Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 28.01.1994, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FOSTUDAGUR 28. JANUAR 1994 HANDKNATTLEIKUR Selfyssingar búa sig undir seinni leikinn gegn Pick Szeged, eftir eftirminnilega ferð til Ungverjalands Fyrsta skoðunarferðin á tveimur jafnfljótum SELFYSSINGAR leika síðari leik sinn í átta liða úrslitum Evrópu- keppni bikarhafa gegn ungverska liðinu Pick Szeged í Kaplakrika kl. 16.30 á morgun. Ferð þeirra til Ungverjalands um síðustu helgi í fyrri leikinn varð all söguleg, eins og fram hefur komið. Fyrir ferð- ina bað Morgunblaðið Sigurð Sveinsson að halda dagbók um það sem á dagana drifi í ferðinni og birtist hér ferðasaga hans. Klukkan var rúmlega -sex, fimmtudaginn 20. janúar, þeg- ar rútan frá Selfossi kom að Rauða- vatni, en þar hittumst við bæjardren- girnir og Selfyssingamir áður en lagt var af stað tií Keflavíkur. Við rennd- um í hlað við Leifsstöð rétt fyrir klukkan hálf átta í skítakulda. Eins Reeboh EROBIK SKÓR ATOMIC S K I Ð I ^1 ÁÐUR: NÚ: • SIÐAR ÚLPUR 11.500 5.900 • REEBOK EROBIKSKÓR 6.990 4.900 • BARNA KULDASKÓR (loðfóðroðir) 5.590 1.490 • JOGGINGGALLAR 8.990 3.900 • BARNASKIÐAGALLAR 7.200 3.900 • ATOMIC ACS System 80 skíði 14.900 8.900 SUNDBOLIR og EROBIKFATNAÐUR 40%-60% afsláttur 70% staðgreiðsluafsláttur af öllum öðrum vörum í versluninni. Nýjum vörum bætt við daglega. Jlisstð ekki af einni bestn úts'ólu vetrarins! BOLTAMAÐURINN Laugavegi 23 • sími 15599 gott að enn var nægur tími fyrir notalegan kaffibolla og eina ristaða samloku uppi. Enginn hafði gleymt vegabréfinu sínu og enn færri voru með skotvopn undir höndum, enda runnum við Ijúf- lega í gegnum öryggishliðið. Nema Gísli Felix og Einar þjálfari, þeir þurftu enn einu sinni að skáskjóta sér í gegn. Ekki orð um það meir. Flugið til Amsterdam gekk (flaug?) eins og í sögu. Biðin þar á flugvellinum var stutt, aðeins um klukkustund. Áfram var haldið til Búdapest, höfuðborgarinnar í Ung- verjalandi, með flugvél frá KLM og var það um tveggja tíma flug. 17.00. Það var ekki laust við að smá spenningur væri í mannskapn- um er við lentum í Búdapest, enda flestir í hópnum að koma til Austur- Evrópu í fyrsta sinn. Þegar við geng- um út úr vélinni mætti okkur þetta týpíska Austur-Evrópuloft, afskap- lega frískandi og gott! Það er ótrúlegt að þessi flugvöllur er sá eini í Búdapest því þarna var aðeins ein önnur flugvél, gömul skrúfuþota frá miðöldum. Púff, það var eins gott að við ákváðum að taka rútu áfram til Szeged. Það var glatt yfír mönnum eftir komuna til Búdapest því nú var að- eins um tveggja tíma ferð eftir á áfangastað og klukkan ekki nema fimm. Töskurnar skiluðu sér allar á færibandinu og var ekki hægt að kvarta undan því. Það sama var ekki hægt að segja um herramennina í glerbúrunum sem skoðuðu vegabréf- in. Þeir tóku sinn tíma til að skoða myndirnar og annað mjög gaum- gæfilega þó þeir hafi eflaust ekki haft hugmynd um hvar eða hvað ísland væri (hvað þá Selfoss). „Hæ, hó,“ kallaði David Vokes, liðstjóri Selfossliðsins, yfirfararstjóri og íslenskufræðingur - „allir út í rútu“, og allir örkuðu af stað. Fyrir utan flugstöðina stóðu fjórir Tra- bantar, einn Wartburg og Lada Sport, en engin rúta. Fararstjómin lagði höfuðið í bleyti — (sendum við þeim ekki fax?). Jú, jú, Snorri formaður var með faxið í vasanum. Á því stóð: Komum klukk- an fimm. Það var ekkert að gera annað en að reyna að ná sambandi við forsvarsmenn Szeged liðsins og David hringdi í símanúmer sem þeir höfðu gefíð okkur upp; ring, ring. „Hello, my name is David, do you speak English? Sprechen sie Deutch? Espaniol?" Þá var skellt á og góð ráð dýr. Á