Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Blaðsíða 6
6
reynitrjeð (sorbus aucuparia) þrífst áreiðanlega langt-
um betur á Akureyri á 65° 40" n. br. en í Reykjavik.
Akureyri hefur sem sje o stiga ársmeðalhita á Réaum-
ur og sumar-meðalhitinn er að eins -þ 6 stig R., en
Reykjavík aptur á móti hefur, eins og drepið var á
hjer að framan, -f- 3,3 stiga R. árs-meðalhita og sum-
ar-meðalhitinn er -f- g,6 stig á Réaumur; og þó vex
reynirinn á Akureyri, svo að hann verður þar allstórt
trje og stofn hans verður þykkvari en lærið á full-
vöxnum manni, en í Reykjavík og þar í grennd virðist
hann að eins geta dregið fram lífið. Ef til vill geta þessi af
brigði frá því sem algengt virðist vera, verið því að
kenna, að það er svo mikið af salti loptinu í Reykjavík
og þar í grennd, er vindar standa á land, og, ef til
vill, getur það stafað af öðrum ástæðum, sem mjer eru
eigi enn þá kunnar. J>ar eð jeg hugði, að sumarhitinn á
Akureyri kynni, ef til vill, einhvern tíma á sumrinu að
vera meiri en í Reykjavík, enda þótt sumar-meðalhit-
inn fyrir allt sumarið í heild sinni sje talsvert meiri í
Reykjavík en á Akureyri, sneri jeg mjer til veður-
fræðistofnunarinnar í Kaupmannahöfn, til þess að leita
mjer fræðslu í þessu efni. Upplýsingar þær, sem und-
irforstjóri stofnunarinnar hefur látið mjer í tje af góðfýsi
sinni, eru í töflu þeirri, er hjer fer á eptir, um meðal-
hitann á íslandi og einkum í Reykjavík og á Akur-
eyri. Eins og sjá má, er menn lesa töfluna, getur
hæsti hitinn (Maximumsvarmen) á Akureyri orðið tals-
vert meiri en í Reykjavík; en að hve miklu leyti
þetta eina atvik getur verið orsök þess, að frjóangar
reynitrjánna þroskast betur þar en hjer, á það ætla
jeg ekki, nú sem stendur, að dirfast að leggja nokk-
urn dóm. En mjer virðist þó eigi óhugsandi, að svo
sJe- J0? ætla í því efni að vekja athygli á því, að
það hlýtur að muna mikið um hlýindi á haustum til
þroskunar í frjóöngum trjánna. Einkum vil jeg hjer