Morgunblaðið - 03.10.1996, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 03.10.1996, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 49 HALLDORA BJARNADÓTTIR + Halldóra Bjarnadóttir var fædd í Hítardal í Hraunhreppi í Mýrasýslu 8. ágúst 1905. Hún lést í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 19. september síðast- liðinn. Foreldrar henanr voru Bjarni Márus Jónsson, f. 30.8. 1875, d. 4.12. 1918, og Gróa Jóns- dóttir, f. 1.6. 1878, d. 1.1. 1948. Hall- dóra var fjórða elst af 14 systkinum, en aðeins 11 þeirra komust á legg, yngsta barn Bjarna og Gróu andaðist aðeins tveimur dögum fyrir lát Bjarna. Halldóra kom sem ung stúlka til Hafnarfjarðar og stundaði þar ýmsa verkakvennavinnu. í Hafnarfirði kynntist hún Guð- mundi Guðmundssyni sjómanni og síðar fisksala, f. 5.7. 1903, d. 4.3. 1962 og gengu þau í heilagt hjónaband 17. júlí 1926. Guðmundi og Halldóri varð fjögurra barna auðið. Þau eru: 1) Ragna Ester, f. 6.10. 1931, herbergisþerna á Hótel Esju, gift Símoni S. Sigurjónssyni, AÐ MORGNI 19. september síð- astliðins er annar okkar var að koma frá Keflavík, með foreldra okkar, sem þá voru að koma úr stuttu fríi frá Bandaríkjunum og ekið var fram hjá Sólvangi í Hafnar- firði, en amma okkar bjó þar hjá í þjónustuíbúð, sagði móðir okkar: „Er ekki komið ljós hjá möramu?" Haldið var sem leið liggur að heim- ili foreldra okkar í Reykjavík, þar sem þau lögðust til hvílu eftir langt ferðalag. Um hádegið hringdi síminn á heimili þeirra og tilkynnt var að amma okkar hefði látist þá um morguninn og varð þá ljóst að amma hafði ekki tendrað ljós þenn- an morgun, þar sem hið eilífa Ljós í lífi okkar allra hafði sótt hana á sinn fund. „Amma Dóra“ eins og við köll- uðum hana var 91 árs, er hún kvaddi þessa jarðvist og var skiln- aðarstund hennar hæg og hljóð eins og reyndar allt hennar líf. Hún var ein af þeim einstöku manneskjum sem lét fólki líða vel með augnatillit- inu einu saman. Ellin fór um hana mjúkum höndum og fram á síðasta dag voru bakaðar pönnukökur og/eða vöfflur ef einhver kom í heimsókn. Með öllu fréttnæmu fylgdist hún af athygli og var gam- an að spjalla um daginn og veginn við hana þar sem hún var inni í öllum daglegum málum en eitt starfsmanni Alþing- is, og eiga þau tvo syni. 2) Bjarni Rafn, f. 8.7. 1933, skip- stjóri, börn hans eru fjögur. 3) Guð- rún Elsa, f. 20.1. 1935, húsmóðir í Bandaríkjunum, gift Alexander Flores, börn hennar eru fjögur. 4) Grét- ar, f. 21.4. 1936 og á hann fimm börn. Eins og sést hér að ofan voru barna- börn Halldóru 15 og við andlát hennar höfðu 13 barnabarnabörn komið í heim- inn. Síðustu 20 ár starfsævi sinnar starfaði hún sem ráðs- kona hjá Vita- og hafnarmála- stofnun í Kópavogi, eða til 75 ára aldurs er hún hætti störf- um, en þá munu leiðir hennar og Högna Brynjólfssonar hafa mæst aftur en þau þekktust á yngri árum. Halldóra og Högni giftu sig og ákváðu að eyða ævikvöldinu saman, en Högni lést fyrir nokkrum árum, og bjó Halldóra ein eftir það og fram á dánardag. Útför Halldóru fór fram í kyrrþey að hennar eigin ósk. málefni var það sem við bræðurnir forðuðumst að ræða við hana alla tíð, en það voru stjórnmál, hún var dygg stuðningskona Alþýðuflokks- ins og þar sem hugmyndir hennar og okkar bræðra sköruðust í stjórn- málum, létum við kyrrt liggja. Amma var líka mikil baráttukona fyrir bættum lífskjörum verkafólks í Hafnarfirði sem annars staðar á árum áður og var meðal annars gerð að heiðursfélaga í Verka- kvennafélaginu Framtíðinni í Hafn- arfirði. Samband ömmu og föður okkar var alveg einstakt, ekki voru sögð mörg orð, en ást, hlýja og gagn- kvæm virðing knýtti þau saman, með ósýnilegu tengibandi, sem við vitum að heldur, þó svo að amma sé flutt