Skírnir - 01.01.1910, Blaðsíða 15
Um silfurverð og vaðmálsverð. 1&
Vjer megum ekki gleima því, að á bak við hina stuttu
og einföldu frásögn Landnámu um hvern einstakan þess-
ara 417 manna liggur löng óskrifuð saga um starf og
strit. Alt var ógert í óbigðu landi. Alt þurfti að biggja
upp af níju. Hvern kofa þurfti að reisa, hvern blett að
riðja og rækta. Hver skepnan var dírmæt, hvort sem
það nú var nautgripur eða ásauður, svín eða geit, því að
undir slíku var framtíðarvonin um góða afkomu komin.
í firstu munu menn að miklu leiti hafa lifað af fi3kiveið-
um í sjó, ám og vötnum, til að spara kvikfjenaðinn. Það
stoðaði lítið, þó að hver sjóður væri fullur af silfri, því
að enginn lifir á silfri, heldur á þvi sem firir það má
kaupa, og þ a ð var mjög dírt, oft ófáanlegt fyrir nokk-
urt silfurgjald. Svo þurftu menn og að læra íslenskt
búskaparlag, komast að raun um, hvað best borgaði fir-
irhöfnina. Þeir sem komu úr kornhjeruðum í Noregi,
hafa auðvitað reint að sá korni ár eftir ár. Sumstaðar
tókst það bærilega, og þar hjelst kornirkjan við1). Enn
sumstaðar kendi reinslan mönnum fljótt, að arðurinn af
kornirkju var stopull og kvikfjárræktin arðvænlegri. Og
jafnframt þurftu menn að verja landnám sín firir árásum
nágrannanna og nírra innflitjenda, og jafnvel að vera
þess búnir að ganga á hólm við þá, sem skoruðu á menn
til landa. Lög og rjettur vóru enn á spjótsoddi. Menn
sáu, að svo búið mátti ekki standa, og menn tóku á sig
nítt starf, að skapa lands lög og rjett, að »biggja landið
með lögum«. Þetta starf birjar að sjálfsögðu first á því,
að einstakar sveitir hnappa sig saman og minda smáríki
gagnvart öðrum undir forustu einstakra höfðingja utan
um hof það, sem höfðinginn (hofgoðinn) heldur uppi, því
að á þessum lagaleisistímum gátu menn ekki verið án
verndar goðanna. Undir verndarvæng þeirra, í hofhelg-
inni, koma menn saman úr sveitinni, auðvitað first og
fremst til að tigna og blíðka goðin og biðja um hjálp
l) Jeg vona, að jeg fái innan skams tækifæri til að sína, að menn
hafa gert of lítið úr kornirkju hér á landi i fornöld.