Morgunblaðið - 07.02.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999 B 9
ÞÁ ER að þvo sér.
og á nú að verða vinnubíll, hinn nýi
eigandi er múrari. Hann verður að
láta sér lynda fremur blakkan
kaffibolla en ég fæ annan hvítan -
nýt þess að vera eina konan á
staðnum. Mér er þó veitt óbein
samkeppni því uppi á veggjunum
hanga tvö almanök sem prýdd eru
myndum af hálfnöktum konum. Eg
gef þeim homauga en horfi beint á
Kristsstyttu á krossi sem hangir
yfir kaffiborðinu. „Þið eruð mjög
kristilegir hér,“ segi ég og dreypi á
kaffinu. „Við fundum þennan kross
í dóti úr bíl, það er að vísu brotin
önnur höndin um úlnlið á styttunni,
en okkur fannst eigi að síður rétt
að hengja þetta upp,“ segir Snæ-
björn.
Nýr gestur kemur í gættina. Sá
segist vera garðyrkjumaður. Eg
spyr hvort hann selji mikið af
blómum í partasölur. „Nei, en ég
sel stundum hillur þangað,“ svarar
maðurinn. Talið snýst eigi að síður
stundarkorn um garðyrkju. Múr-
arinn segist hafa stundað ræktun í
sumarbústað og eitt sinn fengið
þangað mann með haugsugu til að
losa rotþró. „Ég spurði hann
hvernig væri að hafa sitt lífsviður-
væri af mannaskít en hann sagðist
bara hafa góðar tekjur og engum
kæmi við hvernig þær væru
fengnar." Garðyrkjumaðurinn
hlær og segir að móðir sín hafi
stundum sagt þegar spurt var um
vinnu hans á skólaárunum að
„hann hafi haft sig upp úr skítnum
á skítnum". Allir hlæja í kaffistof-
unni nema handarbrotna styttan á
krossinum og fáklæddu konurnar
á almanökunum. Ég manna mig
upp og spyr hvaðan í ósköpunum
þessi almanök komi eiginlega,
hvort þeir kaupi þau kannski sjálf-
ir? „Nei, þetta eru auglýsingar frá
fyrirtækjum sem við skiptum við,
þetta er t.d frá N.P. varahlutum
hf. og þetta er frá Mogganum -
nei, annars, það er frá Vélum og
skipum," segir Snæbjörn hrekkja-
legur í framan. „Þeir vita hvað
ykkur kemur,“ svara ég svolítið
þurrlega. „Þeir senda okkur að
minnsta kosti aldrei almanök með
berum karlmönnum," segir Björg-
vin og hlær. En nú er tími til kom-
inn að snúa sér að alvarlegri mál-
um. Við göngum fram í halarófu til
þess að horfa upp á vélina tekna
upp úr Subarunum og fullkomna
þar með það eyðileggingarstarf
sem framið hefur verið á þessum
ógæfusama bíl. En kannski er
ógæfa ekki rétta orðið heldur nyt-
semi. Þegar að er gáð er það
vissulega nytjastefna í verki að
hirða varahluti úr illa förnum bíl-
um og setja þá í aðra skárri svo
þeir geti ekið lengur um göturnar.
Mér er að minnsta kosti hlýtt til
bílapartaviðskipta þegar ég er
nokkru síðar sest upp í bílinn
minn og horfi á þurrkurnar ham-
ast á framrúðunni svo hratt að
varla er hægt að eygja þær. Snjó-
kornin eiga ekki lengur minnsta
sjens til þess að bráðna á rúðu-
glerinu og ég sé mæta vel allt sem
í kringum mig er - þökk sé þeim
Björgvini og Snæbirni hjá Litlu
partasölunni og vini þeirra.
