Skírnir - 01.01.1910, Blaðsíða 44
44
Góður fengur.
hafði verið þar í dag, og engin skepna var inni í ósnum.
Það var útséð um það. Og þó að hann sæi sel út með
sandinum, þá var of langt að sækja bátræfilinn inn i ósinn;
og hann tímdi varla að eyða skotinu á fugl. Jón tók af
sér annan vetlinginn og strauk langa, gula yfirskeggið;
það settist hrím í það af andardrættinum. — í svona veðri
voru litlar líkur til þess að nokkuð væri á rekanum, hafið
var ládautt, sandarnir alhvítir, nema bláfjöruborðið; þar
voru þeir sleiktir svartir af flóðinu.
Það var farið að skyggja þegar Jón kom að landa-
merkjunum. Hann hafði fylgt flæðarmálinu alla leið og
ekkert fénast; einn hörpudisk hafði hann fundið og nokkrar
óvenjulega stórar kúskeljar; þær voru handa krökkunum.
I rauninni leið Jóni aldrei betur heldur en þegar hann var
einn á rölti í sjávarmálinu; hann hafði gengið þetta þús-
und sinnum fram og aftur, og þó var vegurinn altaf jafn-
nýr, sjórinn skolaði burtu sporunum og hver norðangarð-
ur kom með nýjar rekavonir; þau voru ekki fá keflin, sem
Jón hafði hirt, stundum stór tré, — hver einasta spýta í
nýju baðstofunni var rekin af sjó, — og oft fann hann
ýmislegt annað. Annars var það kynlegt, að hvað mest
rak á landamerkjunum. Jón mundi smásyndir, sem hann
ekki kærði sig um að segja frá.
»Hvað var hann að flækjast?« Það kom skarfur fljúg-
andi sunnan af sandinum og stefndi beint á Jón. Jón staldr-
aði við og tók til byssunnar. Þetta var sennilega grind-
horaður ræfill; þeir voru vanir að vera það á þessum
tíma árs. Skarfurinn lét eins oghannsæiJón ekki; hann
flaug örfáa faðma fyrir ofan höfuðið á honum með fæturna
beint aftur undan sér og hálsinn láréttan í ioftinu. Jón
heyrði vængjaþytinn og sá málmgljáann á fjöðrunum.
»Sá hefði fengið fyrir ferðina«. Jón horfði á eftir honum.
Þegar skarfurinn var kominn kippkorn út á sjóinn, beygði
hann til austurs og flaug alla leið inn að ós; þar hvarf
hann inn í rökkrið og fjarlægðina. »Ekki voru allar ferðir
til fjár«. Jón sneri bakinu að hafinu; styzta leiðin heim
var að ganga skáhalt inn yfir sandinn. »Usdarlegt var