Morgunblaðið - 29.10.2000, Side 32
32 SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
+
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
LOFTSLAGSBRE YTING AR
MEIRI EN ÁÐUR VAR TALIÐ
NÝJAR vísbendingar eru
komnar fram um, að mengun
af mannavöldum eigi „veru-
legan þátt“ í því, að á undanförnum
árum og áratugum hefur hitastig um
allan heim farið hækkandi. Kemur
það fram í nýrri skýrslu, sem gerð
hefur verið að tilstuðlan Alþjóðaveð-
urfræðistofnunarinnar og Umhverf-
isstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Var
hún unnin af milliríkjanefnd um lofts-
lagsbreytingar en aðild að henni eiga
um 2.500 vísindamenn víða um heim.
Búist er við, að þessi skýrsla muni
móta mjög umræðuna næsta áratug-
inn enda hafa vísindamenn ekki áður
kveðið jafn skýrt að orði um það, að á
jörðinni eigi sér stað loftslagsbreyt-
ingar, sem haft geti ófyrirsjáanlegar
og mjög alvarlegar afleiðingar.
Skýrslan er fyrsta gagngera end-
urskoðunin á skýrslu sömu nefndar
frá 1995 en niðurstaða hennar var sú,
að athafnir manna hefðu haft „greini-
leg áhrif“ á loftslagið vegna þess, að
mengunin ylli svokölluðu „gróður-
húsaástandi“. í nýju skýrslunni segir,
að vísbendingar um þessi áhrif á
loftslagið séu „miklu meiri“ nú og
fullyrt er, að mengunin eigi „veruleg-
an þátt í þeirri hækkun hitastigs, sem
orðið hefur í heiminum síðastliðin 50
ár“.
Vísindamennirnir segja, að verði
ekki dregið úr menguninni muni yfir-
borðshiti á jörðinni hækka um allt að
sex gráður á celsíus til loka þessarar
aldar. í skýrslunni frá 1995 var því
spáð, að hitastigið hækkaði um 3,5
gráður á sama tíma en þær rannsókn-
ir, sem síðan hefur verið unnið að,
sýna, að þróunin er hraðari og al-
varlegri en áður var talið. Er ástæðan
sú, að síðustu ár hafa verið mjög hlý
og í skýrslunni er fullyrt, að síðasti
áratugur hafi verið sá hlýjasti í 1.000
ár. Er jafnframt um að ræða mestu
hitabreytingar á jörðinni frá lokum
síðustu ísaldar.
Afleiðingar þessara breytinga geta
orðið miklar og vísindamenn segja, að
þær séu raunar þegar komnar fram
að nokkru leyti. Síðustu ár hefur ver-
ið óvenju mikið um öfluga fellibylji á
Karíbahafi, sunnanverðu Kyrrahafi
og á Indlandshafi og sums staðar
hafa verið meiri flóð en áður eru
dæmi um. Annars staðar ríkja þrálát-
ir þurrkar með þeim afleiðingum, að
fólk hefur flosnað upp vegna fjárfellis
og uppskerubrests.
Ein afleiðing loftslagsbeytinganna
er sú, að jöklar bráðna og munar þar
mest um bráðnun á heimskautunum.
Rannsóknir sýna, að íshellan á norð-
urskauti hefur þynnst verulega á síð-
ustu áratugum en við það losnar um
óhemju mikið af fersku vatni. Nú er
talið, að sjávarborð muni af þessum
sökum hækka um hálfan metra frá
1990 til 2100 og ýmsar láglendar eyj-
ar, til dæmis í Kyrrahafi og Indlands-
hafi, eru þegar komnar undir vatn að
hluta. A öðrum láglendissvæðum
eykst ágangur sjávar ár frá ári.
Önnur afleiðing ferskvatnsflutn-
ingsins er sú, að hann getur haft mik-
il áhrif á lóðrétta hringrás heimshaf-
anna en hún er ráðandi þáttur í þróun
loftslags á Norður-Atlantshafi.
Vegna varmaflutnings þessa „færi-
bands“ er líklega 6-8 gráðum hlýrra
víða við N-Atlantshaf en ella væri.
Um þetta var raunar fjallað í
Reykjavíkurbréfí, sem skrifað var 25.
mars sl., og vitnað í kenningar vís-
indamanna um, að gróðurhúsaástand-
ið geti orðið til að stöðva færibandið
og valda nýrri ísöld. Rannsóknir á
borkjörnum úr Grænlandsjökli sýna
einmitt, að veðurfarsbreytingar geta
orðið mjög skyndilegar. Um þetta er
að vísu enn mikil óvissa en sumir lík-
anreikningar gefa til kynna, að
grundvallarröskun geti orðið á starf-
semi færibandsins (Golfstraumsins)
af völdum loftslagsbreytinga.