til nýrra bústaða. Amma sýndi mikinn trúarstyrk, er hún giftist seinni eiginmanni sín- um, sem nú er látinn, en hann var Síðasti bekkur ársins byrjar i kvöldl □ Vissir þú að hægt er að ná skipulegu sambandi við framliðna í gegnum a.m.k. 14 mismunandi þekktar miðilstegundir í veröldinni í dag? I I Og vissir þú að skyggnir einstaklingar geta á mismunandi hátt ýmist séð og eða skynjað handanheimana sem og hina makalausu álfa- og huldufólksheima I kringum okkur nánast þegar þeim hentar? □ En vissir þú að venjulegur einstaklingur eins og þú, skyggn eða óskyggn, getur lært allt um þetta í hinum vandaða íslenska Sálarrannsóknarskóla fyrir hófleg skólagjöld? Síðasti bekkur drsins byrjarí kvötd. Hringdu ogfáðu allar nánari upplýsingar am skólanti og skemmtilega námið í honum nú á haustönninni. Svarað er í síma skólatis alla daga vikunnar frá kl. 14.00-19.30. Sálarrannsóknarskólinn - Mest spennandi skólinn í bænum - Vegmúla 2, sími 561 9015 og 588 6050. MINNINGAR meðlimur í söfnuði Votta Jehóva, og þrátt fyrir fórtölur manna og kvenna, stóð hún amma okkar föst á trúfesti sinni, hún vildi ekki af- neita trú sinni og taka aðra trú sem hún vissi lítil sem engin deili á. Heimili okkar beggja prýðir tals- vert af handarverkum ömmu, en hún var „dverghög" í höndum og munu nú þessir dúkar og þær dúll- ur sem við eigum eftir hana, verða varðveitt með minningu hennar í huga. Amma var líka mikill hagyrðing- ur og leyfði hún öðrum okkar að heyra brot úr þeim ljóðum og vísum sem hún hafði dundað sér við að gera á síðustu misserum. Þar kom sterklega í ljós hve hlý og tilfinn- ingarík hún var. Aldrei munum við eftir því að amma okkar yrði veik og legðist í rúmið. Ef og þegar henni leið illa, andlega sem líkamlega, þá vissi það enginn, nema hún, þar sem hún hafði ekki að vana að kvarta um heilsu sína, en alltaf hafði hún áhyggjur af okkur öllum hinum sem eigum kannski eftir að tileinka okk- ur þennan góða eiginleika sem amma hafði. Með þessum fáu orð- um um ömmu okkar erum við að reyna að sýna henni lítinn þakklæt- isvott fyrir allt það sem hún gerði fyrir okkur, önnur barnabörn og öll sín barnabarnabörn bæði hér heima á íslandi og í Ameríku, sem líka kölluðu hana „ömmu Dóru“. Við stöndum eftir hljóðir og hrærð- ir í huga, en umfram allt þakklátir fyrir að hún var og er amma okkar. Við óskum henni velfarnaðar á þeirri braut er hún hefur nú lagt út á og biðjum algóðan Guð að greiða henni laun hennar með náð- ar- og líknarfaðmi sínum við komu hennar til nýrra heimkynna. V;ð vitum að minning hennar verður ætíð sem himneskt Ljós I lífi okkar allra. Sigurjón Símonarson, Guðmundur Símonarson. Ástkær amma og langamma okkar er nú lögst til hinstu hvíldar. Hennar verður sárt saknað. Eins léttlynd og barngóð og hún var. verður hún alltaf í huga okkar. Það er svo erfitt að missa það sem manni finnst sjálfsagt að hafa. Við kveðjum þig, elsku amma Dóra, með söknuði og þökkum þér um leið fyrir hlýju og góðu móttökurn- ar sem þú ávallt veittir okkur. Hörður, Ása og Thelma Rós. NO E! LAG m MÆTA í * a * Grænmetis- og ávaxtatorg Grill að hætti Mjóddarbúa Lifandi tónlist Tombóla Ltiíktitltí Glæsileg tilboð @BÚNAÐARBANKINN 11II Gabríel Kaupgarður Bwiðholts &BLÓM ÍSLANDSBANKI Éfe SPARISIOÐUR REYKJAVÍKUR OC NÁCRENNIS Skóbúbin í Mjódd Gull-Úrið G M G GTG Endurskoðun ehf. Studioblóm LJOSMYNDARINN -------lARA uqnq (pýraCand ¥ iJ RG Gullsmiðurinn í Mjódd ^arn/l^ittitversinmn ■ © ¥m ú s í k bó:sib 'Jmmm P Y ’ hljómplötuverslanlr l Á GL€RRUGNfiV€RSLUNIN (IVUÓDD LEIKBÆR URISekf INNROMMUN OG HANNYRÐIR Breiðholtsapótek Mjódd mi Æ T U töJnyrtistofan ff í M J Ó D D £ - U. X HAKSEL Hársnyrtlstofa ° 9 N ;
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.