endanum fundum við konu sem talaði bæði ungversku og ensku og hringdi hún fyrir okkur. Hún til- kynnti okkur að þeir hefðu ekkert fax fengið en myndu verða komnir með rútu til okkar á flugvöllin um átta leytið, þremur tímum síðar. Við komum til Szeged um klukkan ellefu um kvöldið og vorum orðnir fremur framlágir. Hótelið var eins og öll hótel í Austur-Evrópu, en ég hef verið á þeim allmörgum í gegnum árin. Viðhald virðist mér ekki í miklu uppáhaldi í þessum löndum og and- rúmsloftið á hótelunum er alltaf jafn sérstakt. En þetta var þó í fyrsta sinn sem ég sé litasjónvarp á hverju herbergi. Föstudagur 21. janúar Það var vakið klukkan níu og höfðu flestir sofið sem lömb. Eftir ágætan morgunmat var sest niður og málin rædd. Hvað átti að gera í dag: Matur klukkan eitt, skoðun- arferð um tvö, æfíng klukkan fimm, kvöldmatur, videófundur, svefn. 14.00. Eftir hádegismatinn vorum við allir til í að fara í smá skoðunar- ferð enda athyglisvert að vita eitt- hvað um það hvemig þessi 150 þús- und manna iðnaðarborg lítur út. Við urðum hissa þegar okkur var sagt að skoðunarferðin væri á tveimur jafnfljótum. Við létum okkur hafa það. Ekki get ég nú sagt að þetta sé falleg borg, hún er óttalega skítug og grá. Ekki sjást að neinar meiri- Á leið í skoðunarferð. Selfyssingum var boðið í ferð til að kynnast borg- inni. Ekki var farið í rútu eins og venjulega heldur fóru þeir á tveimur jafnfljótum. háttar breytingar hafí orðið þarna austur frá þrátt fyrir aukið lýðræði. Það er helst að verslunum hafi fjölg- að. Nema málningarverslunum, þær eru alltaf jafn fáar ef maður miðar við litinn á húsunum, eða þá þær selja bara gráa liti - ljósgrátt, dökk- grátt, svargrátt.... Skömmu fyrir æfínguna var okkur tjáð að klæða okkur vel því við þyrft- um að ganga þangað og væri það um 15 mínútna gangur. Þetta var fyrsta ferðin mín í Evrópukeppni þar sem boðið var upp á skoðunarferð og ferðir á æfíngastað á tveimur jafnfljótum. En enginn er verri þó hann þreytist! 17.00 Æfingin varð einnig all söguleg. Einar þjálfari bað um að enginn utanaðkomandi væri í salnum á meðan við værum að æfa enda var áætlunin að fara yfír leikkerfi okkar og varnarleik. En það var eins og við manninn mælt, salurinn fylltist af alls- konar fólki. Allt var reynt til að fá „aðdáend- uma“ til að yf- irgefa svæðið en það var eins Dagbók Sigurðar Sveinssonar úr ferdinni frægu til Ungverjalands og að tala við steypu, allir sátu sem fastast. Þetta var líka í fyrsta sinn sem ég upplifi það að aðkomulið fær ekki frið á æfingu. í okkar hugum var þetta ekkert annað en argasta ósfífni áf hálfu gestgjafa okkar. En það var ekki annað að gera en að halda haus og láta þetta ekki hafa áhrif á okkur. Laugardagur 22. janúar Laugardagurinn rann upp og það var ekki laust við að við værum komnir með örlítinn fiðring í mag- ann. Það er alltaf gott að vera eilítið spenntur fyrir þýðingarmikinn leik, þó ekki megi keyra um þverbak. Eftir góðan hádegismat héldum við fund þar sem farið var yfir leik- inn, dómarana og það andrúmsloft sem á leiknum yrði. Við vissum nátt- úrlega við hveiju var að búast í svona leik, átta liða úrslit í Evrópukeppni á erfiðum útivelli. Við ætluðum að spila skynsamlega, hanga á boltan- um, láta ekki spenna okkur upp. Líka að hafa gaman af öllu saman hvern- ig sem færi. Enn var okkur tjáð að rútan væri ekki á lausu og því ættum við að rölta í höllina. Við tókum það ekki í mál. Eftir örlítil orðaskipti tilkynntu þeir að rúta hefði skotið upp kollinum og væri á leið á hótelið. Þetta var hætt að vera fyndið. Höllin er frekar lítil, þröng og lágt til lofts, en rúmaði þó 2500 manns. Löngu var uppselt á