Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994 Minning Þorgeir Jónsson Ingibjörg Sigurð- ardóttir — Minning Fædd 26. júní 1909 Dáin 10. janúar 1994 Ingibjörg Sigurðardóttir var borin til grafar 19. janúar 1994. Jarðarför hennar fór fram frá Akraneskirkju og var hún jarðsett í kirkjugarðinum á Akranesi. Það eru um tíu ár síðan leiðir okkar Ingibjargar Sigurðardóttur frá Neðraskarði í Leirár- og Mela- hreppi lágu saman. Hún og hennar ágæti eiginmaður, Valgeir Jónas- son, bóndi á Neðraskarði um fjölda ára, voru „landnámsmenn“ á lóð dvalarheimilisins „Höfða“ á Akra- nesi, ásamt mér og átta öðrum nýbyggjum á þessu byggingar- svæði. Voru byggð þama tíu rað- hús og fluttu „landnemamir“ inn í íbúðir sínar í sept.-okt. 1984. Þessar sjálfseignaríbúðir vom byggðar í tengslum við dvalar- heimilið Höfða og hafði samband við heimilið á margvíslegan hátt, m.a. var neyðarlína frá íbúðunum til næturvaktarinnar á dvalarheim- ilinu o.fl. Við sem fluttum inn í þessar íbúðir þekktumst lítið eða ekkert áður en við komum á þetta svæði, nema hvað við Valgeir Jónasson vomm kosnir í stjóm væntanlegs húseigendafélags á Höfðagrund og unnum að undirbúningi samskipta væntanlegra íbúa á Höfðagrund við dvalarheimilið Höfða ásamt Valgarði L. Jónssyni, sem var for- maður þessarar stjómar. Það fór ekki hjá því að vegna þessa sam- starfs við Valgeir kynntist ég Ingi- björgu meira en öðmm á svæðinu. Ingibjörg kom mér fyrir sjónir sem stjórnsöm húsmóðir, skoðanaföst, < hlýleg og raunsæ. Það þurfti nokk- um tíma til að vinna hylli hennar, en ef hún fann í manni eitthvað, sem hún taldi vera jákvætt fyrir lífíð og tilvemna, átti maður í henni góðan talsmann. Hún mat mikils heiðarleika, samviskusemi og til- ljtssemi gagnvart samferðafólkinu. Ég hefí haft nokkur samskipti við þessi ágætu hjón á þeim tíu ámm, sem leiðir okkar hafa legið saman. Hefir mér fundist að ég hafi sótt meira til þeirra en ég hafí veitt þeim. í því liggur ekki síður af- staða, hlýleiki og velvilji Ingibjarg- ar í minn garð en önnur samskipti milli heimila okkar, þó að þau hafi verið öll hin ánægjulegustu frá fyrstu tíð. Ég sakna hennar Ingibjargar. En lífínu fylgja gleði og sorgir. Við verðum að vera raunsæ og . viðurkenna að dauðinn er kannske ekki alltaf óvelkominn, sérstaklega þegar fyrirsjáanlegt er að lífíð býð- ur ekki upp á annað en hrörnandi líkama og heilsuleysi um ófyrir- sjáanlegan tíma. Dauðinn er alltaf sár, sérstaklega þeim, sem þurfa að sjá á bak við ástvinum sínum. En þá er mikils virði að eiga minn- ingar um félaga og vin, sem hefír gefíð manni jákvæð viðhorf til lífs- ins og framtíðarinnar. Ég sendi eftirlifandi eigimanni Ingibjargar, Valgeiri Jónassyni, svo og börnum þeirra, tveimur dætrum og tveimur sonum ásamt fjölskyldum, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hermann Guðmundsson. Minning Friðgeir Friðjóns- son frá Hofsstöðum Fæddur 4. júlí 1919 Dáinn 8. janúar 1994 Elsku Geiri frændi. Nú ertu kominn inn í eilífðina, eins og þú sagðir alltaf. Það er erfitt að hugsa til þess að eiga ekki eftir að fá þig í heimsókn og drekka með þér kaffi og spjalla. Ég hugga mig við það að vita að nú líður þér vel og þið pabbi (Stefán Óskar, bróðir þinn) hafíð hist á ný. Síðustu viku hafa minningamar hrannast upp, ein af annarri. Fyrst man ég eftir Geira frænda þegar hann kom heím