Morgunblaðið - 21.02.1998, Side 6

Morgunblaðið - 21.02.1998, Side 6
6 LAUGARDAGUR'21. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐID f FRÉTTIR Morgunblaðið/Jón Svavarsson Gagngerar breytingar á Laugavegi Kaupmenn sáttir Fjör á hátíð unglinga í Firðinum BARNA- og unglingaQöld tók þátt í grunnskólahátíð í Hafn- arfirði síðastliðinn fimmtudag. Að deginum var haldin sameig- inleg skemmtidagskrá þar sem flutt voru meðal annars tónlist- ar- og leikverk eftir nemendur á öllum stigum. Um kvöldið var dansleikur fyrir unglinga í íþróttahúsinu við Víðistaða- skóla. Þar lék meðal annarra hljómsveitin Woofer sem hér sést. GUÐJÓN Hilmarsson, kaupmaður í íþróttavöruversluninni Spörtu, og talsmaður kaupmanna á Laugavegin- um, segir að fyrirhugaðar breytingar á Laugavegi leggist vel í kaupmenn í ljósi þess að tryggt hefur verið að að- gengi að verslunum verði gott. Smíðaðar hafi verið sérstakar brýr sem auðveldi viðskiptavinum að kom- ast inn í verslanimar og auk þess verði framkvæmdum hagað á þann veg að þær valdi sem minnstri rösk- un. Guðjón segir að ráðist sé í breyt- ingarnar að frumkvæði kaupmanna á Laugavegi. Þeir séu ánægðir með að nú eigi loks að hefjast handa í næstu viku. Hann segir að staðið verði nvjög fag- lega að framkvæmdunum og þær unn- ar í áfóngum. Fyrst verði unnið öðrum megin götunnar á kaflanum milli Frakkastígs og Vitastígs, Vitastígs og Barónsstígs og loks hinum megin göf> unnar. Ellefu ár eru síðan kaflinn frá Frakkastíg að Skólavörðustíg var tek- inn í notkun eftir svipaðar breytingar. ,Auðvitað verður röskun en það verður að koma í Ijós hvort hún hafi áhrif á viðskiptin. Eg er ekki viss um að það gerist verði staðið við fyrir- heit um gott aðgengi,“ segir Guðjón. Borgarstjóri um tilmæli ráðherra Miklubraut er stofnbraut og ríkið eigandi „MÉR finnst menn vera að kasta grjóti úr glerhúsi," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. „Miklabraut er stofnbraut og þar af leiðandi er ríkið eigandi og viðhald- ari vegarins.“ En umhverfisráðherra hefur beint því til borgaryfirvalda að þau hlutist til um án tafar að draga úr óþægindum íbúa við neðanverða Miklubraut sem rekja megi til mikill- ar umferðar við götuna. Tekið er fram að aðgerðimar skuli miðast við að draga úr óþægindum íbúa þai- til endanlegar úrbætur hafa verið gerðar. Borgarstjóri bendir á að annað ár- ið í röð hafi á fjárhagsáætlun borgar- innar verið samþykkt að leggja til styrk til íbúðaeigenda, sem búa við götur í borginni, þar sem umferðar- hávaðinn sé mikill. „Við höfum séð það þannig fyrir okkur að borgin greiði þriðjung kostnaðar, rikið þriðjung og húseigandinn þriðjung,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „Við höfum þvi farið fram á það við ríkið að það setji sambærilega upphæð inn á vegaáætlun til þess að taka þátt í þessu með borginni en það hefur ekki verið viðurkennt ennþá.“ Ingibjörg sagði að einnig hefði verið rætt um að setja Miklubraut í stokk en þær framkvæmdir þyrfti einnig að ræða um við ríkið vegna kostnaðarins. „Ríkið verður að taka þátt í þeirri framkvæmd," sagði hún. Enn hafa því engar ákvarðanir verið teknar um stokk fyrir Miklubrau't en borgarstjóri sagði að samkvæmt vegaáætlun væri gert ráð fyrir ár- legu framlagi frá 1998 til 2002 til framkvæmda við Miklubraut frá Skeiðarvogi að Snorrabraut. Gert væri ráð fyrir 170 millj. árið 1998, 20 millj. árið 1999, 96 millj. árið 2000, 230 millj. árið 2001 og 360 millj. árið 2002. 100 umsóknir um styrki Samkvæmt upplýsingum Stefáns Hermannssonar borgai’verkfræð- ings bárust rúmlega 100 umsóknir um styrki vegna umferðarhávaða þegar þeir voru auglýstir sl. haust og þar af voru afgreiddar 30 umsóknir. Tveir hafa þegar lokið við sínar úr- bætur en aðrir munu sennilega ljúka þeim með vorinu þegar betur viðrar til að skipta um glugga. Á síðasta ári var gert ráð fyrir 20 millj. og 30 millj. eru á þessu ári til styrkjanna en undir sama lið eru einnig hljóð- manir, sem reistar eru vegna um- ferðarhávaða. Sagði borgarverk- fræðingur að í mars yrði auglýst eft- ir nýjum umsóknum. Borgarverkfæðingui’ bendir á að íbúinn sem mest hefur kvartað vegna hávaða við Miklubraut hafi ekki sótt um styrk til endurbóta á íbúð sinni. Auk þess búi hann í ná- grenni við Hringbraut, þjóðveg í eigu ríkisins sem samið hafi verið um að ríkið kostaði tilfærslu á en ekkert fé hafi fengist til þeirra fram- kvæmda úr ríkissjóði. Þetta er eitt- hvað annað! TðlVLlST íslenska ðperan ÁSTARDRYKKURINN eftir Donizetti. 