Sameinaði lífeyrissjóðurinn
► Ársreikningur 1998
Helstu niðurstöður 1998 1997
Rekstrarreikningur í þúsundum króna í þúsundum króna
IðgjöLd 1.642.817 1.399.923
Lífeyrir -792.460 -720.519
Fjárfestingatekjur 2.095.866 2.108.260
FjárfestingagjöLd -34.016 -26.741
Rekstrarkostnaður -47.617 -36.555
Aðrar tekjur 25.618 23.920
Önnur gjöld 2.376 -17.527
Matsbreytingar 360.220 515.994
Hækkun á hreinni eign á árinu: 3.252.803 3.246.754
Hrein eign i upphafi árs: 27.576.586 24.329.832
Hrein eign i lok árs til greiðslu lífeyris: 30.829.390 27.576.586
Efnahagsreikningur 31.12.98
Fjárfestingar 30.531.785 27.407.588
Kröfur 106.630 87.119
Aðrar eignir 213.986 160.890
30.852.401 27.655.597
Viðskiptaskuldir -23.011 -79.011
Hrein eign til greiðslu lífeyris: 30.829.390 27.576.586
Lífeyrisskuldbinding tiL greiðsLu Lífeyris 32.622.000 30.145.000
Endurmetin eign til greiðslu lífeyris 34.508.000 31.986.000
Eign umfram skuldbindingu: 1.886.000 1.841.000
Ýmsar kennitölur:
Lífeyrisbyrði 48,2% 51,5%
Kostnaður i % af iðgjöldum 1,2% 2,2%
Kostnaður i % af eignum 0,1% 0,1%
Kostnaður á hvern virkan sjóðfélaga 2.720 3.455
Raunávöxtun miðað við vísitölu neysluverðs á ársgrundvelli 7,3% 8,4%
Hrein raunávöxtun miðað við vísitölu neysluverðs á ársgrundvelli 7,2% 8,2%
Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár 7,7% 7,6%
Meðaltat hreinnar nafnávöxtunar siðustu 5 ár 9,4% 10,0%
Fjöldi virkra sjóðféLaga 7.214 7.105
FjöLdi lífeyrisþega 2.708 2.513
StarfsmannafjöLdi 13 11
►
Valkostir
í lífeyrismálum
Eignir að fullu á móti
Árlega fer fram tryggingarfræðileg úttekt á
stöðu sjóðsins og hefur hann frá upphafi átt
að fullu eignir á móti skuldbindingum.
Sameinaði lífeyrissjóðurinn er einn stærsti
lífeyrissjóður landsins. Rekstur hans er óháður
verðbréfafyrirtækjum og leitast er við að ávaxta
sjóðinn sem best að teknu tilliti til áhættu.
Sameinaði lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum sínum
upp á ákveðna valkosti í lifeyrismálum. Með viðbótar-
framlagi hefur sjóðfélaginn val um það hvort hann
vill auka sérsparnað sinn í séreignardeild eða auka
tryggingarlega vernd sína í valdeild sjóðsins þ.e.a.s.
styrkja sérstaklega rétt sinn til ævilangs ellilífeyris,
ævilangs elli- og örorkulífeyris, eða fjölskyldulífeyris.
Lífeyrissjóður
FéLagar í lífeyrissjóði sem byggir á samtrygg-
ingu tryggja hverjir aóra eftir ákveðnum reglum
og eru þvi í reynd félagar i tryggingafélagi.
Ellilifeyrir er greiddur æviLangt. EftirLifandi
maka og börnum er tryggður fjölskyLdulífeyrir
vió fráfalL sjóðféLaga. Samtrygging sjóðfélaga
tryggir þeim örorkuLífeyrir sem veróa fyrir
langvinnum veikindum eða alvarLegu slysi.
ALLir féLagsmenn aðildarféLaganna eiga rétt
á aðild að sjóðnum óháð aldri, heilsufari eða
kynferði. GreiðsLur úr samtryggingarsjóði
mióast við það iðgjaLd sem sjóðfélagi greiðir.
Samtrygging í lífeyrissjóði er nauðsyn öLLum.
Hikið ekki við að hafa samband við skrifstofu
sjóðsins og fá frekari upplýsingar um starfsemi
hans.
einumstað
traustum
einaði
eyrissjóðurinn
Suðurlandsbraut 30 • 108 Reykjavík • Sími: 510 5000
Fax: 510 5010 • Grænt númer: 800 6865
Heimasíða: http://www.Lifeyrir.rl.is
Netfang: mottaka@lifeyrir.rl.is
Stjórn Sameinaða lifeyrissjóðsins:
3. febrúar 1999
Benedikt Davíðsson,
Guðmundur HiLmarsson,
HaLlgrímur Gunnarsson,
Ólafur H. Steingrimsson,
Steindór Hálfdánarson,
Örn Kjærnested,
Jóhannes Siggeirsson framkvæmdastjóri.