Morgunblaðið - 22.04.1992, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRMIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992
B 3
HANDKNATTLEIKUR
Heimavöllur Eyjamanna
sá erfiðasti í deildinni
- segir Kristján Arason. „Á von á miklum baráttuleikjum"
KRISTJÁN Arason stýrði FH til sigurs gegn Stjörnunni íátta liða
úrslitum, en það gekk ekki átakalaust fyrir sig og oddaleik þurfti
til að skera úr um hvort liðið færi áfram. „Þetta var barningur.
Við vorum ekki tilbúnir í fyrsta leik, en vöknuðum til lífsins rétt
eins og stuðningsmennirnir. Ég á von á miklum baráttuleikjum
gegn ÍBV í undanúrslitunum, en það er erfiðast að sækja Eyja-
menn heim — heimavöllur þeirra er sá erfiðasti í deildinni — en
við erum tilbúnir í slaginn.*1
Kristján sagði að stuðningsmenn
hefðu gríðarlega mikið að
segja í svona úrslitakeppni, þar sem
hver leikur væri nánast spurning
um líf eða dauða.
„Ég held að áhorfendur okkar
hafi talið að við ættum greiða leið
í undanúrslit og því ekki fjölmennt
á fyrsta leikinn. Tapið ýtti við þeim
og þeir voru frábærir í Garðabæn-
um að ég tali ekki um þriðja leik-
Leikir í undanúr-
slitum karla
Tvo sigra þarf til að komast
áfram í úrslit: FH - ÍBV:
Kaplakriki, í kvöld 20.30
Vestm., föstud. 24. apríl... .20
Kaplakriki, sd. 26. apríl.... Víkingur - Selfoss: .20
Víkin, í kvöld .20
Selfoss, föstud. 24. apríl... .20
Víkin, sunnud. 26. apríl.... .20
Leikir í úrslit.um kvenna
Leikir, sem eftir eru: Stjarnan - Víkingur: Víkin, fimmtud. 23. apríl.. .20
Garðabær, lau. 25. apríl.... .14
■Tímasetning í 5. leik ekki
endanlega ákveðin.
inn. Stemmningin var mjög góð og
á eftir að verða betri. Það er mikill
styrkur að eiga tvo heimaleiki vísa
gegn Eyjamönnum — og sjálfsagt
veifir ekki af.“
FH tekur á móti ÍBV í Kapla-
krika klukkan 20.30 í kvöld og
sagði Kristján að Eyjamenn hefðu
sýnt í leikjunum gegn KA að þeir
væru til alls líklegir. „Styrkur liðs-
ins felst í því að leikmennirnir eru
jafnir og Sigmar Þröstur getur
hreinlega lokað markinu. Það verð-
ur erfitt að eiga við þessa menn,
en okkur er ekkert að vanbúnaði."
Selfyssingar í Víkinni
Víkingar taka í kvöld á móti
Selfyssingum í Víkinni og er þetta
fyrri, eða fyrsti leikur liðanna í
undanúrslitum. Ef marka má leiki
liðanna í vetur þá ættu Víkingar
ekki að verða í vandræðum í kvjöld.
Þeir unnu fyrri leik liðanna, á Sel-
fossi, 33:29 og síðari leikinn, í Vík-
inni, 31:15.
En það er ekki alltaf að marka
tölulegar staðreyndir, þær segja
ekkert um hvernig liðin leika í kvöld
og það er ekki að efa að leikurinn
verður spennandi og skemmtilegur.
Selfyssingar gera yfirleitt mörg
mörk og hafa góða markverði sem
geta gert út um leikinn. Bæði lið'
Kristján Arason á von á efrfíðum leikjum gegn
Eyjamönnum í undanúrslitum íslandsmótsins.
eru ákveðin í að fara alla leið í úrslit, og því verður
ekkert gefið eftir í kvöld.
SKIÐI/VISA-BIKARMOT SKI
Heimasigur
„ÞETTA var sætur sigur og ekki var verra að
sigra á heimavelli," sagði Isfirðingurinn Arnór
Gunnarsson eftir sigurinn í svigi karla á Visa-
bikarmóti SKÍ á Seljalandsdal á skírdag. Sænski
ólympíumeistarinn, Pernilla Wiberg, hafði mikla
yf irburði í svigi kvenna eins og vænta mátti.
Arnór var með fjórða besta tímann eftir fyrri
umferð en þá hafði Svíinn Christophe Granberg
besta tímann, en fór útúr í síðari umferðinni. Kristinn
Björnsson fór út úr brautinni í fyrri
umferð í þriðja hliði. Arnór hlaut 53,36
fis-stig (alþjóðleg styrkstig) og er það
besti árangur hans til þessa, átti áður
best 73 fis-stig. Arnór hyggst dvelja í
Noregi við æfingar næsta vetur.
