Vísir - 05.05.1967, Page 16
'V
Föstudagur 5. mai 1967.
„AUSTFIRÐINGUR" RAKST A FJALL I VESTMANNA-
EYJUM í HRÍÐARBYL Á MIÐVIKUDAG
3 UNCIR FLUGMENN LÉTU LÍFIB
Það sorglega slys varð í Vestmannaeyjum á mið-
vikudaginn að þrír ungir flugmenn létu lífið, þeg-
ar flugvélin Austfirðingur, tveggja hreyfla flugvél
af DC-3 gerð flaug inn í svokallaða Stakkabót í
Kervíkurf jalli. Þegar fréttamaður Vísis kom til Eyja
í gær hvíldi sorg yfir kaupstaðnum. í bezta veðri
ársins til þessa drúptu fánar í hálfa stöng víða
um bæinn.
Á slysstað vann björgunar-
sveit Vestmannaeyja að því að
ryðja flakinu niður í sjó, en
f
3
Bjami Herjólfsson, flugumsjón-
armaður.
fyrir neöan staöinn er þver-
hnípt í sjó fram. Gekk það verk
vel, aöeins lítill hluti vélarinn-
ar hefur orðið fastur í brekk-
unni, vængir og afturhluti hafa
þegar lent í sjónum. Oti fyrir
sást brak úr vélinni á floti og
annað aðalhjólanna maraði í
kafi. Ógreinilega sást í væng-
ina undir haffletinum. Um kl.
15.30 í gær var lítið að sjá á
staðnum, en ásókn á staöinn
haföi verið mikil og bægöi lög-
reglan fólki burtu eftir megni,
enda staðurinn mjög' hættuleg-
ur yfirferðar.
Þegar slysið varö var á vakt
í flugturninum á Vestmanna-
eyjaflugvelli Bjarni Herjólfsson,
flugumsjónarmaður. Fréttamað-
ur hitti Bjarna aö máli í flug-
turninum í gær. Honum sagöist
svo frá m. a.:
„Kl. 17.36 er mér tilkynnt að
TF-AIO hafi farið til Vest-
mannaeyja í sjónflug, og yfir
Sigurður frá Draumbæ og Oddur á Lyngfelli ben da yfir Kinnina, þar sem flugvélin flaug yfir mjög
lágt. Skömmu síðar heyrðist dynkurinn. Vélin haföi þá snúið við og rekizt á fjallið.
fjallgaröinum hef ég samband
við hann og þá er svartasnjó-
koma hérna, óvenjustórar
flygsur. Hann fær nú uppgefið
LOKAÐ á vellinum, en hann
kveðst halda áfram og sjá til,
telur auðsjáanlega aö þetta sé
stutt él.
Síðan tilkynnir hann mér yfir
Þrídröngunum 17.56 og segist
sjá þá. Ennþá er snjókoma mjög
dimm hér og segi ég honum
loftþyngdina hér viö brautina
og stillir hann hæöina inn hjá
sér og hann fær aftur aö allt sé
lokað hér; einnig að ég sjái
ekki lengur farþegaskýliö á
vellinum, sem er í ca. 300 metra
fjarlægð frá flugturninum til
austurs. Kl. 18.05 segist hann
sjá smáeyjar og klettana þar,
þ.e. Blátind og Hvalfjallið, aftur
á móti sé ég það ekki. Svo
kemur að hann segist kl. 18.08
vera fyrir vestan Eyjar og held-
ur áfram. Hann segist sjá klett-
ana. Þá fær hann vindstöðuna,
hvaða braut er f notkun og
hæðarmæli. Þá er fíngerðari
snjór kominn. Svo tilkynnir
hann mér ekkert, en ég sé hann
í krappri beygju kl. 18.10 hérna
suður af og engu líkara en hann
hafi komið inn undir endann á
austur-vestur brautinni og mér
fannst þetta mjög kröpp beygja
af Douglas-vél að vera. Svo sé
ég ekki meira til hans."
Bjarni kallaði síðan á flugvél-
ina á öllum tiltækum bylgjum,
en tókst ekki. Fór hann aö kalla
þegar eftir að hann sá hana I
beygjunni, en fékk ekkert svar.
