Vísir - 21.10.1965, Page 8
8
tm
VÍSIR . F'aiaiudr.^ur 21. o'ctúber 1865.
VISIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR
Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafsson
Ritstjðri: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjðrar: Jónas Kristjánsson
Þorsteinn ó. Thorarensen
Augiýsingastj.: Halldór Jónsson
Sölustjóri: Herbert Guðmundsson
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 linur)
Auglýsingar og afgreiðsla ihgólfsstræti 3
Áskriftargjald: kr. 80,00 á mánuði innanjands
1 lausasölu kr. 7,00 eintakið
Prentsmiðja Vlsis — Edda h.f.
Nýir skólar
Á Alþingi í fyrradag gerði Einar Olgeirsson skóla-
byggingarnar að umræðuefni, taldi ástandið í skóla-
byggingarmálum þjóðarinnar mjög bágborið og væri
það sök núverandi ríkisstjómar og stefnu hennar.
Því skal hér ekki á móti mælt, að enn skortir skóla
í sveitum til þess að öll ákvæði fræðslulaganna um
skólaskyldu séu þar fullkomlega framkvæmd. Hins
vegar heyrir það mál ekki undir ríkisstjórn landsins
á hverjum tíma heldur er það undir sveitarstjórnun-
um komið, hvort ákvæðum laga um skólaskyldu er
framfylgt. Fram hjá þeirri staðreynd gekk Einar 01-
geirsson í málflutningi sínum. Átaldi þessi
leiðtogi Alþýðubandalagsins það mjög, að í Reykja-
vík væru skólabyggingar látnar sitja á hakanum með-
an leyfð væri hömlulaus fjárfesting heildsalanna, eins
og hann orðaði það.
JTæstir munu skilja nema Einar hvers vegna fleiri
skólar hlytu óhjákvæmilega að rísa í höfuðborginni,
þótt verzlunarbyggingar væru takmarkaðar, en það
er önnur saga. Hitt kemst foringi Alþýðubandalags-
ins ekki upp með ámælislaust, að fullyrða að framlög
til skólamála hafi farið minnkandi síðustu árin. Það
eru beinar rangfærslur. Árið 1959 var framlagið til
barna- og gagnfræðaskóla 16.7 milljónir króna. Á
þessu ári er það hins vegar 110 millj. króna. Þótt
byggingarkostnaður hafi farið hækkandi sér þó hver
maður, að hér er um mikla raunverulega hækkun á
framlaginu að ræða. Það er margfalt hærra en þeg-
ar Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkurinn fóru
með yfirstjóm skólamálanna. Á haftaárunum eftir
styrjöldina fékkst varla einn skóli byggður í Reykja-
vík á fimm árum. Nú er hins vegar einn skóli, á stærð
við Laugarnesskólann, byggður árlega hér í borg.
Sú staðreynd sýnir og gleggst hin miklu umskipti
til hins betra sem orðið hafa í skólabyggingarmál-
um höfuðborgarinnar. .
Minnkandi stjórnkostnaður
]\|orgum hefur vaxið í augum útþensla ríkisbákns-
ins og kostnaðurinn við stjórnsýslu ríkisins. Þess
vegna koma þær upplýsingar þægilega á óvart, sem
Magnús Jónsson birti í hinni ítarlegu fjárlagaræðu
sinni, að kostnaðurinn við stjórn ríkisins er minni
hluti ríkisútgjaldanna síðustu árin en áður var. í fjár-
lögum nú er hann aðeins ætlaður 10.5%, en var allt
upp í 15% fyrir fáum árum. Þetta er lofsverð þróun
og gott til þess að vita, að fjármálaráðherra hefur
fullan hug á því að halda henni áfram eins og stofn-
un hinnar nýju hagsýsludeildar við fjármálaráðuneyt-
!ð sýnir.
Trú og
matur í Israel
Sabra kallast gómsætir ávextir
kaktusplöntu í ísrael. Þar í landi
segja menn, að þessir ávextir séu
eins og hinir innfæddu Gyðingar í
landinu, hrjúfir að utan en sætir
að innan.
Cíðan Baháulláh, upphafsmað
ur Bahái trúarinnar, var
gerður útlægur árið 1868 til
Akka í Palestínu, hefur ísreal
verið miðstöð Baháí og áfanga
staður pílagríma þeirrar trúar.
