Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Blaðsíða 75
75
2 höggfsperrum, umhverfis alþiljuð reisisúð með tvenn-
um langböndum yfir, matborð með stólpum undir,
fóðruðum bekkjum, Qalatröppum, forsæti og skör, lít-
ill skápur innlæstur við háborðsbrík með hvolfi undir,
lægra borð með tveimur undirstólpum, langbekk og
forbekk, konusæti dyramegin, en þilkistu yfir dyrun-
um, hurð fyrir sjálfu húsinu á járnum með koparhring,
en fordyrið þiljað beggja vegna, tvennar dyr undir
brík með hurðum á járnum, sem er gangur að kjall-
arabaðstofu — lopt yfir einu stafgólfi með rúmstokk-
um tveimur, pallurinn með sinum umbúnaði, slám og
skörum og á honum rúm með bríkum, við pallinn lít-
ill skápur með læsingu, ein hurð á hjörum undir pall-
slá, stór glergluggi yfir háborði, annar yfir pallinum
innsettur í trje. Húsinu fylgir hangandi borðhjálmur
af kopar með 5 liljum, eitt kross-saumstjald vel mæld-
ar 12 álnir, annað lítið svart og hvítt, ein langsessa af
krosssaumsvefnaði með fiðri og einskeptufóðri, önnur
krosssaumssessa með fiðri og bláu klæðisfóðri, ein
látúnskertapfpa, sem og lítil húsbjalla".
Barnabaðstofan (tölul. 4) var 1685 með 2 stafgólf-
um, einni höggsperru, tveimur langböndum og fjalvið
yfir, palli með slá og stiga og hurð á járnum með
klinku, standþil öðru megin dyra. „Húsið gamalt og
tilgengið". Á dögum Jóns Arasonar er getið um „ Arn-
arstofu" á Hólum. Pjetri presti Pálssyni var, þegar
Ögmundur biskup sehdi hann til Hóla til að lesa for-
boðsbrjef yfir Jóni, fylgt í „ Arnarstofu“ meðan Jón var
að komast burt af staðnum. og þegar Ögmundur sjálfur
kom þangað sfðar, bjó hann í „Arnarstofu“. Undar-
legt er það, að þessarar Arnarstofu er hvergi getið í
úttektunum, en aptur þessarar barnabaðstofu eða barna-
stofu; virðist það því eigi óhugsandi, að þetta hafi verið
sama stofan og hljóðlíking valdi rangfærslu á nafninu.
Prestsbaðstofan (tölul. 5) var 3 stafgólf með reisi-