Það var ekki fyrr en um 18.30
að Bjarna var tilkynnt um slys-
ið frá Lyngfelli og hafði maður
þar heyrt dynkinn, er vélin lenti
á fjallinu. Lét Bjarni þá rétta
aöila þegar vita um slysið og
kom björgunarsveit á vettvang
mjög fljótlega svo og bátar á
sjó. Á sjúkrahúsinu var allt til
reiöu ef ske kynni að menn
heföu komizt af.
Framh. á b)s 10
Itahka sýningin
opnuð í gær
Frá slysstaðnum. Björgunarsveitin að róta vélarleifum fram af bjargbrúninni
Stálu 3 kg af kararn
„La Linea Italiana" ítalska vöru-
sýningin var opnuð í gær í Há-
skólabíói og mun standa þar yfir
næstu tíu daga. I sambandi við sýn-
inguna hefur öll miðborgin verið
skreytt veifum í ítölsku fánalitun-
um, verzlunargluggar allmargir
hafa einnig veriö skreyttir eins og
vegfarendur hafa tekið eftir. en aö
lokinni sýningu veröur þeim veitt
verðlaun er hefur fallegustu glugga
skreytinguna aö dómi nefndar.
Á morgun flytur ítalski prófess-
orinn Marco Scovazzi erindi um
ítalska og íslenzka menningu á
vegum Háskóla íslands.
Sýningin f Háskólabíói er opin
næstu daga frá kl. 11—23 daglega,
•' sambandi við hana veröa tízku-
sýningar, kynningar á ítölskum
réttum o. fl„ sem getið verður um
síðar.
Sýningin í Listasafninu
— gáfu sig fram v/ð lögregluna daginn eftir
í fvrrinótt var ráðizt að útidyr-
um Kaupfélagsins í Sandgerði og
unmð á sérstaklega styrktri plast-
rúðu með grjóthnullungi. Dymar
voru síðan opnaðar og farið um
verzlunina með nokkrum bægsla-
gangi. Málningardolhim var velt
um koll, svo að búðargólfið var
állt löðrandi 1 málningu, þegar
Sandgerðingar komu til þess aö
kaupa mjólkina í gærmorgun. Enn
frémur var farið inn á lagerinn
og skemmdar leiðslur í sambandi
viö íshólf þar, og fleira.
Hér voru á ferðinni tveir sjó-
arar, illa drukknir að eigin sögn
og höföu þeir með sér úr inn-
brotinu þrjú kíló af karamellúm,
og nokkur karton af sígarettum.
— Karamellurnar fundust á tröpp
unum hjá öðrum þeirra um morg-
uninn, en hann mun sjálfur hafa
gefið sig fram við lögregluna, seg-
ist ekki muna nóttina og spurði
hvort hann .hefði stoliö einhverju.
Talsvert mun vera um fyllirík á
frídögum í Sandgerði eins -og víð-
ar i verstöðvum á þessum tíma
og slark, þegar versc lætur.
Um þessar mundir stendur yfir
í Listasafni Islands sýning á verk
um nokkurra listamanna af eldri
kynslóðinni. Eru þar sýnd verk
Nínu Sæmundsson, Gunnlaugs
Blöndal, Guðmundar Einarssonar,
Finns Jónssonar, Jóns Þorleifsson-
ar, Sveins Þórarinssonar, Magnúsar
i Árnasonar, Eggerts Laxdal, Krist-
I jáns H. Magnússonar, Ólafs Túbals,
iÁsgeirs Bjarnþórssonar, Höskuldar
i Björnssonar, Karen A Þórarinsson,
Freymóðs Jóhannessonar og Krist
ins Péturssonar.
Sýningin var opnuð 8. apríl s.l
og verður lokaö 21. maí. Þegat
hafa séð hana 1255 gestir. Sýn
ingin er opin laugardaga og sunnu
daga kl. 1.30—6 s.d. og þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 1.30—i s.d
Nú er komin út sýningarskrá, sem
m. a. hefur að geyma æviatriði
listamannanna, sem eiga verk á
sýningunni.