Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 66
66 LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Jón Viktor Gunnars- son Skákmeistari Reykjavíkur 1999 SKAK TR Faxafeni 12 SKÁKÞING REYKJAVÍKUR 1999 17. jan.-lO. feb. ÞEIR Jón Viktor Gunnarsson og Sigurbjörn Bjömsson urðu jafnir og efstir á Skákþingi Reykjavíkur 1999 sera lauk á mið- vikudaginn. Þeir fengu báðir 10 vinninga af 11 sem er afar hátt vinningshlutfall. Þeir urðu tveim- ur vinningum á undan næstu mönnum, þeim Tómasi Björns- syni og Braga Þorfinnssyni, sem fengu átta vinninga. Þar sem Sig- urbjörn er ekki Reykvíkingur er Jón Viktor Gunnarsson Skák- meistari Reykjavíkur 1999, en hann vann einnig titilinn í fyrra. Hann fór taplaus í gegnum mótið og gerði einungis tvö jafntefli, við þá Braga Þorfinnsson og Hrafn Loftsson. Sigurbjörn Björnsson vann hins vegar 10 skákir og tap- aði einungis einni, gegn Jóni Viktori. Sigur Jóns Viktors kem- ur ekki á óvart, en hann var lang- stigahæsti skákmaður mótsins. Árangur Sigurbjörns er líklega hans besti á skákferlinum. Helstu úrslit í síðustu umferð urðu þessi: Helgi E. Jónatanss. - Jón V. Gunnarsson 0-1 Sigurbjörn Bjömss. - Páll A. Þórarinss. 1-0 Róbert Harðarson - Bragi Þorfmnsson Þé-Vé Hrafn Loftsson - Tómas Bjömsson 0-1 Davíð Kjartanss. - Bergsteinn Einarss. 1-0 Dan Hansson - Jón Ami Halldórsson 1-0 Torii Leósson - Amar E. Gunnarsson 0-1 Kristján Eðvarðss. - Þorvarður F. Ólafss. 0-1 Jóhann . Ragnarsson - Stefán Kristjánss. 0-1 Einar K. Einarss. - Sig. P. Steindórss. 0-1 o.s.frv. Lokastaðan á mótinu var þessi: 1.-2. Jón Viktor Gunnarsson 10 v. Sigurbjöm Bjömsson 10 v. 3.-4. Tómas Bjömsson 8 v. Bragi Þorfinnsson 8 v. 5.-9. Þorvarður F. Ólafsson Th v. Róbert Harðarson 714 v. Amar E. Gunnarsson 714 v. Dan Hansson7'4v. Davíð Kjartansson TA v. 10.-14. Páll Agnar Þórarinsson 7 v. Hrafn Loftsson 7 v. Sigurður P. Steindórsson 7 v. Stefán Kristjánsson 7 v. Helgi E. Jónatansson 7 v. 15.-24. Sigurður Daði Sigfússon, Amgnmur Gunnhallsson, Bergsteinn Einarsson, Agúst Ingimundarson, Rúnar Berg, Stefán Þór Siguijónsson, Bjami Magnússon, Torfi Le- ósson, Jón Arni Halldórsson, Jónas Jónasson 614 v. 25.-32. Kristján Eðvarðsson, Guðjón H. Val- garðsson, Jóhann H. Ragnarsson, Arni H. Kristjánsson, Jóhann Ingvason, Einar K. Einarsson, Guðni S. Pétursson, Ólafúr I. Hannesson G v. 33.-42. Eiríkur Garðar Einarsson, SigiB'ður Ingason, Hjalti Rúnar Ómarsson, Ólafur Kjartansson, Sveinn Þór Wilhelmsson, Emil Petersen, Kjartan Másson, Helgi Egilsson, Elí B. Frímannsson, Harpa Ingólfsdóttir 5!4 v. 43.-51. Láms H. Bjamason, Guðmundur Kjartansson, Kjartan Guðmundsson, Stefán Ingi Aðalbjömsson, Hilmar Þorsteinsson, Erlendur Markússon, Dagur Arngrímsson, Andrés Kolbeinsson, Hjörtur Jóhannsson 5 v. o.s.frv. Margir af yngri skákmönnun- um náðu mjög athyglisverðum ár- angri. Sérstaklega má nefna Helga Egilsson sem er 12 ára. Hann er með 1.440 stig, en fékk 50% vinningshlutfall gegn and- stæðingum með 1.821 stig að meðaltali. Eins og venja er til verður Hraðskákmót Reykjavíkur haldið í framhaldi af Skákþinginu. Það fer fram sunnudaginn 14. febrúar kl. 14. Tefldar verða 2x9 umferðir eftir Monrad-kerfí með 5 mín- útna umhugsunartíma. Fyrstu verðlaun eru kr. 8.000, önnur Jón Yiktor Sigurbjörn Gunnarsson Björnsson verðlaun kr. 5.000 og þriðju verð- laun kr. 3.000. Þátttökugjald fyrir 16 ára og eldri er kr. 600, en kr. 400 fyrir 15 ára og yngri. Að loknu hraðskákmótinu