Vísir - 05.05.1967, Side 5
VISIR. Fítetudagur 5. maí 1967.
5
Hefst opinn
KZkA
t Ú
/ Vietnam?
IVTargt bendir til þess, að ný
þáttaskil séu að verða í
styrjöldinni £ Vietnam. Þó er
ekki víst, að þau gerist mjög
skyndilega, heldur hverfi hern-
aðaraögerðimar smám saman í
nýjan farveg og á þetta sér
þegar orðið nokkurn aðdrag-
anda, sem hefur mátt merkja af
fréttum af styrjöldinni undan-
farnar vikur.
Menn hafa veitt því athygli,
að miklu minna hefur borið en
áöur á fregnum af styrjaldar-
aðgerðum syðst í landinu, svæð-
inu kringum höfuðborgina
Saigon. Hins vegar beinist at-
hyglin æ meir að svæöinu kring-
um hiö hlutlausa belti við 17.
breiddarbaug kringum vopna-
hléslínuna á mörkum Norður-
og Suður-Vietnam.
Þetta gefur nokkra hugmynd
um þróun hernaðarins. Veldi
hinna kommúnísku óaldar-
manna hefur mikið til verið
hnekkt í hinum breiöu byggð-
um, sérstaklega £ þéttbýlinu
meðfram ströndinni. Þar hefur
mikil breyting orðið á frá þvi
fyrir tveimur árum, þegar her-
sveitir kommúnista gátu fariö
þar flestra ferða sinna og
þvingað fólkið til hlýðni og
skattgreiöslu með ógnum og
moröum. Nú hefur dregið svo
úr veldi þeirra, að aftur er ver-
ið að stofna kerfi sveitarstjórna
viðsvegar i larídinu, sem haföi
hrunið vegna ofbeldis komm-
únista, því að þeir höfðu það
fyrir sið, að myrða jafnskjött,
hvem þann borgara, sem þorði
að taka að sér stjórnarábyrgð.
Nú er ástandið orðiö þaö
betra, aö víöa þurfa menn ekki
aö óttast það lengur, að það
kosti þá lifið, þó þeir takist á
hendur stjómarábyrgö og þvi
hafa kosningar þorpsstjórna
getað farið fram að undanförnu.
A ð vísu er ástandið enn ekki
eins öruggt upp til fjall-
anna eða við landamæri Kam-
bodju og Laos, því að þar geta
óaldarflokkamir jafnan leitað
hælis og síðan verið fljótir að
bregða sér aftur yfir landamær-
in til að halda við ógnarher-
ferðinni og þetta gildir einnig
að nokkru óshólmasvæöið
allra syöst í landinu, sem fær
stöðugt liösauka og birgðir frá
Kambodja.
I febrúarmánuði framkvæmdu
bandarískar hersveitir miklar
„hreinsunaraögerðir“ á hinu
svokallaða C-svæði, þar sem
kommúnistaherimir hafa um
áratugsskeið haft öruggustu
bækistöðvar sínar í aöeins 50—
100 km fjarlægö frá höfuöborg-
inni Saigon. Notfærðu þeir sér
þá aðstöðu aö landamæri Kam-
bodja liggja þárna i ótal krók-
um og totum í allt að því aöeins
40 km fjarlægð frá Saigon. í
yfirferö bandarísku hersveit-
anna um þetta svæði komust
þær yfir mikið herfang, vopna
og skotfærabirgðir og korn-
foröabúr, sem kommúnistamir
höföu dregið að sér. Vitanlega
notuðu kommúnistaherirnir sér
tækifærið eins og venjulega
meðan á þessu stóð til að leita
skjóls Kambodja-megin við
landamærin og er þess að vænta
að þeir komi smám saman aftur
í stöðvar sínar. En þó töldu
Bandaríkjamenn, að mótspyrna
þeirra í þessu höfuðvirki þeirra
hefði orðið minni en þeir höfðu
búizt við og þykir það benda
til þess, að farið sé að draga úr
styrkleika þeirra á þessum slóð-
jyjenn hafa einnig veitt því
athygli, að Sihanouk prins,
þjóðhöfðingi Kambodja hefur
að undanförnu látið skína í það,
að hann sé ekki eins hlynntur
kommúnistum og verið hefur.
