Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 26
-t 26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANUAR 1994 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANUAR 1994 27 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Arvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpáisson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Ærumeiðingar í beinni útsendingu Þrír þingmenn hafa lagt fram frumvarp á Al- þingi, þar sem gert er ráð fyrir að útvarpsstöðvar, sem heimila almenningi að taka þátt í beinni útsend- ingu, verði skyldaðar til að nota útbúnað, sem tefur útsendinguna í stutta stund. Þannig er hægt að koma í veg fyrir að útvarp- að sé ærumeiðingum um nafngreinda einstaklinga eða óviðurkvæmilegum ummælum. Er í frumvarpinu gert ráð fyrir að eigi almenningur kost á að taka þátt í beinni útvarpsútsendingu skuli hver og einn segja til nafns. Stjórnendur þátta eigi jafn- framt að tryggja sér fyllri upplýsingar um sérhvern þátttakanda. Sé ærumeið- andi ummælum útvarpað, þrátt fyrir búnað þann sem tefur útsendinguna, ber sá ábyrgðina, sem ummælin viðhefur. Náist hins vegar ekki til hans einhverra hluta vegna er stjórnandi þáttar- ins ábyrgur. Þættir, þar sem fólk get- ur hringt inn og viðrað skoðanir sínar milliliðalaust í beinni útsendingu, hafa verið vinsælt útvarpsefni á undanförnum árum. Er nú svo komið að meginuppi- staða margra þátta á besta útsendingartíma eru ein- mitt slík símtöl frá almenn- ingi. í öðrum löndum eru útvarpsstöðvar, sem út- varpa efni af þessu tagi, nánast undantekningar- laust skyldaðar til að tefja útsendingu um nokkrar sekúndur til að þær hafí svigrúm til að stöðva hana ef tilefni gefst til. Forsvarsmenn prent- miðla geta ávallt lesið yfir allt efni til birtingar. Eðli málsins samkvæmt er hins vegar útilókað að yfirfara útvarpsefni í beinni útsend- ingu fyrirfram. Það er held ur ekki skýrt hver ber ábyrgð á hugsanlegum ærumeiðingum á öldum ljósvakans. Oft eru í þess- um þáttum látin falla hörð orð um nafngreinda ein- staklinga og vekur raunar furðu hversu lítið virðist oft vera gert til að halda um- ræðum innan siðsamlegra marka. Virðist stundum sem hver sem er geti komið og sagt hvað sem er um hvem sem er í beinni út- varpsútsendingu er nær kannski til tugþúsunda hlustenda. Hver er ábyrgur ef einhver vill leita réttar síns? Sá sem ærumeiðing- amar hefur í frammi eða sá sem varpar þeim út á öldum Ijósvakans? í greinargerð með frum- varpinu segir m.a.: „Eitt það dýrmætasta, sem hver einstaklingur á, er gott mannorð. Og það getur tek- ið dijúgt skeið á ævi hans að ávinna sér þann orðstír. Hins vegar tekur það óvandaðan mann ekki nema sekúndubrot að skemma mannorð annars manns ef hann fær tækifæri til þess í útvarpi. Þess vegna á lög- gjafínn að gera það sem í hans valdi stendur til að vernda menn fyrir slíku. Það virðist svo sem virðing fyrir mannorði og tilfinn- ingum annarra fari þverr- andi eftir því sem þjóðfélag- ið verður opnara og frjáls- legra og er það miður.