fer fram verðlaunaafheriding fyrir Skák- þing Reykjavíkur, aðalkeppnina, unglingaflokk og hraðskákmót. Teflt verður í félagsheimili TR í Faxafeni 12. Allir velkomnir. Róbert Harðarson sigrar á atkvöldi Róbert Harðarson sigraði á sterku og fjölmennu atkvöldi Taflfélagsins Hellis mánudaginn 8. febrúar. Hann fékk 5!4 vinning eins og Þorvarður F. Olafsson. Báðir sigruðu þeir alla andstæð- inga sína, en gerðu jafntefli inn- byrðis. Það þurfti því stigaút- reikning til að skera úr um sigur- vegarann. Þá kom í ljós að Ró- bert var hálfu stigi fyrir ofan Þor- varð og var því úrskurðaður sig- urvegari á mótinu. Úrslit urðu annars sem hér segir: 1. Róbert Harðareon 5!4 v. 2. Þorvarður F. Ólafsson 5!4 v. 3. Kjartan Guðmundsson 4!4 v. 4. -9. Stefán Kristjánsson, Harpa Ingólfs- dóttir, Jóhann H. Ragnarsson, Davíð Kjart- ansson, Benedikt Egilsson, Kristján Öm Elí- asson 4 v. 10.-18. Halldór Grétar Einarsson, Heimir Einarsson, Vigfús Ó. Vigfússon, Þröstur Þrá- insson, Magnús Sigurðsson, Eiríkur Garðar Einarsson, Finnur Kr. Finnsson, Máni Atla- son, Jón Orri Kristjánsson 3 v. o.s.frv. Keppendur voru 27, en þess má geta að þátttaka á tveimur fyrstu atkvöldum þessa árs hefur meira en tvöfaldast miðað við sömu mánuði í fyrra. Skákstjóri var Vigfús Oðinn Vigfússon. Verðlaun á mótinu voru í boði Pizzahússins. Næsta atkvöld Hellis verður haldið mánudaginn 22. mars kl. 2°. Skákþing Islands, barnaflokk- ur Barnaflokkur á Skákþingi ís- lands 1999 verður haldinn dagana 13. og 14. febrúar. Mótið verður haldið í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12, og hefst klukkan 13 laugardaginn 13. febrúar. Þátttökurétt eiga böm 11 ára og yngri (þ.e. fædd 1988 og síðar). Þátttökugjald er kr. 500. Inn- ritun fer fram á skákstað laugar- daginn 13. febrúar klukkan 12:30-12:55. Bikarkeppni skákmanna hefst á mánudag Meistaramót Hellis 1999 hefst mánudaginn 15. febrúar klukkan 19.30. Mótið verður 7 umferða op- ið kappskákmót. Þetta er í átt- unda sinn sem mótið fer fram, en núverandi skákmeistari Hellis er Björn Þorfmnsson. Mótið er að þessu sinni hluti af Bikarkeppninni í skák sem er nýjung sem Taflfélag Garðabæj- ar, Taflfélag Kópavogs, Taflfélag Reykjavíkur, Taflfélagið Hellir og Skákfélag Hafnarfjarðar standa nú að í fyrsta skipti. Heildarverðlaun I Bikarkeppninni í skák eru kr. 150.000. Nánar verður greint frá Meistaramóti Hellis og Bikarkeppninni í næsta skákþætti. Daði Örn Jónsson Margeir Pétursson VELVAKAM)! Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Sumarfrí fyrir atvinnulausa ÉG HEF lengi undrast það að atvinnulausir skuli ekki hafa þau sjálfsögðu mannréttindi að geta tek- ið sumarfrí á fullum laun- um eins og aðrir þegnar þjóðfélagsins, heldur er farið með okkur eins og fanga á skilorði. Atvinnuleysingjar geta ekki nýtt sér hagstæðar sólarlandaferðir eða farið um hálendi Islands nema vera innan við viku, vegna þess að þeir verða að stimpla sig á viku fresti annars missa þeir at- vinnuleysisbæturnar og önnur réttindi sem þeir hafa og ef þeir fara út á land verða þeir fyrst að biðja um leyfi til að stimpla sig annars staðar. Það er alltof lítið gert að því að skapa ný störf fyrir atvinnulausa, þar gætu íslensk stjórnvöld tekið sér nágrannaþjóð- irnar sér til fyrirmyndar því þær eru sjóaðri í þess- um málum. Og þar eru rýmri reglur varðandi stimplun. Mikið af þessu atvinnu- leysi í dag er til komið af því að alls konar fræðing- ar hafa ráðlagt