Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Blaðsíða 70
70
biskup ljet þegar gjöra aptur kirkju á Hólum. þ>að er
mælt, aðáþessari kirkju hafi verið 38 glergluggar, 18
sperrur á kórnum, en 16 á framkirkjunni, en 12 á
stöplinum og að hún hafi staðið fram yfir siðabót, eða
með öðrum orðum, að þetta hafi verið sama kirkjan
og sú, er hrundi i ofsaveðri 1624 nokkru fyrir andlát
Guðbrandar biskups porlákssonar (1571—1627). Mikil
líkindi eru til þess, að á svo löngum tíma hafi hlotið
að vera gert við kirkjuna, enda er það kunnugt, að
Gottskálk biskup grimmi sendi Jón Arason, meðan
Jón var prestur, til Noregs í þeim erindum að útvega
kirkjuvið, sem þá líklega hefur verið hafður til að-
gjörðar, en eigi fullrar endurbyggingar. í þessari
kirkju voru margir merkisgripir, svo sem gullkaleikur-
inn, er Jón Arason einnig hafði sótt til Noregs, og
biskupskápan góða, sem enn í dag er höfð við presta-
vígslur; þar var og altarisbrik mikil og merkileg, er
Jón Arason hafði útvegað, auk margs fleira, en flestum
af gripum þessum var burtu sópað af konungsmönrium
eptir dauða Jóns. Síðar var í kirkju þessari klukka
mikil, er Líkaböng var köllað; hafði Olafur biskup
Hjaltason (1552—1569) látið gjöra hana í Hamborg og
var þetta kveðið um:
Herra Olafur heiðursmann,
er Hólakirkju stýrir rann,
stóra klukku á staðarins torg
steypa ljet í Hamborg.
Árið 1625 var enn gjörð kirkja á Hólum úr trje,
miklu minni en hinar fyrri, og gaf elzti sonur Dana-
konungs efni og tjöru til þeirrar kirkju. þ>essari kirkju
er nákvæmlega lýst í úttekt þeirri er gjörð var á
Hólastað og kirkju eptir andlát Gísla biskups þ>orláks-
sonar, og sem til er við skjalasafn biskupsins. Eins og
hinum fyrri kirkjum var þessari kirkju skipt í kór,
framkirkju og forkirkju, eða stöpul. Kórinn var 5