Morgunblaðið - 07.05.1999, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Talsmenn NATO gefa nákvæmar lýsingar á árangri loftárásanna
Clinton heitir flóttafólki að
það geti snúið heim í öryggi
Stjórnvöld í Makedóníu segjast
ætla að opna landamærin á ný
Blace, Frankfurt, Skopje, Belgrad, Brussel. Reuters, AP, The Daily Telegraph.
Reuters
BILL Clinton Bandaríkjaforseti hlustar á raunasögu aldraðs Kosovo-
Albana sem flúið hefur til Þýskalands frá Kosovo.
í GÆR gáfu talsmenn Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) í fyrsta
skipti nokkuð nákvæmt yfirlit yfir
loftárásirnar á Júgóslavíu, sem
staðið hafa stanslaust yfir í 44 daga.
Sögðu þeir árangur þeirra hafa ver-
ið góðan sl. tvær til þrjár vikur og
að þeim myndi ekki linna fyrr en
Slobodan Milosevic, forseti Jú-
gósalvíu, hefur gengið að skilyrðum
bandalagsins.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, heimsótti Kosovo-AIbana í
Þýskalandi í gær og hét þeim því að
þeir myndu komast heilu og höldnu
til síns heima. Makedónísk yfirvöld
hafa samþykkt að hleypa takmörk-
uðum fjölda flóttamanna inn í land-
ið, en á miðvikudag var landamær-
unum lokað er allt að þrjú þúsund
flóttamenn vildu komast yfir þau.
Walter Jertz, talsmaður herafla
NATO, skýi-ði frá því á blaða-
mannafundi í gær að loftárásir
NATO hefðu náð að eyðileggja um
20% af skriðdrekum og þungavopn-
um júgóslavneska hersins í Kosovo
og yfir helming skotfæra þeirra, frá
því að árásimar hófust, 24. mars sl.
Er þetta í fyrsta skiptið sem
bandalagið gefur út svo nákvæma
greiningu á árangri loftárásanna á
Júgóslavíu. Jertz sagði að a.m.k.
300 hervopn Serba, þ.á.m. skrið-
drekar, þungavopn, brynvarin far-
artæki og herbílar hefðu eyðilagst í
árásunum.
200 þessara tækja sagði hann
vera skriðdreka og fallbyssur og
önnur stórskotaliðstæki. Jertz
sagði orrustuþotur einnig hafa hæft
átta sebneskar stjómstöðvar og
lokað fjórum mikilvægum sam-
gönguleiðum fyrir lestir og bifreið-
ar að héraðinu.
Að sögn Jertz hefur mestur ár-
angur loftárásanna náðst á sl.
tveimur til þremur vikum vegna
bættra veðurskilyrða og aukningar
í flugflota NATO.
Wesley Clark, yfirmaður Evr-
ópuherafla NATO, sagði loftárás-
irnar sl. tvo daga hafa hæft tíu
vopnaðar serbneskar hersveitir, ell-
efu hergagnabirgðastöðvar, þrjár
stjómstöðvar og þrettán herbíla-
sveitir.
Olíu- og gasbirgðastöðvar
hæfðar
A miðvikudag vom loftárásir
gerðar í nágrenni Nis, þriðju
stærstu borg landsins, í um 200 km
suðaustur af Belgrad. Að sögn inn-
lendra fjölmiðla féllu þar sjö flug-
skeyti á olíu- og gasbirgðastöðvar
Jugopetrol og Energogas. Júgó-
slavneska ríkisfréttastofan Tanjug
sagði miklar sprengingar hafa orðið
í kjölfar árásanna og logaði borgin
enn í gær af völdum eldanna.
Tanjug sagði árás einnig hafa
verið gerða á tvær Jugopetrol elds-
neytisbirgðastöðvar og efnaverk-
smiðju í nágrenni Prahovo við Dóná
í austurhluta Serbíu á landamærum
Rúmeníu. Einn er sagður hafa
særst í árásunum.
A.m.k. þrjú flugskeyti lentu á
Detelinara-svæðinu í Novi Sad um
þrjúleytið í gær, af því er óháða
fréttastofan Beta skýrði frá í gær.
Serbneskar hersveitir gerðu gagn-
árás á flugvélar NATO í Novi Sad,
en þær geiguðu.
Tanjug greindi frá því í gær að
fjórir hefðu særst í loftárásum
NATO á hádegi á miðvikudag,
þ.á.m. sjö ára stúlka, er tvö flug-
skeyti hæfðu íbúðarhús í Lipljan,
um 18 km suður af Pristina, héraðs-
höfðuborg Kosovo.
Serbneskir fjölmiðlar skýrðu frá
því að heyrst hefðu sprengihvellir
snemma í gær umhverfis Pristina, í
Mount Goles og í úthverfi Grmija.
Fregnir bámst einnig af loftárásum
um hádegisbil á Ponikve flugvöllinn
norðvestur af Uzice í Serbíu og La-
djevci flugvöll í Kraljevo.
