Morgunblaðið - 15.11.1996, Side 57

Morgunblaðið - 15.11.1996, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ 3 BRÉF TIL BLAÐSINS I ' Hvers vegna treysti ég Biblíunni? I í í 4 i 4 í i i i i i < i I ( ( ( ( ( ( Frá Gregory Aikins: UMRÆÐAN innan kirkjunnar um homma og lesbíur hefur vakið at- hygli mína. Fyrst og femst vegna þess hvað hún sýnir hve lítið traust menn bera til Biblíunnar. Biblían er bók sem mikið er rætt um, en oftast án þess að fólk hafi lesið hana alla. Fólk fer meira að segja oft að mínu mati illa með bók bók- anna og misnotar hana sér í hag hvort sem það er að reyna að sanna kenningar sínar eða afsanna gildi Biblíunnar sjálfrar. Mig langar að segja frá nokkrum rökum fyrir því hvers vegna ég treysti því sem Biblían segir, orð fyrir orð, og af hverju ég hef byggt allt mitt líf á boðskap hennar. Ég trúi Biblíunni sem orði Guðs vegna þess að: 1) Hún hefur sýnt sig að vera trúverðug í gegnum aldirnar, enda hefur hún breytt lífi milljóna manna til hins betra. Hins vegar hafa bæði einstaklingar og þjóðir sem hafa óhlýðnast Biblíunni gert það sjálfum sér til tjóns. 2) Handrit Biblíunnar sem við eigum eru elstu og áreiðanlegustu handrit fornalda. 3) Biblían hefur verið vandlega þýdd í gegnum aldirnar. 4) Upprisa Jesú Krists er best sannaða staðreynd sögunnar og Jesús staðfesti að öll Biblían er orð Guðs. 5) Fornleifafræðin hefur aldrei afsannað neinar staðhæfingar í Biblíunni. 6) Trú á það sem hún segir hef- ur breytt lífi mínu til hins betra og reynst mér trúverðug í hvert skipti sem ég hef reitt mig á hana. Mér er þess vegna nákvæmlega sama um hvað kirkjustofnun eða kirkjudeild segir um homma og lesbíur. Að stunda samkynhneigð- arkynlíf er rangt, ekkert annað. Siðferðilega er þessi hegðun röng, hvað sem menn segja. Biblían talar mjög skýrt, hún kallar þessa hegð- un „kynvillu“ og „ranglæti“. Þeir sem stunda svona líferni munu ekki ganga inn í Guðs ríki. Hún segir líka að það sé von fyrir kynvillinga. „Og þetta voru þér, sumir yðar. En þér létuð laugast, þér eruð helg- aðir, þér eruð réttlátir fyrir nafn Drottins Jesú Krists og fyrir anda vors Guðs.“ (I Korintubréf 6:11). Fólk sem er hneppt í þrældóm þess- arar syndar þarf að losna við hana, alveg eins og aðrir þurfa að losna við syndir eins og hórdóm, ljúg- vitni, ofdrykkju og svo framvegis. Margt fólk hefur einmitt frelsast undan kynvillu. Þegar við gefumst Jesú Kristi sem okkar persónuleg- um frelsara og Drottni frelsar hann okkur undan synd og gefur okkur getu til að vinna sigur á hvaða slæmri hegðun sem er. Á okkar dögum er það mikið í tísku að mæla hlutina út frá því sem manni finnst eða út frá eigin löngunum, en ekki út frá siðferði- legum lögmálum. Við eigum öll ýmsar tilhneigingar sem við verðum að beijast á móti af því að þær stafa af okkar eigin girndum. Við verðum að byggja líf okkar í kring- um lögmálsbunda þungamiðju, sér- staklega í siðfræði. Málið er að þegar við leyfum tilfinningum okk- ar að ráða ferðinni erum við orðin eins og stjórnlaust skip sem hrekst fyrir vindi og straumum. Þessi umræða um samkyn- hneigða snýst ekki fyrst og fremst um jafnrétti. Hún snýst í rauninni ekki heldur um pólitík. Kjarni máls- ins er hvað er rétt og hvað er rangt. Ég kýs að standa þar sem Biblían stendur í þessu máli. Þetta hefur alltaf reynst mér öruggt og árang- ursríkt. Ég vona að sem flestir muni standa með mér á þessum góða grunni. GREGORY AIKINS, prestur og starfsmaður hjá samtökun- um Greater Europe