Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINN1ILÍF FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993
B 5
Fyrirtækjanet
Samkeppnisstaðan bætt
með markvissu samstarfi
14 umsóknir hafa hlotið samþykki í verkefninu Fyrirtækjanet og á
bak við þær standa 94 fyrirtæki.
FJÖGUR fyrirtækjanet eru nú komin af stað í verkefninu
Fyrirtækjanet sem nokkur samtök atvinnulífsins standa að
og hófst formlega í mars á síðasta ári. Markmið Fyrirtækja-
neta er að stuðla að auknu og markvissara samstarfi ís-
lenskra fyrirtækja í þeim tilgangi að auka samkeppnis-
stöðu þeirra og að sögn Kristjáns Jóhannssonar, kynningar-
stjóra hjá Eimskip, sem er formaður verkefnisstjórnar
Fyrirtækjaneta, hefur gengið vel að ná því markmiði fram.
Hann sagði þó að eðlilega tæki sinn tíma að samræma störf
nokkurra mismunandi fyrirtækja í einum hópi, en nú eru
alls 94 fyrirtæki og stofnanir á meðal þeirra 18 fyrirtækja-
neta sem hlotið hefðu samþykki verkefnisstjórnar.
I árslok 1989 hafði Vinnuveit-
endasamband íslands frumkvæði
að því að kynna hér á landi nýja
aðferðafræði til að auka samstarf
fyrirtækja. Formlegu verkefni í þá
átt var hrint í framkvæmd í mars
1992. Þau samtök sem standa að
Fyrirtækjanetum eru, auk Vinnu-
veitendasambandsins, Alþýðusam-
band Islands, Félag íslenskra iðn-
rekenda, Landssamband iðnaðar-
manna og Útflutningsráð íslands.
Þá komu ýmsir sjóðir atvinnulífsins
til sögunnar varðandi fjármögnun.
Fjármögnun á hvert fyrirtækja-
net sem verkefnið styrkir er að
hámarki 1.200 þúsund krónur. Mat
Excel 4.0
13. -17. sep. kl. 16-19 eða 27. sept. -1. okt. kl. 9-12
ClarisWorks 2.0
13. • 17. september kl. 9-12
FileMaker Pro 2.0
20. - 24. september kl. 9-12
PageMaker 4.2
Macintosh og Windows: 20. - 24. sept kl. 9-12
Macintosh f. byrjendur
6. -10. sepL kl. 9-12 eOa 20. -24.11.16-19 eða
13. - 27. kl. 19:30-22:30
Windows 3.1
8. -10. sepL kl. 9-12 eða 20. - 22. sept. kl. 16-19 eða S
15. - 22. sept. k!.19:30-22:30 l
Word ritvinnsla
13. -17. sept. kl. 13-16 eða 27. sep. • 1. okt. kl. 16-19
Tölvuvélritun -
18. sept. -16. okt. kl. 10-12 á laugardögum
Tölvu- og verkfræöiþjonustan
Grensósvegi16
á framgangi hvers verkefnis fer
fram í gegnum þrjá vel skilgreinda
áfanga. Gefa þarf skýrslu eftir
hvern áfanga sem verkefnisstjórn
tekur afstöðu til. Samstarfið er því
ekki samþykkt sjálfkrafa í verk-
þátt tvö eftir verkþátt eitt nema
fyrir liggi rök fyrir framhaldinu.
Að sögn Kristjáns er fjárstyrk-
urinn sem veittur er í þessu verk-
efni mjög takmarkaður miðað við
það sem þekkist annars staðar.
Aðferðafræðin væri það sem mestu
máli skipti og verið væri að reyna
að leiða menn í samstarf sam-
kvæmt henni.