5. sýning. Föstudaginn 20. febrúar. ÞAÐ hafa orðið mannaskipti í Ást- ardrykknum og við hlutverki Nemorinos tekið breski söngvarinn Justin Lavender. Hann hefur sungið á Scala, við Vínaróperuna og í Covent Garden. Lavender hefur ekki mikla rödd, en nokkuð góða á efra sviðinu og gerði hlutverkinu í heild góð skil. Þau atriði þar sem Nemorino kemur mest við sögu er upphafsarían og ástarjátning hans til Ádinu. Samleikur Lavenders og Bergþórs (Dulcamara) var mjög sannfærandi og allt vesenið með ástardrykkinn og sömuleiðis lokaatriðið með Ádinu. Justin Lavender í heild var sýningin svipuð og frumsýningin, fjörug og leikandi undir stjórn Robins Stabletons. í tiiefni bolludagsins bjóðum við rjúkandi kaffi og rjómabollur með ekta rjóma á aðeins 90 kr. föstudag, laugardag, sunnudag og mánudag. Verði ykkur að góðu. Veit ingn ntaöur LEIKLIST Smíðaverkstatði Þjóðlei kltússins POPPKORN Höfundur: Ben Elton. Þýðandi: Illugi Jökulsson. Leikstjórn: Guðjón Peter- sen. Leikmynd og búningar: Elín Edda Árnadóttir. Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason. Leikarar: Arnar Jónsson, Halldór Gylfason, Iljálmar Hjálmarsson, Ingrid Jónsdóttir, Mar- grét Vilhjálmsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Ragn- heiður Steindórsdóttir og Vigdís Gunnarsdöttir. Föstudagur 20. febrúar. BEN ELTON sækir efnivið í um- ræðu í fjölmiðlum um morð- ótt par er vísaði í kvikmynd- ina „Natural Born Killers" (Oliver Stone 1994) sem áhrifayald til ódæðisverk- anna í málsvörn sinni. Ekki er þetta nýtt af nálinni, um- ræðan um samband milli of- beldisverka og kvikmynda sem þykja upphefja glæpi hefur staðið í nokkra ára- tugi, a.m.k. frá því að „In Cold Blood“ (1967) gerð eftir bók Trumans Capotes (1966) og „A Clockwork Orange" (1971) gerð eftir bók Ant- honys Burgess (1962) sáust fyrst á hvíta tjaldinu. Þessi verk fjalla um ofbeldisverk og sjá má áhrif þeirra beggja í Poppkomi. Einnig má greinilega sjá merki morðs Charles Mansons á Sharon Tate, eiginkonu kvikmyndaleikstj órans Romans Polanskis. Poppkorn er innlegg í þessa umræðu samkvæmt orðskviðnum „líkur sækir líkan heim“. Hún lýsir á öfgafullan hátt nútímalífi í Hollywood, þar sem fólk lifir og hrærist í kvikmyndaiðn- aðinum og allar fyrirmyndir fólks eru komnar beint úr kvikmyndum. Morð Verkið er harðsoðin háðsádeila á þessa menningu og það fer ekki á milli mála, þrátt fyrir fjölmörg orð um ábyrgð, hvar höfundur stendur í umræðunni um ofbeldi í kvik- myndum og sjónvarpi. Vandamálið er að erfitt er að fjalla um þetta efni án þess að falla í sömu gryfjuna og gagnrýnd er, þ.e. skapa ofbeldisfullt verk sem breytir viðbjóðnum í skemmtiefni. Persónumar eru yfirborðskenndir Kalifomíubúar og hætt við að þeir með því að leita skjóls í hlátrinum. Höfundurinn sjálfur leitar vars í skopi, sérstaklega þegar hann slær örlögum persónanna upp í grín á sjónvarpsskjánum eftir uppklapp sem veldur algjöru spennufalli og er á skjön við áhrifamikinn endinn. Sviðsetningin er sérstaklega vel heppnuð. Það drjúpa af sviðsmynd- inni ríkidæmi og stíll. Búningarnir ná að lýsa andstæðum ríkra og fá- tækra í Bandaríkjunum fullkom- lega og lýsingin mótvægi milli sterks sólskins Suður-Kaliforníu og hálfrökkurs innandyra. Þýðing- in er þjál og nær að flytja tungu- takið á léttfríkað eðlilegt nútíma- mál, sem er afrek. Leikritið prý'ða mörg stórhlut- verk og er leikurinn í einu orði sagt stórkostlegur. Olafía Hrönn er óhugnanlega sannfærandi. Hjálmar er betri en nokkru sinni sem hinn siðblindi morðingi. Vigdís Gunnarsdóttir nær ótrúlegum tökum á hlut- verki fímmtán ára stjörnu- bams. Margrét á stórleik sem hið ljóshærða og bosmamikla smástirni. Arnar Jónsson leikur sér að því að skapa skemmti- lega en samt sennilega týpu sem umboðsmaður- inn. Ragnheiður er einstök sem hin útlifaða leikstjóra- frú og Pálmi er kraftmikill og mjög sannfærandi sem kvikmyndaleikstjórinn þó að aðeins of mikil áhersla sé lögð á spaugilegu hlið- ina. Ingrid Jónsdóttir skapaði athyglisverða per- sónu í litlu hlutverki hljóð- manns og Halldór Gylfason sómdi sér vel sem mynda- tökumaður. Leikstjórnin er útsjón- arsöm og snjöll uppsetning á athyglisverðu verki gerir þetta eina af áhrifamestu sýningum sem undimtað- ur hefur séð. Sveinn Haraldsson Morgunblaðið/Ámi Sæberg PÁLMI Gestsson og Margrét Vilhjálmsdóttir í hlutverkum sínum. vinni ekki samúð áhorfenda heldur firri þeir sig því að taka afstöðu s B 5 i » i » t i »1 : i » f

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.