fyrirtækj- um, að til að þau geti bor- ið sig betur sé besta ráðið að einkavæða þau og segja svo og svo mörgu fólki upp og er það þá oft- ast fólk sem er komið yfir miðjan aldur sem litla möguleika á að fá vinnu aftur. Ef þessir fræðingar eru svona miklir snilling- ar geta þeir þá ekki líka fundið upp ný störf handa þessu fólki sem sett er út á kaldan klaka? Það er heldur ekkert spaug fyrir ungt fólk með börn að verða atvinr.u- laust og geta ekki skaffað sínum börnum sömu kjör og jafnaldrar þeirra fá, svona almennt séð. Nú frá 1. jan. sl. eiga atvinnulausir í Kópavogi, Garðabæ, Bessastaða- hreppi, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og Kjós að stimpla sig í Reykjavík. Þetta lengir ferðalag okk- ar til stimplunar í viku hverri og aukaútgjöld varðandi ferðir, en von- andi verður þetta eitthvað skáiTa en það hefur verið hingað til, a.m.k. sé ég að þarna getur maður sest niður, skoðað blöð, ath. atvinnuauglýsingar í ró og næði og hitt aðra sem eins er ástatt fyrir. I þessu landi eru marg- ir ofborgaðir, svo að mér blöskrar því öll borgum við svipað fyrir lífsnauð- synjar og ekki skil ég í því af hverju sumt fólk þarf að hafa sama kaup á mán- uði og við atvinnuleysingj- ar á ári. Ólöf P. Hraunfjörð, Kópavogi. Tapað/fundið GSM-sími týndist SVARTUR Nokia gsm- sími týndist í eða við Hús verslunarinnar mánudag- inn 8. febrúai-. Finnandi vinsamlega hringið í síma 565 2486 eða skilið síman- um í næstu verslun Landssímans. Gullhringur týndist GULLHRINGUR með þremur litlum demöntum týndist á leiðinni í Nóatún Rofabæ, Grundarhús 17 í Grafarvogi, Svanna í Stangarhyl, hjá Hrafn- hildi við Engjateig og Skalla við Vesturlands- veg. Þeir sem hafa orðið hringsins varir hafi sam- band í síma 567 2791. Gleraugu týndust GLERAUGU í gyllri um- gjörð og í brúnu skinn- hulstri týndust í síðustu viku. Skilvís finnandi hafi samband í síma 587 3471. Gullhringur týndist GULLHRINGUR með demöntum og safir týnd- ist í vesturbæ. Finnandi vinsamlega hafi samband í síma 551 7196. Fundar- laun. Dýrahald Köttur týndist frá Bollagötu KÖTTUR týndist frá Bollagötu 4 2. febrúar. Hann er bröndóttur og blindur á öðru auga. Hann er 2ja ára fress. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í síma 552 3564. Kettlingar fást gefins KETTLINGAR, kassa- vanir, fást gefins. Upplýs- ingar í síma 551 8621. Högni í óskilum í Seilugranda GRÁBRÖNDÓTTUR högni, 6-8 mánaða gamall, með hvitar hosur á fram- löppum og hvíta sokka á afturlöppum er í óskilum á Seilugranda 2. Þeir sem kannast við kisa hafi sam- band í síma 552 0138. SKAK llmsjón Margeir Pétursson Staðan kom upp á opnu móti í Nova Gorica í Slóveníu um mán- aðamótin. Srdjan Sale (2.415) hafði hvítt en Alexander Beljav- skí (2.650), Slóveníu, hafði svart og átti leik. 43. - Re4! og hvítur gafst upp, því 44. Bxe4 - Dxf2+ 45. Khl - Hxh3 er mát. Svartur mátti hins vegar ekki leika 43. - exd5?? því eftir 44. Bxd5 tapar hann drottningunni, eða verður sjálf- ur mát. Beljavskí er Úkraínumaður að uppruna og tefldi margoft í sovéska ólympíuliðinu á sínum tíma. Eins og margir skák- meistarar frá fyrrverandi Sov- étríkjum notaði hann tækifærið og settist að utan þeirra. Úrslit á mótinu í Nova Gorica urðu: 1. Kozul, Króatíu, 7 v. af 9 mögulegum, 2.