Haukur Björnsson, starfsmaður
Útflutningsráðs, er verkefnisstjóri
Fyrirtækjaneta. Hann sagði að
með verkefninu væri í raun verið
að kynna fyrir fyrirtækjum hag-
kvæmni þess að vinna saman á
faglegan hátt. Það væri hagur fyr-
irtækjanna sjálfra að ganga þannig
frá málum að þau hefðu skýrar
niðurstöður í höndum í lok hvers
verkþáttar. Þannig gætu þau í
stuttu máli fengið allar þær for-
sendur sem þau þyrftu til að geta
tekið afstöðu til viðkomandi verk-
þáttar.
rlflll WW V/W WW
Fiskvinnsla, viðgerðarþjónusta
og vegagerð
Fram til þessa hefur verkefnis-
stjórn Fyrirtækjaneta fjallað um
19 umsóknir, samþykkt 14 en
fimm eru í bið eða hefur verið
hafnað. Á bak við þær umsóknir
sem hafa verið samþykktar standa
alls 94 fyrirtæki eða aðrir aðilar.
Fjögur fyrirtækjanet hafa þegar
hafíð rekstur, en þrjú komust að
neikvæðri niðurstöðu áður en til
rekstrar kom. Þá eru sjö umsóknir
sem hafa verið samþykktar enn í
vinnslu.
Af þeim fyrirtækjanetum sem
hafa verið samþykkt og eru komin
í rekstur má fyrst nefna net sjö
fyrirtækja sem vinnur að því að
selja Ómönum aðstoð við uppbygg-
ingu útgerðar og fiskvinnslu þar í
landi. Að sögn Hauks hafa þessir
aðilar sent Ómönum allmörg tilboð
um hugsanleg verkefni sem nokkur
eru í sérstakri skoðun þarlendra
aðila.
Þá má nefna fyrirtækjanet fjög-
urra aðila sem starfa saman að
þróun á búnaði til fullvinnslu á
sjávarfangi. í fyrsta áfanga hafa
þessir aðilar þróað vélbúnað til að
vinna fiskmaming af beinum með
nýrri aðferð sem gefur ákveðin
fyrirheit um að mamingurinn verði
mun verðmeiri afurð en með eldri
aðferðum. „Þetta er mjög flókið
mál sem hefur hlaðið utan á sig
og verið þyngra í vinnslu en upp-
haflega var gert ráð fyrir,“ sagði
Haukur. „Það var farið að standa
þessum aðilum fyrir þrifum að fjár-
magna alla þessa þróunarstarfsemi
án þess að geta selt nokkuð, en
þó em þeir komnir á það stig að
fyrsta vélin er komin í gang hjá
Útgerðarfélagi Akureyrar til
reynslu."
Þriðja fyrirtækjanetið er saman-
sett af sjö fyrirtækjum sem starfa
saman að markaðssetningu við-
gerðarþjónustu fyrir skip. Um er
að ræða lítil og sérhæfð fyrirtæki
sem hvert fyrir sig hefði yfirleitt
aðeins getað boðið hluta af þeim
viðgerðum sem þarf að fram-
kvæma. Að sögn Hauks eru flest
fyrirtækjanna sjö fyrrverandi þjón-
ustuaðilar við skip sem byggð vom
í Stálvík í Garðabæ eða voru þar
í viðgerð. „Þegar Stálvík varð
gjaldþrota fór að halla undan fæti
hjá þessum fyrirtækjum, en nú em
ATVINIMUREKSTUR — Innan verkefnisins Fyrirtækjanet má m.a.
viðgerðarþjónustu fyrir skip. Þá má nefna fyrirtækjanet varðandi uppbyggingu á
Morgunblaðið
nefna net sett saman af fyrirtækjum sem starfa að markaðssetningu á
útgerð og fiskvinnslu ýmiskonar þar sem þess er þörf.
Vörusýning
þau að snúa vörn í sókn og með
þessu samstarfi geta þau tekið að
sér mun viðameiri verkefni en áð-
ur, stytt framkvæmdatíma og
lækkað kostnað."
Að lokum er um að ræða fyrir-
tækjanet fjögurra fyrirtækja um
öflun þekkingar til framleiðslu slit-
lags með nýrri aðferð sem ekki
hefur verið notuð hér á landi áður.