Mission. LÍN er ekkert grín Frá Herdísi Hallmarsdóttur: Lánasjóðurinn - félagslegur jöfnunarsjóður? Hlutverk Lánasjóðs íslenskra námsmanna er að tryggja náms- mönnum tækifæri til náms án tillits til efnahags eins og fram kemur í 1. gr laga um Lánasjóð ís- lenskra náms- manna nr. 21/1992. í dag búa þeir náms- menn, sem þurfa að framfleyta sér á námslán- um, við það óréttlæti að fá lánin greidd eftir að þeir skila námsárangri. Það fýrirkomulag neyðir námsmenn til að leita á náðir bankanna og sækja þar um yfirdráttarlán til að brúa bilið þar til þeir hafa náð að skila þeim námsárangri er LÍN krefst. Þeir þurfa þannig að bera vaxta- kostnað af yfirdráttarlánum og get- ur sá kostnaður hæglega orðið allt að fimmtíu þúsund krónur á ári ef námsmaður þarf að dreifa námi sínu yfir allt árið. Ekkert námssvigrúm veitt Eftirágreiðslukerfið byggist á því að 100% námsárangri sé skilað fyr- ir hvert misseri. Þeir sem mest eiga undir námslánum komið sér til framfærslu, eins og t.a.m barnafólk og fólk utan af landi, þurfa oft að taka á sig umtalsverða fjárhagslega áhættu með yfirdráttarskuld. Lítið sem ekkert má koma upp á próf- tíma. Hvorki námsmenn sjálfir né börn þeirra mega veikjast á þessum tímabilum sem oft tengjast bæði kvíða og álagi — þáttum sem oft stuðla að því að heilsan gefur sig. Óvissan um framfærsluna er heldur ekki til að bæta aðstæður til náms- ástundunar. Fall á prófi getur haft það í för með sér að námsmaður hrökklist frá námi og neyðist til að hefja launavinnu um leið, ef hann á ekki að láta vaxtaskuld við banka vinda upp á sig. Skiptir hér engu hvort námsmaður er að hefja nám eða er á seinni stigum þess. Þessi kjör eru óviðunandi og þjóð- inni til skammar að búa þannig að æsku sinni. Námsmönnum fækkar í kjölfar breyttra lánasjóðslaga í kjölfar breytinganna á sjóðnum 1992 hefur lánþegum hjá lánasjóðn- um fækkað. Mest ber á fækkun barnafólks, einstæðra foreldra og fólks utan af landi — þeirra sem mest þurfa á aðstoð sjóðsins að halda. Þetta fólk treystir sér ein- faldlega ekki lengur til að axla þá fjárhagslegu áhættu sem það hefur í för með sér að taka námslán. Af þessu ætti að sjást gleggst hversu illa hefur tekist til við að tryggja jafnræði til náms án tillits til efna- hags. Námsmenn hafa aldrei krafist þess að fá námslán án þess að þeir þurfi að sýna árangur í námi. Hins vegar er þörf á að veita námsmönn- um svigrúm, þannig að þeim sé gefið færi á að skila námsárangri á ársgrundvelli. Jafnframt er gerð sú sjálfsagða krafa að námsmenn fái greidd út námslán mánaðarlega eftir fyrsta misseri. HERDÍS HALLMARSDÓTTIR, fulltrúi stúdenta í stjóm LÍN. Lasep Expnession Penfium Laser tölvurnar hafa verið á íslenskum markaði lengur en nokkur önnur PC - samhæfð tölvutegund, eða frá árinu 1986. 1I//LASER computer 16mb vinnsluminni • 1,2 gb harður diskur • 8 hraða geisladrif 16 bita hljóðkort • 80w hátalarar 14" litaskjár»Windows95* Windows 95 lyklaborð • Microsoft mús. 100 mhz. 1Z3.9Q0 stgr. 133 mhz. 134.900 stgp. 1 , ■>'■ k* m * * * * #*'# / 1 1 t I I t , I!! ;1l o I Heimilistölvan er nýjasta heimilistækið og býður upp á ótal möguleika til gagns og gamans fyrir alla fjölskylduna. 10 ára traust reynsla af Laser heimilistölvum hér á landi er trygging fyrir góðri endingu - og verðið er mjög gott! Heimilistæki hf TÆKNI-OG TÖLVUDEILD SÆTÚNI 8 • SlMI 569 1500 • http://www.ht.is Kynnið ykkur málið betur og lítið inn til okkar!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.