leikinn. Við gerðum okkur strax grein fyrir að þetta var ljónagryfja af bestu gerð og erfitt yrði að koma skilaboðum inn á leikvöllinn. I klefanum fyrir leikinn voru menn að peppa hvern annan upp og fara yfir leikkerfín. Selfossliðið er sam- rýmdur hópur og skemmtilegur þó þar séu óvenju margir og miklir skap- menn. Sumir með viðurnefni, t.d. Einar ofsi 1, Einar ofsi 2 osfrv. En það er gott ef tekst að virkja skapið rétt. í leikjum sem þessum er líka meiri samstaða innan hópsins en t.d. í leikjum í deildinni hér heima. Menn leyfa sér ekki að rífast og kenna öðrum um þó illa gangi. Þegar við gengum inn á völlinn fundum við vel hveiju við áttum von á - það sást varla í gólfið fyrir papp- írsdóti, hávaðinn var mikill og alíir með trefla í gulum litum heimaliðs- ins. Og við gátum ekki betur heyrt en allir væru að hrópa í einum kór: „Fuck you Selfoss!“ Þetta gekk samt vel í byijun og við héldum í við þá. En um miðjan hálfleikinn fórum við að missa menn útaf og þeir náðu að keyra upp hraða. Þetta var ströggl í síðari hálfleik, gekk vel framan af og við náðum að minnka muninn en dómararnir sáu einfaldlega til þess að við vorum færri langtímum saman og við misst- um þetta útúr höndunum á okkur í lokin. Létum veija hjá okkur í dauða- færum. En þótt aðstæður hafí verið erfíð- ar og dómgæslan með því allra versta sem ég hef séð, þá er Pick Szeged mjög gott lið. Þeir eru líkamlega talsvert sterkari en við, breiðari, og sigur þeirra var verðskuldaður. Fjög- ur til sex mörk hefði verið eðlilegt. Það var ekkert eðlilegt við ofbeld- ið í lok leiksins. Eg hef aldrei séð annað eins nema i bíómyndum! Einn hélt höndunum, annar barði með krepptum hnefa í andlitið! Með mörg þúsund bijálaða áhorfendur og dóm- ara sem höfðu enga stjórn á neinu var bara eitt að gera: Láta fara lítið fyrir sér. Ef við hefðum reynt að svara í sömu mynt þá hefðum við komið með sjúkraflugi heim. Menn voru svekktir í búningsklef- anum. Hnúarnir á Oliver voru ennþá skjannahvítir, enda er hann mikill áhugamaður um box. En það var ekki annað að gera en koma sér í fötin og aftur upp á hótel. Undan- tekningalaust er aðkomuliði haldið boð eftir svona leiki, þar sem menn skiptast á minjagripum, borða saman og þess háttar, en því var ekki að heilsa hér. Rútan skilaði okkur á hótelið og þar fengum við okkur kvöldmat, ungverskt gúllas, í róleg- heitum. Einir. Sunnudagur 23. janúar Lagt var af stað í rútu til Búdapst klukkan tvö um nóttina, flogið til Amsterdam og beðið þar á flugvell- inum í fjóra tíma. Menn reyndu að kíkja í búðarglugga og bar helst til tíðinda að Hallgrímur markmaður sá sama geislaspilarann og hann hafði keypt í Keflavík, á afar góðum kjör- um að hans mati á leiðinni út — 6.000 krónum ódýrari á Schiphol. Hann varð svekktur mjög og hafði ekki enn náð sér fyllilega í leiknum gegn Val í fyrrakvöld! Komið var heim á sunnudagseftirmiðdag eftir tíðinda- lítið ferðalag. Þó ég hafi verið Iengi að, hef ég alltaf jafn gaman af svona ferðum. Þetta er kryddið í keppnistímabilið. Þessi ferð verður eftirminnileg meðal annars vegna þess dónaskapar sem okkur var sýndur. Við ætlum að svara fyrir okkur með því að taka vel á móti þeim hér, sjá hvort þeir kunna að skammast sín, Tólf mörk er auðvitað full mikill munur. En þeir hafa hingað til í keppninni tapað með miklum mun á útivelli, meðal annars með tólf mörk- um gegn tékknesku bikarmeisturun- um svo allt getur gerst. Við verðum ekki með neina kurteisi við þá inná vellinum og áhorfendur láta þá líka vonandi finna fyrir sér með því að búa til stemmningu ennþá betri en í höllinni þeirra í Szeged.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.