til mín og fjöl- skyldu minnar á sunnudögum og bauð okkur í bíltúr. Ég hljóp alltaf á móti honum í stiganum og stökk í fangið hans. Þar var gott að vera. Oft suðuðum við systurnar í pabba að hringja í Geira frænda og biðja hann um að koma til okkar því að þá áttum við engan bíl. Þegar ég átti síðan að taka bíl- próf þá bauð hann mér í bíltúr til að kenna mér undirstöðuatriðin. Geiri frændi lagði mikið upp úr því að eiga fína bíla. Ég get nú ekki talið alla þá bíla sem hann hefur átt frá því ég man eftir mér. í hvert sinn sem hann keypti sér nýjan bíl, kom hann í heimsókn til að leyfa mér að keyra nýja bílinn. Síðasta ferð okkar var í júlí síðast- liðnum. Þá fórum við ásamt syni mínum í bíltúr suður með sjó. Það var svo gaman að fara í bíltúr með Geira. Hann hafði frá svo mörgu að segja og þekkti landið sitt svo vel. Elsku Geiri frændi, ég og fjöl- skylda mín eigum þér svo margt að þakka. Því fæ ég ekki lýst í örfáum orðum. Þú vildir allt fyrir okkur gera. Hafðu þökk fyrir allt. Blessuð sé minning þín. Heiða Ósk Stefánsdóttir. Geiri frændi eða „afí“ hefur kvatt okkur í hinsta sinn. Ég kynntist Geira fyrir um 11 árum í þann mund er við hjónin hófum sambúð. Með okkur tókst góður kunningsskapur frá fyrstu stund. Og held ég að hann hafí verið góður staðgengill nýlátins tengdaföður míns Stefáns Oskars bróður Geira, sem mér auðnaðist aldrei að hitta. Á þessum tíma var Geiri ákaflega þéttur á velli og elskaði góðan mat, en þó sérstak- lega þann árlega sið að fara með konunni minni í bíltúr út á Ægis- íðu og kaupa signa grásleppu. Það var nú ekki mikið sem hann Geiri leifði af þessum herramanns mat. Oft var það að við vinirnir tókum í spil með Geira og var þá iðulega spilaður Manni. Ollum var þetta óblandin ánægja því Geiri hafði þann fágæta hæfileika að kunna að vinna og tapa í spilum. „Það liggur bara svona í spilunum, það er bara ekkert við þessu að gera,“ sagði hann Geiri. Eg held að þarna hafi lífsspeki Geira komið fram í hnotskum. Hlutirnir voru bara svona, til hvers að vera angra sig á þeim. Son okkar hjónanna skírðum við Þorgeir Jón í höfuðið á Geira og föður hans. Ég vona að Geiri hafí eignað sér eitthvað í honum. Alla vega var hann alltaf kallaður afi og þar var góður og hjartahlýr afí. Þetta hafa verið fá en góð ár. Við vorum ekki undir það búin að talningu þeirra væri lokið. Síst eft- ir heimsókn okkar upp á hjarta- deild daginn fyrir andlát Geira, þá leit hann svo vel út. Við höfðum hugsað okkur að taka með spil í næsta skipti og leyfa Þorgeiri litla að spreyta sig á Manna, sem hann er nýbúinn að læra, við gamla manninn. Það varð aldrei, „það liggur bara svona í spilunum“. Það verða margar góðar vættir sem taka á móti honum Geira. En það er samt sárt að missa góðan vin. Við þökkum fyrir öll árin, Geiri minn. Farðu vel. Gunnar, Ásta Birna, Þorgeir Jón. ERFIDRYKKJUR ^jeWngahtis^ HéTtL tSJI sími 689509 V _____/ Fæddur 1. október 1931 Dáinn 16. janúar 1994 Óneitanlega hrekkur maður við þegar fréttir berast um að lífsglað- ur maður á. besta aldri sé farinn yfir móðuna miklu, en svona er þetta vist, enginn ræður sínum næturstað. Kynni okkar Friðgeirs hófust fyrir um 25 árum, þó að við vissum hvor af öðrum fyrr. Við vorum báðir haldnir ólæknandi dellu fyrir hestum og fyrstu raunverulegu kynnin voru í dómnefnd gæðinga, ég þá ungur maður að stíga