Morgunblaðið - 22.04.1992, Blaðsíða 8
mmn
KNATTSPYRNA / ENGLAND
ÞORVALDUR Örlygsson, sem lék ekkert með aðalliði Nottingham
Forest á síðasta keppnistímabili og var áf ram úti í kuldanum f
vetur, fékk loks tækifæri í síðustu viku og hefur leikið með liðinu
i síðustu þremur leikjum. „Samningurinn rennur út ívor og því
var þetta það besta sem gat komið fyrir mig,“ sagði Þorvaidur
við Morgunblaðið. „Ég skrifa ekki aftur undir hérna, en nú stend
ég vei að vígi og þetta eykur líkurnar á að ég fái tilboð. Ég er
vongóður um að vera kyrr í Englandi, en sjálfsagt hentar mér
betur að leika á meginlandinu. Ég hef ágætan umboðsmann, sem
hefur góð sambönd, en víst er að ég tek ekki hvaða boði sem er.“
Þorvaldur lék með varaliðinu á
mánudag í síðustu viku, með
aðalliðinu gegn Luton daginn eftir,
. síðan gegn Aston Villa á laugardag
og Manchester United í fyradag.
Hann sagðist vera ánægðastur með
hlut sinn í ieiknum gegn Aston
Villa, sem Forest vann 2:0, en þá
lagði hann upp seinna markið. „Eg
lék þá á miðjunni, sem hentar mér
best og því kann ég best við mig
þar. Við höfðum mikla yfírburði í
fyrri hálfleik og áttum að vera 3:0
yfir miðað við gang leiksins, en leik-
menn Villa voru klaufar að skora
ekki eftir hlé.“,
Færri komust að en vildu, þegar
Forest sótti Manchester United
heim á annan í páskum. Þorvaldur
sagðist ekki vera ánægður með fyrri
hálfleik hjá sér og kenndi því um
_að hann hefði leikið á hægri vængn-
um. „Völlurinn var líka mjög erfið-
ur, sennilega sá versti í deildinni
um þessar mundir. En stemmningin
var mikil og það var gaman að sigra
á Old Trafford."
Hugsa ekki um að spila heima
Þorvaldur lék með Fram s.l. sum-
ar, en hann sagði að staðan nú
benti ekki til þess að hann spilaði
heima í sumar. „Ég gef mér eins
mikinn tíma og ég get til þess að
ákveða um framhaldið og hef ekki
hugsað um að spila á íslandi í sum-
ar. Ég bíð með allar ákvarðanir þar
til samningurinn við Forest rennur
út.“
íslenska landsliðið hefur notið
krafta Akureyringsins og sagði
hann að á því yrði engin breyting.
Hann átti alveg eins von á að vera
í hópnum á Wembley, þegar Forest
lék til úrslita í deildarbikarkeppn-
inni, en fór með landsliðinu til Isra-
el í vikunni á undan og fékk ekki
tækifæri fyrr en eftir tapið. „Þegar
maður sleppir ekki landsleik rétt
fyrir viðureign á Wembley, þá verð-
ur landsleik aldrei sleppt."
Meistarabarátta
Hér má sjá stöðu þeirra þriggja
liða sem berjast um Englands-
meistaratitilinn - stig, markatölu,
hvað mörg mörk félögin hafa í plús
og hvaða leikir eru eftir:
Leeds...........................76 (70:35 +35)
Sheff. Utd. (Ú), Norwich (H).
Man.Utd.......75 (60:29 +31)
West Ham (Ú), Liverpool (Ú), Tott-
enham (H).
Sheff.Wed.......................73 (61:48 +13)
Crystal Palace (Ú), Liverpool (H).
Meginlandið
heillar Guðna
Guðni Bergsson hefur verið úti í kuldanum hjá Tottenham að undan-
förnu og var ekki í hópnum í leikjum páskahelgarinnar. Hann
sagðist reyndar hafa verið slappur í baki að undanfömu og því ekki
æft síðustu daga en verið í meðferð hjá sjúkraþjálfara, en það hefði
ekki breytt neinu varðandi valið á liðinu.
Tímabilinu hjá Tottenham lýkur á Old Trafford 2. maí og sagðist
Guðni þá koma heim. Hann á ár eftir að samningnum við Spurs en
þó hann hafi leikið um 40 af 55 leikjum á tímabilinu, telur hann þetta
vera rétta tímann til að breyta til.
„Ég vona að eitthvað komi upp í sumar, en ef ég skipti þá vil ég
skipta alfarið um umhverfi og hef mestan áhuga á að komast til liðs
á meginlandinu. En það verður að segjast eins og er að samgangurinn
á mllli Englands og meginlandsins er ekki mikill varðandi flutning á
leikmönnum og því verð ég bara að bíða og vona.“
Þorvaldur Orlygsson hefur leikið vel með Nottingham For-
est og sótti grimmt að varnarmönnum Man. United.
Rautt hjá Newcastle
Newcastle á ekki sjö dagana
sæla. Liðið, sem hefur aldrei
leikið í 3. deild, er í bullandi fall-
hættu í 2. deild og á annan í pásk-
um fengu þrír leikmenn liðsins að
sjá rauða spjaldið í 4:1 tapi gegn
Derby á Basebal Ground og aðstoð-
arþjálfarinn var bókaður.