“ Þetta er þarft mál og raunar undarlegt að ekki skuli fyrr hafa komið upp kröfur af þessu tagi. Það er talið sjálfsagt að menn séu ábyrgir fyrir því sem þeir senda frá sér á prenti. Raunar er það einn af horn- steinum hinsnstjórnarskrár- bundna málfrelsis, að menn skuli jafnframt bera fulla ábyrgð á eigin ummælum. Ný tækni og breyttur tíð- arandi hafa hins vegar gert það að verkum að núgild- andi lög eru ekki nægilega skýr þegar kemur að ijós- vakamiðlunum. Það er löngu orðið tímabært að settar verði sambærilegar reglur um lagalega ábyrgð á þeim orðum sem látin eru falla í beinum útvarpsút- sendingum og þeim sem prentuð eru. Félagsmálaráðherra í umræðu á Alþingi um atvinnuleysi Þörf gæti orðið á tengja at- vinnuleysisbætur við laun FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA varpaði fram þeirri spurningu á AI- þingi í gær hvort þörf yrði á sérstöku launatengdu trygginga- kerfi sem gæti bætt einstaklingum upp það tekjutap sem verður við atvinnumissi en nú fá allir jafnháar atvinnuleysisbætur óháð fyrri tekjum. Umræða um þetta kynni að verða almemiari ef at- vinnuleysi yxi og yrði viðvarandi. Ljóst er að talsvert atvinnu- leysi verður viðvarandi fram á árið og er atvinnuleysi í lok jan- úar áætlað 7-8%, sem svarar til um 9.500 manns. Vonir standa til að aftur dragi úr atvinnuleysi í lok janúar þegar fiskvinnsla eykst og sveitarfélög hefja atvinnuskapandi aðgerðir í samvinnu við atvinnuleysistryggingasjóð. Þjóðhagsstofnun spáir 5-5,5% atvinnu- leysi að jafnaði á árinu. Þingmenn stjórnarandstöðunnar sögðu í utandagskrárumræðu um atvinnuleysi að aukið atvinnuleysi hér- lendis stafaði af rangri efnahagsstefnu og eina lausnin væri að ríkisstjórnin færi frá völdum. Ólafur Ragnar Grímsson formað- ur Alþýðubandalagsins hóf umræð- una um atvinnuleysi. Hann sagði að það grundvallareinkenni siðaðs þjóðfélags, sem fælist í rétti ein- staklinga til að vinna, væri að bresta hér á landi. Þúsundir fjölskyldna byggju við atvinnuleysi og örvænt- ingu og engin von væri að úr rætt- ist. Á hvetjum klukkutíma bættust 15 nýjar fjölskyldur í hóp atvinnu- lausra. Svavar Gestsson þingmaður Al- þýðubandalagsins sagði að tölur frá Félagsmálastofnun Reykjavíkur- borgar sýndu að á síðasta ári hefði verið veitt aðstoð upp á 435 milljón- ir króna sem væri 50% hærri upp- hæð en árið 1992. í þessum mánuði væri gert ráð fyrir að tvisvar sinnum fleiri einstaklingar fái aðstoð frá Félagsmálastofnun en í fyrra og hitteðfyrra. Og opinberar tölur sýndu, að á þessu ári myndi þjóðin tapa 9-10 milljörðum króna á at- vinnuleysinu. Nýtt forrit nauðsynlegt Margir stjórnarandstæðingar sem tóku til máls sögðu, að ekki yrði hægt að vinna bót atvinnuleys- inu hér á landi nema skipt yrði um forrit í efnahagsstjóm og ríkis- stjómin færi frá. Það sæist best á því að atvinnuleysi hefði þrefaldast í tíð núverandi ríkisstjórnar án þess að verðbólgan hefði lækkað að marki. Ólafur Ragnar Grímsson sagði að ekki væri hægt að kenna ytri aðstæðum eins og þorskafla- bresti og lækkandi afurðaverði um vaxandi atvinnuleysi í lok síðasta árs því árið 1993 hefði verið annað besta aflaár þjóðarinnar frá upp- hafi. Þá lægi fyrir, að um miðjan desember 1993 hefði þorskafli árs- ins verið orðin 7.000 tonnum meiri en á sama tíma árið áður. Þá hefðu sölusamtök sjávarafurða verið að auka sölu og verðmæti útflutnings á síðasta ári. Skýring