Morgunblaðið - 03.10.1996, Side 11

Morgunblaðið - 03.10.1996, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 11 „Reyktu“ með áskrift að spariskírteinum Ef þú átt erfitt með að stíga fyrsta skrefið og hefja regiulegan sparnað með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs, skaltu líta á sparnaðinn eins og hver önnur útgjöld. Sá sem reykir virðist alltaf eiga peninga til að kaupa sfgarettur. Það ætti því að vera jafn auðvelt fyrir þann sem vill spara að verja ákveðinni fjárhæð í reglulegan sparnað. Ef þú getur eytt, geturðu líka sparað. Þú getur til að mynda „reykt pakka á dag með áskrift" með því að leggja fyrir andvirði sígarettupakka í reglulegan sparnað (sumir „reykja" tvo pakka á dag). Það þarf enginn að efast um hvor þessara „reykinga" eru hollari, en með því að tengja sparnaðinn á þennan hátt við daglega neyslu verður oft auðveldara að stíga fyrsta skrefið og byrja að spara reglulega. Sparnaður er ekki andstæða neyslunnar, heldur eðlilegur hluti hennar og þegar upp er staðið er jafn auðvelt að spara eins og að eyða. Byrjaðu að spara strax í dag með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. Það þarf bara eitt símtal til að byrja - að spara! Áskriftarsíminn er 562 6040 og 800 6575 (sem er opinn allan sólarhringinn). Áskrift er lífstíll • Hl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.