Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Ráðstefna um nýtt eyfirskt efnahagssvæði og stóriðju Formlegri undirbúningsvinnu vegna stóriðju á Dysnesi lokið Morgunblaðið/Kristján KARI Stefánsson, Jón Sigurðsson og Finnur Ingólfsson voru á meðal frummælenda á ráðstefnu um nýtt eyfirskt efnahagsafl sem haldin var í gær. Kirkjustarf AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskóli í Safnaðar- heimilinu kl. 11 á morgun, öll böm velkomin. Guðsþjónusta kl. 14 sama dag, sr. Birgir Snæbjörnsson messar. Fund- ur í Æskulýðsfélaginu kl. 17. Biblíulestur í Safnaðarheimili kl. 20.30 á mánudagskvöld í umsjá sr. Guðmundar Guð- mundssonar. Mömmumorg- unn fellur niður á miðviku- dag, öskudag. Fyrsta fóstu- messa vetrarins verður á mið- vikudagskvöld, 17. febrúar kl. 20.30. Sungið verður úr Pass- íusálmunum, iesið úr Píslar- sögunni og flutt litania. Sr. Birgir Snæbjömsson messar. Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12 í hádeginu á fimmtu- dag. GLERÁRKIRKJA: Barna- samvera kl. 11 á morgun, sunnudag, sameiginlegt upp- haf, foreldrar hvattir til að koma með bömum sínum. Böm sem verða fimm ára á árinu og foreldrar þeirra era sérstaklega hvött til að mæta en á þessum degi fá þau lítinn glaðning frá kirkjunni. Fund- ur æskulýðsfélagsins verður kl. 20 um kvöldið. Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl. 18.10 á þriðjudag. Hádegissamvera frá kl. 12 til 13 á miðvikudag. Fjölskyldumorgunn kl. 10 til 12 á fimmtudag, heitt á könn- unni og safi fyrir börnin. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli á morgun kl. 11, almenn samkoma í umsjá unga fólksins kl. 17. Heimila- samband kl. 15 á mánudag. Krakkaklúbbur fellur niður á öskudag, 11 plús mínus, fyrir 10 til 12 ára, verður á fóstu- dag kl. 17. Flóamarkaður á fóstudögum frá 10 til 17. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bænastund verður kl. 20 í kvöld, verkleg þjálfun kl. 21 og opið hús fyrir unglinga frá kl. 22. Sunnudagaskóli fjöl- skyldunnar á morgun kl. 11.30, biblíukennsla fyrir alla aldurshópa, Reynir Valdi- marsson kennir um verk Heilags anda. Léttur hádegis- verður á vægu verði kl. 12.30. Vakningarsamkoma sama dag kl. 16.30, Valdimar Láras Júlíusson predikar. Fjöl- breyttur söngur, bamapössun fyrir böm yngri en sex ára. Vonarlínan, sími 462-1210, símsvari með uppörvunarorð- um úr ritningunni. SJÓNARFLÆÐ: Sunnudaga- skóli kl. 13.30 á morgun, sunnudag í Lundarskóla. Al- menn samkoma á Sjónarhæð, Hafnarstræti 63 kl. 17. Allir velkomnir. Fundur fyrir 6-12 ára böm kl. 18 á mánudag á Sjónarhæð. Öll böm velkomin. Fundur um kvenna- athvarf SAMTÖK um kvennaathvarf verða með fræðslu- og kynningarfund á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri næstkomandi mánudagskvöld, 22. febrúar kl. 20.30. Fundurinn er liður í viðamiklu fræðslu- og kynningarátaki sem samtökin standa fyrir um þessar mundir. Markmið átaksins er að ná til fólks á öllu landinu, kynna kvennaathvarfið og starfsemi þess og efla fræðslu og umræðu um of- beldi innan fjölskyldna og auka skilning á eðli þess og afleiðing- um. Tveir fulltrúar samtakanna verða með framsögu á fundinum en einnig er gert ráð fyrir umræð- um. FINNUR Ingólfsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir að verið sé að vinna að því að hægt verði að byggja upp stóriðju í Eyjafirði en það sé fyrst nú sem allri formlegri undirbúningsvinnu sé lokið. Þetta kom fram í erindi iðnaðarráðherra á ráðstefnunni Nýtt eyfirskt efna- hagssvæði - Stóriðja: Framtíð eða tálsýn? sem Félag viðskipta- og hagfræðinga og Norðurlandsdeild Verkfræðingafélags