ríkisstjórnar- innar og forsætisráðherra á orsök- um vandans væri því einfaldlega fölsk. Rétta skýringin fælist í efna- hagsstefnu ríkisstjómarinnar sem byggðist á fijálshyggju og sam- drætti. Finnur Ingólfsson þingmaður Framsóknarflokks sagði að árið 1991 hefði verið framið skemmdar- verk í hagstjórn og sagði vandann nú heimatilbúinn. Fyrri ríkisstjómir hefðu brugðist við efnahagsþreng- ingum án þess að það hefði í för með sér aukna verðbólgu eða at- vinnuleysi. Tómas Ingi Olrich þing- maður Sjálfstæðisflokks sagði að hægt væri að skapa atvinnu með því að eyða umfram það sem aflað væri og stofna til viðskiptahalla til að standa undir þenslu. Einnig væri hægt að skapa atvinnu með óða- verðbólgu þar sem fýrirtækin keppt- ust þá við að íjárfesta og þetta hefði^ raunar verið gert í stómm stíl. Á slíkum tímum hefði ekki ver- ið fjárfest í þróunarstarfsemi heldur tækjum og steinsteypu og menn vildu greinilega endurvekja þennan draum þegar fólk byggi við raun- verulegar afleiðingar af þessu ástandi. Ytri áföll Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra sagði að samverkandi ytri þættir ættu þátt í auknu atvinnu- leysi. Þar ættu ytri áföll stærstan þátt, einkum lægra verð á mörkuð- um okkar, bæði fiski og áli. Þannig hefði verðlag á sjávarafurðum, á mælikvarða mynteiningarinnar SDR lækkað um 24-25% frá 1991 til 1993. Þessu til viðbótar mætti nefna fjárfestingarmistök og offjár- festingu síðustu áratuga, sem fjár- mögnað var með erlendu lánsfé. Skuldasöfnun í góðæri hefði leitt til þess að nú, þegar saman drægi væri ríkissjóður að greiða 51 millj- arð króna í afborganir og vexti af erlendum lánum á þessu ári. Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra sagði að íslendingar hefðu dregist aftur úr nágranna- þjóðunum í efnahagsmálum enda hefði samfellt hnignunar- og sam- dráttarskeið verið frá árinu 1988 til 1994. Hann sagði, að ef íslend- ingar hefðu búið við sama hagvöxt og viðskiptalöndin innan OECD væri þjóðarframleiðslan 250 millj- örðum meiri en nú. Friðrik sagði, að ríkisstjómin hefði með varnarbaráttu náð að koma í veg fyrir verulegt vaxandi atvinnuleysi og minnti á að Alþýðu- samband íslands hefði talið fyrir 15 mánuðum að atvinnuleysi gæti farið í 20-25% ef ekkert væri að- gert. í nágrannalöndum okkar hefði atvinnuleysi víða vaxið mikið enda væri atvinnuleysisvandinn alþjóð- legur og hefði um skeið heijað á velferðarríkin á vesturlöndum með óvægnari hætti en áður. Friðrik sagðist vera sannfærður um að í framtíðinni verði litið meira á þenn- an vanda í alþjóðlegu samhengi en hingað til og nauðsyn þess að leysa þennan vanda á alþjóðlegum grunni en ekki einungis með heimaaðgerð- um. Styrkir við hugmyndir Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra rakti ýmsar aðgerðir sem væru í undirbúningi til að bregðast við atvinnuleysinu. Meðal annars væri unnið að reglugerð um atvinnuleysistryggingasjóð, þar sem lögð yrði áhersla á að styrkja sér- stök verkefni sem einkum væru ætluð námsmönnum sem lokið hafa námi en komast ekki á vinnumark- að. Þá yrði heimilt að styrkja at- vinnulausa einstaklinga til að hleypa af stokkunum eigin viðskiptahug- myndum en haldi atvinnuleysisbót- um í ákveðinn