Vísir - 05.05.1967, Page 3
V í SIR . Föstudagnr 5. mal 1967.
3
Jjijár byggðar eyjar tilheyra
Norðurlandskjördæmi eystra
Hrísey í Eyjafirði, Grímsey og
Flatey á Skjálfanda. Allar eru
eyjarnar við ein fengsælustu
fiskimið smábáta, sem fyrirfinn
ast við ísiandsstrendur. Að vísu
hafa þessi mið brugðizt af og til
eins og flest fiskimiðin okkar,
en yfirleitt hafa eyjabúar haft
af miðum sínum góða afkomu,
jafnvel æ ofan I æ verið meö
tekjuhæstu larídsmönnum.
Þetta er meginskýringin á bú-
setu fóiks í þessum afskekktu
byggðum, sem eyjamar hafa ó-
neitanlega verið fram á síðustu
n **t
Engan myndi undra þótt bú-
seta i eyjunum legðist niöur,
þrátt fyrir þetta, í ört .stækk-
andi menningarlegum og félags
legum straumum með þjóðinni,
sem enn eiga ógreiða leið út
fyrir „meginlandið“. Rökstudd-
ar vonir standa þó til þess, að
fyrr verði komiö á nauðsýnleg
um föstum tengslum milli iands
og eyja, svo að eyjabúar megi
una um langa framtíð viö sitt
og geti notið að verulegu marki
þt:rra gæða, sem hafið hefur
slitiö frá þeim um aidaraðir.
Byggðin í Flatey á Skjálfanda. Á tanganum er Sjótjömin, sem verið er að breyta í lífhöfn og fiskihöfn.
BYGGÐAR
NORÐUREYJAR
Efling flugstarfsemi, út-
breiðsla sjónvarps og sitthvað
fleira í þeim dúr, eru tæki til
að tengja byggð við byggð og
jafna aðstöðu þéttbýlis, strjál-
býlis og eyja. Og nú er mikil
vakning í þessum málum.
Með Norðurflugl út f eyjar.
Fréttamaður Vísis átti þess
kost nýlega að fljúga með Norð-
urflugi h.f. á Akureyri út í
Grímsey og Flatey á Skjálfanda.
Þar tók hann myndir og á heim-
leiðinni einnig af Hrísey í Eyja-
firði. Hér á síðunni birtist brot
af feröasögunni og upplýsing-
um, ásamt fáeinum myndum frá
eyjunum þremur.
FLATEY
Það var umrót í Sjótjörn
þeirra Flateyinga. Þar er veriö
að betrumbæta og taka í notk-
un sem lífhöfn og fiskihöfn
stóra tjörn á tanganum, sem
byggðin liggur að. Þessi fram-
kvæmd hófst í fyrra og henni
á að ljúka i sumar. Höfnin verð
ur fyrst og fremst lægi fyrir
80 — 100 fiskibáta.
Nú eru skráðir Flateyingar 50
taisins og hefur þeim fækkað á
undanförnum árum, um 50%
á síðustu 10 árum.
GRÍMSEY
1 Grímsey er nýbyggð beina-
mjölsverksmiöja og fyrir dyrum
standa töluverðar hafnarbætur.
Fálagsheimili, sem einnig er
skóli, er að hálfu byggt. Skólinn
starfar þar I vetur í fyrsta siim,
en húsnæði hans er þó ekki fuli
gert.
Grímseyingar eru nú skráðir
86 og hefur fjölgað um 16 á
síðustu 6 árum.
HRÍSEY
Á undanförnum þrem árum
hafa Hríseyingar endurnýjað
hátt og lágt ailt vatnsveitukerfi
byggðarinnar. Næsta verkefni
er að gera nýjan hafnargarð til
að fyrirbyggja sandburð inn í
núverandi höfn og bæta aðstöð-
una.
Ibúar f Hrísey eru nú 296
talsins og hefur fjölgað um 20
fná því 1960.
Séð yfir Grenivfk út yfir Hrísey í Eyjafirði.
M
H
Byggðin í Grímsey stendur upp frá Sandvík, þar sem er höfn Grímseyinga. Á myndinni sést og flug-
völlurinn.