Ólympíumeistarinn Pemilla Wiberg sýndi yfirburði
sína í svigi kvenna. Hún keyrði á fullu báðar umferð-
irnar, ólíkt því sem hún hafði áður gert. „Eftirlitsmað-
urinn sagði að ég yrði að keyra á fullu alla leið ann-
ars myndi hann dæma mig úr leik. Það væri allt of
áberandi að stoppa í brautinni til að gefa hinum kepp-
endunum betri punkta. Ég gaf því allt í báðar umferð-
irnar að þessu sinni,“ sagði hún.
Ásta Halldórsdóttir varð fjórða, tæpum sex sekúnd-
um á eftir Pernillu. Ásta hlaut 55,97 fís-stig, sem
verður að teljast mjög raunhæft miðað við styrkleika
mótsins.
ValurB.
Jónatansson
skrifarfrá
Isafirði
Erla óstöðvandi
„ÞETTAvar mjög spenn-
andi enda mjög jöfn lið og
hver leikur uppá líf og
dauða og harka eins og á
að vera. Þetta verður erfitt
íVíkinni en við stefnum að
sjálfsögðu á sigur“, sagði
Erla Rafnsdóttir, sem var
hetja Stjörnunnar í 20:19
sigri yfir Víkingum í gær-
kvöldi. Stjarnan hefur nú
unnið tvo leiki en aðeins
tapað einum gegn Víking í
úrslitakeppninni og þarf
einn sigur í viðbót til að
hljóta titilinn.
Stjarnan náði strax naumri
forystu og hélt henni
nema hvað Víkingum tókst að
komast yfir einu
sinni í leiknum,
þegar staðan
var 5:6 og átján
mínútur liðnar
af leiknum. Varnir liðanna voru
harðar en Víkingar sýndu mun
fleiri sóknarfléttur á meðan
Stjarnan reyndi meira að kom-
ast í gegnum miðjuna.
Stjarnan hélt tveggja marka
forystu eftir hlé og var að ná
tökum á leiknum með stórleik
Stefán
Stefánsson
skrifar.
Erlu Rafnsdóttur þegar Víking-
ar tóku góðan sprett og minnk-
uðu muninn niður í eitt mark.
Inga Lára tók þá Erlu úr
umferð, liðin skiptust á að skora
en þegar 40 sekúndur voru til
leiksloka minnkaði Svava Ýr
muninn í eitt mark. í næstu
sókn missti Stjarnan boltann
þegar aðeins 15 sekúndur voru
til loka en Nina varði skot úr
hraðaupphlaupi Víkinga þegar
5 sekúndur voru eftir, boltinn
hrökk út í hendur Svövu en
Nina gerði sér lítið fyrir og
varði aftur.
Baráttan færði Stjörnunni
sigurinn. Erla og Herdís Sigur-
bergsdóttir stóðu sig mjög vel
en Nina hefur oft varið betur.
Sóley Guðmundsdóttir kom
inná í skamma stund og varði
ágætlega.
Víkingar sýndu oft skemmti-
legar fléttur í sókninni og vörn-
in var yfirleitt góð en var refsað
fyrir hver mistök. Inga Lára og
Halla María Helgadóttir stóðu
sig best. Markverðimir Sigrún
Ólafsdóttir og Hjördís Guð-
mundsdóttir áttu einnig ágætan
leik.
SUND / ALÞJOÐLEGT MOT I SKOTLANDI
Allir fiarri Ól-lágmörkum
Ingibjörg Arnardóttir og Arnar Freyr Ólafsson settu íslands-
met á alþjóðlegu sundmóti í Edinborg um páskana, en
hvorki þeim né öðrum íslenskum þátttakendum tókst að synda
undir lágmarki vegna Ólympíuleikanna í Barcelona.
Ingibjörg synti 800 m skriðsund á 9.06,14, en íslandsmetið
var 9.07,30 og ólympíulágmarkið er 9.00,40. Hún varð í 5.
sæti. Arnar Freyr fór 400 m fjórsund á 4.37,27 og hafnaði í
4. sæti, en metið var 4.39,43 og lágmarkið 4.33,03.
Eðvarð Þór Eðvarðsson varð í 2. sæti í 50 m baksundi á
27.64 og í 4. sæti í 100 m baksundi á 58,82, en ólympíulág-
markið er 57,75. Aðrir íslenskir keppendur vom fjær lágmörk-
unum fyrir Ólympíuleikana og Islandsmetum. Ragnheiður
Runólfsdóttir er því enn eini sundmaðurinn, sem hefur synt
undir lágmörkum sem sett voru fyrir Ólympíuleikana.