tíma meðan verið er að láta reyna á að hugmyndin sé framkvæmanleg. Jóhanna sagði ennfremur, að ýmsar vinnumarkaðsaðgerðir í ná- grannalöndunum hefðu verið til skoðunar í félagsmálaráðuneytinu. Flestar ættu þær það sameiginlegt að vera mjög kostnaðarsamar og byggja á að verulegt atvinnuleysi hafi skotið rótum. Jóhanna sagðist telja, að margar þeirra ættu erindi sem tilraunaverkefni í samvinnu rík- is, sveitarfélaga og atvinnuleysis- tryggingasjóðs og nefndi í því sam- bandi aðgerðir sem stuðluðu að hreyfanleika vinnuafls innanlands oghvettu til sjálfstæðrar atvinnu- sköpunar. Á lokastigi væri endur- skoðun laga um vinnumiðlun sem eiga að fela í sér öflugra vinnumiðl- unarkerfi með sérhæfðri ráðgjafar- þjónustu og í undirbúningi væri átak í atvinnumálum fatlaðra. Þá sagðist Jóhanna myndu beita sér fyrir því að þeir sem búið hafa við langvarandi atvinnuleysi eða mikinn tekjumissi og eru því í mikl- um vanskilum í almenna lánakerf- inu, standi sú úrlausn til boða að fresta greiðslum ef greiðslubyrði lána fer yfir tiltekið hlutfall af tekj- um greiðanda. Þessi heimild er fyr- ir hendi í félagslega kerfínu. Morgunblaðið/Kristinn Yfirlýsing afhent SIGRÍÐUR Kristinsdóttir, formaður Starfs- mannafélags ríkisstofnana, sem var fundar- sfíóri á fundinum, afhendir Þorsteini Páls- syni, starfandi forsætisráðherra, yfirlýs- ingu fundarins. Á minni myndinni sést einn fundarmanna. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna „Atvinnuleysi er þjáning og henni lýsir ekkert linurit“ Launamisréttið aldrei áður jafn mikið segir Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar ÚTIFUNDUR verkalýðsfélaga á Reylqavíkursvæðinu gegn at- vinnuleysi sem haldinn var á Austurvelli í gær samþykkti einróma að krefjast táfarlausra aðgerða gegn atvinnuleysi og var Þor- steini Pálssyni starfandi forsætisráðherra afhent yfírlýsing þar að lútandi. Að sögn lögreglu voru um 1.500 manns á fundinum. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna, annar tveggja ræðumanna á ftmdinum, sagði að til hans væri boðað til að vekja at- hygli Alþingis á því að ísland væri komið í hóp þjóða með umtalsvert atvinnuleysi og verði ekki við því brugðist þá sé það til frambúðar. Áður hefði atvinnuleysi verið tíma- Útífundur verkalýðsfélaganna á höfuðborgarsvæðinu gegn atvinnuleysi Krafist tafarlausra að gerða í atvinmimálum HÉR á eftir birtist í heild yfirlýsing sem samþykkt var á úti- fundi verkalýðsfélaga á Reykjavíkursvæðinu í gær og afhent var starfandi forsætisráðherra. Konur í örugg sæti eftir Auði Auðuns Á næstu dögum munum við sjálfstæðismenn gegna ábyrgðar- staríi þegar við prófkjörsdagana veljum fólki sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjómarkosningum. Fullvíst má telja að minnihluta- flokkarnir {borgarstjórn muni bera fram sameiginlegan lista sem vald- ið getur óvissu um úrslit borgar- stjómarkosninganna. Þá er það og kunnugt í aðalatriðum að sá listi verður þannig skipaður að megin- áhersla verður lögð á hlut kvenna. Þetta verðum við sjálfstæðis- menn að horfast í augu við, snúa bökum saman og til mótvægis hljótum við að skipa konum vegleg- an sess á framboðslista okkar, enda er í þeim efnum góðra kosta