Baháí er annars upprunnin í
Persíu og má skoða sem ný-
tízkulegt afbrigði af Múham-
meðstrú á svipaðan hátt og
únitarisminn er nýtízkulegt af-
brigði af kristinni trú.
Baháí trúin segir, að trúar-
legur sannleikur sé ekki endan
legur heldur háður framþróun
inni. Hún segir, að guð mennti
mannkynið smám saman og
sendi f því skyni spámenn með
reglulegu millibili til mannkyns
ins til þess að boða hin nýju
sannindi. í röð þessara spá-
manna eru sagðir Móses, Sara-
þústra Búdda, Kristur, Múfeam
eð og Baháylláh, en sérhver
þeirra á að hafa komið með
kenningar, sem hæfðu þeim
tíma, sem þeir lifðu.
Báháí gerir ekki kröfu til
þess, að áhangendur trúarinn-
ar leggi niður sín fyrri trúar-
brögð, heldur leyfist mönnum
að vera í hvaða trúarsöfnuði,
sem er, auk Baháí. Ýmis önnur
atriði éinkenna Baháí, svo sem
krafan um sameiningu mann-
kyns, krafa um sannleiksleit,
fordæming á hjátrú og fordóm
um, stuðningur við raunvísindi,
jafnrétti, skólaskyldu, ein-
kvæni, eitt alþjóðatungumál og
fleiri óskylda hluti. Baháí er
prestalaus trú.
I Haifa er ein helzta miðstöð
Baháítrúar við skrín Bábs,
helzta plslarvotts trúarinnar.
Þak ^ússins er úr gullplötum,
Teikning af helgidómi Baháí-trúar í Haifa musterinu yfir skríni Bábs
enda eru áhangendur trúarinn-
ar margir hverjir stórauðugir
menn í Bandaríkjunum og víð-
Jsrael er land trúarinnar og
þar sést fleira en Gyðing-
dómurinn einn Víða í ísrael eru
helgir staðir og eru sumir helg-
ir Gyðingum, aðrir kristnum,
enn aðrir áhangendum Allah
og tveir helgistaðir Baháí-trú-
ar eru í landinu. Loks eru ýms
ir staðir helgir I fleiri en einni
trú, svo sem Síons-fjall, sem
Gyðingar, kristnir menn og
Múhameðstrúarmenn hafa helgi
Nazaret er borg hinna mörgu trúarbragða.
á. Jerúsalem er raunar helg
borg í augum allra þessara trú-
arflokka.
í borginni Nazaret í Galíleu,
uppvaxtarborg Krists, mætast
helztu trúarbrögðin. Þar eru
kommúnistar mjög fjölmennir
og er þetta eina borgin í ísra-
el, þar sem borgarstjórinn er
úr flokki þessarar veraldlegu
trúar. Flestir íbúanna eru að
öðru leyti Múhameðstrúar og
bærinn er að miklu leyti ara-
biskur. Þama er einnig krist-
inn, trúflokkur, sem leggur
mikla rækt við minninguna um
Jesúm Krist. Þar er hægt að
sjá hellinn, sem fjölskylda
Krists á að hafa búið í, verk-
stæði föður Jesú, og staðinn,
þar sem engillinn boðaði Maríu
fæðingu frelsarans. Þar er nú
verið að reisa stórkostlega
mikla basilíku, Boðunarkirkj-
una, og standa kaþólikkar í
Bandaríkjunum aðallega að
þeirri smíði Þar sem Naza-
ret er í ísrael, er um leið sjálf-
gert, að þar er einnig söfnuð-
ur Gyðinga. Þá eru enn ótaldir
Drúsarnir, sem búa þar, en trú
þeirra bannar þeim að segja
nokkuð frá. í hverju trú þeirra
felst.
Tjetta var smávegis um trú-
arbrögðin í ísrael, og þá
er hendi næst að minnast á
matinn, sem er mannsins meg-"
in. ísraelsmenn borða yfirleitt
upp á evrópsku og hótelin þar
hafa yfirleitt evrópskan mat á
matseðlinum. Flest hótel
landsins og þar á meðal öll hin
beztu gera þó nokkur frávik
frá því og hafa svonefnda Kosh
er-eldamennsku. en það felur í
Frh. á bls. 6.
•.Txzaaafg..-