Morgunblaðið - 01.08.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1998 17
LANDIÐ
Fj örutíu fót-
boltar á fjörutíu
ára afmæli
Egilsstöðum - Þær duttu heldur
betur í lukkupottinn, stelpurn-
ar í 3. og 4. flokki knattspyrnu-
deildar Hattar á Egilsstöðum á
dögunum, er Varahlutaverslun-
in Víkingur á Egilsstöðum
færði þeim að gjöf 40 fótbolta.
Tilefnið var 40 ára afmæli fyr-
irtækisins. Og svo sannarlega
áttu stelpurnar þessa veglegu
gjöf skilda því þær hafa staðið
sig sérlega vel í sumar. 3.
flokkur hefur ekki enn tapað
leik í sumar og aðeins gert eitt
jafntefli. 4. flokkur hefur unnið
alla sína leiki, nema einn. Þjálf-
ari stelpnanna er ungur Egils-
staðapiltur, Hjálmar Jónsson.
Morgunblaðið/Ragnheiður
HEIÐAR Sölvason, lengst til vinstri sem, afhenti boltana fyrir hönd Vfldngs, þá 3.
og 4. flokkur í knattspyrnu og Hjálmar Jónsson þjálfari.
Morgunblaðið/Theodór
ÞÓRÐUR Sigurðsson, yfirlög-
regluþjónn í Borgarnesi, og
Guðlaugur Hjörleifsson, bygg-
ingastjóri járnblendifélagsins,
við nýja lögreglustöð á
Grundartanga.
Lögreglu-
stöð á
Grundar-
tanga
Borgarnesi - Lögreglan í Borgar-
nesi hefur komið sér upp aðstöðu á
Grundartanga vegna aukinna
verkefna við löggæslu og tollgæslu
á Grundartanga og í nágrenni.
Við opnun lögreglustöðvarinnar
sagði Þórður Sigurðsson, yfirlög-
regluþjónn í Borgarnesi, að lengi
hefði staðið til að lögreglan fengi
varanlega aðstöðu á Grundar-
tanga.
Vegna löggæsluverkefna og toll-
gæslu væri lögreglan daglega á
svæðinu og því væri þessi aðstaða
kærkomin. Þá hefði opnun Hval-
fjarðarganga einnig orðið til þess
að tímabært hefði þótt að koma
þessari aðstöðu upp. Sagði Þórður
að stöðin væri vel í sveit sett á
Grundartanga vegna tollgæslunn-
ar og einnig mætti geta þess að ör-
stutt væri þaðan að Hvalfjarðar-
göngum.
Guðlaugur Hjörleifsson, bygg-
ingarstjóri íslenska járnblendifé-
lagsins á Grundartanga, afhenti
lögreglunni í Borgarnesi lykla að
lögreglustöðunni með þeim orðum,
að hann væri mjög ánægður yfir
því að hafa átt þátt í því að Is-
lenska járnblendifélagið greiddi
götu lögggæslunnar við að koma
upp langþráðri aðstöðu á svæðinu
og stuðla þannig að betri þjónustu
við hlutaðeigendur í umdæminu.
í Grafarvogi
'tíSs Dagana 7. til 24. ágúst verður umferð beint frá hringtorgi á mótum
Gullinbrúar og Fjallkonuvegar. Er þetta gert vegna breytinga á hringtorginu í
gatnamót með umferðarljósum. Umferð í báðar áttir verður beint framhjá
torginu bæði með akreinum á milli þessara gatna og einnig yfir á Lokinhamra,
sbr. meðfylgjandi kort.
o
Til þess að greiða fyrir umferð verða sett upp færanleg umferðarljós.
Einnig mun lögreglan fylgjast með umferð og aðstoða eftir þörfum.
Þá verður reynt að sjá til þess að allir sorpbflar og steypubflar aki Víkurveg
þessa daga. Loks verður sérstakur gangbrautarvörður við Lokinhamra.
fbúar Grafarvogs og aðrir vegfarendur eru beðnir velvirðingar á þessu
raski, sem er þó nauðsynlegt til þess að gera úrbætur þessar sem bæta samgöngur
og auka öryggi í umferðinni. z
Rétt er að benda á að hægt er að nota aðkomu um Víkurveg. ,
Leið 15 ekur í Hamrahverfi á leið í miðborg öfugt við það sem nú er.
®Gatnamálastjóri
Borgarverkfræðingur
''A'V/M
Sm
VEGAGERÐIN
________