mín fyrstu skref í þeim málum, Frið- geir nokkru eldri og þegar orðinn sjóaður. Þá var enn dæmt með „gamla laginu“ svokallaða, farið á bak öllum hestum og skoðanir síð- an bornar saman. Eftir þetta lágu leiðir okkar saman við gæðinga- dóma og félagsmál hestamanna almennt, meðal annars við stofnun Dómarafélags LH. Áður fyrr var oft ferðast um landið við val á gæðingum fyrir stórmót og þá naut minn glaðlyndi félagi sín vel. Friðgeir þekkti marga, kunni mikið af sögum og mikið af vísum. Skemmtilegri ferðafélaga var ekki hægt að hugsa sér. Glaðlyndi Friðgeirs brást aldrei og ekki skemmdi hin bjarta söngrödd. Tónlist var Frið- geiri mikils virði og þegar hann spilaði á harmonikkuna og söng var oft gaman að lifa. Minningamar sækja á og margt væri hægt að rifja upp, þessi fá- tæklegu orð segja lítið. Friðgeir félagi minn, þakka þér fyrir allar ánægjustundirnar og ég efast ekki um að eitthvað er sæmi- legt undir hnakkinn hinum megin. Aðstandendum votta ég samúð mína. Jón Sigþór Sigurðsson. Sérl'ræðingar í hlóiiiaskrcy(iii|giiin við öll (a'kil'uM'i Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090 t Sonur minn og fóstursonur, BJÖRN ELLERTSSON, Urðarstekk 2, andaðist í Borgarspítaianum 26. janúar. Fyrir hönd ástvina, Gyða Sigvaldadóttir, Kristján Guðmundsson. t Útför móður okkar, HALLDÓRU ÞÓRÐARDÓTTUR, Stóra Saurbæ, áður húsfreyju á Hjarðarbóli, Ölfusi, ferframfrá Kotstrandarkirkju, laugardaginn 29.janúarkl. 13.00. Börn hinnar látnu. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN B. ANDRÉSSON skipstjóri, sem lést þann 20. janúar sl. verður jarðsunginn frá Þingeyrar- kirkju á morgun, laugardaginn 29. janúar, kl. 14.00. Erla Ebba Gunnarsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkuð er samúð og virðing auðsýnd við andlát og jarðarför RAGNHEIÐAR JÓNSDÓTTUR fyrrverandi bankafulltrúa. Fyrir hönd vandamanna, Stefanfa Gísladóttir. t Innilegar þakkir og kærar kveðjur sendum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við fráfall og útför SIGRÍÐAR SIGFÚSDÓTTUR, Suðurgötu 80, Akranesi. Þorvaldur Sigtryggsson, Ingveldur Sverrisdóttir, Sverrir Þorvaldsson, Tryggvi Þorvaldsson, Inga Valdís Þorvaldsdóttir, Sigtryggur Matthfasson, Sveinn Matthíasson. t Sá einlægi hlýhugur og samúð, er við urðum aðnjótandi við and- lát og útför, ÞÓRGUNNAR EYSTEINSDÓTTUR, veitti okkur ómetanlegan styrk og huggun. Við þökkum þá virðingu, er minningu hennar hefur verið sýnd. Sérstakar kveðjur og þakkir til U.M.F. Mývetnings og Sparisjóðs Mývetninga, svo og lækna og hjúkrunarfólks á lyfjadeild Sjúkra- hússins á Akureyri og deild 11-E á Landspítalanum í Reykjavík. Ásta Kristín Benediktsdóttir, Bergþóra Eysteinsdóttir, Halldóra Jónsdóttir, Eysteinn Sigurðsson, Arnarvatnl. + Alúðarþakkir færum við öllum þeim, er sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRU EINARSDÓTTUR, og heiðruðu minningu hennar. Guðrún Sigríður Jakobsdóttir, Hans W. Rothenborg, Svava Jakobsdóttir, Jón Hnefill Aðalsteinsson, Þór Edward Jakobsson, Jóhanna Jóhannesdóttir, Jón Einar Jakobsson, Gudrun Jakobsson, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Tilraunastöð Háskóla ísiands í meinafræði að Keldum verður lokuð eftir hádegi í dag föstudag- inn 28. janúar vegna jarðarfarar JÓNS ELDONS sérfræðings á tilraunastöðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.