Stuðningur hans viö kommún-
istaherina hefur mikiö markazt
af því að hann ímyndaði sér að
kommúnistar myndu verða hinir
endanlegu sigurvegarar í Viet-
nam-styrjöldinni og því vildi
hann reyna aö treysta hásæti
sitt í framtíöinni með þvi aö
eiga góöa sambúð við þá. En
hann virðist nú vera smám
saman að komast á aðra skoð-
un og vill nú líka vingast við
hina aöilana. Og einnig hafa
menn veitt því athygli, að hinn
róttæki vinstrisinni Lee Kwan
forustumaður í Singapore, sem
löngum hefur verið talinn
hlynntur kommúnistum segist
nú vera farinn að sjá, að dvöl
Bandaríkjamanna í Vietnam hafi
haft mikla þýðingu til að hlifa
smáríkjum suðaustur Asíu viö
k’ríverskri útþenslu. Er óhætt
aö segja að það er alveg ný
túlkun hjá honum.
J^íkur benda til þess, að þessi
breyting á aðstöðunni í
suðurhluta landsins stafi af þvi,
aö foringjar kommúnista í
Hanoi telji það ekki lengur
svara kostnaði, að flytja herlið
sitt aila hina löngu og torsóttu
leiö eftir „Ho Chi-minh“-stígn-
um suöur eftir fjalllendi og
skógum Laos og Kambodju.
Enda þótt þeir séu þar á hlut-
lausu landsvæði er þetta um
500 km leiö eftir erfiðu landi og
hefur mikill mannafli fariö til
þessara flutninga. Getur veriö,
Uppdráttur, sem sýnir hlutlausa beltið (litað svart) á mótum Notð-
ur og Suður Vietnam. Gráa svæðið sýnir tillögu Rusks um að
breikka beltið undir alþjóðastjórn í 26 mflur.
að þeir séu komnir að þeirri
niðurstöðu, að þetta borgi sig
ekki lengur, það sé hin gamla
saga sem kunn ér i öllum
styrjöldum, að hernaður veröur
erfiöur þegar samgönguleiðirnar
eru orönar langar.
í stað þess bendir nú flest til,
að þeir fr’;' sér hagkvæmara að
reyna að sameina kraftana
nvrzt í landinu, þar sem sam-
gönguleiðir þeirra eru styttri.
Jjetta kom greinilega í Ijós,
þegar þeir sviku samkomu-
lagið um vopnahlé á Tet-tíma-
bilinu, þaö er að segja á há-
tíöisdögum Búddhatrúarmanna í
byrjun febrúar, þegar áramót
eru að þeirra sið. Þá féllust
Bandaríkjamenn á það, aö hætta
loftárásum á Norður-Vietnam í
nokkra daga, þar sem Ho Chi-
minh lét að því Iiggia, að stöðv-
un loftárása gæti skapaö grund-
völl að friði í landinu.
En þetta hlé, sem kommún-
istarnir fengu notuðu þeir mjög
skjótlega til stórfelldra herflutn-
inga í Norður-Vietnam suður á
bóginn. Er talið að þeir hafi flutt
suður á bóginn á tveimur til
þremur dögum um 25 þúsund
tonn af vopnum og birgðum. En
undarlegt er, að svo viröist
sem tiltölulega lítill hluti af
þessum birgðum hafi verið flutt
ur eftir Ho Chi-minh sífgnum
suður til Saigon-svæöisins, flutn
ingunum hefur að lang mestu
leyti verið beint að svæðinu
kringum hlutlausa beltið.
JOendir nú flest til þess, að
kommúnistarnir séu að
undirbúa stórfellda sókn að
nyrztu héruðum Suður Vietnam
og má vera, að hemaðurinn
breytist þá í fyrsta skipti í
opinberan vígstöðvahernað, líkt
og var í Kóreu á sínum tíma.
Og það var til að mæta þeirri
hættu, sem Westmoreland yfir-
hershöfðingi Bandaríkjanna kom
til Washington í síðustu viku
og fékk því til leiðar komið
að 35 þúsund bandarískir her-
menn til viðbótar yrðu sendir
til Vietnam.