-8. Beljavskí, Mi- les, Englandi, Pavasovic og Mikhailchisin, Slóveníu, Timoschenko, Slóvakíu, og Atalik, Tyrklandi, 6*4 v. SVARTUR leikur og vinnur Víkverji skrifar... BEINAR útsendingar frá íþróttaviðburðum eru réttnefnt úrvalsefni í sjónvarpi og hefur hlut- ur þess vaxið óðfluga á Islandi á síð- ustu árum. Mest munar þar um til- komu Stöðvar 2 og þó einkum sjón- varpsstöðvarinnar Sýnar en báðar sinna íþróttum af umtalsverðri elju og samviskusemi. Knattspyrnuáhugamenn þeir sem eru áskrifendur að stöðvum þessum tveimur fá nú jafnan vænan skammt í viku hverri. íþróttafrétta- menn sem sjá um lýsingar búa sig yfirleitt vel undir kappleiki og greinilegt er að flestir þeirra hafa bæði metnað og vilja til að veita áskrifendum góða þjónustu. Yfir allan vafa er hafið að þetta er erfítt starf og auðvelt er að gagn- rýna þá sem tala beint og milliliða- laust til alþjóðar í 90 mínútur í senn og stundum lengur. Eðlilegt má heita að menn geri einhver mistök við slíkar aðstæður og með öllu er fráleitt að þess sé krafist að viðkom- andi beiti formlegu íslensku tungu- taki. Hins vegar hefur borið mjög á því síðustu misserin að þeir ágætu menn sem þessum störfúm sinna á Stöð 2 og Sýn beiti enskri hugsun er þefr lýsa kappleikjum. I þessu er raunveruleg hætta fólgin, þ.e. að ís- lensk hugsun víki fyrir erlendri í málnotkun fjölmiðlamanna. Þessi þróun er tekin að setja nokkuð mark sitt á íslenska fjöl- miðla, dagblöð jafnt sem sjónvarp. Undarlegt má það heita að fræðing- ar og aðrir áhugamenn um máUð skuli ekki vara við henni af meiri krafti en raun ber vitni. I síðustu heimsmeistarakeppni í knattspyrnu, sem raunar var sýnd í Ríkissjónvarpinu, bar mjög á þessu og voru þar einkum að verki menn, sérfræðingar, sem fengnir höfðu verið til að tjá sig um leikina. „Víta- teigur“ var þá oftar en ekki nefndur „box“, sendingar hétu „krossar" og menn „tóku varnarmenn á“ („take on a defender") er þeir freistuðu þess að leika á þá eða komast fram- hjá þeim. Þessi dæmi heyrast enn á Sýn og Stöð 2 þótt blessunarlega hafi dreg- ið mjög úr notkun þeirra. En dæm- in eru því miður fleiri. Þannig er al- gengt að fréttamenn stöðvanna tali um að dómarinn „gefi“ aukaspymu. Þetta er vitanlega alrangt. „Gefi“ dómarinn aukaspymu eða víta- spyrnu verða honum á mistök í dómgæslu, sem vitanlega verða þá til þess að annað liðið hagnast á þeim. Hér er um beina enska mál- notkun að dæma. ,A- penalty is given“ eða „a free-kick is given“ segja enskumælandi menn gjarnan þegar dómarinn dæmir víti eða aukaspyrnu. Orðið „vinna“ („work“ á ensku) hefur einnig rutt sér til rúms í kappleikjalýsingum á stöðvum þess- um. „Frábær varnamnna hjá X“ („Good defensive work by X“) heyr- ist nú iðulega. Þetta er ekki eðlileg íslenska. Rétt er í þessu viðfangi að tala einfaldlega um „góða vörn hjá X“ eða „góðan varnarleik hjá X“. Enskumælandi íþróttafrétta- menn em ágæt fyrirmynd, þefr lýsa t.d. kappleikjum án umtalsverðra hrópa og búkhljóða. Óþarfi er þó að beita sama tungumáli og þeir gera því íslenskan dugar ágætlega. X X X X VÍKVERJI undrast þau miklu viðbrögð sem nýjasta skoðana- könnun DV um fylgi flokkanna hef- ur vakið. Af 600 manna úrtaki kusu tæp 40% að svara ekki eða kváðust vera óákveðin. Víkverji gerir sér ljóst að það mega kallast stórtíðindi í íslenskum stjórnmálum komi fram á sjónar- sviðið flokkur sem nýtur álíka mik- ils fylgis og Sjálfstæðisflokkurinn. Hann fær hins vegar ekki séð að unnt sé að draga þá ályktun af könnun þessari. Er ekki líklegra að „lausafylgið“ svonefnda sé komið á skrið nú nokkmm mánuðum fyrir kosning- ar?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.