Utvarp í Svartfjallalandi skýrði
frá því að NATO hefði gert loft-
árásir á brá skammt frá Novi Pazar
á miðvikudagskvöld í suðvestur-
hluta Serbíu og á herflugvelli
skammt frá bænum Lazarevac í
Serbíu.
Ostaðfestar fregnir bámst frá
íbúum Svai’tfjallalands um að
sprengingar hefðu heyrst skammt
frá höfuðborginni, Podgorica.
Clinton heimsækir
flóttamenn
A ferð Clintons til Þýskalands í
gær heimsótti hann hóp rámlega
300 flóttamanna frá Kosovo
skammt frá Frankfurt. Clinton
hlustaði á raunasögur fólksins og
hét þeim því að þau myndu komast
aftur til Kosovo.
„Þið munið komast aftur heim og
búa þar við öryggi og frelsi", sagði
Clinton. Hann sagði flóttafólkinu að
það skyldi ekki að láta hugfallst því
það myndi jafngilda því að Milos-
evic hefði sigrað.
„Það sem gert hefur verið við
ykkur, börn ykkar og heimaland
ykkar verður ekki aftur tekið. En
þið skuluð vita að þið hafið ekki
verið gleymd og yfirgefin.“
Landamæmnum að Makedóníu
var fyrirvaralaust lokað í fyrradag
og tvö til þrjú þúsund flóttamönn-
um meinað að fara inn í landið. Var
flóttafólkið hrakið aftur til Kosovo
af serbneskum hersveitum og óvíst
er um afdrif þeirra, af því er Denn-
is McNamara, talsmaður Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu Þjóðanna
(UNHCR) sagði í gær.
A þriðjudag höfðu makedónísk
yfirvöld tekið við 8.400 flóttamönn-
um, en um 200.000 flóttamenn hafa
komið inní landið frá því í mars sl.
Þarlend yfii’völd segja slæm áhrif
flóttamannastraumsins á efnahags-
kerfi landsins og frekari blöndun
þjóðarbrota þar ógna verulega
stöðugleika í landinu.
I gær sagði Nikola Klusjev,
varnamálaráðherra Makedóníu að
yfirvöld væm tilbúin að opna landa-
mærin aftur. Klusjev sagði jafn-
framt að fleiri flóttamönnum yrði
ekki hleypt inn í landið en sem
nemur þeim fjölda sem fluttur yrði
til annarra landa jafnóðum.
Fremur illa hefur gengið að
flytja flóttamenn frá Makedóníu og
Albaníu til annarra landa jafnóðum
og nýir flóttamenn flýja Kosovo og
því hefur fjöldi þeirra hrannast upp
í flóttamannabúðum í nági'anna-
ríkjum Kosovo. McNamara sagði
UNHCR stefna að því að flytja um
60.000 Kosovo-Albana frá Ma-
kedóníu til Albaníu, sem nú þegar
hýsir um 400.000 flóttamenn.
Prodi
bregst við
gagnrýni
Brussel, London. Daily Telegraph.
ROMANO Prodi, verðandi forseti
framkvæmdastjómar Evrópusam-
bandsins (ESB), brást á miðvikudag
við fréttaflutningi brezka dagblaðs-
ins The Daily Telegraph um að hann
hefði á liðnum 15 árum tvisvar yinn-
um sætt sakarannsókn á Ítalíu
vegna starfa sinna sem yfirmaður
IRI, stærsta eignarhaldsfélags
ítalska ríkisins, áður en hann varð
forsætisráðherra Ítalíu árið 1996.
í gi-ein blaðsins, sem birtisf á
þriðjudag, var skorað á Prodi að
gera hreint fyrir sínum dyrum með
því að sjá tO þess að gerð yrðu opin-
ber réttargögn um þessi mál. I gær
skýrði blaðið síðan frá því að Prodi
hefði brugðizt við þessu með því að
dreifa 50 eintökum af dómsúrskurði
sem dómur í Róm felldi í desember
1997. Þar er Prodi hreinsaður af öll-
um ásökunum um að hafa gerzt brot-
legur við lög.
I kjölfar fyrstu greinarinnar í
Daily Telegraph krafði Edward
McMillan-Scott, formælandi Evrópu-
þingmanna brezka íhaldsflokksins,
Prodi skýringa á þessum málum.
Þingmennimir hafa farið fram á að fá
að sjá gögn saksóknarans sem sótti
málið sem viðkomandi dómur féll í.
Málið snýst um einkavæðingu
matvælafyrirtækisins Cirio-Bertolli-
De Rica. Saksóknarinn, Giuseppa
Geremia, taldi samkvæmt upplýsing-
um Daily Telegraph að fyrirtækið
hefði verið selt fyrir minna en helm-
ing raunvirðis er Prodi var forstöðu-
maður IRI árið 1993. Hann sagðist
vonast tii að með birtingu dómsins
væri endir bundinn á gagnrýni á
störf sín fyrir IRI.