Þessi nýja hætta hefur það i
för með sér, að loftárásir
Bandaríkjamanna á Norður Viet
nam verða enn mikilvægari
hemaðarlega séð en áður. I tvö
ár hafa Bandaríkjamenn ekki
ráðizt á flugvelli í Norður Viet-
nam, látiö stríðsflugvélar komm
únista afskiptalausar þó þeir
sæju þær á flugvöllunum. En nú
hafa þær hömlur verið af teknar
Með sama hætti hefur rafstöðv-
um Norður Vietnam verið hlíft
pö aö augljóst sé hversu mikii-
vægar þær erp fyrir vígbúnað-
inn, en í síðustu viku voru í
fyrsta sinn geröar loftárásir á
stór raforkuver í Hanoi og
Haiphong.
| ^andssvæði þaö sem kommún-
istar viröast nú ætla að
beina öllum herstyrk sínum að
er venjulega kallað 1. herstjófn-
arsvæðið. Ef maður lítur laus-
lega S landabréfið má auðveld-
lega sjá, aö kommúnistaherim-
ir ætla sér þar hagkvæma hem-
aðarlega aðstöðu. Landið er mjó
ræma milli hafs og Laos-rfkisins
og ætla kommúnistar að nottæra
sér hið hlutlausa landsvæði til
að ráðast til atlögu úr þremur
áttum. Það er talið að þeir hafi
þegar sent á laun uííi 65 þúsund
manna her inn í fjalllendið suð-
ur af hlutlausa beltinu og á
landssvæði Norður Vietnam
hafa þeir þegar skipað upp fjór-
um herfylkium — 40 þúsund
manns með öllum fullkomnasta
vopnaútbúnaði.
Þetta er það svæði þar sem
gætt hefur hvað mest uppreisn-
arhugs gagnvart Saigon-stjóm-
inni, ekki þó vegna þess að
íbúarnir aðhyllist kommúnista,
heldur vegna aðskilnaðarhug-
mynda. íbúamir eru hinir svo-
kölluðu Annamítar, sem fyrr á
öldum drottnuðu yfir öðrrnn
þjóðflokkum Indó-Kfna. Hér er
hin gamla höfuðborg landsins
Hué, þar sem hvað erfiðast
reyndist fyrir einu ári að kveða
niður unpreisnaranda Búddha-
munkanna. Og skammt frá er
herbækistöð Bandaríkjamanna
Da Nang.
Cíðustu vikur hafa kommún-
istaflokkar gerzt æ uppi-
vöðslusamari á þessu svæði,
komið fram að næturlagi og
sprengt brýr og vegi og eina
nóttina ruddust þeir inn í eina
fylkishöfuðborgina á þessu
svæði Quang Tri og leystu 300
herfanga úr haldi. Hafa þeir
nú hótað að gera samsvarandi
næturárás á Hué.
Þannig virðist mér, að megi
tengja saman ýmsar fréttir sem
hafa verið að berast austan frá
Vietnam síðustu vikur, sem
benda til þess að þáttaskil séu
að verða I styrjöldinni og muni
stórtíðindi gerast norður við
hlutlausa beltið.
T/rípnahléslínan frá 1954 mið-
* ast við 17. breiddarbaug en
er þó ekki dregin þráðbeint
eftir honum, heldur fylgir hún
svokallaðri Ben Hai-á. Hlutlausa
beltið krir.gum ána er 6 enskar
mílur á breidd, en Bandaríkja-
menn halda því fram að komm-
únistar hafi notað það til þess
að koma sér upp vopnabirgðum
og undirbúa sökn suður á bðg-
inn.
Fyrir nokkru lagði Dean Rusk
til að hlutlausa svæðið yrði
breikkað, svo að það yrði 26
mílur og yrði gæzlusveitum Sam
einuðu þjóðanna eða öðrum al-
þjóðaher falið að gæta þess að
svæðið yrði ekki misnotað til
hernaðarundirbúnings. Var það
hugmynd Rusks að kommúnist-
um i Norður Vietnam gæfist
þannig tækifæri til að sýna af-
skiptaleysi sitt af styrjöldinni
í Suður Vietnam. En skiljanlega
hafnaði stjómin f Hanoi þessu.
Þorsteinn Thorarensen.
UPPBOÐ
Eftir kröfu Sakadóms Reykjavíkur, fer fram
opinbert uppboð að Borgartúni 7, hér í borg,
laugardaginn 6. maí 1967 og hefst kl. 1% síð-
degis, og verða þar seldir ýmsir óskilamunir,
svo sem reiðhjól, úr, lindarpennar, fatnaður,
töskur o. fl.
Borgarfógetaembættio í Reykjavfk.