Morgunblaðið - 01.08.1998, Side 62
**62 LAUGARDAGUR 1. ÁGIJST 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og bróðir,
LEÓ EGGERTSSON,
Neshaga 15,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtudaginn
30. júlí.
Fríða Björg Loftsdóttir,
Stefanía Magnúsdóttir, Jón Sigurjónsson,
Jónína Leósdóttir, Árni Leósson,
Ásta Stefánsdóttir, Fjóla Eggertsdóttir
og barnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda
móðir, amma og langamma,
ÓLÖF HELGA GUNNARSDÓTTIR,
Vesturgötu 35b,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum hinn 25. júlí sl.
Útförin hefurfarið fram í kyrrþey að ósk hinna
látnu. Þeim, sem vildu minnast hennar, e
bent á Styrk, samtök krabbameinssjúklinga.
tnnilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og hlýhug.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 14G, Landspítalanum.
Ólafur Ottósson,
Jón Þóroddur Jónsson, Soffía Ákadóttir,
Ottó Björn Ólafsson, Þorbjörg Gígja,
Guðrún Ólafsdóttir, Sigurjón Eysteinsson,
Guðriður Helga Ólafsdóttir,
Guðlaug Ólöf Ólafsdóttir,
Kristín Lóa Ólafsdóttir, Jón Geir Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BENEDIKT JÓN GEIRSSON
pípulagningameistari,
Safamýri 21,
sem lést föstudaginn 24. júlí síðastlíðinn,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 5. ágúst kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjarta-
vernd og Krabbameinsfélagið.
Brynhildur Pálsdóttir,
Sigríður Benediktsdóttir,
Ragnhildur Benediktsdóttir,
Brynhildur Benediktsdóttir, Björgvin Friðriksson,
Yngvi Wellsandt.
+
Okkar hjartkæra,
THYRI ÍSEY MAGNÚSAR WARNER,
andaðist mánudaginn 6. júlí síðastliðinn á
Calvary Hospital, Bronx, NY, USA.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum sýnda samúð.
Scott F. Warner,
Lilja Bjarnadóttir,
Diana B. Magnúsdóttir Stahr,
Flemming Stahr.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför,
SIGURÐAR ARNALDS
fyrrv. útgefanda,
Kleppsvegi 4,
Reykjavík.
Ásdís Arnalds,
Jón L. Arnalds, Ellen Júlíusdóttir,
Ragnar Arnalds, Hallveig Thorlacius,
Sigurður St. Arnalds, Sigríður María Sigurðardóttir,
Andrés Arnalds, Guðrún Pálmadóttir,
Einar Arnalds, Sigrún Jóhannsdóttir,
Ólafur Arnalds, Ása L. Aradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
HELGISTEINAR
JÓHANNESSON
+ Helg-i Steinar Jóhannesson
fæddist í Vestmannaeyjum
5. mars 1995. Hann lést í Land-
spítalanum 22. júlí siðastliðinn
og fór útför hans fram frá Graf-
arvogskirkju 30. júlí.
Ó, Jesús bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á bamæskuna mína.
(P. Jónsson.)
Jarðvist hans Helga Steinars er
lokið. Það var ekki langur tíminn
sem hann fékk. En eins og alltaf er,
þegar börn fæðast mikið veik, á
hverjum degi háð einhvers konar
barátta við veikindin og oft háð bar-
átta fyrir lífinu og vitað að hver
dagur getur allt eins verið sá síð-
asti, þá hljóta þau að öðlast alveg
sérstakan sess í hjarta þeirra sem
standa þeim nærri. Þannig var það
einmitt með Helga Steinar. Hann
var búinn að berjast frá því hann
fæddist og hann var hetja. Það
hefðu fáir farið í sporin hans hvað
varðar hugprýði og jafnaðargeð og
maður á erfitt með að skilja hvernig
leggja má slíkar byrðar á herðar lít-
ils barns. Hann tókst á við þetta allt
saman með miklu æðruleysi og var
alltaf sami ljúflingurinn, sama á
hverju gekk. Það var reisn yfir
þessum dreng þótt hann væri lítill
og lasinn og hann snerti streng í
brjósti okkar. Því er ekki að neita
að vegna kynna okkar af honum
hefur vitundin dýpkað og lífssýnin
breyst. Nú hefur Guð tekið hann til
sín. Dauðinn er ekki slæmur þeim
sem deyja, heldur okkur sem eftir
lifum og söknum þeirra dánu. Nú
hugsar maður með angurværð til
Helga Steinars en grætur vegna
foreldra hans, bróður og ástvina
sem hafa misst augasteininn sinn.