völ á prófkjörslistanum. Það gladdi mig mikið að Inga Jóna Þórðardóttir féllst á að taka Auður Auðuns sæti á prófkjörslistanum. Þar fáum við hinn ágætasta valkost í annað sæti á framboðslista okkar, en að sjálfsögðu veljum við Markús Öm borgarstjóra í fyrsta sæti. Ef við ætlum að vera raunsæ og láta skynsemina ráða veljum við einnig konu í þriðja sæti. Yrði það sæti vissulega vel skipað með Guðrúnu Zoega. Ég vona að sjálfstæðisfólk geri sér ljóst hve tniklu skiptir af fram- boðslisti okkar tryggi konum ör- ugg sæti. Fjórar konur í átta efstu sæti listans væri sanngjörn skipan og reyndar nauðsyn eins og nú horfir. Loks mætti bæta því við að viss endurnýjun, ný nöfn, á framboðs- lista hefur oft reynst vænlegt til árangurs í kosningum. Höfundur er fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík og fyrrverandi dómsm&laráðberra. „Útifundur verkalýðsfélaga á Reykjavíkursvæðinu, haldinn 27. jan- úar 1994, skorar á ríkissljórn og al- þingi að grípa strax til ráðstafana gegn því geigvænlega atvinnuleysi sem nú vex dag frá degi og leiðir hörmungar yfir þúsundir einstakl- inga og heimila. Miðað við fjölgun atvinnulausra á skrá á félagssvæði þessara félaga frá áramótum missir einn einstaklingur eða fyrirvinná fjölskyldu atvinnu sína tólftu hveija mínútu og em þá ekki taldir til þeir starfsmenn ríkis og sveitarfélaga sem einnig verða fyrir þessum samdrætti á vinnumarkaði. Allt þetta fólk steypist inn í hörmung- ar atvinnuleysis með allri þeirri mannlegu niðurlægingu sem slíkt hefur í för með sér. Fjölskyldum sem orðið hafa fyrir atvinnuleysi í tvo til þijá mánuði mæta efnahagslegar þrengingar sem vaxa eftir því sem atvinnuleysistími þeirra lengist. Veikindi, bæði sálræn og líkamleg, eru meiri hjá þessu fólki en öðru. Böm þessa fólks líða veru- lega í daglegu lífi sökum þessara aðstæðna. Vanskil vegna fjárskuld- bindinga hlaðast upp og eignaupp- taka blasir við fjölda fólks af þessum sökum. Fjölskyldan er kjarni hvers þjóð- félags. Lífsmöguleikar fjölskyldna byggjast á atvinnu og tekjum þeim til framfærslu. Hér er því um líftaug þjóðfélagsins að ræða. Þessi líftaug er öðrum fremur í höndum stjórn- valda og alþingis á hveijum tíma. Atvinnuleysi leiðir til þess að fjárhag- ur heimilanna hrynur. Afleiðing þessa er augljós; niðurbrot þjóðfé- lagsins fylgir í kjölfarið. Mannleg örlög verða ekki mæld sem prósentustærð í hagskýrslum hins opinbera. Atvinnuleysi er kaldur veruleiki heimila hinna atvinnulausu og barna þeirra. Verkalýðshreyfingin og aðrir ábyrgir aðilar í þjóðfélaginu geta ekki viðurkennt slíkt sem eðlilegt ástand. Það er ekki mælikvarði á efnahagslegan árangur. Það er ekki vitnisburður um stöðugleika. Það er öruggt merki þess að valdhafamir hafa ekki valdið hlutverki sínu og eru að bregðast þegnunum. Útifundur verkalýðsfélaganna krefst tafarlausra aðgerða í atvinnu- málum sem létti af því atvinnuleysi sem nú er að leggja í rúst lífsmögu- leika og lífshamingju þúsunda launa- manna og heimila þeirra. Verkalýðs- félögin eru reiðubúin tii þátttöku í slíkum aðgerðum og hafa þegar lagt fram í'jölda tillagna um átak í þeim efnum. F.h. Verkalýðsfélaganna í Reykja- vík og Hafnarfirði. Guðmundur J. Guðmundsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir. og svæðabundið en nú væru þús- undir manna atvinnulausar og at- vinnuleysið ykist mest hjá konum. Þrátt fyrir þetta væri eins og ráða- menn forðuðust að horfast í augu við vandann. Krafan væri að allir hefðu tækifæri til þess að sjá fyrir sér og sínum með vinnu. Atvinnuleysið sundrar þjóðinni „Fámenn þjóð eins og við íslend- ingar hefur ekki efni á almennu langvarandi atvinnuleysi. Við getum ekki umborið langvarandi atvinnu- leysi vegna þess að óréttlætið sem fylgir því sundrar þjóðinni. Við megum ekki umbera langvarandi atvinnuleysi vegna þeirra sem það bitnar á. Langar ítarlegar skýrslur og litfögur línurit mega ekki leiða athygli okkar frá því að atvinnu- lausar systur okkar og bræður eru holdi klæddar verur. Atvinnuleysi er þjáning og henni lýsir ekkert línu- rit. Engar prósentur eða vísitölur skýra örvæntinguna sem fylgir fjöl- skyldum atvinnulausra. Fyrir hvem einn sem tapar vinnu verða aðrir þrír eða fjórir fórnarlömb atvinnu- leysis hans. Atvinnuleysi snertir tugþúsundir landsmanna með béin- um hætti og hefur áhrif á afkomu þeirra, sjáifsvirðingu og vellíðan," sagði Ingibjörg meðal annars í ræðu sinni. 970 atvinnulausir í VR Hún rakti dæmi af því hvaða áhrif atvinnuleysi hefur á afkomu og kjör þeirra sem verða fyrir barð- inu áPþví. Hún sagði að stöðugt fjölgaði þeim sem hefðu verið at- vinnulausir í meira en ár og einnig þeim heimilum sem stefndu í gjald- þrot vegna þess. Skaðinn yrði seint eða aldrei bættur. Af þeim rúmlega 970 félagsmönnum í Verslunar- mannafélagi Reykjavíkur sem nú væru atvinnulausir hefðu 359 verið atvinnulausir í meira en sex mánuði og 125 í meira en heilt ár. „Alvar- legar afleiðingar atvinnuleysis eru vel þekktar í löndunum í kringum okkur. Óregla og afbrot fara í vöxt, börn flosna upp úr skólum og heim- ili leysast upp. Örvænting grípur um sig. Það er lífsspursmál að tafar- laust verði gripið til aðgerða gegn atvinnuleysinu. Okkur er ljóst að þjóðin á í verulegum fjárhagslegum erfiðleikum, en atvinnuleysi kostar margfalt meira en við höfum ráð á. Við höfum ekki ráð á öðru en að gera nú þegar allt sem við getum til þess að útrýma atvinnuleysinu," sagði Ingibjörg ennfremur. Launamisrétti sem aldrei fyrr Guðmundur J. Guðmundsson, formaður verkamannafélagsins Dagsbrúnar, sagði í ræðu sinni að fátt eða ekkert bryti manneskjuna eins mikið niður og atvinnuleysi. Menn fylltust einsemd og örvilnan og óttinn og skorturinn blasti við. Gjaldþrot blasti við ft'ölda fjöl- skyldna ef ekki rættist úr. „Það eykur gremjuna að lág laun. og launamisrétti í landinu er sem aldr- ei fyrr. Meðan stór hluti launafólks er með milli 50 og 65 þúsund krón- ur á mánuði, sem engin fjölskylda lifir eðlilegu lífi af, er hópur manna með hálfa milljón og uppí milljón og slatti af forstjórum og yfírmönn- um með yfir milljón á mánuði, tutt- uguföld laun verkamanna,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að talað væri um að ekki mætti uppræta atvinnuleysið og ekki mætti taka erlend lán til þess að auka ekki skuldir þjóðarinn- ar, en ef svo héldi áfram sem horfði yrðu atvinnuleysisbætur í ár yfir fjórir milljarðar og til þess þyrfti að taka