HANDKNATTLEIKUR
ísland 5 sek. frá
að komast áfram
Islenska landsliðið skipað leikmönnum 17 ára og
yngri eru úr leik í Evrópukeppninni í handknatt-
leik. Strákarnir töpuðu ekki leik í Litháen, en máttu
lúta í lægri haldi fyrir landsliði Litháen á markamun.
íslensku strákarnir unnu landslið Lettlands, 24:22,
og lið Eistlands, 32:24. Þeir gerðu síðan jafntefli,
22:22, gegn liði Litháen, sem jafnaði þegar fimm
sek. voru til leiksloka.
Það er óhætt að segja að lítill undirbúningur hafi
orðið íslenska landsliðinu að falli. Þau mistök urðu
hjá Handknattleikssambandi íslands að rangur aldurs-
hópur var þjálfaður upp fyrir keppnina í Litháen, al-
veg frá því í október. Það kom ekki fram fyrr en
rétt rúmlega viku fyrir mótið að rangur aldurshópur
hafi verið við æfingar í hátt í sjö mánuði.
Hættir Eyjólfur
með Stjörnuna?
Samningur Eyjólfs Bragasonar við Stjömuna er
útrunninn og er óvíst hvort hann heldur áfram
að þjálfa liðið. Hann sagði við Morgunblaðið að þar
sem miklar breytingar væru fyrirsjáanlegar hjá félag-
inu, bæði varðandi stjóm og leikmenn, gæti hann
ekki annað sagt en að framtíðin væri óráðin.
Stjarnan var nálægt því að slá FH út af laginu í
átta liða úrslitum íslandsmótsins, en fór illa að ráði
sínu í öðrum leik og tapaði síðan aftur á útivelli í
oddaleiknum. „Miðleikurinn situr í manni,“ sagði Ey-
jólfur. „Við höfðum möguleika á að komast áfram
og hefðum gert það með skynsamlegri leik á heima-
velli og því er svekkjandi að vera úr leik. Hins vegar
voru leikirnir góðir fyrir íslenskan handknattleik og
ljóst er að við erum á réttri braut varðandi mótafyrir-
komulagið. Þessi úrslitakeppni er gott veganesti fyrir
lið í Evrópukeppni sem og landsliðið, því hver leikur er
í raun úrslitaleikur og það er allt annað að leika með
2.000 áhorfendur á bakinu en að spila í hálftómu húsi.“
Völsurum boðið
til Frakklands
Valsmönnum hefur verið boðið að taka þátt í sterku
handknattleiksmóti í Frakklandi í haust. Þetta
er sama mótið og Valsmenn sigruðu á síðastliðið haust
en fyrirkomulaginu hefur verið breytt. Nú eru vegleg
peningaverðlaun i boði fyrir tvö efstu sætin og ætla
Valsmenn sér að krækja í þau auk þess sem þeir
ætla að halda bikarnum veglega sem þeir hafa varð-
veitt.
Mótið verður í Frakklandi 4.-6. september og á
svipuðum tíma eiga Valsmenn heimboð til Spánar,
Þýskalands og Luxemborgar og svo gæti farið að
þeir leiki nokkra leiki á þessum stöðum um leið og
þeir fara til Frakklands.
KNATTSPYRNA
Grasshopperán
lykilmanna
Sigurður Grétarsson og samheijar í Grasshopper
hafa tapað dýrmætum stigum að undanfömu í
úrslitakeppni svissnesku deildarinnar og eru nú stigi
á eftir Sion, en sex umferðir eru eftir. „Við höfum
spilað ágætlega en ekki tekist að skora,“ sagði fyrir-
liði íslenska landsliðsins við Morgunblaðið. „Ástæðan
er fyrst og fremst sú að sex af fastamönnum liðsins
hafa verið frá vegna meiðsla og munar um níinna."
Grasshopper tapði 1:0 heima fyrir Sion um helgina
eftir að hafa beðið lægri hlut fyrir sömu móthetjum
í umferðinni þar á undan. „Leikurinn á mánudaginn
var í járnum. Við fengum þijú góð marktækifæri í
fyrri hálfleik en tókst ekki að skora og Sion tryggði
sér sigurinn mínútu fyrir leikslok.“
Sigurður hefur leikið í fremstu víglínu en mest
vinstra megin á miðjunni. Iiann sagði að tveir fasta-
menn á miðjunni væru að ná sér og yrðu væntanlega
með í síðustu umferðunum og því væri ekki öll nótt
úti enn. Síðasta umferðin verður 30. maí og taldr
Sigurður sennilegt að úrslitin réðust ekki fyrr en þá.
GOLF
Nýr goHklúbbur
ÁHUGAMÉNN um golf ætla að stofna nýjan golf-
klúbbb, Golfklúbb Hvammsvíkur, og verður stofnfund-
urinn í kvöld kl. 21 í Brautarholti 30.