Guð gefi þeim styrk til að takast á
við tómleikann og söknuðinn. Gleðj-
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGURSTEINN ÁRNASON,
Hringbraut 61,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 30. júlí.
Sigríður Ólafsdóttir,
Áslaug Sigursteinsdóttir,
Margrét Sigursteinsdóttir.
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRDÍS ÓLAFSDÓTTIR
Ijósmóðir,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 4. ágúst kl. 13.30.
Þeir, sem vilja minnast hennar, vinsamlega
láti líknarstofnanir njóta þess.
Bragi Sígurþórsson, Inga Björk Sveinsdóttir,
Sólrún Bragadóttir, Þórarinn Stefánsson,
Þórdís Bragadóttir, Þorbjörn Guðjónsson,
Friðrik Bragason, María Guðmundsdóttir,
Brynja Bragadóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við þeim, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ást-
kærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÞÓRUNNAR GUÐMUNDU
KRISTINSDÓTTUR,
Grandavegi 47,
Reykjavík.
Jónína U. Bjarnadóttir, Björgvin Jónsson,
Þórarinn Bjarnason,
Guðrún Bjarnadóttir, Gísli Ófeigsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐBJARGAR ÓLAFSDÓTTUR,
Skúlagötu 80,
Reykjavík.
Guðmundur Benediktsson, Arndís Leifsdóttir,
Ólafur Benediktsson, Þuríður Halldórsdóttir,
Kristín Benediktsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
umst yfir að hafa átt Helga Steinar.
Gleðjumst líka yfir því að nú er
þessi litli engill búinn að fá vængina
sína og þjáist ekki meir. Elsku litli
vinur, við þökkum þér samfylgdina
og biðjum algóðan Guð að geyma
þig. Þú hefur sett óafmáanleg spor í
sál okkar allra sem kynntumst þér.
Þegar erfiðleikar steðja að munum
við ávallt minnast hve hugprúður og
duglegur þú varst og hafa það að
leiðarljósi.
Með ást og þökk,
vinirnir í Heiðarbrún 52.
í dag verður borinn til grafar
okkar litli vinur Helgi Steinar Jó-
hannesson. Að kvöldi miðvikudags-
ins 22. júlí voru okkur hjónum færð-
ar þær sorgarfréttir að Helgi Stein-
ar væri látinn. Frá 6 mánaða aldri
var Helgi Steinar búinn að vera
veikur og átti marga erfiða daga og
nætur. Þó voru þeir fleiri góðu dag-
arnir í lífi hans. Ekki er hægt að
minnast þín, elsku Helgi, öðruvísi
en brosandi og hlæjandi og heldur
betur stutt í stríðnina og glottið sem
þú settir ekki svo sjaldan upp. Þrátt
fyrir veikindin varst þú duglegur
strákur og mamma þín var líka stolt
yfir því sem þú stundum gast gert.
Þú varst mikill mömmustrákur og
mjög háður henni, enda stóð hún við
hlið þér eins og klettur, sem og
hann Öddi sem gekk þér í fóðurstað
þegar þú varst 6 mánaða. Svo áttir
þú líka skemmtilegan og góðan fé-
laga sem var hann stóri bróðir þinn,
Hörður, sem iðinn var við að rétta
þér hjálparhönd og leika við þig. Nú
kveðjum við þig, elsku drengurinn,
en við munum geyma minningarnar
um þig í hjarta okkar sem eru svo
góðar, því þú gafst svo mikið með
þínum sterka persónuleika. Þeir
deyja ungir sem guðimir elska.
Hví var þessi beður búinn,
bamið kæra
þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt:
Pað er kveðjan:
„kom tii míni“
Kristur tók þig heim til sín.
Pú ert blessuð hans í höndum,
hólpin sál með
Ijóssins öndum.
(Björn Halldórsson.)
Elsku Svandís, Jói, Hörður og
Öddi. Við getum stundum verið svo
vanmáttug gegn alvaldinu. Megi
Guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar.
Ester Agnarsdóttir,
Guðni Guðnason.
GUÐMUND-
UR KRIST-
MANNSSON
+ Guðmundur Kristmannsson
fæddist á Stokkseyri 14.
desember 1930. Hann varð
bráðkvaddur í Portúgal hinn
16. júlí síðastliðinn og fór útfór
hans fram frá Selfosskirkju 30.
júlí.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesú, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti sjáðu,
blíði Jesú, að mér gáðu.
(Asmundur Ein.)
Guð geymi þig, elsku afi, kveðja
frá
Jóhönnu Ester og Elvari Birni.