„Þessi aðferð þarfnaðist fjármagns
sem var umfram getu fyrirtækj-
anna hvers fyrir sig enda þurftu
þau að fara út að kaupa þessa
þekkingu jafnframt því að afla
sérstakra tækja. Þau ráða hins
vegar við þetta sameiginlega og
hafa stofnað sérstakt fyrirtæki til
að framleiða blöndunarefnið sem
aðferðin byggir á. Þessi efnablanda
hefur þann eiginleika að slitlagið
er tilbúið um leið og búið er að
leggja það,“ sagði Haukur, en nú
er búið að leggja reynslukafla með
þessu slitlagi norður í landi.
„Vonandi margfeldisáhrif af
vinnubrögðunum"
Hvert fyrirtækjanet er með sér-
stakan tengilið sem starfsmann.
Þar er venjulega um að ræða utan-
aðkomandi aðila sem á að fara
með faglega leiðsögn. „Tengiliður-
inn er í raun helsta trygging okkar
fyrir því að það sé faglega unnið
að málum. Reynsla okkar er að
það sé það erfiðasta við ferlið, þ.e.
að fá þessi minni fyrirtæki til að
vinna á faglegum nótum. Þau
þurfa að vera með arðsemisút-
reikninga og fara nákvæmlega of-
an í markaðskannanir og annað
til að varpa skýrari ljósi á mögu-
leikana. Sumir kalla þetta skrif-
ræði, en við köllum það fagleg
vinnubrögð," sagði Kristján.
Að sögn Hauks er vonast til
þess að margfeldisáhrif verði af
þeim vinnubrögðum sem fyrirtæk-
in þurfa að tileinka sér við þátt-
töku í fyrirtækjanetum á vegum
verkefnisins. „Það er óskandi að
þegar menn verða búnir að fara í
gegnum eitt svona ferli muni þeir
I framtíðinni njóta góðs af því. Það
er hægt að nota þessi vinnubrögð
við margskonar átök, t.d. í sam-
bandi við EES, eflingu atvinnu-
starfsemi kvenna o.s.frv. Enda er
það eitt af einkennum fyrirtækja-
neta að engar kvaðir eru lagðar á
hendur þátttökufyrirtækja varð-
andi formið á samstarfinu. Það
getur verið allt milli himins og jarð-
ar.“
Leitað eftir nýju fjár-
ItaÖLgúirmagn sem verkefnið
Fyrirtækjanet hafði til ráðstöfunar
á fyrsta ári frá sjóðum atvinnulífs-
ins er nú gengið til þurrðar. Því
hefur verið leitað eftir frekari
stuðningi þeirra og annarra aðila.
Af upphaflegum aðilum hafa Iðnl-
ánasjóður og Byggðastofnun þegar
veitt framlög auk þess sem At-
vinnumálanefnd Reykjavíkur hefur
veitt Fyrirtækjanetum stuðning.
Einnig sagði Haukur að von væri
á stuðningi frá ríkinu af því fé sem
sérstaklega væri ætlað til að styðja
markaðsaðgerðir inn á Evrópska
efnahagssvæðið. „Við höfum óskað
eftir stuðningi fleiri aðila eins og
atvinnumálanefnda víðs vegar um
landið, en eigum ekki von á svari
frá þeim fyrr en fyrir liggja áætl-
anir um fyrirtækjanet á þeirra eig-
in svæðum,“ sagði hann.
Af þeim 18 netum sem þegar
hafa sótt um styrk til Fyrirtækja-
neta hefur mikill meirihluti eða 14
markaðssetningu að markmiði með
samstarfinu. Þróun er markmið
fjögurra en þtjú sækjast eftir öflun
þekkingar, hráefnisöflun eða inn-
kaupum. Atvinnugreining þátt-
tökufyrirtækjanna, sem alls eru
94, er sem hér segir:
Stofnanir 13
Félög 11
Fiskverkun 10
Vélsmíðar 10
Rafeindaiðnaður 8
Ráðgjöf 6
Plastiðnaður 5
Verktaka 5
Útgerð 5
Þjónusta sveitarfélaga og opinberra aðila 4
Hugbúnaður 4
Veiðarfæragerð 4
Fóðuriðnaður 3
Skipasmíðar 2
Verslun 1
Umbúðaframleiðsl a 1
Tréiðnaður 1
Fataiðnaður 1
Hópur ís-
lendinga
tilKína
á vöru-
sýningu
UM miðjan október verður farið
héðan í hópferð á viðamikla
vörusýningu í Kanton í Kína.