íri yfir starfsliðið
Greint var frá því í gær, að Prodi
hefði tilnefnt írann David O’Sullivan
yfirmann starfsliðs síns eftir að hann
tekur við embætti. Prodi hefur heitið
því að hrinda í framkvæmd róttæk-
um umbótum á starfsháttum fram-
kvæmdastjómarinnar. Hann sagði á
miðvikudag, þegar Evrópuþingið
staðfesti útnefningu hans með yfir-
gnæfandi meirihluta, að hann hygð-
ist skera á þau tök sem stjómvöld
heimaríkis hvers einstaks fram-
kvæmdastjórnarmeðlims hefðu haft
á einkastarfslið þeirra, með því að
fyrirskipa að þeir sem munu koma til
með að skipa stjómina með honum
næstu fimm árin hefðu fjölþjóðlegt
lið aðstoðarmanna. Til að sýna for-
dæmi hefði hann ákveðið að velja
ekki Itala í stöðu nánasta samstarfs-
manns síns.
▼^FÉLAG
jHeldri
BORGARA
Asgarður
L Æ S I B Æ
í kvöld frá kl. 20
Ferðakynningar frá Suðurlandi
- Fjölbreyttir ferðavinningar
Fjölbreytt skemmtidagskrá, m.a.
bingó-spurningakeppni.
Gestur kvöldsins: Ragnar Bjarnason.
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar leikur til kl. 2.
Aðgöngumiðaverð kr. 1.000.
Borðapantanir í síma 588 2111.
Vökvaneysla minnkar hættu
á þvag’blöðrukrabbameini
Boston. Reuters, AP.
ÞVÍ meiri vökva sem fólk drekkur
þeim mun minni hætta er á að það
fái krabbamein í þvagblöðra, en
líklegra er að reykingafólk fái
sjúkdóminn en aðrir. Þetta er með-
al niðurstaðna nýrrar rannsóknar
sem kynnt var í The New England
Journal of Medicine í gær. Talið er
að um 310.000 manns um heim all-
an fái krabbamein í þvagblöðru á
ári hverju og er þetta fjórða al-
gengasta krabbameinið sem herjar
á karla í Bandaríkjunum. Um 40
íslendingar greinast árlega með
þvagblöðrakrabbamein.
Rannsóknin leiddi í ljós að
bandarískir karlmenn sem drakku
a.m.k. tvo og hálfan lítra af vatni
eða öðram vökva á dag, stafaði
helmingi minni hætta af tveimur
algengustu tegundum krabba-
meins í þvagblöðra en karlar sem
drakku rámlega lítra á dag.
I Ijós kom að tegund drykkja
getur skipt máli. Avaxtasafar geta
dregið lítillega úr hættunni en vatn
hefur fyrirbyggjandi áhrif á þvag-
blöðrakrabbameinssýkingu.
Karlmenn sem drukku a.m.k.
einn og hálfan lítra af vatni á dag
drógu úr líkum á þvagblöðra-
krabbameini um helming saman-
borið við karla sem drakku innan
við fjórðung lítra af vatni á dag,
óháð því hversu mikið þeir drakku
af öðram drykkjarföngum.
Rannsóknin leiddi í Ijós að ekk-
ert benti til að kaffi- eða áfengis-
drykkja úr hófi hefði áhrif á mynd-
un þvagblöðrakrabbameins, eins
og talið hafði verið í öðrum um-
fangsminni rannsóknum.
Rannsókn þessi er sú fyrsta
sinnar tegundar sem sýnir fram á
að því meira sem fólk drekkur
þeim mun minni líkur séu á að
tvær algengustu tegundir krabba-
meins í þvagblöðru meðal Vestur-
landabúa myndist.
Tegundimar myndast báðar á
slímhúð þvagblöðrannar út frá
þekju hennar, sem er ysta lag
hennar og snýr að þvaginu. Annars
vegar er krabbameinið flatt og
hins vegar totumyndandi.
Að sögn Eiríks Jónssonar, yfir-
læknis á þvagfæraskurðdeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur, fá tveir
þriðju af þeim 40 íslendingum,
sem greinast með þvagblöðra-
krabbamein, þessar tvær tegundir,
en þó er totumyndandi krabba-
mein algengast. Þriðjungur íslend-
inga, sem þjáist af krabbameini í
þvagblöðru, greinist hins vegar
með krabbamein í blöðranni sem
hefur vaxið ofan í dýpri lög hennar.
Reykingar auka hættuna
Fjórum sinnum fleiri karlmenn
fá krabbamein í þvagblöðru en
konur. I greininni kemur fram að
orsök þessa megi að einhverjum
leyti rekja til þess að tiltölulega fá-
ar konur reyktu þar til fyrir
skömmu, en það getur tekið allt að
40 ár fyrir krabbamein að myndast
í þvagblöðra frá því að einstakling-
ar byrja að reykja.
Reykingar auka veralega magn
krabbameinsvaldandi efna í þvagi
og styður þessi rannsókn fyrri nið-
urstöður, þess efnis að hætta á
þvagblöðrukrabbameini sé allt að
fjóram sinnum meiri meðal reyk-
ingafólks en þeirra sem ekki
reykja.