íslands hélt á Fiðlaranum í gær. Verkefnisstjórn sem að málinu hefur unnið hefur lagt áherslu á að samstaða náist um að horíá til Dys- ness í Arnarneshreppi sem fram- tíðarsvæðis undir stjóriðju og verði kapp lagt á að ljúka nauðsynlegum rannsóknum þar. Fyrir áramót hafi umhverfisráðherra samþykkt aðalskipulag íyrir Amai’neshrepp, en í því er gert ráð fyrir 120 hekt- ara lóð fyrir orkufrekan iðnað á Dysnesi og að þar verði höfn fyrir allt að 60 þúsund tonna flutninga- skip. „Það er fyrst núna sem allt er klárt, menn hafa náð samstöðu um að uppbygging skuli eiga sér stað á þessu svæði. Það er gert ráð fyrir því að þarna geti risið allt að 180 þúsund tonna álver eða sambæri- legt fyrirtæki," sagði Finnur. Forsendur fyrir öflugum þekkingariðnaði Kári Stefánsson, forstjóri ís- lenskrar erfðagreiningar, sagði vandamál landsbyggðarinnar þeg- ar að því kæmi að byggja upp iðnað það að laða að fólk og sannfæra um kosti þess að búa á tilteknum stað. „Þetta er allt spuming um að laða fólkið að og búa þannig um hnút- ana að það vilji vera,“ sagði Kári. Nefndi Kári að á síðasta aldar- fjórðungi hefði mikil þekking orðið til úti í t.d. iðnfyrirtækjum, hún hefði að nokkra leyti flust úr há- skólunum og yfir til fyrirtækjanna. Taldi hann litlar líkur á að Háskóli Islands færi í samvinnu við iðnað- SAMNINGUR milli Kaupþings Norðurlands hf. og Kaupþings ann- ars vegar og Akureyrarbæjar hins vegar um að verðbréfafyrirtækin tvö annist 700 milljóna króna skulda- bréfaútboð fyrir bæinn var undirrit- aður í gær. Bærinn óskaði eftir til- boðum frá fjármálastofnunum og reyndist tilboð Kaupþings Norðm- lands og Kaupþings hagstæðast þeirra fimm tilboða sem bárust. Samkvæmt samningunum sjá verð- bréfafyrirtækin um að sölutryggja 10 ára eingreiðslubréf með árlegum arsamfélagið á þessu sviði en það skapaði möguleika annars staðar. Háskólinn á Akureyri hefði þannig tekið frumkvæði í því að tengja sig atvinnufyrirtækjum. „Ég held því fram að vel sé hægt að byggja upp öflugan þekkingariðnað á Akureyri og tel reyndar allar forsendur íyrir því. Spurningin snýst um að laða að sér besta fólkið og halda því á staðnum," sagði Kári og benti m.a. á að möguleiki væri fyrir fyrirtæki sitt að flytja hluta af starfsemi sinni norður. Fyrirtækið þyrfti á fleira starfsfólki að halda, ekki skipti öllu máli hvar í heiminum sum verkefnanna væra innt af hendi, t.d. við úrvinnslu gagna og þá benti hann á að að sumu leyti væri vinnumarkaðurinn betri á Akureyri en Reykjavík. Eyfirðingar snúi sér að öðru en álveri Jón Sigurðsson, fyrrverandi for- stjóri Járnblendiverksmiðjunnar, taldi ekki eftirsóknarvert íyrir svæðið að sækjast eftir stóriðju- gjalddögum. Skuldabréfin eru skráð á Verðbréfaþingi íslands og er stefnt á að taka upp viðskiptavakt eftir þá skráningu. Vaxtakjörin miðast við u.þ.b. 40 punkta álag á eingreiðslu- bréf ríkissjóðs. Þetta eru með bestu kjörum sem íslensku sveitarfélagi hafa boðist til þessa að sögn Þorvald- ar Lúðvíks Siguijónssonar, fram- kvæmdastjóra Kaupþings Norður- lands. Kjörin sagði hann endurspegla góða fjárhagsstöðu Akureyrarbæjar og það trausts sem hann nýtur, skuldir á bæjai'búa séu litlar og hafi verksmiðju. Ekki væri vert að eyða púðri í að reyna að fá slíka verk- smiðju og ráðlagði hann Eyfirðing- um að snúa sér að einhverju öðra. Nefndi hann m.a. að þeir sem hygðust reisa sh'ka verksmiðju myndu setja fyrir sig að gera mætti ráð fyrir landfóstum hafís á 30 til 40 ára fresti. Enginn myndi festa peninga í álveri við Eyjafjörð nema taka mið af því. Þessi ummæli Jóns vöktu hörð viðbrögð, þannig