Þátttakendur í ferðinni verða
íslendingar sem hafa áhuga á
viðskiptum við Kína og vilja
kynna sér hvað landið hefur upp
á að bjóða í þeim málum.
Vörusýningin í Kanton er sú
stærsta sem haldin er í Asíu og
taka fleiri þúsund fyrirtæki þaðan
þátt í henni. Áætlað er að hópferð-
in þangað frá íslandi taki tíu daga.
Fyrst verður dvalist í Hong Kong
daglangt og síðan tekin lest þaðan
yfir til Shengzhen sem er toll-
fijálst svæði í Kína. Þar verður
stoppað í tvo til þijá daga þar til
VORUSYNING
í Kanton í Kína.
Hópur íslendinga er á leið á vörusýningu
haldið verður áfram til Kanton í
lest. í Kanton verður sýningin
skoðuð og eftir hana verður haldið
til Shanghai til að skoða ýmsar
verksmiðjur, m.a. þá stærstu í
heimi sem framleiðir dósamat
ásamt öðru.
Áætlað er að íjöldi þátttakenda
í Kínaferðinni verði 10-15, en þeg-
ar hafa 4-5 aðilar skráð sig að
sögn Gilberts Yokpeck, eiganda
Shanghai veitingahússins og
Frank hf., sem er meðal skipu-
leggjenda ferðarinnar.
HKF
Á R Ó S A R V A R B E R G M O S S HELSINKI KAUPMANNAH Ö F N
STYTTRI
FLUTNINGSTÍMI
TÝÐIR BETRI
FJÓNUSTA
Samskip sigla vikulega frá Skandinavíu til
íslands og tryggja að þú færð vörumar
þínar í hendur eins fljótt og kostur er. Þá
bjóðum við einnig styttri afgreiðslutima en
þekkist annarsstaðar og þú skilar vömnum
um borð aðeins degi fyrir brottför.
Liprir og traustir flutningar Samskipa með
þéttu þjónustuneti innan Skandinavíu,
auka möguleika þína í innflutningi og þar
með í þjónustu við viðskiptavini þína.
SAMSKIP
Holtabakka við Holtaveg • 104 Reykjavík • Sími (91) 69 83 00
Við veitum lán til
athafnaskálda
sem yrkja framfaraverk
á Vestur - Norðurlöndum
Lánasjóður Vestur-Norðurlanda er í eigu Norðurlandanna
allra og er samvinnuverkefni til eflingar og þróunar
atvinnulífí í Færeyjum, á Grænlandi og íslandi.
Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem geta þróað nýja
framleiðslu til útflutnings, eða bætta þjónustu og
nýsköpunarverkefni, sem byggja á hugvitsauðiind
þegnanna.
Starfsmenn sjóðsins meta arðsemi verkefna í samvinnu
við umsækjendur og lögð er áhersla á, að komast skjótt að
niðurstöðu.
Lán em gengistryggð og með hagstæðum greiðslukjörum.
Trygging fyrir láni skal vera veð í fasteign eða
bár.kaábyrgð.
Skilyrt lán frá sjóðnum eru einnig í boði, til dæmis
vegna forkönnunar á verkefni.
Hqfðu samband. Við veitum fúslega nánari upplýsingar
um lán til raunhœfra framfaraverkefna í öllum
atvinnugreinum.
o
LÁNASJÓÐUR VESTUR-NORÐURLANDA
Rauðarárstígur 25, Box 125 Reykjavík
Sími: (91)-60 54 00 Fax: (91)-2 90 44
Bíða margir
á línunni?
söludeild Pósts og síma í Ármúla fást allar
stærðir og gerðir af símakerfum fyrir
einstaklinga og fyrirtæki. Við bjóðum allt frá
einföldum heimilis- símakerfum upp í stórar og
fullkomnar símstöðvar.
Gott símakerfi veitir þér gott samband.
Komdu við í söludeildinni í Ármúla og kynntu
þér málið. Síminn okkar er 91-636680.
PÓSTUR OG SÍMI