkróks og dreifír þaðan á upp-
græðslusvæði vegna Blönduvirkjun-
ar. Einnig mun vélin fara frá
Húsavík í landgræðsluflug á svæði
í Þingeyjarsýslum
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri segir önnur verkefni Land-
græðslunnar hefðbundin við gróðu-
reftirlit og viðhald á girðingum. Á
landinu em 70 afgirt svæði og girð-
ingamar í heild, sem halda þarf við,
um 1000 kílómetrar, Gróðurvemd
og gróðureftirlit verður með hefð-
bundnum hætti í samvinnu við sveit-
arfélög og gróðurvemdamefndir um
land allt. Unnið verður að því að
upprekstur fjár á afrétti hefjist ekki
fyrr en groður er nægilega kominn
á veg að mati þessara aðila.
23 nýjar þáttaraðir birtast áhorf-
endum Stöðvar 2 i sumar, þar af
2 innlendar. Meiri áhersla verður
lögð á menningarefni, að sögn
Kolbrúnar Sveinsdóttur kynning-
arstjóra og er vægi innlends efni
svipað og verið hefur, en i sumar
verður unnið talsvert af innlendu
efni i vetrardagskrá stöðvarinn-
ar. í byijun júní hefur göngu sina
vikulegur skemmtiþáttur i opinni
dagskrá. Hann kallast „í sumar-
skapi“ og verður sendur beint út
frá Hótel íslandi. Þá eru nýhafnir
spumingaþættimir „Svaraðu
strax“.
„í sumarskapi" hefur göngu sína
3. júní næstkomandi og að honum
standa, auk Stöðvar 2, HÓtel ísland
og Stjaman. Hann verður sendur
samtímis út á Stjömunni. Stjómend-
sumar
í sumar verður sáð fyrir lúpínu í
fræakra í Gunnarsholti og á Skógas-
andi og er vonast eftir umtalsverðri
uppskem af lúpínufræi næsta haust
af ökmnum í Gunnarsholti. Sáning
melfræs verður einnig veraleg hjá
Landgræðslunni. Áformað er að sá
í sumar meðfram nýja veginum yfír
Mýrdalssand og á Haukadalsheiði í
Ámessýslu.
ur þáttanna verða þau Jömndur
Guðmundsson og Saga Jónsdóttir,
auk þess sem Flosi Ólafsson-kemur
fram í hveijum þætti. Þættimir
munu tengjast atburðum og uppá-
komum í þjóðlífí hveiju sinni og
tengist hver þáttur ákveðnu efni.
Sá fyrsti verður helgaður sjómönn-
um og á döfínni em m.a. þættir um
listahátíð og fjallkonuna.
Öllum er heimilt að vera viðstadd-
ir útsendingu frá Hótel íslandi.
Kolbrún sagði að aukin áhersla
væri lögð á menningarefni í dag-
skránni og nefndi vikulega þætti á
borð við „Menningarstundir" þar
sem kynnt er ópera mánaðarins,
ballettar ofl; „Listamannnaskálinn",
þar sem fjallað er um þekkta erlenda
listamenn, t.d. Mariu Callas og Andy
Warhol.
Stöð 2:
Aukin áhersla lögð
á menningarefni
Vikulegir skemmtiþættir í beinni útsendingu
Ekið á veg-
farendur
og á brott
ELDRI kona varð fyrir vélhjóli
á Miklubraut á sunnudag og slas-
aðist nokkuð. Ökumaður vél-
hjólsins ók á brott og er hann
beðinn að hafa samband við
slysarannsóknadeild lögreglunn-
ar sem fyrst.
Slysið varð rétt fyrir kl. 15 á
sunnudag. Konan var á leið norður
yfír Miklubraut á móts við Stigahlíð
16 þegar hún varð fyrir hjólinu, sem
var ekið austur brautina. Konan
féll í götuna og handleggsbrotnaði,
auk þess sem hún meiddist á fæti.
Þá var ekið á dreng á reiðhjóli í
Breiðholti á sunnudag, um kl.
15.30. Drengurinn var á leið yfír
Vesturhóla, frá Kríuhólum, þegar
hann varð fyrir bifreið, ljósri Lada
Samara, sem ekið var vestur Vest-
urhóla. Drengurinn, sem er 8 ára
gamall, slasaðist á hendi og kennir
eymsla í höfði. Ökumaðurinn ræddi
við drenginn, en er nú beðinn að
hafa samband við slysarannsókna-
deild lögreglunnar.
Aukasýningá
Don Giovanni
ÍSLENSKA óperan hefur nú
ákveðið eina aukasýningu á óper-
unni Don Giovanni eftir Mozart,
föstudaginn 27. mai kl. 20.00.
Húsfyllir var á sýningum um
síðustu helgi og eftirspum mikil og
þar sem hljómsveitarstjórinn, Anth-
ony Hose, getur komið til landsins
þessa helgi, þótti tilvalið að hafa
aukasýningu fyrir þá sem urðu að
hverfa frá áður. Þetta er því síðasta
tækifærið til að sjá og heyra óper-
una.
(Fréttatilkynning)
BILLINN
2. tbl. 1988
Reynsluakstur: Nýr BMW520i
og Lada Samara 1500.
- Hvernig á að veljajeppa?
- EðalvagnaríÓlafsfirði.
- Glæsilegustu
sýningarbílarnir.
- Verðskráin:
Nú erað grípa
gæsina.
Frjálstframtak
Ármúla 18,108 Reykjavfk
Aðalskrifstotur: Árrnúla 18 — Sími 82300
Ritstjóm: Bfldshöfða 18 - Sfmi 685380