erlent lán. Væri það nútíma- hagfræði að greiða mönnum at- vinnuleysisbætur frekar en að láta menn vinna og framleiða. „Þetta land á ærinn auð. Við höfum orðið sjálfbjarga á því að hafa unnið, karlmenn, konur, unglingarogjafn- vel börn. Hin gamla, góða hagfræði er að vinnan skapar verðmætin, atvinnuleysi skapar þau ekki,“ sagði Guðmundur. Hollenskir gulldúkatar Hann sagði að það hefði verið upplýst að ftöldi atvinnutækifæra hefði flust úr landi og mikið væri flutt irm af vöru sem hægt væri að framleiða hér heima og ríkið virtist hafa forgöngu um þetta. Á sama tíma og dýrir erlendir frystitogarar, sem lönduðu afla sínum óunnum erlendis, væru keyptir fyrir erlend lán, væri okkar eina von að við gætum keypt afla rússneskra frysti togara til úrvinnslu. Þannig mætti lengi telja, en nú þyrftu allir að ein henda sér í að efla íslenskt atvinnu- líf. Það þyrfti hugrekki og djörfung en ekki þann doða og kjarkleysi sem nú ríkti í íslensku þjóðlífi. Guðmundur sagði ömurlegt að þurfa að segja þann sannleika að frammámenn íslenskra Hfeyrissjóða væru nú í kauphöllinni í London til að kynna sér þar hvemig eigi að kaupa hlutabréf í erlendum fyrir- tækjum. Ef íslenskir lífeyrissjóðir ættu svona mikið fjármagn ættu þeir að veita það í íslenskt atvinnu- líf til að hjálpa við að útrýma at- vinnuleysi. „Það er eins og þessir menn lifi eftir frægri setningu úr íslandsklukkunni en hún er svona: „Maður sem aldrei hefur séð hol- lenskan gulldúkat veit ekki hvað það er að hafa lifað“.“ Hann sagði að það væri ótrúlega mikið af ungu fólki atvinnulaust hér á landi. „Hér er að koma breskt þjóðfélag þar sem þúsundir fólks sem er orðið fertugt hafa aldrei fengið neitt starf, en hafa lifað á atvinnuleysisbótum og félagsmála- stofnunum. Það er vitfirring að neita að taka konu í vinnu af því að hún er fimmtug og það er vitfirr- ing að neita körlum um vinnu af þeir era um sextugt ... Við ætlum ekki að skapa hér fátæka og at- vinnulitla undirstétt og það þjóðfé- lag sem því fylgir. Það er þjóðfélag ömurleikans og þjóðfélag misréttis," sagði Guðmundur. * ' Við það fólk sem væri atvinnu- laust sagðist hann vilja segja þetta: „Missið ekki trúna á landið, missið ekki trúna á sjálf ykkur, missið ekki trúna á lífið. Og sameinuð hönd í hönd skulum við öll beijast gegn atvinnuleysinu og ekki hætta fyrr en við útrýmum því. Sú sókn er hafin og sú sókn skal vera þung.i , Og góðir félagar. Ef við höldumst í hendur þá skulum við hafa sigur.“ Markmið aðgerða að treysta atvmnulíf Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- ráðherra, sem gegnir störfum for- sætisráðherra í fjarvera Davíðs Oddssonar, sagði að ríkisstjórnin deildi sömu áhyggjum vegna allra þeirra sem væru atvinnulausir. Ríkisstjórnin hafi haft það að markmiði með aðgerðum sínum að treysta atvinnulífið og hafi átt all- gott samstarf við verkalýðshreyf- inguna um að veita fjármagn til atvinnuskapandi verkefna og til að flýta opinberum framkvæmdum. „Ég vona að það samstarf geti hald- ið áfram, því það er sameiginlegt markmið okkar að vinna bug á þeim vanda sem þið hafið verið að fjalla^ hér um í dag,“ sagði Þorsteinn enn- fremur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.