Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 1
88 SIÐURB/C 22. tbl. 82. árg. FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR1994 Prentsraiðja Morgunblaðsins Adstoðarutanríkisráðherra Rússlands segir innlimimina 1940 hvorki hafa verið innrás né hemám Keuter Hátíðahöld í Pétursborg BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, var viðstaddur hátíðahöld í Pétursborg í gær en þá var þess minnst, að hálf öld er liðin síðan aflétt var umsátri Þjóðverja um borgina, sem þá hét Leníngrad, í síðari heims- styrjöld. Hér er verið að leggja blómsveig að minnismerki um þá, sem féllu við vörn borgarinnar. Eystrasaltsríki varist ögranir Moskvu. Reuter. STJÓRNVÖLD í Rússlandi sökuðu ríkisstjórnir í Eystrasaltsríkjunum í gær um að leita eftir ágreiningi og árekstrum við Rússa og sögðu, að þær gætu aðeins gætt hagsmuna landanna með samstarfi við Moskvu- stjórnina. „Það eru verulegir erfiðleikar í samskiptum okkar við Eystra- saltsríkin," sagði Vítalíj Tsjúrkín aðstoðarutanríkisráðherra á frétta- mannafundi í Moskvu. Þá sagði hann, að hvorki hefði verið um innrás né hernám að ræða þegar Eystrasaltsríkin voru innlimuð í Sovétríkin. „Við viljum leysa vandamálin án þess að beita valdi. Valdbeiting getur leitt til styijaldar, sem hefði í för með sér miklar hörmungar fyrir óbreytta borgara," sagði Tsjúrkín en í Eystrasaltsríkjunum eru Rússar mjög fjölmennir. Settust langflestir þeirra að í löndunum eftir innlimun- ina 1940. Tsjúrkín sagði, að vissulega hefði innlimun ríkjanna verið „mistök" en bætti síðan við: „Auðvitað hörmum við það, sem gerðist, en það er ekki hægt með neinum lagalegum rökum að kalia atburðina 1940 innrás eða hernám. Núgildandi alþjóðalög komu fyrst til eftir síðara stríð og taka ekki til þess, sem áður gerðist." Tsjúrkín sakaði sérstaklega stjórn- völd í Eistlandi og Lettlandi um að bijóta rétt á Rússum í löndunum, meðal annars með því að neita þeim um að kjósa í sveitastjórnarkosning- um. Kvaðst hann efast um, að brott- flutningur rússnesks herliðs frá þess- um tveimur ríkjum myndi bæta hlut- skipti Rússa þar. Tsjúrkín sagði að nú væru 3-4.000 rússneskir hermenn í ríkjunum en yfirvöld þar segja, að þeir séu um 20.000 talsins. „Ríkisstjómir Eystrasaltsríkjanna telja, að þær geti gætt hagsmuna sinna með því að ögra Rússum. Það er mikill misskilningur. Eina færa leiðin fyrir þær er að hafa samstarf við okkur,“ sagði Tsjúrkín. Sjá „Jeltsin einangraður ...“ á bls. 24. Kairna áætlanir um hem- að gegn Bosníu-Serbum París, Bonn, Davos, Genf. Reuter. BOUTROS Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, hefur fengið í sínar hendur skýrslu embættismanns þar sem eru raktar áætlanir Atlantshafsbandalagsins, NATO, um hernaðaraðgerðir, þ. á m. loftárásir, gegn stöðvum Bosníu-Serba til að aflétta herkví þeirra um Tuzla-flugvöll og borgina Srebren- ica í Bosníu-Herzegóvínu. A leiðtogafundi NATO fyrir skemmstu var ákveðið að beita hervaldi til að aflétta umsátri serbneska liðsins færu SÞ fram á það. Francois Mitterrand Frakklandsfor- seti og Edouard Balladur forsætisráðherra hvöttu til þess í sam- eiginlegri yfirlýsingu fyrr í vikunni að hervaldi yrði beitt. Færeyskt sveitarfélag vill fá greiðslustöðvun Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. KLAKKSVÍK, næst-stærsta sveitarfélag Færeyja, hefur farið fram á greiðslustöðvun en skuldirnar nema sem samsvarar um tveimur milljörðum íslenskra króna. Fleiri færeyskir kassar eru tómir, því atvinnuleysissjóður Færeyja er nú þurrausinn. Klakksvík hefur í raun verið undir stjórn Færeyjabanka, sem hefur lánað sveitarfélaginu fram- kvæmdafé. Nú treystir bankinn sér hins