nefndi Guðmund- ur Omar Guðmundsson, formaður Félags byggingamanna, að víða á landinu væra ýmsar hættur fyrir hendi og Tómas Ingi Olrich alþing- ismaður sagði allt tal um hafís „bölvað bull“. Sljómvöld hafa ekki haldið vöku sinni Þórarinn E. Sveinsson, aðstoðar- kaupfélagsstjóri KEA, sagði að þó fyrirtækið væri stór framleiðandi matvæla óttaðist hann ekki að þetta tvennt, matvælaframleiðsla og stóriðja gætu farið saman í farið minnkandi auk þess sem rekst- ur veitna bæjarins hafi gengið með ágætum. Lántakan er í samræmi við áætl- anir að sögn Dans Brynjarssonar, fjármálastjóra Akureyrarbæjar. Fjármunirnir verða að einhverju leyti notaðir til að fjármagna fram- kvæmdir þessa árs og til að greiða upp eldri lán, en einnig verður fénu varið til að mæta fjárþörf síðasta árs, þá hafi einungis lítill hluti þess fjár sem gert var ráð fyrir að taka að láni tekinn. Eyjafirði. Hvatti Þórarinn til þess að sem allra fyrst yrði farið að búa í haginn íyrir einhvers konar stór- iðju, við það yrði styrkari stoðum skotið undir eyfirskt atvinnulíf og matvælaframleiðsla KEA myndi við það aukast. Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, dró upp mynd af því landbroti sem á sér stað með atgerfisflótta á höfuð- borgarsvæðið og sagði það sitt mat að stjórnvöld hefðu á engan hátt haldið vöku sinni en þannig hefðu mál farið til verri vegar. Hagvöxt- ur og stöðugt efnahagslíf tryggi ekki búsetu í landinu öllu þó það sé þjóðinni mikilvægt. „Stjórnvöld sem hafa náð tökum á efnahagslífi þjóðar eiga einnig að hafa metnað til að ná árangri í bættum búsetu- skilyrðum sem tryggi samstöðu um að hér búi ein þjóð í landinu öllu. Með samstöðu Eyfirðinga og sam- vinnu við stjómvöld ætti að vera hægt að gera svæðið jafn fýsilegan búsetukost og höfuðborgarsvæðið virðist vera nú. Eyfirskt efnahagsafl byggt á mannauði Guðmundur Sigvaldason, um- hverfisfræðingur hjá Sorpsamlagi Eyjafjarðar, gerði á fundinum grein fyrir nýju starfi þar sem unnið verður að umhverfismálum. Hann ræddi einnig um stöðu ferðaiðnaðar á svæðinu með tilliti til stóriðjuhugmynda, en sagði ómögulegt að segja fyrir um nú hvort stór verksmiðja á Dysnesi gæti ógnað þeim sóknarfærum sem fyrir hendi væru í ferðaþjón- ustu fyrr en ljóst væri hvaða fram- leiðsla yrði þar. Ráðlagði hann mönnum þó að fara hægt í að reisa málmbræðslu á svæðinu. „Byggj- um nýtt eyfirskt efnahagsafl á þeim auðlindum sem við höfum í umhverfinu, sem nýtt er á sjálf- bæran hátt, mannauðnum," sagði Guðmundur. Skauta- og fjölskyldu- dagur SKAUTAFÉ L AG Akureyrar stendur fyrir skauta- og fjöl- skyldudegi á skautasvellinu í dag, laugardag. Skautasvellið verður opið al- menningi frá kl. 13-16 en í kjöl- farið hefst keppni íshokkí, þar sem hinir ýmsu aldursflokkar munu reyna með sér. Einnig verður boðið upp á listhlaup og farið í leiki. Upphaflega átti að halda skauta- og fjölskyldudag um síðustu mánaðamót en hon- um varð að fresta vegna óhag- stæðra veðurskilyrða. Maraþon- skíði KRAKKAR á aldrinum 9 til 12 ára í skíðadeild Leifturs í Olafsfirði ætla að vera á skíð- um í frá kl. 15 í dag, laugardag, og er stefnan sett á að vera að til kl. 2 aðfaranótt sunnudags á skíðasvæðinu í Tindaöxl. Rúm- lega 20 ki-akkar taka þátt í þessu maraþoni og gera þau ýmislegt annað sér til skemmt- unar í leiðinni og þá verður einnig ýmislegt í boði fyrir þau og aðra sem heimsækja skíða- skálann þann tíma sem mara- þonið stendur yfir. Morgunblaðið/Kristján Kaupþing Norðurlands og Kaupþing Annast 700 milljóna skulda- bréfaútboð fyrir bæinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.