Eina von Newcastle til að halda
sætinu er að sigra Leicester, sem
er í 2. sæti, og Portsmouth, sem er
í 9. sæti. Staðan er augljóslega
slæm og ekki bættu brottrekstrarn-
ir í síðasta leik ástandið. Kevin
Keegan lét stór orð falla um dómar-
ann o'g varnarmaðurinn Brian Kilcl-
ine tók í sama streng. „Þetta var
bara spurning um hver yrði næstur
að fjúka. Dómarinn stillti okkur upp
við vegg áður en leikurinn byrjaði.
Ég gæti sagt ýmislegt, en það
Það besta sem gat
komið fyrir mig
- sagði Þorvaldur Örlygsson, sem var í byrjunarliði Nott. Forest í þremur síðustu leikjum
Kevln Keegan.
kæmi mér í koll,“ sagði varnarmað-
urinn.
UfÓBR
FOLK
H RONNIE Moran, aðstoðar-
framkvæmdarstjóri Liverpool, var
þrumulostinn eftir stórtapið, 0:4,
gegn Arsenal, en sagði: „Lífið held-
ur áfram.“ Ósigurinn var sá mesti
hjá Liverpool í níu ár, eða síðan
félagið tapaði með sömu markatölu
fyrir Coventry 1983.
H ANDREAS Limpar, sem lagði
upp tvö mörk, skoraði af 50 m
færi, með því að senda knöttinn
yfir Mike Hooper, markvörð
Liverpool. „Þetta var frábært
mark hjá honum. Ég hef aðeins séð
Pele reyna þetta áður,“ sagði Mor-
an.
H GEORGE Graham var ánægð-
ur með sigur Arsenal. „Áhorfendur
fengu örugglega mikið fyrir pening-
ana að þessu sinni.“
H ARSENAL hefur leikið
fimmtán leiki í röð án taps og má
segja að lokasprettur félagsins hafi
komið of seint. Arsenal tryggir sér
sæti í UEFA-bikarkeppninni ef
liðið vinnur báða leiki sína sem eft-
ir eru og Sheff. Wed. tapar leikjum
sínum.
H SHEFF. Wed. lék síðast í Evr-
ópukeppni 1964.
H ÁHORFENDUR á Upton
Park bauluðu á leikmenn West
Ham, eftir að þeir töpuðu, 0:2, fyr-
ir Crystal Palace. West Ham er
nær örugglega fallið.
H COVENTRYtapaði heima, 0:1,
fyrir Everton, en félagið hefur
ekki unnið á heimavelli sínum síðan
30. nóvember.
H GARY Lineker skoraði tvö
mörk með skalla þegar Tottenham
vann Wimbledon, 3:2. Hann hefur
skorað 34 mörk í vetur og lýkur
væntanlega ferlinum með Spurs á
Old Trafford 2. maí.
H IAN Walker, markvörður
Spurs, var eitt spurningarmerki
undir lokin, þegar Wimbledon fékk
hornspyrnu. Fyrsti maður, sem
hann sá inni í teignum var Hans
Segers, hollenski markvörður
Wimbledon!
H LEEDS var ekki langt frá því
að vinna fyrsta sigur sinn á An-
field Road í Liverpool síðan 1972,
en leiknum lauk með jafntefli, 0:0.
H HOWARD Wilkinson er jarð-
bundinn, þó Leeds sé á toppnum.
„Það eina sem við höfum gert er
að tryggja þátttöku okkar í Evr-
ópukeppni félagsliða í haust.“
H ALLY McCoist skoraði tvö
mörk fyrir Glasgow Rjingers, þeg-
ar félagið tryggði sér skoska meist-
aratitilinn íjórða árið í röð með því
að vinna St. Mirren, 4:0. McCoist
hefur gert 35 mörk á tímabilinu.
H GUÐMUNDUR Torfason lék
með St. Mirren.
H MICK McCarty, fyrirliði ír-
lands í HM á ítaliu, hefur skrifað
undir þriggja ára samning við
Millwall, sem leikmaður og fram-
kvæmdarstjóri.
H TONY Adams, fyrirliði Arse-
nal, og David Seaman, markvörð-
ur, gerðu nýjan samning við félag-
ið, sem gildir út tímabilið 1996.
Þeir sömdu m.a. um að fá um
100.000 ÍSK meira í vikulaun en
áður.
H ROLAND Nilsson skoraði fyrir
Sheffield Wed. um helgina. Þetta
var fyrsta mark sænska bakvarðar-
ins fyrir félagið, en hann á 87 leiki
að baki.
H ALEX Ferguson sagðist ekki
skilja hvernig leikmenn sínir hjá
Manchester United hefðu misst
unna leiki niður að undanförnu.
„Við höfum sjálfir komið okkur i
mjög óþægilega stöðu.“
H MARK Hughes var ekki í byij-
unarliði United gegn Nottingham
Forest.
GETRAUNIR: 121 X X 1 2 X X 1X21
LOTTO: 10 11 17 25 27 / 13