vegar ekki til að lána því frek- ar og hefur það farið fram á greiðslustöðvun. Starfsmenn þess fengu ekki laun sín greidd um síð- ustu mánaðamót og eiga inni tveggja mánaða laun hjá sveitarfé- laginu. Þar með leggjast fram- kvæmdir eins og sorphirðing og fleira niður. Ekki er ljóst hvernig farið verður með beiðni Klakksvík- inga þar sem ekki hefur verið viður- kennt við svipaðar aðstæður að sveitarfélag geti orðið gjaldþrota. Atvinnuleysissjóður Færeyja er þurrausinn og skuldar auk þess sem nemur um sex hundruð millj- ónum íslenskra króna. Raddir eru uppi um að fjármagna greiðslur hans með lánum, en ekki þykir vænlegt við núverandi aðstæður að auka á skuldasöfnun eyjanna. Sjóðurinn er undir stjórn land- stjórnarinnar. Hluti af gagnrýni Dana á hendur Færeyingum vegna ástandsins þar beinist einmitt að því hvernig félagslegum greiðslum ýmiss konar hefur verið háttað. Frakkar hafa fjölmennasta liðið í friðargæslusveitunum sem eru létt- vopnaðar og mega aðeins grípa til vopna sé á þær ráðist. Völiurinn í Tuzla hefur verið notaður til flutn- inga á hjálpargögnum og um hann átti að fara gæslulið til að leysa af hólmi kanadíska SÞ-liða í Sre- brenica. Helmut Kohl Þýskalandskanslari varaði í gær eindregið við því að reynt yrði að stöðva átökin í Bosníu með hervaldi. Hann sagði að til þess þyrfti hundruð þúsunda hermanna, aðgerðirnar myndu kosta miklar fórnir af hálfu óbreyttra borgara og auk þess væri alls óvíst að alþjóðlegu herliði tækist að koma á friði. „Sann- ieikurinn er sá — þótt það geti verið sannleikur blandinn reiði og beiskju — að það er ekki til nein einföld lausn á þessum deilum. Forgangs- verkefni okkar er að koma hjálpar- gögnum til almennings í Bosníu- Herzegóvínu." „Undarlegt siðferðismat" Mike McCurry, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, sagði í gær að það bæri vitni um „undarlegt siðferðismat" er Frakkar hvettu Bandaríkjamenn til að þrýsta á músl- ima í Bosníu um að sætta sig við skiptingu landsins milli þjóðarbrota. Talsmaður franska utanríkisráðu- neytisins, Richard Duque, brást hart við og sakaði Bandaríkjamenn um hræsni. „Ef við ræðum um siðferði þá stendur valið milli þess annars vegar að láta nægja að fylgjast með bardögunum og hins vegar að gera allt sem hægt er til að stöðva þá.“ Þessi ummæli þykja til marks um óvenju bitran ágreining meðal Vest- urveldanna í málefnum Bosníu. Alain Juppé, utanríkisráðherra Frakk- lands, sagði í viðtali við The New York Times í vikunni að kenna yrði Bandaríkjastjórn um þær skelfingar sem hlotist gætu af því að múslimar færu að treysta á utanaðkomandi stuðning við tilraunir til að sigra með vopnavaldi. Hástéttar- hreimur- inn víkur London. Reuter. BRESKA útvarpið, BBC, hyggst hætta að leggja áherslu á að ein- göngu sé notaður hástéttarfram- burður þar á bæ. Verða ráðnir nokkrir þulir sem tala með mál- lýskuhreim er þótt hefur ófínni. Liz Forgan framkvæmdastjóri sagði að hljómurinn í sumum deildum stofnunarinnar væri orðinn „dálítið fornaldarlegur" og ‘ekki fyllilega í takt við tungutak þjóðarinnar. Hún sagðist ekki vilja að allir þulirnir töluðu eins og hún sjálf. Bretar geta yfirleitt heyrt á mæli landa sinna hvort þeir eru af há- eða lágstétt. Reuter Allsh erjarverkfall á Spáni MILLJÓNIR Spánveija tóku í gær þátt í sólarhringslöngu allsheijarverk- falii, sem verkalýðsfélögin höfðu boðað til. Með því voru þau að mót- mæla fyrirhuguðum breytingum á vinnulöggjöfinni en stjórnvöld segja, að hún kyndi beinlínis undir atvinnuleysi í landinu. Það er nú 23%. Mynd- in er frá Madrid en víða kom til átaka og slösuðust tugir manna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.