í frétt í Morgunblaðinu í gær um
skýrsluna segir, að „margar skýrslur,
sem gefnar hafa verið út frá 1995,
hafa komist að þeirri niðurstöðu, að
hækkun hitastigs á jörðinni sé alvar-
legra vandamál en áður hefði verið
talið“. Það ætti að verða stjórnvöld-
um um allan heim hvatning til að
horfast í augu við þá stórkostlegu vá,
sem hugsanlega bíður okkar, og við
íslendingar megum ekki verða eftir-
bátar annarra í því að draga úr meng-
un eins mikið og kostur er.
29. okt. 1950: „En ylræktin
á áreiðanlega mikið land
ónumið. Islendinga skortir
mjög hverskonar garðávexti.
Mjög mikið af afurðum
gróðurhúsanna hjer syðra er
flutt út um land, bæði til
kaupstaða og sveita.
Ylræktin þarf þess vegna að
verða miklu almennari og
framleiðsla hennar meiri til
þess að fullnægja þörf þjóð-
arinnar fyrir þessi hollu
matvæli. Við verðum að
leggja aukið kapp á að
hagnýta jarðhitann til fram-
leiðslu matvæla. - Okkur
skortir þau matvæli veru-
lega, sem ylræktin getur
sjeð okkur fyrir. Hún getur
einnig átt sinn þátt í að
stuðla að aukinni fjölbreytni
Forustugrein
í landbúnaði okkar. Með
aukinni framleiðslu þessara
afurða geta þær einnig orðið
ódýrari og auðkeyptari fyrir
allan almenning."
29. okt. 1960: „í fyrradag
hélt Bjarni Benediktsson
stórmerka ræðu um land-
helgismálið á Alþingi. í
stuttu og hnitmiðuðu máli
ræddi hann alla helztu þætti
landhelgismálsins, benti á
hver taflstaðan væri og
hvernig helzt væri von um
að leysa deiluna. - Ræða
þessi birtist í heild í Morg-
unblaðinu í gær og er hér
með skorað á þá, sem enn
hafa ekki lesið hana, að
kynna sér málið rækilega.
Því miður er það nú á tímum
of fátítt að heyra alþingis-
menn taka raunhæft á við-
kvæmum og þýðingarmikl-
um málum í þingsölum. Þar
ber oft meira á sýndar-
mennsku og flutningi
ómerkilegra tillagna í þeim
tilgangi að dorga eftir at-
kvæðum í ákveðnum kjör-
dæmum. A hinn bóginn hyll-
ast jafnvel heilir stjórn-
málaflokkar til að taka
afstöðu, sem þeim er ljóst að
er andstæð íslenzkum hags-
munum í hinum mikilvæg-
ustu málum, ef þeir telja að
á þann hátt séu líkur til að
afla sér stundarfylgis. Hefur
það áþreifanlega sannazt um
Framsóknarflokkinn í land-
helgismálinu.
Af þessum sökum hlýtur
ræða Bjarna Bene-
diktssonar að vekja sérstaka
athygli.“
EINSTAKA sinnum kemur
fram á sjónarsviðið tækni
sem breytir þjóðfélaginu í
grundvallaratriðum. Hjólið
hefur vafalítið verið slík
uppfinning á sínum tíma og
það sama má segja um
prentvél Gutenbergs. Það
má hins vegar deila um hvort til dæmis rafmagn-
ið, talsíminn eða þá flugsamgöngur hafi haft
jafnvíðtæk og róttæk áhrif þótt vissulega beri
ekki að vanmeta áhrifamátt þessara tækninýj-
unga. Það má kannski frekar segja að talsíminn
hafi verið beint framhald af ritsímanum og að
næstu skref hafi verið fax og jafnvel tölvupóstur.
Að sama skapi hafa flugsamgöngur haft mikinn
hægðarauka í för með sér en þær opnuðu ekki
nýjar leiðir, sem ekki voru færar fyrir með skip-
um eða bifreiðum.
Netið og
upplýsinga-
tæknin
I ENGIN tækninýjung
hefur haft meiri áhrif
á síðustu árum en til-
koma Netsins og upp-
lýsingatækninnar.
Upplýsingar flæða nú
á milli ríkja, fyrirtækja og einstaklinga í gífur-
legu magni á ofurhraða sem haft hefur í för með
sér mikla hagræðingu og framleiðniaukningu
hjá þeim sem hafa nýtt sér möguleika hinnar
nýju tækni.
