Skírnir - 01.01.1910, Blaðsíða 95
Frá útlöndum.
05-
aldri, tók þá aS sér að rnynda n/tt ráðaneyti. Hann er úr Rhallis-
flokknum og hefur oftar en einu sinni áður átt sæti í ráðaneytinu.
En Zorba hershöfðingi, sem þá var alvaldur í hermannaráðinu, varð
hermálaráðherra. Hann hafði heitið því, er nýja stjórnin myndaðist,
að slíta hermannaráðinu, þegar »endurreÍ8narstefnuskrá« þess vteri
komin í framkvæmd. Því Dragoumis hafði gert þá kröfu, eius og
fyrirrennari hans í embættinu. Dragoumis vill ekki 1/ðveldi, og er
vinveittur konungi og ættmennum hans. Líka kom nú upp megn-
asta 8undurlyndi innan hermannasambandsins, milli sjóhersins og
landhersins. Sögðu fregnirnar um tíma, að úr því mundi verða
borgarastríð. Eu alt virðist það nú hafa jafnast. Síðustu fregnirn-
ar segja horfurnar friðvænlegar. I viðtali, sem merkur blaðamaður
átti við Dragoumis, lætur Dragoumis vel yfir útlitinu. »Eruð þór
nú viss um, að þér fáið meirihluta þingsins til þess að samþykkja
þjóðfundaruppástunguna ?« spyr blaðamaðurinn. »Það getur verið
að það verði erfitt«, svarar yfirráðherrann. »Til þess þarf 3/4 hluta
allra þeirra, sem rétt hafa til þess að greiða atkvæði, án tillits til
þess, hvort þeir eru viðstaddir, er atkvæðagreiðslan fer fram, eða
ekki. í þinginu eiga sæti 177 fulltrúar, svo að við komumst ekki
af með minna en 133 atkvæði. En fari svo, að þjóðfundaruppá
stungan fáist ekki samþykt, þá fer eg undir eins frá völdum. En
nú sem stendur er mest um það að gera, að koma frá þeim fáu.
lögum, sem eftir eru óafgreidd (þ. e. ,af þeim 200 lagafrumvörp-
um, sem endurreisnarstefnuskránni fylgja)«. Þessu bjóst hann við
að lokið yrði í miðjum marz, og yrði þá þjóðfundaruppástungan
tekin fyrir. Þeótókis flokkurinn hefur í þinginu 97 atkvæði, en
Rhallisflokkurinn 45 atkvæði. Rhallisflokkurinn fylgir allur þjóð-
fundaruppástungunni, en í Þeótókis flokknum kvað vera einhver
klofningur um hana. Besta samkomulag sagði Dragoumis að nú
væri milli stjórnarinnar og hermannaráðsins.
Síðustu fregnir segja, að uppástungan um þjóðfundinn hafi verið
samþykt 1 gríska þinginu með 150 atkvæðum gegn 11. Maurómicbalis
barðist ákaft á móti henni. Þjóðfundurinn á að komasaman 14. sept.
Fjármáladeilan enska.
Þess var getið í síðasta hefti Skírnis f. á., að lávarðamálstofan
feldi fjárlagafrumvarp neðri málstofunnar með tillögu, er hljóðaði
svo, að deildin samþykti ekki fjárlögin fyr en búið værí að bera
þau undir þjóðina með n/jum kosningum.
Þær kosningar fóru fram í janúar og voru sóttar með mjög