Þetta hefur orðið tilefni mikilla umræðna um
hvaða langtímaáhrif þessi nýja tækni muni hafa,
ekki síst á hagkerfið. Þeir sem lengst vilja ganga
halda því fram að upplýsingatæknin geri í raun
mörg þeirra efnahagslegu lögmála, sem hingað
til hafa verið í gildi, úrelt. Upplýsingatæknin
opni möguleika á hraðari hagvexti en hingað til
án þess að það skapi hættu á verðbólgu. Þá virð-
ast sumir þeirrar skoðunar að þessi nýja tækni
muni jafnvel uppræta hagsveiflur og því beri
vart að óttast efnahagskreppur í framtíðinni.
Það einstaka góðæri sem ríkt hefur í banda-
rísku efnahagslífi undanfarin ár hefur ýtt undir
kenningar af þessu tagi þótt þróun á gengi
hlutabréfa í netfyrirtækjum frá upphafí árs hafi
orðið til að draga úr spádómum flestra.
Breska tímaritið Economist birti fyrir
skömmu langa og ítarlega úttekt á kostum og
göllum þessa nýja hagkerfis. Þar segir að svo
geti farið að hin efnahagslegu áhrif upplýsinga-
tækninnar verði gífurleg, jafnvel sambærileg við
þau áhrif sem rafmagnið hefur haft. Hins vegar
muni hún vart nokkurn tíma standa undir verði
netfyrirtækja á bandarískum hlutabréfamark-
aði.
Netið sé nefnilega alls ekki einstakt í sögunni
og jafnvel megi bera það saman við ritsímann á
sínum tíma, nýja tækni sem hafði í för með sér
að fjarskiptakostnaður minnkaði og flæði upp-
lýsinga um hagkerfið jókst stórlega.
Kostur Netsins og upplýsingatækninnar er
þeir nýju möguleikar sem opnast varðandi
geymslu, nýtingu og dreifingu upplýsinga, upp-
lýsinga sem hægt er að senda á augabragði
hvert sem er, hvenær sem er án teljandi kostn-
aðar. Hefur tímaritið eftir bandaríska prófess-
ornum Bred DeLong við Berkeley-háskóla í
Kaliforníu að upplýsingatæknin og Netið magni
upp hugaraflið með svipuðum hætti og iðnbylt-
ingin efldi vöðvaaflið.
Áhrif upplýsingatækninnar á daglegt líf verða
líklega minni en áhrif járnbrautanna og raf-
magnsins en þó gæti farið svo að hin efnahags-
legu áhrif upplýsingatækninnar yrðu töluvert
meiri vegna þess hve fjarskiptakostnaður hefur
lækkað mikið muni tæknin breiðast mjög hratt
út og ná til mun fleiri og mun fyrr en ella hefði
orðið.
Hin nýja tækni hefur áhrif á framleiðni og það
mun ráða úrslitum. Aukin framleiðni er forsenda
betri lífskjara og þó svo að menn hafi um árabil
horft upp á að stóraukin tölvunotkun hefði lítil
áhrif á framleiðni í Bandaríkjunum virðist það
nú vera að breytast.
Nýja hag-
kerfíð og
margþátta
framleiðni
í ÞESSU sambandi
er raunar athyglis-
vert að rifja upp viðtal
við Nicholas Vanston,
forstöðumann rann-
sóknasviðs hagfræði-
deildar OECD, sem
birtist í Morgunblaðinu 12. október sl., þar sem
hann ræðir þessi mál. Hann segir þar að nýja
hagkerfíð byggist á aukningu á margþátta fram-
leiðni. Allt sé framleitt annars vegar með vinnu
manna og hins vegar með vélum. Mögulegt sé að
reikna út hversu stór hluti framleiðslunnar komi
frá vinnunni og hversu stór hluti frá vélunum.
„Þannig að þegar þetta er lagt saman mundi
maður gera ráð fyrir að fá heildarframleiðsluna.
Sú er hins vegar ekki raunin því það verður allt-
af eitthvað eftir og þetta eitthvað er kallað
margþátta framleiðni. Hún stafar af því að fólk
finnur betri leiðir til þess að gera sömu hluti með
jafnmikilli vinnu og sömu vélum. Þetta þýðir að
um ávinning er að ræða jafnvel þótt ekkert hafi
verið fjárfest. Á sjötta og sjöunda áratugnum og
að nokkru leyti á hinum áttunda var margþátta
framleiðni afar mikilvæg. Hún skýrði meira en
helming vaxtarins í flestum OECD-löndunum,
sérstaklega í Evrópu ... Þetta var mjög mikil-
vægt á sjöunda og áttunda áratugnum og stafaði
mest af þvi að önnur lönd græddu á því hvað
Bandaríkin stóðu framarlega á tæknisviðinu.
Önnur lönd gátu líkt eftir því sem gert var í
Bandaríkjunum en þurftu ekki að leggja sjálf út
í fjárfestingar til að búa tæknina til. Ur mikil-
vægi þessa dró seint á sjöunda áratugnum og
snemma á þeim áttunda, sem er ein af ástæðum
þess að hagvöxtur hefur verið mun minni síðan.
Þegar tölvurnar komu til sögunnar héldu
margir hagfræðingar að það myndi auka marg-
þátta framleiðni að nýju. Þetta mundi þýða að í
öllum greinum sem nota tölvur yrði mikil fram-
leiðsluaukning án þess að mikil aukning yrði í
því sem notað er við framleiðsluna. Þegar hag-
fræðingar sáu að hagvöxtur jókst án þess að
verðbólgan hefði aukist voru fyrstu viðbrögð
þeirra að draga þá ályktun að þetta væri aukn-
ing í margþátta framleiðni og hún næði til allra
geira þjóðfélagsins sem nýttu hina nýju tækni.
Fyrir um hálfu öðru ári þegar nákvæmari tölur
tóku að berast varð ljóst að þetta var ekki svo
einfalt. Það reyndist vera framleiðsluaukning
vinnuafls í þeim greinum sem notuðu mikið tölv-
ur en það var aðeins vegna þess að þeir notuðu
tölvutæknina meira. Tölvum fjölgaði því hlut-
fallslega miðað við fólk. Framleiðsluaukningin
varð sem sagt ekki vegna nýja hagkerfisins
heldur var skýringin aukin fjárfesting í tölvu-
búnaði. Þetta var því bara eins og í gamla hag-
kerfinu, aukin framleiðsla vegna aukinnar fjár-
festingar."
Eflaust er meira en lítið sannleikskom í þess-
ari orðgnótt því að þegar upp er staðið virðist
nýja hagkerfið í nær öllum tilvikum lúta sömu
lögmálum og hið gamla.
Mun breiðast
hratt út
ENGINN skyldi þó
vanmeta áhrif upplýs-
ingatækninnar. í
fyrrnefndri úttekt
Economist kemur fram að framlög bandarískra
stórfyrirtækja til rannsókna og þróunarstarfa
hafa aukist um 11% á síðustu fimm árum og því
bendir flest til að tækninýjungarnar muni halda
áfram að spretta upp. Enn sem komið er séu ein-
ungis 6% jarðarbúa tengd við Netið og jafnvel í
ríku iðnríkjunum er hlutfallið einungis um 35%
að meðaltali. Upplýsingatæknin eigi eftir að
breiðast mjög hratt út á næstu árum og ekki
megi heldur gleyma því að hún stendur ekki ein
og sér. Umskipti séu einnig að eiga sér stað á
öðrum sviðum, t.d. í líftækni, sem muni magna
upp hin efnahagslegu áhrif.
Til þess hefur hinna efnahagslegu áhrifa nýja
hagkerfisins fyrst og fremst gætt í Bandaríkjun-
um en á næstunni er því spáð að þau muni í stór-
auknum mæli ná til Evrópu, Japan og fleiri
heimshluta. Economist segir ekki hægt að úti-
loka að upplýsingatæknin muni reynast mesta
tæknibylting sögunnar á heimsvísu. þegar upp
er staðið. Það breyti hins vegar ekki því að
gömlu hagfræðilögmálin verða ennþá í góðu
gildi. Góðæri vara ekki að eilífu og þenslu fylgir
verðbólga.
Þótt deilt sé um margt varðandi nýja hagkerf-
ið verður ekki hjá því litið að það er staðreynd. Á
næstu áinm og áratugum mun koma í ljós hve
djúpt þær breytingar sem nýja hagkerfið hefur í
för með sér rista og hvort þær séu fyrst og
fremst áherslubreytingar eða hvort um grund-
vallarbreytingar sé að ræða.
Það er til dæmis greinilegt að þegar er farið
að gæta áhrifa hins nýja hagkerfis hér á íslandi.
Þannig benti Geir H. Haarde fjármálaráðherra á
það á fundi OECD í París í sumar að nýja hag-
kerfið ætti ekki síður við í minni hagkerfum en
þeim stærri og að augljóst væri að gamla hag-
kerfið tileinkaði sér mjög hratt það sem hið nýja
hagkerfi hefði upp á að bjóða.
„Ég nefndi það sem dæmi að í sjávarútvegin-
um á Islandi væri gríðarlega mikil tæknivæðing
þó að hann teldist vera hluti gamla hagkerfisins
... Síðan nefndi ég flest það sem gerst hefði í
þessu nýja hagkerfi hefði átt sér stað í einka-
geiranum, en að stjórnvöld hefðu engu að síður
mjög mikilvægu hlutverki að gegna við að setja
hinn almenna ramma,“ sagði Geir í samtali við
Morgunblaðið í kjölfar fundarins.